frimann.is Open in urlscan Pro
46.101.37.213  Public Scan

Submitted URL: http://orlof.is/
Effective URL: https://frimann.is/
Submission: On April 15 via api from US — Scanned from IS

Form analysis 0 forms found in the DOM

Text Content

 Eiginleikar

 * Um Frímann
 * Umsýsla orlofseigna
 * Félagakerfi
 * Ferðaávísun
 * Umsóknir og styrkir
 * Sölukerfi
 * Afslættir
 * Þjónustusíða


FRÍMANN ER STÆRSTA ORLOFS- OG FÉLAGAKERFI Á ÍSLANDI

SÉRSMÍÐAÐAR LAUSNIR FYRIR ÖLL FÉLÖG OG STOFNANIR

Áreiðanleiki og öryggi

Þjónusta og ráðgjöf

Yfir 20 ára reynsla


UM FRÍMANN



Frímann er alhliða þjónustukerfi sem er sérhannað fyrir íslensk félagasamtök og
tekur á öllum lykilþáttum í rekstri þeirra. Kerfið er afrakstur 20 ára náins
samstarfs við fjölda félaga og er ætlað að uppfylla þarfir félagasamtaka með
sérhæfðum lausnum. Frímann býður upp á innsýn í mikilvæg gögn, sjálfvirka ferla
og persónusniðna notendaupplifun, sem gerir félagasamtökum kleift að byggja upp
sterkari tengsl við félagsfólk sitt og styðja við þarfir þeirra á markvissan
hátt.

Þjónusta

Frímann veitir heildstæðar lausnir sem byggja á áratugalangri reynslu og
sérþekkingu á þjónustu við félagasamtök. Alhliða ráðgjöf, þjónusta og aðstoð við
daglega notkun á Frímann kerfinu er innifalin í gjaldinu.

Notendaupplifun

Góð notendaupplifun hefur verið höfð að leiðarljósi í þróun Frímanns. Með því
hefur verið stuðlað að einfaldara viðmóti fyrir notendur og lægra flækjustigi.
Allt viðmót í kerfinu er sérsniðið til að mæta þörfum og væntingum notenda.

Einingabyggt

Frímann er einingabyggt kerfi þar sem hægt er að raða saman mismunandi
kerfiseiningum eftir þörfum viðskiptavina. Þeir geta valið þær stafrænu lausnir
sem þeim hentar. Þannig er kerfið sniðið að þörfum hvers og eins viðskiptavinar.

Auðkenning

Til að tryggja að réttur aðili sé að skrá sig inn í kerfið fer öll innskráning í
gegnum innskráningarþjónustu Auðkenni ehf. Þetta eykur öryggi og kemur í veg
fyrir innskráningar á fölskum forsendum.

Greiðslumiðlar

Hægt er að velja þann greiðslumiðlara sem viðkomandi viðskiptavinur notar til
greiðslumiðlunar. Þetta tryggir skjóta og örugga meðhöndlun á greiðslum, hvort
sem er fyrir leigu, vörur eða aðra þjónustu.

Réttindastýring

Nákvæm stjórnun á aðgangi innan kerfisins tryggir að aðeins starfsfólk með
viðhlítandi réttindi hefur heimild til að meðhöndla viðkvæm gögn. Þetta er
lykilatriði þegar kemur að því að tryggja öryggi þeirra gagna sem eru geymd í
kerfinu.

Vefþjónusta (API)

Vefþjónustan í kerfinu gerir viðskiptavinum kleift að tengja saman og auðvelda
samskipti milli mismunandi kerfa. Þannig geta viðskiptavinir auðveldlega samþætt
og sérsniðið þjónustu kerfisins til að mæta sérstökum þörfum og kröfum.

Öryggi & afritun

Frímann er byggður með öryggi í forgrunni. Það felur í sér víðtækar ráðstafanir,
þar á meðal dulkóðun gagna í ISO-vottuðu gagnaveri, netöryggi og
aðgangsstýringu. Afritun er framkvæmd sjálfkrafa og reglulega sem tryggir öryggi
gagna.

Þróun og uppfærslur

Kerfið er í stöðugri þróun og er uppfært reglulega til að tryggja hámarksafköst,
innleiða nýjungar og auka ánægju notenda. Áhersla er lögð á stöðugar endurbætur
og þróun nýrra lausna til að mæta breytilegum þörfum viðskiptavina.

GDPR

GDPR-löggjöf er mikilvægur þáttur sem tryggir samræmi við alþjóðlega
persónuverndarlöggjöf. Með því að fylgja ströngum kröfum GDPR er tryggt að
persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar með virðingu fyrir einkalífinu að
leiðarljósi.

Tungumál

Frímann er hvoru tveggja hægt að stilla á íslensku eða ensku og nær það yfir öll
notendaviðmót kerfisins. Ekki nóg með það heldur er hægt að hafa allan texta sem
settur er inn í kerfið á báðum tungumálum.

Snjalltæki

Notendaviðmótið í kerfinu er hannað til að hámarka þægindi og skilvirkni, með
áherslu á bæði sveigjanleika í vinnslu, og þjálli upplifun fyrir allar
skjástærðir, síma og spjaldtölvur.


UMSÝSLA ORLOFSEIGNA



Vegna sérstakra þarfa íslenskra félagasamtaka í rekstri orlofseigna, hefur verið
þróuð sérsniðin kerfiseining. Þessi kerfiseining tekur á öllum þáttum sem skipta
máli, þar með talið flóknum regluverkum og verðlagningu, réttindum félagsmanna,
auk meðhöndlunar á umsóknum og úthlutunum. Með þessari heildstæðu nálgun er
tryggt að rekstur orlofseigna sé bæði skilvirkur og árangursríkur.



Umsýsla

Skráning og umsýsla eigna gerir viðskiptavinum kleift að skrá eignir þar sem
fram koma ítarlegar upplýsingar um stærð, aðbúnað, herbergjaskipan, myndir,
samninga, framboði á leigu, lyklageymslu, aukaþjónustu og upplýsingar um
umsjónarmenn.

Bókunaryfirlit

Bókunaryfirlitið í kerfinu býður upp á heildarsýn yfir allar bókanir og stöðu
þeirra sem eru uppfærðar í rauntíma. Stjórnendur geta sjálfir bókað eignir,
framkvæmt greiðslur, hætt við bókanir og framkvæmt endurgreiðslur og skoðað
nákvæmar upplýsingar um hverja bókun. 

Reglusmiður

Reglusmiðurinn í Frímanni er mjög öflugt verkfæri sem veitir viðskiptavinum
einstakan sveigjanleika til að sérsníða flóknar bókunarreglur. Hann tryggir að
hægt sé að uppfylla allar þær ólíku þarfir og reglur sem viðskiptavinir hafa.


Leigutímabil

Frímann býður upp á mjög sveigjanlega stjórnun á leigutímabilum. Framboð hverrar
eignar er skilgreint sérstaklega, hvort sem er fyrir daglega leigu eða ákveðin
föst tímabil, sem veitir aukinn sveigjanleika við bókun og úthlutun eigna.

Umsjónarmenn

Hægt er að tengja einn eða fleiri umsjónarmenn við hverja eign í kerfinu sem
veitir þeim góða yfirsýn. Umsjónarmenn fá sitt eigið notendaviðmót innan
kerfisins, þar sem þeir geta skoðað viðkomandi upplýsingar um þá sem dvelja í
eignunum eða eru væntanlegir.

Samningar

Frímann er með öflugan samningasmið sem gerir viðskiptavinum kleift að búa til
sérsniðna samninga og vista sem sniðmát. Þessi nálgun veitir viðskiptavinum
öfluga leið til að smíða sína eigin sérsniðnu samninga fyrir hverja leigu.

Yfirlitsdagatal

Yfirlitsdagatalið í Frímanni er kraftmikið verkfæri fyrir stjórnendur til að fá
heildaryfirlit yfir allar eignir og bókanir undir þeirra stjórn. Dagatalið
stuðlar að bættu skipulagi og auðveldar stjórnendum að halda utan um bókanir og
nýta eignirnar á sem hagkvæmastan hátt.

Umsóknir og úthlutanir

Í Frímanni er hægt að búa til sérstök umsóknartímabil, þar sem félagsmenn geta
sótt um valdar eignir á tilteknum tímabilum. Að loknu umsóknarferlinu fer fram
úthlutun af hálfu stjórnanda félagsins, sem ráðstafar eignum til félagsmanna
byggt á punktastöðu.

Virkir félagsmenn
185.000+

Leigusamningar
500.000+


FÉLAGSMENN



Umsýsla á félagsmönnum er einn af lykilþáttum Frímanns en umfang félagsmannsins
í kerfinu fer eftir því hvaða aðrar kerfiseiningar eru virkar. Í grunninn veitir
kerfið yfirlit yfir grunnupplýsingar félagsmanns eins og mynd, kennitölu, nafn,
aldur, tölvupóstföng, persónuverndarstillingar, símanúmer, heimilisföng,
bankareikning og hvaða hópum hann tilheyrir.

Hópar

Hægt er að flokka félagsmenn í ýmsa hópa innan kerfisins, með möguleika á að
stofna dýnamíska hópa sem uppfærast sjálfkrafa eftir settum reglum. Þá er einnig
möguleiki að skilgreina gildistíma fyrir hópa, sem tryggir að hópurinn renni út
eftir tiltekinn tíma.

Inneignir

Umsýsla inneigna býður stjórnendum upp á að skoða ítarlega sögu inneigna
félagsmanna, þar með talið allar breytingar sem gerðar hafa verið, hver stóð að
baki þeim og nákvæma tímasetningu. Allt þetta stuðlar að auknu gagnsæi.

Styrkir

Við virkjun félagakerfis dk opnast möguleikinn á að skoða yfirlit yfir alla
styrki sem félagsmaðurinn hefur sótt um. Í þessu yfirliti eru nákvæmar
upplýsingar um hverja umsókn, þar með talið hvenær hún var gerð, hver staða
hennar er, og upphæðin sem sótt er um.

Vörukaup

Ítarlegt yfirlit yfir allar vörur sem félagsmaðurinn hefur í gegnum sölutorgið,
þar á meðal valkosti eins og Veiðikortið, Útilegukortið, og flugmiða. Þetta
gerir stjórnendum kleift að skoða hver kaup, þ.m.t. greiðslustöðu vörunnar,
greiðslumáta og afhendingarstöðu.

Skilagreinar

Með virkjun félagakerfis dk býður kerfið upp á aðgengi að skilagreinum, þar sem
hægt er að skoða greiðslur félagsmanna til félagsins. Þetta felur í sér yfirlit
yfir greiðslutímabil, hvaðan skilagreinin kemur, upphæð hennar og staðfestingu á
greiðslu.

Samkeyrsla við dk

Félagsmenn eru samkeyrðir við dk sem tryggir að upplýsingar um félagsmenn eru
stöðugt samstilltar við dk. Þetta felur í sér samræmingu á öllum viðeigandi
upplýsingum um félagsmenn, sem tryggir að bæði kerfin haldi uppfærðum gögnum um
félagsmenn öllum stundum.

Punktar

Yfirlit yfir punkta félagsmannsins veitir stjórnendum yfirlit yfir allar
breytingar á punktastöðu hans. Þar er einnig tilgreint hvenær breytingin átti
sér stað og hver var ástæðan fyrir henni. Stjórnendur geta fengið réttindi til
að bæta við eða draga punkta af félagsmanni handvirkt.

Bókanir

Yfirlit bókanna veita stjórnendum heildaryfirlit yfir allar bókanir og greiðslur
á orlofshúsum innan kerfisins. Stjórnendur geta þannig fylgst með öllum
hreyfingum félagsmannsins varðandi leigu á orlofseignum, allt frá umsókn eða
bókun eignarinnar til lokaafgreiðslu.


FERÐAÁVÍSUN



Frímann gerir félagsmönnum kleift að kaupa ferðaávísanir frá félaginu, sem þeir
geta nýtt til að greiða fyrir gistingu og afþreyingu hjá ýmsum hótelum og
söluaðilum. Þetta kerfi kemur í stað eldri aðferða þar sem félagið keypti
fastmótaða hótelmiða, sem oft takmörkuðu valmöguleika félagsmanna og flæktu
uppgjör við hótelin. Með ferðaávísun geta félagsmenn keypt ávísanir fyrir hvaða
upphæð sem er og nýtt þær til kaupa á vörum frá fjölmörgum samstarfsaðilum.



Samningar við þjónustuveitendur

Félögin geta eftir sínum þörfum gert samninga við fjölda söluaðila sem boðið er
upp á í kerfinu. Þetta opnar fyrir mikinn sveigjanleika í vali á samstarfsaðilum
og gerir félögunum kleift að aðlaga framboðið að þörfum og óskum sinna
félagsmanna.

Uppgjör

Frímann auðveldar uppgjör með því að annast allar greiðslur milli stéttarfélaga
og söluaðila. Þetta fyrirkomulag einfaldar ferlið til muna, þar sem allir aðilar
þurfa einungis að einbeita sér að einu heildaruppgjöri. Slík nálgun dregur úr
flækjustigi og tíma sem fer í uppgjör.

Viðmót fyrir söluaðila

Kerfið býður söluaðilum upp á notendavænt viðmót sem auðveldar kynningu á
þjónustu og sértilboðum. Söluaðilar geta þá sjálfir uppfært og stjórnað
upplýsingum um þjónustu sína og framboð, sem tryggir að félagsmenn hafi réttar
upplýsingar um söluaðilann og hans framboð.

Yfirlit

Frímann býður upp á yfirlitssíðu þar sem félögin geta séð kaup, notkun og
endurgreiðslur sem félagsmenn þeirra hafa framkvæmt. Söluaðilar hafa einnig sitt
yfirlit, sem gerir þeim kleift að skoða alla notkun á þeirra þjónustu. Þetta
tryggir að báðir aðilar hafi nákvæmt og uppfært yfirlit .

Seldar flugávísanir
150.000+

Gististaðir með ferðaávísun
40+


UMSÓKNIR OG STYRKIR



Opnað er fyrir aðgang að styrkjum þegar félagakerfi dk er virkjað, sem gerir það
mögulegt fyrir bæði félagsmenn og stjórnendur að sækja um styrki úr sjóðum
félagsins. Notendur sjá lista yfir allar tiltækar umsóknir fyrir félagsmanninn,
upphæðir sem hægt er að sækja um, og eftirstöðvar styrksins. Þegar tiltekin
umsókn er valin opnast umsóknarform þar sem hægt er að fylla út allar
nauðsynlegar upplýsingar fyrir viðkomandi styrk og hengja viðeigandi skjöl við
umsóknina. Umsóknin er síðan send til úrvinnslu, og geta bæði félagsmaður og
stjórnandi fylgst með framgangi hennar í ferlinu.


SÖLUTORG



Sölutorgið býður félagsmönnum upp á fjölbreytt úrval á rafrænum miðum,
flugávísunum og öðrum varningi. Stjórnendur hafa möguleika á að búa til eigin
vörur eða velja úr vörum frá forskráðum seljendum eins og Veiðikortinu,
Útilegukortinu ásamt flugmiðum ýmissa flugfélaga. Kaupferlið hefur verið gert
einfalt og þægilegt, hvort sem er í gegnum þjónustusíður félagsmanna eða beint í
gegnum kerfið fyrir stjórnendur. Kerfið veitir yfirlit yfir allar seldar vörur
og stöðu afhendingar, auk þess sem það sér um birgðastýringu fyrir hvoru tveggja
félögin og seljendur.



Seldar ferðaávisanir
10.000+

Orlofseignir
700+


AFSLÁTTARKLÚBBUR



Afsláttarklúbburinn veitir þeim stéttarfélögum sem vilja nýta sér þessa þjónustu
tækifæri til að bjóða félagsmönnum sínum afslætti á fjölmörgum stöðum, aðeins
með því að sýna fram á félagsaðild. Einnig er hægt að bjóða félagsmönnum aðgang
að rafrænum félagsskírteinum gegnum þjónustusíðu félagsmanna, í samstarfi við
Smartsolutions. Þetta auðveldar félagsmönnum að nýta sér þá fjölmörgu kosti sem
afsláttarklúbburinn býður upp á, hvort sem er í verslunum, veitingastöðum eða á
öðrum þjónustustöðum.


ÞJÓNUSTUSÍÐA



Þjónustusíða félagsmanna er hönnuð til að félagasamtök geti veitt félagsmönnum
sínum þægilegt og notendavænt yfirlit yfir stöðu sína hjá félaginu og sögu.Þeir
geta bókað orlofseignir, keypt miða, flugávísanir, ferðaávísanir, og sótt um
styrki. Þjónustusíða félagsmanna er kjarninn í að veita félagsmönnum góða
þjónustu og tækifæri til að nýta réttindi sín hjá félaginu á sem skilvirkastan
hátt.



HAFA SAMBAND



Vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt vita meira um Frímann og aðra þjónustu sem
við bjóðum upp á.
Sími 517-7535
dorado@dorado.is

© Dorado ehf 2024