selasetur.is
Open in
urlscan Pro
178.248.20.131
Public Scan
Submitted URL: https://selasetur.is/
Effective URL: https://selasetur.is/is/
Submission: On December 02 via manual from US — Scanned from IS
Effective URL: https://selasetur.is/is/
Submission: On December 02 via manual from US — Scanned from IS
Form analysis
1 forms found in the DOMGET https://selasetur.is/is/
<form role="search" method="get" class="search-form" action="https://selasetur.is/is/">
<label for="search-form-2">
<span class="screen-reader-text"> Leita eftir: </span>
</label>
<input type="search" id="search-form-2" class="search-field" placeholder="Leita …" value="" name="s">
<button type="submit" class="search-submit"><svg class="icon icon-search" aria-hidden="true" role="img">
<use xlink:href="#icon-search"></use>
</svg><span class="screen-reader-text"> Leita </span></button>
</form>
Text Content
Fara að efni SELASETUR ÍSLANDS Icelandic Seal Center Valmynd * Fréttir * Opnunartímar & Verð * Safnið Opna undirvalmynd * Nýting Sela * Rostungasýningin * Minjagripaverslun * Fyrirlestraröð á Selasetrinu * Selir Opna undirvalmynd * Landselur (Phoca vitulina) * Útselur (Halichoerus grypus) * Vöðuselur (Phoca groenlandica) * Blöðruselur (Cystophora cristata) * Hringanóri (Phoca hispida) * Kampselur (Erignathus barbatus) * Rostungur (Odobenus rosmarus) * Ferðamenn Opna undirvalmynd * Sela- og fuglaskoðun Opna undirvalmynd * Ósar/Hvítserkur * Illugastaðir * Tenglar í Húnaþingi vestra og víðar * VisitHunathing.is * Rannsóknir Opna undirvalmynd * Selarannsóknadeild * Ferðamálarannsóknasvið * Birt efni * Rannsóknir – sagan * Íbúakönnun 2022 fyrir Húnaþing vestra * Sjálfbærni Opna undirvalmynd * Umhverfisstefna Selasetursins * Sjálfbærnistefna Selasetursins * Hegðun við selaskoðun * Norðurstrandaleið * Á selaslóðum * Selatalningin mikla * Myndir Opna undirvalmynd * Rostungasýninginn 2022 * Selir * Selasetur Íslands * Selatalningin Mikla 2011 * Um okkur Opna undirvalmynd * Hlutverk og markmið * Starfsmenn * Stjórn * Samstarfsaðilar * Stuðningsaðilar * Stuðningur * Hafa samband * * Hoppa yfir í meginmál FÆRSLUR Birt þann 08/10/202408/10/2024 SÆLJÓN Í HEIMSÓKN Í byrjun ágúst sett Markaðsstofa Norðurlands upp þrjú listaverk á Norðurstrandarleið, sem hluti af því að efla enn frekar áhuga og kynningu á leiðinni. Listaverkin voru unnin af hópi listafólks frá Úkraínu sem kallar sig UNDRUN/Dyvyna DECOR. Verkefnið var unnið í samstarfi við Ferðamálasamtök Norðurlands vestra, með styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Partur af þessu verkefni var sæljón sem sett var upp á Hvammstanga og bjóðum við það velkomið. Vegna framkvæmda verður það á öruggum stað á stéttinni fyrir framan Selasetrið í vetur en endanleg staðsetning verður ákveðin með vorinu. Það má því segja að þó að selurinn sé að sjálfsögðu alltaf í aðalhlutverk hjá okkur, þá fögnum við því að vera núna með bæði styttu af sæljóni og sýningu Náttúruminjasafnins Íslands um rostunga. Birt þann 03/10/202403/10/2024 NÝR SAMSTARFSSAMNINGUR SELASETURS ÍSLANDS OG NÁTTÚRUSTOFU NORÐURLANDS VESTRA Undanfarin ár hafa Selasetur Íslands og Náttúrustofa Norðurlands vestra (NNV) verið í nánu og góðu samstarfi. Hér á Hvammstanga hafa verið staðsettir starfsmenn frá NNV sem hafa verið virkir þátttakendur í því vísindasamfélagi sem hér er. Nýlega var skrifað undir nýjan samstarfssamning Selasetursins og NNV og við hjá Selasetrinu fögnum því innilega að framhald verði á þessu góða samstarfi. Á meðfylgjandi myndum má sjá Starra Heiðmarsson forstöðumann NNV og Örvar B. Eiríksson framkvæmdastjóra Selasetursins við undirritun samningsins. Birt þann 08/09/2024 HEIMSÓKN MATVÆLARÁÐHERRA Selasetur Ísland fékk á dögunum góðan gest þegar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sótti setrið heim. Heimsóknin var liður í vinnuferð ráðherra þar sem hún heimsótti m.a. starfsstöðvar Hafrannsóknastofnunnar á landsbyggðinni. Selasetrið og Hafrannsóknastofnun hafa um árabil unnið mikið saman að selarannsóknum við Ísland en þeim er að mestu sinnt hér á Hvammstanga. Það var bæði gott og gagnlegt að ræða samstarfið, hlutverk Selasetursins og stöðu selastofnsins við ráðherra. Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var á sjaldséðum sólardegi, má sjá ráðherra ásamt Gunnlaugi Ragnarssyni stjórnarformanni Selasetursins, Örvari B. Eiríkssyni framkvæmdastjóri, Hafþóri Magnúsi Kristinssyni starfsmanni og Söndru M. Granquist dýraatferlis- og vistfræðingi. Birt þann 25/08/202425/08/2024 NÝTT STOFNMAT Á ÍSLENSKA ÚTSELNUM Búið er að birta niðurstöður talninga á útsel við Ísland haustið 2022 og má lesa um niðurstöðurnar á heimasíðu Hafrannsóknastofnunnar. Í stuttu máli þá fjölgaði í stofninum um 6,8% en það telst ekki marktæk fjölgun og stendur stofninn því í stað. Telst íslenski útselsstofninn því áfram í áhættuflokknum „í nokkurri hættu“ (e. vulnerable). Sjá nánar: https://www.hafogvatn.is/is/midlun/frettir-og-tilkynningar/stofnmat-a-utsel-vid-island Birt þann 17/07/202417/07/2024 SELATALNINGIN MIKLA HELGINA 27. – 28. JÚLÍ NÁNARI UPPLÝSINGAR Helgina 27.-28. júlí verður Selatalningin mikla haldin á vegum Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Við hvetjum alla til að taka þátt, hvort sem þú ert heimamaður, landeigandi eða ferðamaður á ferð þinni um landið. Strandlengjunni er skipt í mörg svæði þannig að allir ættu að geta fundið sér vegalengd sem hentar. Með þátttöku gefst fólki kostur á að skoða seli í sínu náttúrulega umhverfi. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á selasetur@selasetur.is fyrir kl. 18:00 föstudaginn 26. júlí. Dagskrá: Laugardaginn 27. júlí kl. 17:00-18:00 er afhending gagna, kynning og þjálfun á Selasetrinu. Sunnudaginn 28. júlí kl. 08:00-12:00 fer sjálf selatalningin fram því það er háfjara um kl. 10:00. Talningargögnum er skilað á Selasetrið þegar talningu er lokið. Kaffiveitingar og smá glaðingur að lokinni talningu. Upplýsingar fyrir þátttakendur á vettvangi Það er mikilvægt að telja einungis seli sem eru á þínu svæði svo að hver selur sé aðeins talinn einu sinni. Þú skráir niður alla seli sem þú sérð, hvort sem það er á landi, skeri eða í sjó, auk tímasetningar. Ef hægt er að greina á milli Landssels og Útsels, þá vinsamlegast skráið það líka. Það er mikilvægt að muna að ekki allir sjá seli en það eru jafn mikilvægar upplýsingar. Vinsamlega gangið hljóðlega um því hávaði getur fælt selina áður en þú getur talið þá. Vinsamlegast takið ekki með hund af sömu ástæðu. Vinsamlegast gangið vel um svæðin, gangið ekki yfir ræktuð svæði, virðið girðingar/hlið, ónáðið ekki dýrin og leggið bílum á öruggum stöðum. Það er gott að hafa sjónauka með í för en það er ekki nauðsynlegt til þátttöku. Selasetrið á nokkra sjónauka og það er möguleiki að fá lánaðan sjónauka meðan birgðir endast. ——- Markmið með selatalningunni er að styðja við frekari rannsóknir, með því að afla þekkingar á fjölda sela á þessum slóðum og þróa áfram sjálfbæra ferðamennsku í skoðun villtra dýra. Talningin felst í því að telja seli á Vatnsnesi og Heggstaðanesi, en svæðinu verður skipt upp í mörg misstór svæði (um 2-7km löng) og ættu allir finna allir vegalengd við sitt hæfi. Selatalningin mikla er skemmtileg upplifun og það er vel þess virði að koma og taka þátt í rannsóknarstörfum Setursins. Til upplýsinga Hér er slóð á almennar upplýsingar um selatalninguna miklu frá því árið 2007-2021 á wikipedia. https://Selatalningin_mikla POSTS NAVIGATION Síða 1 Síða 2 … Síða 42 Næsta síða Leita eftir: Leita RECENT POSTS * Sæljón í heimsókn * Nýr samstarfssamningur Selaseturs Íslands og Náttúrustofu Norðurlands vestra * Heimsókn matvælaráðherra * Nýtt stofnmat á íslenska útselnum * Selatalningin mikla helgina 27. – 28. júlí STUÐNINGSAÐILAR * Sóknaráætlun Norðurlands vestra * SSNV – Samtök Sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra * Kaupfélag Vestur Húnvetninga SAMSTARFSAÐILAR * Háskólinn á Hólum * BioPol – sjávarlíftæknisetur * Hafrannsóknastofnun * Náttúrustofa Norðurlands vestra Selasetur Íslands & Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Strandgata 1 og Höfðabraut 6 | Sími: +354 451 2345 | selasetur@selasetur.is Keyrt með stolti á WordPress