www.expectus.is
Open in
urlscan Pro
35.172.94.1
Public Scan
Submitted URL: https://expectus.is/
Effective URL: https://www.expectus.is/
Submission: On November 12 via api from US — Scanned from US
Effective URL: https://www.expectus.is/
Submission: On November 12 via api from US — Scanned from US
Form analysis
0 forms found in the DOMText Content
* Heim * Um okkur * Þjónustan * Stefnumótun og markmiðasetning * Lifandi mælikvarðar * Nútímagagnavinnsla * Umsagnir viðskiptavina * Mælaborð * Námskeið * Tableau grunnur * exMon grunnur * PowerBI grunnur * Fréttir * Vinnustaðurinn Senda skilaboð * Heim * Um okkur * Þjónustan * Stefnumótun og markmiðasetning * Lifandi mælikvarðar * Nútímagagnavinnsla * Umsagnir viðskiptavina * Mælaborð * Námskeið * Tableau grunnur * exMon grunnur * PowerBI grunnur * Fréttir * Vinnustaðurinn Hafðu samband UPPLÝSTUR REKSTUR Í nútímarekstri er rík krafa að geta byggt ákvarðanir á gögnum. Expectus er tæknifyrirtæki sem gerir þitt starfsfólk að gagnahetjum. Hafðu samband * GAGNADRIFINN ÁRANGUR 16. nóvember | Hilton Nordica SKRÁNING * STEFNUMÓTUN Við hjálpum til við að móta framtíðarsýn og koma henni í framkvæmdir með viðurkenndum aðferðum Hafa Samband * ÞINN REKSTUR SKIPTIR OKKUR MÁLI Þegar þú dafnar döfnum við með þér Hafa samband * UPPLÝSTUR REKSTUR Í nútímarekstri er rík krafa að geta byggt ákvarðanir á gögnum Expectus er fyrirtæki sem gerir þitt starfsfólk að gagnahetjum Hafa samand ÞINN SAMSTARFSAÐILI Í STAFRÆNNI UMBREYTINGU BREYTINGAR HAFA ORÐIÐ Á FYRIRTÆKJAMARKAÐI VARÐANDI GÖGN OG NÝTINGU ÞEIRRA TIL ÁKVARÐANATÖKU. Ríkari krafa er gerð til að nálgast rauntímagögn með auðveldum og aðgengilegum hætti, sem skilar sér í betri og upplýstari ákvarðanatöku þvert á rekstrareiningar fyrirtækja. Stafræn umbreyting gerir kröfu um skýra sýn stjórnenda á hvaða árangri skuli ná og hvaða skref verði að taka til að komast þangað. Þjónusta Expectus byggir á áratuga reynslu á þessu sviði og aðferðafræði sem þróuð hefur verið í nánu samstarfi við stærstu fyrirtæki landsins. STEFNUMÓTUN OG INNLEIÐING Við greinum núverandi rekstrarumhverfi í samvinnu við stjórnendur og komum auga á tækifæri. Við mörkum stefnu til framtíðar með skilgreindum mælanlegum markmiðum í átt að auknum árangri og aðstoðum við innleiðingu stefnu með viðurkenndum aðferðum. NÚTÍMA GAGNAVINNSLA Við teiknum upp stafræna innviði og aðstoðum við val á réttum lausnum. Við söfnum gögnum úr mismunandi kerfum í vöruhús gagna og tryggjum að gæðum og áreiðanleika þeirra sé viðhaldið. Við gerum ólíkum kerfum kleift að tala saman og smíðum undirstöður fyrir sjálfvirka og stafræna ferla. LIFANDI MÆLIKVARÐAR Við hönnum skýrslur og mælaborð sem byggja á skýrum rauntímaupplýsingum. Við gerum starfsfólki fyrirtækja fært að sjá og skilja gögnin og öðlast innsýn sem bætir ákvarðanatöku. Sjá nánar þjónustuliði VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HÉR ERU DÆMI UM OKKAR HELSTU VIÐSKIPTAVINI. VIÐ VINNUM MEÐ YFIR 200 FYRIRTÆKJUM Í AÐ NÁ VARANLEGUM ÁRANGRI Í REKSTRI MEÐ GAGNADRIFINNI ÁKVARÐANATÖKU. MÆLABORÐ VIÐ VILJUM AÐ GÖGN SÉU SETT FRAM Á SKÝRAN OG AUÐLESANLEGAN HÁTT UPPLÝSTARI ÁFENGISKAUP 10 Nov, 2022 Nýjasta mælaborðið frá Expectus er unnið upp úr gögnum frá Áfengis og tóbaksverslun ríkisins. Með ÁTVR mælaborðinu geta notendur borið saman verð og vínanda í þeim fjölmörgu tegundum áfengis sem fást hjá ÁTVR. Þannig er hægt að bera saman lítraverð og átta sig á lítraverði með tilliti til vínanda í drykknum. Þannig geta neytendur gert upplýstari áfengiskaup NÝTT OG BETRA JARÐSKJÁLFTAMÆLABORÐ 03 Aug, 2022 Sérfræðingar Expectus smíðuðu mælaborð í Tableau byggt á jarðskjálftagögnum frá Veðurstofu Íslands sem eru unnin í exMon. KAUPSKRÁ FASTEIGNA By Kristinn Magnússon • 16 May, 2022 Á dögunum setti Expectus saman nýtt mælaborð á vefinn, Kaupskrá fasteigna . Þar er hægt að sjá yfirlit yfir alla þinglýsta samninga um kaup á íbúðum, einbýlishúsum, sumarbústöðum og lóðum á öllu landinu, og flokka eftir ýmsum leiðum, svo sem meðaltal á fermetra eftir götum, hverfum og landshlutum, eða dýrustu eignirnar. Mælaborðið var sett saman með því að nota Tableau-forritið sem er ein vinsælasta hugbúnaðarlausnin sem Expectus býður upp á, og Kristinn Már Magnússon tæknistjóri segir það sett saman til upplýsingagjafar og hægðarauka fyrir almenning. Í kaupskránni er ekki bara hægt að flokka eftir póstnúmerum og landshlutum, heldur líka smærri einingum, en þjóðskrá skiptir landinu öllu í 206 svæði með 1500 íbúa hvert. „Þá ertu kominn með samanburðarhæfar einingar, ef þú ert í miðbænum eru hverfin mjög lítil, stærri í úthverfunum,“ segir Kristinn Már. Að sögn Kristins geta þessar upplýsingar komið að góðum notum fyrir fólk í kaup- eða söluhugleiðingum, til dæmis til þess að bera saman verð á húsum innan sama hverfis. Það sé meðal annars hægt að slá inn götuna sína og sjá meðalverð á fermetra, miðað var aðrar í nágrenninu. Hann segir að það sé leikur einn að setja upp mælaborð eins og þessi með Tabeau-hugbúnaðinum. „Hann gerir hverjum sem er kleift að flokka og greina gögn, og setja þau fram á myndrænan og auðskilinn hátt.“ Sýna eldri fréttir TRAUSTIR SAMSTARFSAÐILAR FRÉTTIR TAKTU GAGNADRIFNAR ÁKVARÐANIR MEÐ TABLEAU 20 Oct, 2023 Hálfs dags ráðstefna Expectus á Hilton Reykjavik Nordica. Fimmtudaginn 16. nóvember nk. býður hugbúnaðarfyrirtækið Expectus til mjög svo spennandi morgunverðarfundar á Hilton Nordica þar sem gestum verður veitt innsýn með raunverulegum dæmum um hvernig hægt er að nýta Tableu hugbúnaðinn til gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Þar munu þeir Jón Árni Traustason frá VÍS og Guðmundur Helgason frá CCP Games, sem báðir eru sérfræðingar í nýtingu gagna, miðla af reynslu sinni varðandi innleiðingu lausnanna frá Tableau og kynna hvernig þeirra fyrirtæki hafa nýtt hugbúnaðinn undanfarin ár til að umbreyta gögnum í verðmæti. UPPLÝSTARI ÁFENGISKAUP 10 Nov, 2022 Nýjasta mælaborðið frá Expectus er unnið upp úr gögnum frá Áfengis og tóbaksverslun ríkisins. Með ÁTVR mælaborðinu geta notendur borið saman verð og vínanda í þeim fjölmörgu tegundum áfengis sem fást hjá ÁTVR. Þannig er hægt að bera saman lítraverð og átta sig á lítraverði með tilliti til vínanda í drykknum. Þannig geta neytendur gert upplýstari áfengiskaup ENDURHUGSUM ÁÆTLUNARFERLIÐ 04 Nov, 2022 Tenging markmiða og árangurs Í því samfélagi sem við búum í hefur talsvert verið rætt og ritað um hvað þarf til þess að ná auknum árangri. Almennt er það samþykkt sem staðreynd að líkur á árangri aukist þegar sett eru skýr markmið og þeim fylgt eftir á skilvirkan hátt. Oft er það þó þannig að þau markmið sem við viljum helst ná, hvort sem það er í einkalífi eða vinnu, gera kröfur um breytingar á hegðun eða ferlum til þess að hægt sé að ná þeim. Okkar stærsta hindrun er því sú staðreynd að við sem einstaklingar erum yfirleitt frekar léleg í að tileinka okkur breytta hegðun sem getur gert okkur erfitt fyrir að ná þeim markmiðum sem við viljum ná. Rannsóknir sem snúa að mannlegri hegðun hafa sýnt að líkurnar á árangri aukast þegar hægt er að brjóta þessi markmið niður í smærri einingar og að skýr tenging sé á milli þeirra og daglegra verkefna. „Það er aðeins ein leið til að borða fíl, einn bita í einu“ (Desmund Tutu). Áætlanargerð sem hluti af árangri Þessa dagana fer fram árleg áætlunargerð hjá íslenskum fyrirtækjum, vinna sem oftar en ekki er unnin um kvöld og helgar meðfram öðrum verkefnum. Vandinn við þessa annars ágætu jólahreingerningu er að hún gerir kröfu um mikla Excel handavinnu, tekur tíma frá daglegum verkefnum stjórnenda en fer samt oft ekki lengra en inn í samantekt niður á bókhaldslykla og PowerPoint-kynningu fyrir stjórn. Þar sem dagleg verkefni hafa safnast upp á meðan þessi vinna fer fram, þá er sjaldnast tími gefinn til þess að tengja saman forsendur við lokatölur áætlunar. Þetta þýðir að sviptingar á markaði, eins og verðbólga, gengisbreytingar eða kjaraviðræður, gera það að verkum að áætlunin getur fljótt orðið úreld, jafnvel gleymist hvaða forsendur lágu að baki henni og því of tímafrekt að endurgera áætlunina samkvæmt núverandi ferli. Til þess að auka líkurnar á því að áætlunin raungerist þarf að brjóta hana niður og tengja við dagleg verkefni starfsfólks. Það eru hins vegar fáir sem tengja dagleg verkefni við upphæðir á bókhaldslyklum. Sú áætlun sem verið er að framleiða í flestum íslenskum fyrirtækjum þessa stundina missir því of oft af því tækifæri að geta orðið vegvísir í átt að auknum árangri og verður í staðinn líkara óskhyggju í PowerPoint-kynningum stjórna fyrirtækja. Breytingar í rekstrarumhverfi Í grein sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey birti nýverið voru taldir til nokkrir undirliggjandi þættir sem eru að breyta rekstrarumhverfi fyrirtækja og umbreyta stjórnun til frambúðar. Einn þeirra þátta er sú staðreynd að allt er orðið tengt í dag sem þýðir að ytri atburðir hafa áhrif á alla markaði. Við höfum fundið töluvert fyrir þessum sviptingum síðustu ár, t.d. með COVID-19, Úkraínustríðinu og núna nýjustu verðbólguskotunum. Þessi sífelldi ófyrirsjáanleiki er orðinn staðreynd sem fyrirtæki þurfa að læra að vinna með. Þetta gerir kröfur um innviði sem gera þeim kleift að bregðast hraðar við en þau hafa getað gert áður. Annar af þessum undirliggjandi þáttum er að það eru að eiga sér stað tæknibreytingar sem eru að endurskilgreina hvernig virði verður til í starfsemi fyrirtækja. Þetta þýðir að hlutverk starfsfólks er ekki að haga sér eins og vélar og bíða eftir skipunum að ofan, heldur að hugsa sjálfstætt og bregðast hratt við þegar aðstæður breytast. Þeirra hlutverk verður að nýta gögn og upplýsingar til að umbreyta ferlum og fyrirkomulagi og veita tímanlega ráðgjöf og þjónustu til sinna innri og ytri viðskiptavina. Þegar horft er til áætlunarferla fyrirtækja, þá gera þessar breytingar kröfur um að ferlið sé uppfært á þann hátt að auðveldara verði að endurskoða áætlunina þegar forsendur breytast, eða nýjar sviðsmyndir verða til, ásamt því að auðveldara þarf að vera að koma þessum markmiðum í framkvæmd og inn í dagleg verkefni starfsfólks. Eins og í öðrum viðskiptaferlum, hafa nútímafyrirtæki farið þá leið að uppfæra sín áætlunarferli með hugbúnaðarlausnum sem einfalda vinnu stjórnenda. Þessar uppfærslur gera þeim kleift að rýna, greina og taka ákvarðanir, í staðinn fyrir að eyða öllum sínum tíma í að safna saman og slá inn gögn í dauð Excel-skjöl. Þeirra tími nýtist því í það að hugsa, horfa fram á við og fylgja markmiðum eftir, í staðinn fyrir að bíða eftir fyrirmælum, skila inn áætlun og sjá hana svo ekki aftur fyrr en fjárhagslyklar liðinna mánaða eru bornir saman við úrelda áætlun. Nútímavæðing árangursferla Expectus hefur síðustu 13 ár einbeitt sér að því að aðstoða íslensk fyrirtæki við að ná auknum árangri með því að nýta gögn til ákvarðanatöku. Í dag eru um 200 viðskiptavinir sem nýta sér ráðgjöf og tækni frá Expectus til þess að bæta yfirsýn í rekstri, skilgreina skýr markmið og koma þeim í framkvæmd í gegnum daglegar skýrslur og greiningar til stjórnenda og starfsfólks. Expectus býr yfir áratuga reynslu í því að aðstoða fyrirtæki við að endurhanna áætlunar- og árangursferla ásamt því að bjóða upp á fjórar sérhæfðar hugbúnaðarlausnir sem stuðla að uppfærðum áætlunarferlum. Fyrir Smærri fyrirtæki: Advise Meðalstór fyrirtæki: Kepion og BizView Stór fyrirtæki: Workday Adaptive Forsenda árangurs er skýr markmiðasetning og stöðug eftirfylgni. Flest íslensk fyrirtæki hafa hafið þá vegferð að uppfæra viðskiptaferla sína til þess að geta brugðist við áskorunum samtímans. Það sem mörg þeirra eiga eftir, er að huga að uppfærslu á árangursferlinu sem í daglegu tali er kallað áætlunargerð. Sýna eldri fréttir VIÐ SKILUM ÞÉR MÆLANLEGUM ÁRANGRI RÁÐGJAFAR OKKAR HAFA ÁRALANGA REYNSLU Í AÐ VINNA MEÐ STJÓRNENDUM FYRIRTÆKJA OG STOFNANA Í AÐ MÓTA OG INNLEIÐA GAGNADRIFNA MENNINGU. HAFÐU SAMBAND TIL AÐ HEFJA ÞÍNA VEGFERÐ. Hafðu samband eða Hringdu HAFÐU SAMBAND EXPECTUS SUÐURLANDSBRAUT 10 108 REYKJAVÍK SÍMI: 444 9800 KENNITALA: 481208-0920 VSK NÚMER: 100042 NETFANG: EXPECTUS@EXPECTUS.IS GAGNLEGIR HLEKKIR * Heim * Námskeið * Þjónustan * Fréttir * Námskeið * Persónuverndaryfirlýsing * Heim * Námskeið * Þjónustan * Fréttir * Námskeið * Persónuverndaryfirlýsing FYLGSTU MEÐ HALTU ÞÉR UPPLÝSTUM -------------------------------------------------------------------------------- © 2023 Öll réttindi áskilin | Expectus Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar, sjá nánari í persónuverndarstefnu. × Share by: