www.microsoft.com Open in urlscan Pro
2a02:26f0:7100:99e::356e  Public Scan

Submitted URL: https://go.microsoft.com/fwlink/?LinkId=521839
Effective URL: https://www.microsoft.com/is-is/privacy/privacystatement
Submission: On December 10 via manual from IN — Scanned from IS

Form analysis 0 forms found in the DOM

Text Content

This is the Trace Id: 178df68ad25016add5729021297129a4


Fara í aðalefni
Microsoft
Persónuvernd
Persónuvernd
Persónuvernd
 * Heim
 * Persónuverndaryfirlit
 * Persónuverndarskýrsla
 * Persónuverndarstillingar
 * Persónuverndaryfirlýsing
 * Meira

 * All Microsoft
   
   
    * GLOBAL
      
      * Copilot
      * Windows
      * Xbox
      * Notendaþjónusta
    * Software Software
      * Windows-forrit
      * AI
      * Outlook
      * Microsoft Teams
    * PCs & Devices PCs & Devices
      * Kaupa Xbox
    * Entertainment Entertainment
      * Xbox og leikir
      * PC-leikir
    * Business Business
      * Microsoft Cloud
      * Microsoft Security
      * Azure
      * Dynamics 365
      * Microsoft 365 fyrir fyrirtæki
      * Microsoft fyrir atvinnulífið
      * Microsoft Power Platform
      * Windows 365
    * Developer & IT Developer & IT
      * Developer Center
      * Fylgiskjöl
      * Microsoft Learn
      * Microsoft Tech Community
      * Azure Marketplace
      * AppSource
      * Visual Studio
    * Other Other
      * Ókeypis niðurhal og öryggi
    * View all




YFIRLÝSING UM PERSÓNUVERND FRÁ MICROSOFT

Síðast uppfært: nóvember 2024

Hvaða nýjungar eru í boði?

 

Þú getur tekið eftir nýju útliti. Í ágúst 2024 uppfærðum við persónuvernd okkar
á vefsvæðum Microsoft með nýmóðins hönnun byggðri á öruggum verkvangi. Þú finnur
nú yfirlýsingu Microsoft um persónuvernd á microsoft.com/privacy. Og, eins og
alltaf, þá eru allar grundvallar uppfærslur á persónuvern Microsoft auðkenndar á
síðunni „nýjungar.“


Prenta
Stækka allt Draga allt saman


YFIRLÝSING UM PERSÓNUVERND FRÁ MICROSOFT

 * Persónuupplýsingar sem við söfnum
 * Hvernig við notum persónuupplýsingar
 * Ástæður fyrir deilingu persónuupplýsinga
 * Aðgangur og stjórnun persónugagna
 * Kökur og álíka tækni
 * Vörur frá fyrirtækinu þínu—tilkynning til notenda
 * Microsoft-reikningur
 * Gagnasöfnun frá börnum
 * Aðrar mikilvægar upplýsingar um persónuvernd
   
   Öryggi persónugagna Hvar við geymum og vinnum úr persónugögnum Varðveisla
   okkar á persónugögnum Gagnavernd í ríkjum Bandaríkjanna Auglýsingar
   Talgreiningartækni Forútgáfur eða ókeypis útgáfur Breytingar á þessari
   yfirlýsingu um persónuvernd Hvernig á að hafa samband við okkur
 * Upplýsingar um tilteknar vörur:
 * Gervigreind og möguleikar Microsoft Copilot
 * Vörur fyrir fyrirtæki og þróunaraðila
   
   Enterprise Online-þjónusta Enterprise og Developer hugbúnaður og Enterprise
   Appliances
 * Skipulags- og samskiptavörur
   
   Microsoft 365, Office og önnur skipulagsforrit Microsoft-fjölskylda Microsoft
   Launcher Microsoft Teams OneDrive Outlook Skype Surface Surface Duo LinkedIn
 * Leita og fletta
   
   Bing Microsoft Edge Microsoft Translator SwiftKey
 * Windows
   
   Virkjun Aðgerðaferill Auglýsingaauðkenni Greining Ábendingamiðstöð Aðstoð
   Skjátextar í beinni Staðsetningarþjónusta og upptaka Þulur Símatengill -
   Tengja við Windows Upplifun á milli tækja Öryggi og öryggisaðgerðir Tal,
   Raddvirkjun, Skrift og Innsláttur Stillingar fyrir samstillingu og
   öryggisafritun Uppfærsluþjónusta Vafrar – eldri útgáfa af Microsoft Edge og
   Internet Explorer Windows-forrit Windows Hello Windows Search
 * Skemmtun og tengd þjónusta
   
   Xbox-forritið Microsoft Store Microsoft Start Silverlight Windows Mixed
   Reality




Kökur

Flest svæði Microsoft nota „kökur“, litlar textaskrár settar á tækið þitt, sem
vefþjónar nota á léninu, sem kom kökunni fyrir og getur náð í seinna. Við notum
kökur til að vista val og stillingar þínar, auðvelda innskráningu, útbúa
sérsniðnar auglýsingar og greina aðgerðir á vefsvæðum. Frekari upplýsingar er að
finna í um kökur og svipaða tækni í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Gagnaverndarrammar milli ESB og BNA, viðauki Bretlands, og Sviss og BNA

Microsoft uppfyllir gagnaverndarramma milli ESB og BNA, viðauka Bretlands við
ESB-BNA, og Sviss og BNA. Frekari upplýsingar er að finna í hlutanum Hvar við
geymum og vinnum úr persónuupplýsingum og farðu á vefsíðu bandaríska
viðskiptaráðuneytisins um persónuvernd.

Hafa samband

Ef þú hefur áhyggjur af persónuvernd, kvörtun eða spurningu fyrir öryggisstjóra
Microsoft eða öryggissjóta Evrópusambandsins hafðu þá samband með því að nota  
vefformið okkar . Fyrir meiri upplýsingar um hvernig skal hafa samband við
Microsoft, þar á meðal Microsoft Ireland Limited líttu þá á  Hvernig skal hafa
samband  hluti þessarar persónuverndar yfirlýsingar.

Persónuvernd þín er okkur mikilvæg. Þessi yfirlýsing um persónuvernd útskýrir
persónugögn sem Microsoft vinnur úr, hvernig Microsoft vinnur úr þeim og í hvaða
tilgangi.

Microsoft býður upp á fjölbreytt vöruúrval, þ. á m. netþjónalausnir sem eru
notaðar í rekstri fyrirtækja um allan heim, tæki sem eru notuð á heimilum,
hugbúnað sem nemendur nota í skólum og þjónustu sem þróunaraðilar nota til að
hanna lausnir framtíðarinnar. Þegar vísað er í Microsoft-vörur í þessari
yfirlýsingu nær það einnig til Microsoft-þjónustu, vefsvæða, forrita,
hugbúnaðar, netþjóna og tækja.

Lestu upplýsingar um viðkomandi vöru í þessar yfirlýsingu um persónuvernd þar
sem birtar eru viðeigandi viðbótarupplýsingar. Þessi yfirlýsing gildir um
samskipti sem Microsoft hefur við þig og Microsoft-vörur sem koma fram hér að
neðan og aðrar Microsoft-vörur þar sem þessi yfirlýsing er birt.

Ungt fólk gæti viljað byrja á síðunni Persónuvernd fyrir ungt fólk. Þessi síða
leggur áherslu á upplýsingar sem gætu verið gagnlegar fyrir ung fólk.

Fyrir einstaklinga í Bandaríkjunum, vinsamlegast kynnið ykkur tilkynningu um
persónuvernd í ríkjum Bandaríkjanna og  Persónuverndarstefnu um heilsugögn
neytenda til að fá frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga ykkar og
réttindi ykkar samkvæmt gildandi persónuverndarlögum einstakra ríkja í
Bandaríkjunum. 


PERSÓNUUPPLÝSINGAR SEM VIÐ SÖFNUM

Microsoft safnar gögnum frá þér í gegnum samskipti okkar við þig og í gegnum
vörur okkar. Þú veitir okkur eitthvað af þessum gögnum beint og við fáum
eitthvað af þeim með söfnun á gögnum um samskipti, notkun þína og upplifun af
vörum okkar. Það hvaða gögnum við söfnum fer eftir samskiptum þínum við
Microsoft og vali þínu, þ.m.t. persónuverndarstillingum og þeim vörum og
eiginleikum sem þú notar.

Ef þú ert fulltrúi stofnunnar, t.d. fyrirtækis eða skóla, sem notar Enterprise-
og Developer-vörur frá Microsoft skaltu skoða hlutannEnterprise og Developer
vörurí þessari yfirlýsingu um persónuvernd til að kynna þér hvernig við vinnum
úr gögnunum þínum. Ef þú ert notandi Microsoft-vöru eða Microsoft-reiknings sem
fyrirtækið þitt útvegar skaltu skoða kaflana umvörur frá fyrirtækinu
þínuogMicrosoft-reikninga til að fá frekari upplýsingar.

Þú hefur val þegar kemur að tækninni sem þú notar og gögnunum sem þú deilir. Þú
getur hafnað því þegar við biðjum þig um að gefa upp persónugögn. Margar af
vörum okkar þurfa á sumum persónugögnum að halda til að geta veitt þér þjónustu.
Ef þú velur að gefa ekki upp gögn sem þarf til að veita þér vöru eða eiginleika
geturðu ekki notað þá vöru eða eiginleika. Að sama skapi, í tilfellum þar sem
lög krefjast þess að við söfnum persónugögnum eða þar sem við þörfnumst þeirra
til að gera eða fara eftir samningi við þig, og þú veitir okkur ekki gögnin,
getum við ekki gert samning við þig, eða ef þetta á við um fyrirliggjandi vöru
sem þú notar gætum við þurft að loka fyrir hana tímabundið eða alfarið. Við
tilkynnum þér um það ef þetta er tilfellið á þeim tíma. Þar sem er valfrjálst að
veita gögnin, og þú kýst að deila ekki persónugögnum, munu eiginleikar á borð
við sérsnið sem nota þess háttar gögn ekki virka fyrir þig.

Microsoft safnar gögnum frá þér í gegnum samskipti okkar við þig og í gegnum
vörur okkar af ýmsum ástæðum sem eru útskýrðar hér að neðan, þ. á m. til að
vinna á skilvirkan hátt og veita þér bestu upplifunina af vörum okkar. Þú lætur
okkur fá sum gögnin beint, eins og þegar þú stofnar Microsoft-reikning, notar
leyfisreikning fyrirtækisins, sendir leitarfyrirspurn til Bing, skráir þig í
viðburð á vegum Microsoft, hleður upp skjali á OneDrive, skráir þig fyrir
Microsoft 365 eða hefur samband við okkur til að fá aðstoð. Við fáum eitthvað af
þeim með því að safna gögnum um samskipti þín, notkun og upplifun af vörum okkar
og samskiptum við okkur. Auk þess fáum við gögn frá hlutdeildarfélögum,
dótturfyrirtækjum og þriðju aðilum Microsoft.

Við reiðum okkur á margs konar lagalegar ástæður og heimildir (sem stundum eru
nefndar „lagalegur grunnur“) til að vinna úr gögnum, þ. á m. með þínu samþykki,
samblandi af lögmætum hagsmunum, nauðsyn þess að gera og framfylgja samningum og
því að fylgja lagalegum skyldum, af ýmsum ástæðum sem eru útskýrðar hér fyrir
neðan.

Við öflum einnig gagna frá þriðju aðilum. Við verjum gögn fá þriðju aðilum í
samræmi við það sem fram kemur í þessari yfirlýsingu til viðbótar við allar
takmarkanir sem uppruni gagnanna setur. Þessir þriðju aðilar eru mismunandi
hverju sinni og þar má nefna:

 * Gagnasala sem selja okkur lýðfræðileg gögn til viðbótar við gögnin sem við
   söfnum.
 * Þjónustuveitur þar sem efni frá notendum er aðgengilegt öðrum, t.d. umsagnir
   um fyrirtæki í nágrenninu eða opinberar færslur á samfélagsmiðlum.
 * Samskiptaþjónustur, þ. á m. tölvupóstveitur og netsamfélög, þegar þú veitir
   okkur aðgangsheimild að gögnunum þínum á þess konar þjónustum eða netkerfum
   þriðju aðila.
 * Netþjónustur sem auðvelda okkur að ákvarða staðsetningu tækis þíns.
 * Samstarfsaðila sem nota vöruheiti okkar fyrir þjónustu sína eða eru í
   samstarfi við okkur með markaðssetningu.
 * Þróunaraðila sem búa til upplifanir með eða fyrir vörur Microsoft.
 * Þriðju aðila sem veita upplifuanir með Microsoft-vörum.
 * Heimildir sem eru opnar almenningi, t.d. opin opinber gagnasöfn, fræðileg og
   viðskiptaleg gagnasöfn og aðrar gagnaheimildir.

Ef þú ert fulltrúi stofnunnar, t.d. fyrirtækis eða skóla, sem notar Enterprise-
og Developer-vörur frá Microsoft skaltu skoða hlutann Enterprise og Developer
vörur í þessari yfirlýsingu um persónuvernd til að kynna þér hvernig við vinnum
úr gögnunum þínum. Ef þú ert notandi Microsoft-vöru eða Microsoft-reiknings sem
fyrirtækið þitt hefur útvegað skaltu skoða hlutann vörur frá stofnun þinni og
hlutann um Microsoft- Microsoft-reikninginn til að fá meiri upplýsingar.

Þú hefur val þegar kemur að tækninni sem þú notar og gögnunum sem þú deilir. Þú
getur hafnað því þegar við biðjum þig um að gefa upp persónugögn. Margar af
vörum okkar þurfa á sumum persónugögnum að halda til að geta veitt þér þjónustu.
Ef þú velur að gefa ekki upp gögn sem þarf til að starfrækja eða veita þér vöru
eða eiginleika geturðu ekki notað þá vöru eða eiginleika. Að sama skapi, í
tilfellum þar sem lög krefjast þess að við söfnum persónugögnum eða þar sem við
þörfnumst þeirra til að gera eða fara eftir samningi við þig, og þú veitir okkur
ekki gögnin, getum við ekki gert samning við þig, eða ef þetta á við um
fyrirliggjandi vöru sem þú notar gætum við þurft að loka fyrir hana tímabundið
eða alfarið. Við tilkynnum þér um það ef þetta er tilfellið á þeim tíma. Þar sem
er valfrjálst að veita gögnin, og þú kýst að deila ekki persónugögnum, munu
eiginleikar á borð við sérsnið sem nota gögnin ekki virka fyrir þig.

Það hvaða gögnum við söfnum fer eftir samskiptum þínum við Microsoft og vali
þínu (þ.m.t. persónuverndarstillingum), vörum og eiginleikum sem þú notar,
staðsetningu þinni og gildandi lögum.

Við kunnum að m.a. að safna eftirfarandi gögnum:

nafn og samskiptaupplýsingar. For- og eftirnafn þitt, netfang, heimilisfang,
símanúmer og aðrar sambærilegar samskiptaupplýsingar.

innskráningarupplýsingar. Aðgangsorð, vísbendingar fyrir aðgangsorð og svipaðar
öryggisupplýsingar sem eru notaðar til auðkenningar og til að fá aðgang að
reikningum.

lýðfræðileg gögn. Upplýsingar um þig á borð við aldur, kyn, land og valið
tungumál.

Greiðsluupplýsingar. Gögn sem eru nauðsynleg til að ganga frá greiðslu, eins og
númer greiðslumátans (til dæmis kreditkortanúmer) og öryggiskóðinn sem tengist
greiðslumátanum.

Áskriftir og leyfisgögn. Upplýsingar um áskriftir þínar, leyfi og önnur
réttindi.

samskipti. Upplýsingar um notkun þína á vörum Microsoft. Í sumum tilvikum, til
dæmis ef um er að ræða leitarfyrirspurnir, eru þetta gögn sem þú veitir til að
geta notfært þér vörurnar. Í öðrum tilvikum, til dæmis ef um er að ræða
villuskýrslur, eru þetta gögn sem við búum til. Önnur dæmi um notkunargögn eru
til dæmis:

 * Tækja- og notkunargögn. Gögn um tækið þitt og vörur og eiginleika sem þú
   notar, þ.m.t. upplýsingar um vél- og hugbúnað og afköst varanna, ásamt
   stillingum þínum. Dæmi:
   * Greiðslu- og reikningssaga. Gögn um vörurnar sem þú kaupir og aðgerðir sem
     tengjast reikningnum þínum.
   * leitarferilinn. Gögn um vefsíður sem þú heimsækir.
   * Tæki, tengigeta og grunnstillingar. Gögn um tækið þitt, grunnstillingu
     tækisins og nálæg net. Til dæmis gögn um stýrikerfin og annan hugbúnað sem
     settur hefur verið upp í tækinu þínu, þ.m.t. virkjunarlyklar. Þar að auki
     IP-tala, auðkenni tækis (svo sem IMEI-númer fyrir síma), svæðisbundnar
     stillingar og tungumálastillingar og upplýsingar um WLAN-aðgangsstaði
     nálægt tækinu þínu.
   * Villuskýrslur og gögn um afköst. Við söfnum gögnum um afköst vara og
     vandamál sem þú kannt að lenda í, þar með taldar eru villuskýrslur.
     Villuskýrslur (stundum kallaðar „árekstragagnaskrár“) kunna að innihalda
     upplýsingar um hugbúnaðinn eða vélbúnaðinn sem tengist villu, efni skráa
     sem voru opnaðar þegar villan kom upp og gögn um annan hugbúnað á tækinu
     þínu.
   * Úrræðaleit og hjálpargögn. Gögn sem þú veitir þegar þú hefur samband við
     Microsoft til að fá aðstoð, svo sem vörurnar sem þú notar og aðrar
     upplýsingar sem hjálpa okkur að veita notendaþjónustu. Til dæmis tengiliða-
     eða sannvottunargögn, efni spjalls þíns og annarra samskipta við Microsoft,
     gögn um ástand tækis þíns og vörur sem þú notar sem tengjast fyrirspurn
     þinni um aðstoð. Fylgst er með símtölum eða spjalli við fulltrúa okkar og
     það er skráð þegar þú hefur samband við okkur, til dæmis við
     notendaþjónustuna.
   * Gögn um notkun vélmenna. Samskipti við þjarka og færni sem er í boði í
     gegnum Microsoft-vörur, þ.m.t. þjarka og færni veitt af þriðju aðilum.
 * Áhugamál og eftirlæti. Gögn um áhugamál þín og eftirlæti, eins og það hvaða
   íþróttafélögum þú fylgist með, hvaða forritunarmál þú kýst, hvaða verðbréfum
   þú fylgist með eða hvaða borgum þú bætir við til að fylgjast með hlutum eins
   og veðri og umferð. Til viðbótar við þau sem þú gefur upp er einnig hægt að
   álykta um áhugamál þín og eftirlæti eða leiða þau út frá öðrum gögnum sem við
   söfnum, svo sem samskiptum þínum á vefsvæðum þar sem tækni okkar er notuð til
   að sýna eða mæla auglýsingar.
 * Gögn um notkun. Upplýsingar um hljóð- og myndefni (t.d. sjónvarpsefni,
   myndbönd, tónlist, hljóð, hljóðbækur, forrit og leiki) sem þú notar í gegnum
   vörurnar okkar.
 * Leitir og skipanir. Leitarfyrirspurnir og skipanir þegar þú notar
   Microsoft-vörur með leit eða tengdri skipulagsvirkni, t.d. í samskiptum við
   spjallyrki.
 * Raddgögn. Raddskrárnar þínar, stundum kallaðar „voice clips“, t.d. leitir,
   skipanir eða fyrirmæli frá þér, sem geta innihaldið bakgrunnshljóð.
 * Texta-, handskriftar- og innsláttargögn. Texta-, handskriftar- og
   innsláttargögn og tengdar upplýsingar. Til dæmis söfnum við upplýsingum um
   staðsetningu handskriftarbúnaðar á tækinu þínu þegar við söfnum
   handskriftargögnum.
 * Myndir. Myndir og tengdar upplýsingar á borð við lýsigögn myndar. Til dæmis
   söfnum við myndum sem þú veitir við notkun á Bing-myndaþjónustu.
 * Tengiliðir og tengsl. Gögn um tengiliði þína og tengsl ef þú notar vöru til
   að deila upplýsingum með öðrum, halda utan um tengiliði, vera í samskiptum
   við aðra eða til að auka afköst þín.
 * Samfélagsgögn. Upplýsingar um tengsl og samskipti þín við annað fólk og
   fyrirtæki, á borð við eðli samskiptanna (t.d. hvað þér líkar við og líkar
   ekki við, viðburði, o.s.frv.) sem tengjast fólki eða fyrirtækjum.
 * Staðsetningargögn. Gögn um staðsetningu þína, sem geta annaðhvort verið
   nákvæm eða ónákvæm. Við söfnum t.d. staðsetningargögnum með hnattrænu
   gervihnattaleiðsögukerfi (Global Navigation Satellite System, GNSS) (t.d.
   GPS) og gögnum um nálæga farsímasenda og Wi-Fi-aðgangsstaði. Einnig er hægt
   að álykta staðsetningu út frá IP-tölu tækis eða upplýsingum á notandasíðu
   reiknings sem gefur í skyn grófáætlaða staðsetningu, eins og í hvaða borg eða
   póstnúmeri þú ert.
 * Önnur inntaksgögn. Önnur inntaksgögn sem eru veitt þegar vörur okkar eru
   notaðar. Til dæmis gögn á borð við takkana sem þú notar á þráðlausu
   Xbox-fjarstýringunni með Xbox-netinu, gögn úr hreyfiskynjaranum Kinect og
   önnur skynjaragögn, eins og fjöldi skrefa sem þú tekur, þegar þú notar tæki
   með viðeigandi skynjurum. Ef þú kemur á viðburð í verslun söfnum við þeim
   upplýsingum sem þú veitir okkur þegar þú skráir þig á viðburðinn eða á meðan
   honum stendur, og ef þú tekur þátt í verðlaunakynningu söfnum við gögnunum
   sem þú setur á þátttökueyðublaðið.

Efni. Efni í skrám og skilaboðum sem þú slærð inn, hleður upp, tekur á móti,
býrð til og stjórnar. Ef þú sendir t.a.m. skrá með Skype til annars
Skype-notanda þurfum við að safna efni þeirrar skráar til að birta þér og hinum
notandanum hana. Ef þú færð tölvupóst í gegnum Outlook.com, þurfum við að safna
efni tölvupóstsins til að geta sent hann í innhólfið þitt, sýnt þér hann, gera
þér kleift að svara honum og geyma hann fyrir þig þar til þú velur að eyða
honum. Annað efni sem við söfnum þegar við veitum þér vörur eru:

 * Samskiptaefni, þar með talið hljóðefni, myndefni og texti (ritaður,
   skrifaður, lesinn fyrir eða á annan hátt), í skilaboðum, tölvupósti,
   símtölum, fundarbeiðnum eða spjalli.
 * Ljósmyndir, myndir, lög, kvikmyndir, hugbúnað og annars konar miðla eða skjöl
   sem þú geymir, sækir eða á annan hátt vinnur með í gegnum skýið.

Myndskeið eða upptökur. Upptökur af viðburðum og starfsemi í húsakynnum
Microsoft, í verslunum þess og á öðrum staðsetningum. Ef þú kemur í verslun
Microsoft Store eða annað húsnæði okkar eða sækir viðburð á vegum Microsoft sem
er tekinn upp kunnum við að vinna úr mynd- og raddgögnum þínum.

Athugasemdir og einkunnir. Upplýsingar sem þú veitir okkur og efni þeirra
skilaboða sem þú sendir okkur svo sem athugasemdir, gögn úr könnunum og umsagnir
um vörur sem þú skrifar.

Umferðargögn. Gögn sem verða til við notkun á samskiptaþjónustu Microsoft.
Umferðargögn gefa til kynna við hvern þú hefur átt samskipti og hvenær
samskiptin áttu sér stað. Við munum einungis vinna úr umferðargögnunum þínum til
að veita, viðhalda og bæta samskiptaþjónustuna okkar og er það gert með þínu
samþykki.

Kaflar hér að neðan sem fjalla sérstaklega um tilteknar vörur lýsa gagnasöfnun
sem tengist viðkomandi vörum.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


HVERNIG VIÐ NOTUM PERSÓNUGÖGN

Microsoft notar gögnin sem er safnað til að veita þér fjölbreytta og gagnvirka
upplifun. Einkum notum við gögn til að:

 * Veita vörur okkar, sem felur í sér uppfærslur, öryggi og úrræðaleit, ásamt
   því að veita stuðning. Slíkt felur einnig í sér að deila nauðsynlegum gögnum
   til að veita þjónustu eða framkvæma færslur sem þú óskar eftir.
 * Bæta og þróa vörur okkar.
 * Sérsníða vörur okkar og koma með uppástungur.
 * Beina til þín auglýsingum, sem felur í sér að senda kynningarefni,
   markauglýsingar og kynna fyrir þér viðeigandi tilboð.

Við notum gögnin einnig við rekstur fyrirtækis okkar, sem felur í sér að greina
afköst okkar, uppfylla lagalegar skyldur, stuðla að þróun starfsfólks í starfi
og vinna rannsóknarvinnu.

Þegar við gerum þetta sameinum við gögn sem við söfnum úr ólíkum áttum (til
dæmis um notkun þína á tveimur Microsoft-vörum) eða fáum þau frá þriðju aðilum
til að veita þér hnökralausa, samræmda og sérsniðna upplifun, til að taka
upplýstar ákvarðanir í viðskiptum og af öðrum lagalegum ástæðum.

Við vinnslu á persónuupplýsingum í þessum tilgangi eru bæði notaðir sjálfvirkir
vinnsluferlar og handvirk vinnsla (með mannshönd). Sjálfvirkir vinnsluferlar
okkar tengjast oft og eru studdir af handvirkri vinnslu. Til dæmis til að búa
til, þjálfa og bæta nákvæmni sjálfvirkra vinnsluferla okkar (þ.m.t.
gervigreindar) berum við sumar útkomurnar sem verða til í sjálfvirku aðferðunum
saman við undirliggjandi gögn.

Sem hluti af viðleitni okkar til að bæta og þróa vörur okkar gætum við notað
gögnin þín til að þróa og þjálfa gervigreindarlíkönin okkar. Frekari upplýsingar
hér.

Microsoft notar gögnin sem söfnuð eru til að veita fjölbreytta og gagnvirka
upplifun. Einkum notum við gögn til að:

 * Veita vörur okkar, sem felur í sér uppfærslur, öryggi og úrræðaleit, ásamt
   því að veita stuðning. Slíkt felur einnig í sér að deila nauðsynlegum gögnum
   til að veita þjónustu eða framkvæma færslur sem þú óskar eftir.
 * Bæta og þróa vörur okkar.
 * Sérsníða vörur okkar og koma með uppástungur.
 * Beina til þín auglýsingum, sem felur í sér að senda kynningarefni,
   markauglýsingar og kynna fyrir þér viðeigandi tilboð.

Við notum gögnin einnig við rekstur fyrirtækis okkar, sem felur í sér að greina
afköst okkar, uppfylla lagalegar skyldur, stuðla að þróun starfsfólks í starfi
og vinna rannsóknarvinnu.

Af þessum ástæðum sameinum við gögn sem við söfnum úr ólíkum áttum (til dæmis um
notkun þína á tveimur Microsoft-vörum). Microsoft Store notar til dæmis
upplýsingar um forrit og þjónustu sem þú notar til að búa til sérsniðnar
ráðleggingar um forrit. Samt sem áður höfum við bætt við tæknilegri og
aðferðarlegri vernd sem er hönnuð til að koma í veg fyrir ákveðna samsetningu
gagna þar sem þess er krafist af lögum. Til dæmis, þar sem þess er krafist af
lögum, geymum við gögn sem við söfnum frá þér þegar þú ert
ósannvottuð/ósannvottaður (ekki skráð(ur) inn) aðskilin frá öllum
reikningsupplýsingum sem auðkenna þig með beinum hætti, eins og nafn þitt,
netfang eða símanúmer.

Við vinnslu á persónuupplýsingum í þessum tilgangi eru bæði notaðir sjálfvirkir
vinnsluferlar og handvirk vinnsla (með mannshönd). Sjálfvirkir vinnsluferlar
okkar tengjast oft og eru studdir af handvirkri vinnslu. Til dæmis til að búa
til, þjálfa og bæta nákvæmni sjálfvirkra vinnsluferla okkar (þ.m.t.
gervigreindar) berum við sumar útkomurnar sem verða til í sjálfvirku aðferðunum
saman við undirliggjandi gögn.

Sem hluti af viðleitni okkar til að bæta og þróa vörur okkar gætum við notað
gögnin þín til að þróa og þjálfa gervigreindarlíkönin okkar. Frekari upplýsingar
hér.

Tilgangur og lagalegur grunnur fyrir úrvinnslu

Þegar við vinnum úr persónugögnum þínum gerum við það með þínu samþykki og/eða
eins og þarf til að útvega vörurnar sem þú notar, starfrækja fyrirtæki okkar,
uppfylla lagalegar og samningsbundnar skuldbindingar okkar, vernda öryggi kerfa
og viðskiptavina okkar eða til að fullnægja lögmætum hagsmunum Microsoft eins og
lýst er í þessum hluta og hlutanum Ástæður fyrir deilingu persónuupplýsinga í
þessari yfirlýsingu um persónuvernd. Grunnatriði okkar við úrvinnslu
persónugagna kunna að vera breytileg eftir því hvernig og yfir hvaða vörur og
þjónustu við vinnum úr gögnunum þínum. 

Þegar við vinnum úr persónugögnum í samræmi við lögmæta hagsmuni okkar eða
þriðja aðila hugsum við um að þeir séu í jafnvægi við réttindi þín og frelsi og
munum eingöngu vinna úr persónugögnum þínum þar sem hagsmunir þínir vega ekki
þyngra en lögmætir hagsmunir okkar við úrvinnslu.

Þegar við flytjum persónuupplýsingar frá Evrópska efnahagssvæðinu gerum við það
í samræmi við ýmis lagaskilyrði, eins og lýst er í hlutanum Hvar við geymum og
vinnum úr persónugögnum í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Meira um tilgang vinnslunnar:

 * Bjóða upp á vörurnar okkar. Við notum gögn til að nota vörurnar okkar og
   veita þér fjölbreytta og gagnvirka upplifun. Til dæmis ef þú notar OneDrive
   vinnum við úr skjölunum sem þú hleður upp á OneDrive til að gera þér kleift
   að sækja, eyða, breyta, framsenda eða vinna úr þeim með öðrum hætti samkvæmt
   þinni skipun sem hluti af þjónustunni. Eða til dæmis ef þú slærð inn
   leitarfyrirspurn í Bing-leitarvélinni notum við fyrirspurnina til að sýna þér
   leitarniðurstöður. Þar að auki, þar sem ýmsar vörur, forrit og aðgerðir fela
   í sér samskiptaeiginleika, notum við gögn til að hafa samband við þig. Til
   dæmis kunnum við að hafa samband í síma eða með tölvupósti eða á annan hátt
   til að láta þig vita hvenær áskrift rennur út eða til að ræða við þig um
   leyfisreikninginn þinn. Við höfum einnig samskipti við þig til að gera vörur
   okkar öruggar, til dæmis með því að láta þig vita þegar uppfærslur á vörum
   eru tiltækar.
 * Endurbætur á vörum. Við notum gögn til að þróa vörur okkar, þ.m.t. til að
   bæta við nýjum eiginleikum eða valmöguleikum. Til að mynda notum við skýrslur
   til að bæta öryggiseiginleika, leitarfyrirspurnir og smelli í Bing til að
   bæta vægi leitarniðurstaðna, notkunargögn til að ákvarða hvaða eiginleika við
   eigum að leggja mesta áherslu á og raddgögn til að auka nákvæmni
   talgreiningar.
 * Sérsnið. Margar vörur fela í sér sérsniðna eiginleika á borð við uppástungur
   sem auka afköst og ánægju þína. Þessir eiginleikar nota sjálfvirka ferla til
   að sérsníða vöruupplifun þína á grundvelli upplýsinga sem við höfum um þig,
   til dæmis ályktanir sem við drögum um þig og notkun þína á vörunni, aðgerðir,
   áhugamál og staðsetningu. Til dæmis, í samræmi við stillingar þínar, ef þú
   straumspilar kvikmyndir í vafra á Windows-tæki sérðu mögulega ábendingu um
   forrit í Microsoft Store sem býður upp á betri straumspilun. Ef þú átt
   Microsoft-reikning getum við samstillt stillingar þínar á nokkrum tækjum með
   þínu leyfi. Margar vörur okkar bjóða upp á stjórnun til að slökkva á
   sérsniðnum eiginleikum.
 * Virkjun vöru. Við notum gögn á borð við gerð tækis og forrits, staðsetningu
   og einkvæm auðkenni fyrir tæki, forrit, net og áskrift til að virkja vörur
   þar sem þörf er á virkjun.
 * Vöruþróun. Við notum gögn til að þróa nýjar vörur. Til dæmis notum við gögn,
   sem oft eru ópersónugreinanleg, til að skilja betur þarfir viðskiptavina hvað
   varðar afköst og tölvuvinnslu og til að þjálfa og fínstilla
   gervigreindarlíkön, sem getur þá haft áhrif á þróun á nýjum vörum.  
 * Notendaþjónusta. Við notum gögn til að leita úrræða og greina vandamál tengd
   vörum, gera við tæki viðskiptavina og veita aðra þjónustu og stuðning, þ.m.t.
   til að auðvelda okkur að veita, bæta og tryggja gæði vara okkar, þjónustu og
   þjálfunar, og til að rannsaka öryggisatvik. Gögn úr upptökum af símtölum gætu
   einnig verið nýtt til að sannvotta eða auðkenna þig út frá rödd þinni til að
   gera Microsoft kleift að veita stuðningsþjónustu og rannsaka öryggisatvik.
 * Hjálpa til við vörn og úrræðaleit. Við notum gögn til að hjálpa til við að
   verja vörurnar okkar og bera kennsl á vandamál tengd þeim. Þetta felur í sér
   að nota gögn til að tryggja öryggi vara okkar og viðskiptavina, bera kennsl á
   spilliforrit og skaðlega virkni, gera úrræðaleit fyrir vandamál sem tengjast
   afköstum og samhæfi til að hjálpa viðskiptavinum að fá sem mest út úr
   upplifun sinni og tilkynna viðskiptavinum um uppfærslur á vörum okkar. Þetta
   gæti meðal annars falið í sér að nota sjálfvirk kerfi til að bera kennsl á
   öryggisvandamál.
 * Öryggi. Við notum gögn til að tryggja öryggi vara okkar og viðskiptavina.
   Öryggiseiginleikar og -vörur frá okkur geta slökkt á spilliforritum og birt
   notendum tilkynningar um að spilliforrit hafi fundist í tækjunum þeirra. Sem
   dæmi skanna sumar vörurnar okkar, svo sem Outlook.com eða OneDrive, efni
   kerfisbundið og á sjálfvirkan hátt til að finna ruslpóst, vírusa, hættulegar
   aðgerðir eða vefslóðir sem hafa verið merktar sem svik eða tenglar í
   vefveiðar eða spilliforrit og við kunnum að koma í veg fyrir samskipti eða
   fjarlægja efni ef það brýtur í bága við skilmála okkar. Í samræmi við
   reglugerðir Evrópusambandsins (ESB) 2021/1232 höfum við framkallað undanþágu
   frá þeirri reglugerð frá greinum 5(1) og 6(1) í tilskipun ESB 2002/58/EC. Við
   notum skönnunartækni til að búa til stafrænar undirritanir (þekktar sem
   „tæting“) ákveðinna mynda og myndbandsefnis í kerfum okkar. Þessi tækni ber
   svo saman tætingar sem þau mynda með tætingum tilkynntrar kynferðislegrar
   misnotkunar barna og myndir af misnotkun (þekkt sem „tætingarsett“), í ferli
   sem kallast „samsvörun tætingar“. Microsoft fær tætingarsett frá
   stofnunum/fyrirtækjum sem bregðast við í þágu almannahagsmuna gegn
   kynferðislegri misnotkun barna. Þetta getur leitt til þess að upplýsingum sé
   deilt með upplýsingamiðstöð ríkisins fyrir börn sem eru týnd eða misnotuð
   (NCMEC) og löggæsluyfirvöldum.
 * Uppfærslur. Við notum gögn sem við söfnum til að þróa uppfærslur og
   öryggislagfæringar á vörum. Til dæmis kunnum við að nota upplýsingar um getu
   tækis þíns, t.d. laust minni, til að veita þér uppfærslu eða
   öryggislagfæringu á hugbúnaði. Uppfærslum og lagfæringum er ætlað að hámarka
   upplifun þína af vörum okkar, hjálpa þér að tryggja persónuvernd og öryggi
   gagnanna þinna, veita þér nýja eiginleika og meta hvort tækið þitt sé tilbúið
   til að vinna úr slíkum uppfærslum.
 * Kynningarefni. Við notum gögn sem við söfnum til að senda kynningarefni. Þú
   getur skráð þig í tölvupóstáskriftir og valið hvort þú vilt fá kynningarefni
   frá Microsoft sent með tölvupósti, SMS, pósti eða í síma. Upplýsingar um
   stjórnun samskiptaupplýsinga, tölvupóstáskrifta og kynningarsamskipta er að
   finna í hlutanum Hvernig á að fá aðgang að og stjórna persónugögnum þínum  í
   þessari yfirlýsingu um persónuvernd.
 * Viðeigandi tilboð. Microsoft notar gögn til að veita þér viðeigandi og
   nytsamlegar upplýsingar sem tengjast vörum okkar. Við greinum gögn frá ýmsum
   uppsprettum til að geta okkur til um þær upplýsingar sem eiga meira við og
   vekja mestan áhuga hjá þér og við afhendum þér slíkar upplýsingar með ýmsum
   leiðum. Til dæmis kunnum við að geta okkur til um áhuga þinn á tölvuleikjum
   og höfum þá samband við þig út af nýjum leikjum sem þú gætir haft áhuga á.
 * Auglýsingar. Microsoft notar ekki það sem þú segir í tölvupósti, spjalli við
   annað fólk, myndsímtölum eða talhólfsskilaboðum né skjöl, ljósmyndir eða
   aðrar persónulegar skrár til að beina auglýsingum að þér. Við notum gögn sem
   við söfnum í gegnum samskipti okkar við þig, í gegnum sumar af vörum okkar,
   þjónustu, forrit og vefeiginleika (Microsoft-eiginleika) og vefeiginleika
   þriðju aðila, fyrir auglýsingar á Microsoft-eiginleikum okkar og
   vefeiginleikum þriðju aðila. Við kunnum að nota sjálfvirka ferla svo
   auglýsingarnar eigi betur við þig. Frekari upplýsingar um hvernig gögnin þín
   eru notuð í auglýsingaskyni er að finna í Auglýsingar hlutanum í þessari
   yfirlýsingu um persónuvernd.
 * Verðlaunakynningar og viðburðir. Við notum gögnin þín til að stjórna
   verðlaunakynningum og viðburðum í raunverslunum Microsoft. Ef þú skráir þig
   til dæmis á verðlaunakynningu gætum við notað gögnin þín til að velja
   sigurvegara og gefa þér verðlaunin ef þú vinnur. Eða ef þú skráir þig á
   kóðunarnámskeið eða leikjaviðburð munum við bæta nafninu þínu á lista yfir
   væntanlega þátttakendur.
 * Færsluviðskipti. Við notum gögn til framkvæma færslur á milli þín og okkar.
   Til dæmis vinnum við úr greiðsluupplýsingum til að veita viðskiptavinum
   áskrift að vörum og notum samskiptaupplýsingar til að afhenda vörur sem eru
   keyptar í Microsoft Store.
 * Skýrslugerð og viðskiptaaðgerðir. Við notum gögn til að greina starfsemi
   okkar og nota viðskiptagreind. Þetta gerir okkur kleift að taka upplýstar
   ákvarðanir og gera skýrslur um frammistöðu fyrirtækisins.
 * Verja réttindi og eignir. Við notum gögn til að bera kennsl á og koma í veg
   fyrir svik, leysa úr ágreiningi, framfylgja samningum og vernda eignir okkar.
   Til dæmis notum við gögn til að staðfesta gildistíma hugbúnaðarleyfa til að
   draga úr ólöglegri notkun. Við notum sjálfvirka ferla til að bera kennsl á og
   koma í veg fyrir athæfi sem brýtur gegn réttindum okkar og annarra, t.d.
   svik.
 * Samræmi við lög. Við vinnum úr gögnum til að fara eftir gildandi lögum. Við
   notum t.d. aldur viðskiptavina okkar til aðstoðar við að uppfylla skyldur
   okkar varðandi verndun á friðhelgi barna. Við vinnum einnig úr samskipta- og
   innskráningarupplýsingum til að auðvelda viðskiptavinum að nýta rétt sinn á
   gagnavernd.
 * Rannsóknir. Með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstaföfunum til að
   vernda réttindi og frelsi einstaklinga notum við gögn til að gera rannsóknir,
   þ.m.t háþróaða vélnám og gervigreindarmöguleika í þágu almannahagsmuna og í
   vísindalegum tilgangi.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


ÁSTÆÐUR FYRIR DEILINGU PERSÓNUUPPLÝSINGA

Við deilum persónugögnum þínum með þínu leyfi eða til að ljúka færslu eða veita
einhverja vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Við deilum einnig gögnum með
dóttur- og systurfyrirtækjum undir stjórn Microsoft og með söluaðilum sem vinna
fyrir okkar hönd til að hlíta lögum eða bregðast við lagalegu ferli, til að
vernda viðskiptavini okkar, til að vernda líf, til að viðhalda öryggi varanna
okkar og til að vernda réttindi og eignir Microsoft og viðskiptavina þess.

Athugaðu að „deiling“, eins og hún er skilgreind í ákveðnum lögum um
persónuvernd í Bandaríkjunum, tengist einnig því að veita þriðju aðilum
persónugögn vegna sérsniðinna auglýsinga. Sjá Gagnavernd í ríkjum
Bandaríkjannakaflann hér að neðan og yfirlýsingu um gagnaverndarlög í ríkjum
Bandaríkjannatil að fá frekari upplýsingar.

Við deilum persónugögnunum þínum með þínu leyfi eða eins og nauðsynlegt er til
að ljúka færslu eða veita einhverja vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Til
dæmis deilum við efni þínu með þriðja aðila þegar þú segir okkur að gera það,
eins og þegar þú sendir tölvupóst til vinar, deilir ljósmyndum og skjölum á
OneDrive eða tengir reikninga við aðra þjónustu. Ef þú notar Microsoft-vöru sem
stofnun sem þú tengist hefur útvegað þér, t.d. vinnuveitandi eða skóli, eða
notar netfang sem slík stofnun hefur útvegað þér til að fá aðgang að
Microsoft-vörum, deilum við vissum gögnum, t.d. samskipta- og greiningargögnum
til að stofnunin þín geti haft umsjón með vörunum. Þegar þú gefur upp
greiðsluupplýsingar til að ganga frá kaupum munum við deila greiðsluupplýsingum
með bönkum og öðrum einingum sem vinna úr greiðslufærslunum eða veita aðra
fjármálaþjónustu og til að koma í veg fyrir svik og greiðslufallsáhættu. Að
auki, þegar þú vistar greiðslumáta (eins og kort) á reikninginn þinn sem þú og
aðrir reikningshafar Microsoft nota til að greiða með frá Microsoft eða
samstarfsaðilum þess gæti kvittunum þínum verið deilt með öllum öðrum sem nota
og hafa aðgang að sama greiðslumáta til að gera kaup frá Microsoft, þ.m.t. nafni
á reikningshafa greiðslumátans. Þegar þú leyfir vöktunartilkynningar fyrir vörur
eða forrit Microsoft á tæki sem ekki er með Windows mun stýrikerfi tækisins
vinna úr sumum persónuupplýsingum til að bjóða upp á vöktunartilkynningar. Þar
af leiðandi getur Microsoft sent gögn til tilkynningarveitu utanaðkomandi þriðja
aðila til að senda vöktunartilkynningar. Þjónustur vöktunartilkynninga í tækinu
þínu heyra undir eigin þjónustuskilmála og persónuverndaryfirlýsingar.

Við deilum einnig persónuupplýsingum í stafrænum auglýsingatilgangi. Þegar þú
heimsækir vefsvæði eða notar forrit sem vill birta þér auglýsingar kann
stafræna eignin að heimila Microsoft að fá aðgang að eða taka á móti tækjagögnum
eða tilteknum öðrum gögnum sem tilgreind eru í hlutanum Persónugögn sem við
söfnum hér að ofan. Við gætum síðan deilt þessum upplýsingum með
auglýsingakerfum þriðja aðila og auglýsendum til að auðvelda birtingu og
mælingar á auglýsingum á slíkum stafrænum eiginleikum.  Vinsamlegast skoðaðu
hlutana Auglýsingar og gagnavernd bandarískra ríkja hér að neðan til að fá
frekari upplýsingar um hvernig gögnin þín eru notuð til auglýsinga.

Þar að auki deilum við persónugögnum til hlutdeildarfélaga og dótturfélaga
Microsoft. Við deilum einnig persónugögnum með sölumönnum eða fulltrúum sem
vinna fyrir okkur í þeim tilgangi sem lýst er í þessari yfirlýsingu. Til dæmis
kunna fyrirtæki sem við höfum ráðið til að veita stuðningsþjónustu við
viðskiptavini eða aðstoða við verndun og öryggi í kerfum okkar og þjónustu að
þurfa aðgang að persónugögnum til að veita þessa virkni. Í slíkum tilfellum
verða fyrirtækin að fara eftir gagnaleynd okkar og öryggiskröfum og þau hafa
ekki heimild til að nota persónugögnin sem þau fá frá okkur í neinum öðrum
tilgangi. Við kunnum einnig að gefa upp persónugögn sem hluta af
fyrirtækjafærslu, eins og samruna eða sölu á eignum.

Að lokum skal tekið fram að við munum geyma, opna, flytja, láta af hendi og
varðveita persónugögn þín, þ.m.t. einkaefni þitt (t.d. efni í tölvupóstum þínum
á Outlook.com eða skrár í einkamöppum á OneDrive), þegar við teljum í góðri trú
að það sé nauðsynlegt í eftirfarandi tilgangi:

 * Hlíta viðeigandi lögum eða bregðast við gildum málarekstri, þar á meðal af
   hálfu lögreglunnar eða annarra stjórnvalda.
 * Tryggja öryggi viðskiptavina okkar, fyrirtækja og almennings — til dæmis til
   að koma í veg fyrir ruslpóst eða tilraunir til svika eða annars konar skaða,
   eða til að greina, koma í veg fyrir og berjast gegn skaðlegri eða ólöglegri
   hegðun, þ.m.t. gerð og dreifingu skaðlegs eða ólöglegs efnis.
 * Stýra og viðhalda öryggi í vörum okkar, þ.m.t. til að koma í veg fyrir eða
   stöðva árás á tölvukerfi okkar eða samskiptakerfi.
 * Verja réttindi eða eignir Microsoft, þ.m.t. til að framfylgja þeim skilmálum
   sem gilda um þjónustuna – en ef við fáum hins vegar upplýsingar sem benda til
   þess að einhver noti þjónustu okkar til viðskipta með stolin hugverk eða
   efnislegar eignir Microsoft munum við ekki kanna einkaefni viðskiptavinar upp
   á eigin spýtur heldur vísa málinu hugsanlega til lögreglu.

Frekari upplýsingar um það hvaða gögn við látum af hendi samkvæmt beiðni frá
lögreglu og öðrum opinberum aðilum er að finna í Beiðnir frá löggæsluyfirvöldum.

Athugaðu að stundum er í vörum okkar að finna tengla eða annan aðgang að vörum
frá þriðju aðilum þar sem starfshættir í tengslum við persónuvernd eru aðrir en
hjá Microsoft. Ef þú gefur upp persónugögn í slíkum vörum gildir
persónuverndarstefna viðkomandi aðila um gögnin þín.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


AÐGANGUR OG STJÓRNUN PERSÓNUGAGNA

Þú getur líka valið hvaða gögnum Microsoft safnar og hvernig þau eru notuð. Þú
getur stjórnað þeim persónugögnum sem Microsoft hefur yfir að ráða og nýtt rétt
þinn á gagnavernd með því að hafa samband við Microsoft eða nota ýmis verkfæri
sem Microsoft býður upp á. Í sumum tilvikum er aðgangur eða stjórn á
persónugögnum takmarkaður eins og lög mæla fyrir um eða leyfa. Það hvernig þú
opnar eða stýrir persónugögnum þínum fer einnig eftir því hvaða vörur þú notar.
Þú getur til dæmis:

 * Stjórnaðu notkun gagnanna þinna fyrir sérsniðnar auglýsingar frá Microsoft
   með því að heimsækja afþökkunarsíðuna okkar.
 * Veldu hvort þú vilt fá kynningar í tölvupósti, SMS-skilaboðum, símtölum eða
   bréfpósti frá Microsoft.
 * Opnaðu og hreinsaðu hluta af gögnunum þínum persónuverndaryfirliti Microsoft.

Verkfærin hér á undan nýtast hugsanlega ekki til að fá aðgang að eða stjórna
öllum persónugögnum sem Microsoft vinnur úr. Ef þú vilt fá aðgang eða stjórna
persónugögnum sem Microsoft vinnur úr sem eru ekki aðgengileg með því að nota
verkfærin hér að ofan né beint í gegnum Microsoft-vörurnar sem þú notar, áttu
þess alltaf kost að hafa samband við Microsoft í netfangið í hlutanum Hvernig á
að hafa samband við okkur eða með því að nota vefeyðublað okkar.

Við leggjum fram safnmælikvarða um beiðnir sem notendur senda inn í því skyni að
nýta réttindi sín um gagnavernd í gegnum Skýrsla Microsoft um persónuvernd.

Þú getur líka valið hvaða gögnum Microsoft safnar og hvernig þau eru notuð. Þú
getur stjórnað þeim persónugögnum sem Microsoft hefur yfir að ráða og nýtt rétt
þinn á gagnavernd með því að hafa samband við Microsoft eða nota ýmis verkfæri
sem Microsoft býður upp á. Í sumum tilvikum er aðgangur eða stjórn á
persónugögnum takmarkaður eins og lög mæla fyrir um eða leyfa. Það hvernig þú
opnar eða stýrir persónugögnum þínum fer einnig eftir því hvaða vörur þú notar.
Þú getur til dæmis:

 * Stjórnaðu notkun gagnanna þinna fyrir sérsniðnar auglýsingar frá Microsoft
   með því að heimsækja afþökkunarsíðuna okkar.
 * Veldu hvort þú vilt fá kynningar í tölvupósti, SMS-skilaboðum, símtölum eða
   bréfpósti frá Microsoft.
 * Opnaðu og hreinsaðu hluta af gögnunum þínum persónuverndaryfirliti Microsoft.

Verkfærin hér á undan nýtast hugsanlega ekki til að fá aðgang að eða stjórna
öllum persónugögnum sem Microsoft vinnur úr. Ef þú vilt fá aðgang eða stjórna
persónugögnum sem Microsoft vinnur úr sem eru ekki aðgengileg með því að nota
verkfærin hér að ofan né beint í gegnum Microsoft-vörurnar sem þú notar, áttu
þess alltaf kost að hafa samband við Microsoft í netfangið í hlutanum Hvernig á
að hafa samband við okkur eða með því að nota vefeyðublað okkar.

Við leggjum fram safnmælikvarða um beiðnir sem notendur senda inn í því skyni að
nýta réttindi sín um gagnavernd í gegnum Skýrsla Microsoft um persónuvernd.

Þú getur opnað og stjórnað persónugögnum þínum sem Microsoft hefur safnað með
verkfærum sem Microsoft lætur þér í té og lýst er hér að neðan, eða með því að
hafa samband við Microsoft. Til dæmis:

 * Ef Microsoft fékk samþykki frá þér til að nota persónugögn þín getur þú
   afturkallað samþykkið hvenær sem er.
 * Þú getur óskað eftir aðgangi að, eyðingu á og uppfærslum á persónugögnum
   þínum.
 * Ef þú vilt flytja gögnin þín annað getur þú gert það með verkfærum sem
   Microsoft býður upp, eða ef það er ekki í boði, getur þú haft samband við
   Microsoft til að fá aðstoð.

Þú getur einnig mótmælt eða takmarkað notkun Microsoft á persónugögnum þínum.
Til dæmis getur þú mótmælt hvenær sem er notkun okkar á persónugögnum þínum:

 * Til beinnar markaðssetningar.
 * Þar sem við erum að sinna verki vegna almannahagsmuna eða framfylgja lögmætum
   hagsmunum okkar eða þriðja aðila.

Það kann að vera að þú hafir þessi réttindi samkvæmt gildandi lögum, þ.m.t.
almennri persónuverndarreglugerð ESB, en við bjóðum upp á þau óháð staðsetningu
þinni. Í sumum tilvikum er aðgangur eða stjórn á persónugögnum takmarkaður eins
og lög mæla fyrir um eða leyfa.

Ef stofnunin þín, t.d. vinnuveitandi þinn, skóli eða þjónustuveita, veitir þér
aðgang að og stjórnar notkun þinni á vörum Microsoft skaltu hafa samband við
stofnunina til að fá frekari upplýsingar um hvernig skal fá aðgang að og stjórna
persónugögnum þínum.

Þú getur fengið aðgang að og stjórnað persónugögnum þínum sem Microsoft hefur
yfir að ráða og nýtt rétt þinn á gagnavernd með því að nota ýmis verkfæri sem
við bjóðum upp á. Verkfærin sem nýtast þér best fara eftir samskiptum okkar við
þig og notkun þinni á vörum okkar. Hér er almennur listi yfir verkfæri sem við
veitum til að hjálpa þér að stjórna persónugögnum þínum. Ákveðnar vörur kunna að
veita viðbótarstýringar.

 * Bing. Þú ert skráð(ur) inn á Bing geturðu skoðað og hreinsað vistaðan leitar-
   og spjallferil á persónuverndaryfirlitinu. Ef þú ert ekki skráð(ur) inn á
   Bing getur þú skoðað og hreinsað vistaðan leitarferil sem tengist tækinu
   í Bing-stillingum.
 * Microsoft-reikningnum. Ef þú vilt opna, breyta eða fjarlægja
   notandaupplýsingar og greiðsluupplýsingar á Microsoft-reikningnum þínum
   skaltu breyta aðgangsorðinu, bæta við öryggisupplýsingum eða loka
   reikningnum. Það geturðu gert það með því að fara á
   vefsvæði Microsoft-reikningsins.
 * Ef þú ert með opinbera notandasíðu Microsoft Developer Network (MSDN) geturðu
   opnað og breytt gögnunum þínum með því að skrá þig inn á á
   MSDN-spjallsvæðinu.
 * Persónuverndaryfirlit Microsoft. Þú getur stjórnað sumum gögnum sem Microsoft
   vinnur úr með því að nota Microsoft-reikninginn þinn á
    persónuverndaryfirliti Microsoft. Þar er til að mynda hægt að skoða og
   hreinsa gögn um vefskoðun, leit og staðsetningar sem tengjast
   Microsoft-reikningnum þínum.
 * Microsoft Store. Þú getur fengið aðgang að notandasíðu og
   reikningsupplýsingum Microsoft Store með því að fara í Microsoft Store og
   velja Skoða reikning eða Pöntunarferil.
 * Microsoft Teams til einkanota. Þú getur fundið út hvernig á að flytja út eða
   eyða Teams-gögnum sem tengjast persónulega Microsoft-reikningnum þínum með
   því að heimsækja þessa síðu.
 * OneDrive. Þú  getur skoðað, sótt og eytt skrám og myndum á OneDrive með því
   að skrá þig inn á OneDrive.
 * Outlook.com. Þú getur sótt tölvupóstinn þinn í Outlook.com með því að skrá
   þig inn á reikninginn þinn og fara í persónuverndar- og gagnastillingarnar .
 * Skype. Ef þú vilt opna, breyta eða fjarlægja einhverjar notanda- og
   greiðsluupplýsingar á Skype eða breyta aðgangsorðinu þínu skráðu þig inn á
   reikninginn. Ef þú vilt þá getur þu flutt út spjallferil Skype og skrár sem
   hefur verið deilt á Skype. Þú getur  óskað eftir afriti.
 * Þjónustumiðstöð fyrir fjöldaleyfi (VLSC). Ef þú ert viðskiptavinur með
   fjöldaleyfi geturðu stjórnað samskiptaupplýsingum og áskriftum og
   leyfisgögnum á einum stað með því að fara á vefsvæði Þjónustumiðstöð fyrir
   fjöldaleyfi.
 * Xbox. Ef þú notar Xbox-netið eða Xbox.com geturðu skoðað eða breytt
   persónugögnunum þínum, þ.m.t. greiðslu- og reikningsupplýsingum,
   persónuverndarstillingum og öryggisstillingum á netinu og stillingum fyrir
   deilingu gagna með því að opna My Xbox í Xbox-leikjatölvunni eða á
   Xbox.com-vefsvæðinu.

Verkfærin hér á undan nýtast hugsanlega ekki til að fá aðgang að eða stjórna
öllum persónugögnum sem Microsoft vinnur úr. Ef þú vilt fá aðgang eða stjórna
persónugögnum sem Microsoft vinnur úr sem eru ekki aðgengileg með því að nota
verkfærin hér að ofan né beint í gegnum Microsoft-vörurnar sem þú notar, áttu
þess alltaf kost að hafa samband við Microsoft í netfangið í hlutanum Hvernig á
að hafa samband við okkur eða með því að nota vefeyðublað okkar. Við munum svara
fyrirspurnum um stjórnun á persónugögnum þínum eins og lög mæla fyrir um.

Samskiptaforstillingar þínar

Þú getur valið hvort þú vilt fá sent kynningarefni frá Microsoft í tölvupósti,
smáskilaboðum, pósti eða síma. Ef þú færð kynningartölvupóst eða smáskilaboð frá
okkur og vilt segja þig úr áskrift geturðu gert það með því að fylgja
leiðbeiningunum í skilaboðunum. Þú getur einnig valið hvort þú færð
kynningarefni í tölvupósti, símleiðis eða með bréfpósti með því að skrá þig inn
á Microsoft-reikninginn þinn og skoða samskiptaheimildir þínar þar sem þú getur
uppfært samskiptaupplýsingarnar þínar, stjórnað kjörstillingum fyrir öll
samskipti Microsoft við þig, afþakkað tölvupóstsáskriftir og valið hvort deila
megi samskiptaupplýsingunum þínum með samstarfsaðilum Microsoft. Ef þú ert ekki
með eigin Microsoft-reikning geturðu valið kjörstillingar fyrir
Microsoft-tölvupóst með því að nota þetta vefform. Þessir valkostir eiga ekki
við um skilyrt þjónustusamskipti sem eru hluti af tiltekinni Microsoft-vöru,
-forritum, aðgerðum eða sem fjalla um kannanir eða önnur upplýsingasamskipti sem
hafa sína eigin aðferð til uppsagnar.

Auglýsingavalkostir þínir

Til að afþakka sérsniðnar auglýsingar frá Microsoft skaltu fara á
 afþökkunarsíðuna. Þegar þú afþakkar er kjörstilling þín vistuð í köku sem
gildir aðeins fyrir vafrann sem þú ert að nota. Úrsagnarkakan er með
fyrningardagsetningu upp á fimm ár. Ef þú eyðir kökum úr tækinu þínu þarftu að
afþakka aftur.

Þú getur einnig tengt upplýsingar um val þitt við Microsoft-reikninginn þinn.
Það verður notað í öllum tækjum þar sem þú notar þann reikning og mun halda
áfram að vera notað þangað til einhver skráir sig inn með öðrum
Microsoft-reikningi í því tæki. Ef þú eyðir kökum úr tækinu þínu þarftu að skrá
þig aftur inn til að stillingarnar taki gildi. Þú getur skoðað
 auglýsingasamstarfsaðila okkar þriðju aðila  í  tilkynningu um gagnaverndarlög
í Bandaríkjunum og afþakkað gagnadeilingu með þriðju aðilum á afþökkunarsíðunni
okkar.

Hvað varðar auglýsingar sem eru undir stjórn Microsoft og birtast í forritum í
Windows geturðu notað afþökkunina sem þegar er tengd við þinn eigin
Microsoft-reikning eða afþakkað áhugabundnar auglýsingar með því að slökkva á
auglýsingaauðkenninu í stillingum Windows.

Þar sem gögnin sem eru notuð fyrir áhugabundnar auglýsingar eru einnig notuð í
öðrum nauðsynlegum tilgangi (þar með talið til að veita vörur okkar, til
greiningar og uppljóstrunar á svikum) stöðvar það að afþakka áhugabundnar
auglýsingar ekki þessa gagnasöfnun. Þú munt halda áfram að fá auglýsingar þó að
þær kunni að eiga minna erindi til þín.

Hægt er að afþakka áhugabundnar auglýsingar frá þriðju aðilum á heimasíðu
viðkomandi aðila (sjá hér að ofan).

Vafrastýringar

Þegar þú notar vafra getur þú stjórnað persónugögnum þínum með því að nota
ákveðna eiginleika. Dæmi:

 * Kökustýringar. Þú getur stjórnað gögnunum sem kökur geyma og afturkallað
   samþykki fyrir kökum með því að nota þær kökustýringar í vafra sem lýst er
   í Vefköku hlutanum í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.
 * Rakningarvörn. Þú getur stýrt því hvaða gögnum vefsvæði þriðju aðila geta
   safnað um þig með rakningarvörn í Internet Explorer (útgáfum 9 og síðari) og
   Microsoft Edge. Þessi eiginleiki lokar fyrir efni frá þriðja aðila, þ.m.t.
   kökur, á öllum svæðum sem þú hefur bætt á listann þinn yfir rakningarvörn.
 * Vafrastjórnun fyrir "Ekki fylgjast með mér"  Í sumum vöfrum er að finna (DNT)
   eiginleikann"Ekki fylgjast með mér"sem getur sent vefsvæðum sem þú heimsækir
   merki um að þú viljir ekki láta fylgjast með þér. Þar sem enn er ekki almennt
   samkomulag um hvernig á að túlka merkið „Ekki fylgjast með mér“ svarar
   þjónusta frá Microsoft ekki þessum merkjum frá vöfrum eins og er. Við höldum
   áfram samstarfi við netþjónustugreinarnar til að skilgreina almennt
   samkomulag um hvernig fara eigi með DNT-merki. Í millitíðinni er hægt að nota
   ýmis önnur verkfæri sem við veitum til að stýra gagnasöfnun og gagnanotkun,
   þar með talið valkosturinn að segja sig úr móttöku á auglýsingum byggðum á
   áhugamálum frá Microsoft eins og lýst er hér að ofan.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


KÖKUR OG ÁLÍKA TÆKNI

Kökur eru litlar textaskrár sem eru settar á tækið þitt til að geyma gögn sem
vefþjónn lénsins sem kom kökunni fyrir getur náð í seinna. Við notum kökur og
svipaða tækni til að geyma og virða val þitt og stillingar, gera þér kleift að
skrá þig inn, birta þér áhugabundnar auglýsingar, berjast gegn svikum, greina
frammistöðu varanna okkar og í öðrum lögmætum tilgangi. Forrit Microsoft nota
frekari auðkenni, eins og auglýsingaauðkenni í Windows sem lýst er
íauglýsingaauðkennishluta þessarar yfirlýsingar um persónuvernd, í svipuðum
tilgangi.

Við notum einnig „vefvita“ til aðstoðar við að koma kökum fyrir og safna gögnum
um notkun og afköst. Vefsvæði okkar kunna að fela í sér vefvita, kökur eða
svipaða tækni frá hlutdeildarfélögum og samstarfsaðilum Microsoft, ásamt þriðju
aðilum, svo sem þjónustuveitum sem starfa fyrir okkur.

Vafrakökur þriðja aðila geta innihaldið: Kökur þriðja aðila kunna að innihalda:
Kökur samfélagsmiðla sem hannaðar eru til að birta þér auglýsingar og efni í
samræmi við forstillingar þínar á samfélagsmiðlum og aðgerðir þínar á vefsvæðum
okkar; Greiningarkökur til að skilja betur hvernig þú og aðrir nota vefsvæðin
okkar til að við getum gert þau betri og til að þriðju aðilar geti bætt sínar
eigin vörur og þjónustu; Auglýsingakökur til að birta þér auglýsingar sem eiga
við þig; og nauðsynlegum kökum sem notaðar eru til að framkvæma nauðsynlegar
aðgerðir á vefsvæðinu. Þegar þess er krafist biðjum við þig um samþykki áður en
við vistum eða notum valfrjálsar kökur sem ekki eru (i) algjörlega nauðsynlegar
til að bjóða upp á vefsvæðið eða (ii) í þeim tilgangi að greiða fyrir
samskiptum.

Frekari upplýsingar er að finna í hlutanum „Frekari upplýsingar“ hér að neðan
til að fá upplýsingar um notkun okkar á kökum frá þriðja aðila, vefvita og
greiningarþjónustu og annarri svipaðri tækni á vefsvæðum okkar og
þjónustuveitum. Til að fá lista yfir þriðju aðila sem setja kökur á vefsvæðum
okkar, þar á meðal þjónustuveitur sem starfa fyrir okkur, skaltu fara í
kökugeymslu þriðja aðila. Sum vefsvæða okkar geyma lista yfir þriðju aðila.
Þriðju aðilar þessara vefsvæða eru hugsanlega ekki á listanum yfir kökugeymslur
þriðja aðila.

Þú hefur yfir ýmsum verkfærum að ráða til að stjórna gögnunum sem er safnað af
kökum, vefvitum og svipaðri tækni. Til dæmis geturðu notað stýringar í vafranum
til að takmarka það hvernig vefsvæði sem þú ferð inn á geta notað kökur og til
að draga til baka samþykki þitt með því að hreinsa eða loka á kökur.

Kökur eru litlar textaskrár sem eru settar á tækið þitt til að geyma gögn sem
vefþjónn lénsins sem kom kökunni fyrir getur náð í seinna. Þessi gögn
samanstanda oft af streng af tölum og bókstöfum sem auðkennir tölvuna þína á
einkvæman hátt, en hann getur einnig innihaldið aðrar upplýsingar. Sumum kökum
er komið fyrir af þriðju aðilum sem starfa fyrir okkar hönd. Við notum kökur og
svipaða tækni til að geyma og virða val þitt og stillingar, gera þér kleift að
skrá þig inn, birta þér áhugabundnar auglýsingar, berjast gegn svikum, greina
frammistöðu varanna okkar og í öðrum lögmætum tilgangi. Microsoft-forrit nota
viðbótarauðkenni, eins og t.d. auglýsingaauðkennið í Windows, og mörg vefsvæði
og forrit á okkar vegum innihalda einnig vefvita eða álíka tækni eins og lýst er
hér á eftir.

Notkun okkar á kökum og álíka tækni

Microsoft notar kökur og svipaða tækni í ýmsum tilgangi, með hliðsjón af
samhenginu og vörunni, þar á meðal:

 * Til að vista kjörstillingar þínar. Við notum kökur til að vista val þitt og
   stillingar á tækinu og til að bæta upplifun þína. Ef þú slærð til dæmis inn
   borgina þína eða póstnúmer til að fá staðbundnar fréttir eða veðurfréttir á
   vefsvæði Microsoft, eftir því hverjar stillingar þínar eru, geymum við þau
   gögn í köku til þess að geta birt þér viðeigandi staðbundnar upplýsingar
   þegar þú heimsækir vefsvæðið aftur síðar. Vistun á vali þínu með kökum, t.d.
   kjörtungumáli, kemur í veg fyrir að þú þurfir endurtekið að stilla val þitt.
   Ef þú afþakkar áhugabundnar auglýsingar vistum við þá kjörstillingu þína í
   köku á tækinu. Að sama skapi geymum við valið þitt í köku þegar við biðjum
   þig um að samþykki fyrir vistun á kökum í tækinu þínu.
 * Innskráning og auðkenning. Við notum kökur til að auðkenna þig. Þegar þú
   skráir þig inn á vefsvæði með eigin Microsoft-reikningi geymum við einkvæmt
   auðkennisnúmer og tímasetningu innskráningarinnar í dulritaðri köku í tækinu.
   Þessi kaka gerir þér kleift að fara af einni síðu yfir á aðra innan sama
   svæðis án þess að þurfa að skrá þig aftur inn á hverri síðu. Þú getur einnig
   vistað innskráningarupplýsingar þínar til að þú þurfir ekki að skrá þig inn í
   hvert skipti sem þú opnar svæðið.
 * Öryggi. Við notum kökur til að vinna úr upplýsingum sem auðvelda okkur að
   vernda vörur okkar ásamt því að bera kennsl á svik og misnotkun.
 * Vistun upplýsinga sem þú veitir á vefsvæði. Við notum kökur til að muna
   upplýsingar sem þú deilir. Þegar þú veitir Microsoft upplýsingar, eins og
   þegar þú setur vörur í innkaupakörfu á Microsoft-vefsvæðum, vistum við gögnin
   í köku í þeim tilgangi að muna upplýsingarnar.
 * Netsamfélög. Sum vefsvæði okkar innihalda netsamfélagskökur, þ.m.t. þær sem
   gera notendum sem eru skráðir inn í netsamfélagið að deila efni með þeirri
   þjónustu.
 * Athugasemdir. Microsoft notar kökur til að gera þér kleift að veita endurgjöf
   á vefsvæði.
 * Áhugabundnar auglýsingar. Microsoft notar kökur til að safna gögnum um virkni
   þína á netinu og greina áhugamál þín til að við getum sent þér auglýsingar
   sem höfða mest til þín. Þú getur afþakkað áhugabundnar auglýsingar frá
   Microsoft eins og lýst er í hlutanum Hvernig á að fá aðgang að og stjórna
   persónugögnum þínum í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.
 * Birting auglýsinga. Microsoft notar kökur til að skrá hversu margir hafa
   smellt á auglýsingu og til að skrá hvaða auglýsingu þú hefur séð, meðal
   annars til þess að þú sjáir ekki sömu auglýsinguna aftur og aftur.
 * Greiningar. Við notum kökur fyrsta og þriðja aðila og önnur auðkenni til að
   safna gögnum um notkun og frammistöðu. Til dæmis notum við kökur til að safna
   upplýsingum um fjölda þeirra sem heimsækja vefsvæði eða þjónustu og til að
   byggja upp heildartölfræði um virkni varanna okkar.
 * Afköst. Microsoft notar kökur til að skilja vörurnar okkar og bæta afköst
   þeirra. Til dæmis notum við kökur til að safna gögnum sem auðvelda
   álagsjöfnun; þetta auðveldar okkur að aftra því að vefsvæðin okkar hrynji
   ekki.

Þegar þess er krafist biðjum við þig um samþykki áður en við vistum eða notum
valfrjálsar kökur sem ekki eru (i) algjörlega nauðsynlegar til að bjóða upp á
vefsvæðið eða (ii) í þeim tilgangi að greiða fyrir samskiptum. Frekari
upplýsingar er að finna í hlutanum „Hvernig á að stjórna kökum“.

Sumar af kökunum sem við notum reglulega eru taldar upp hér að neðan. Listinn er
ekki tæmandi en honum er ætlað að gefa mynd af helstu markmiðum þess að við
notum kökur. Ef þú heimsækir eitt af vefsvæðum okkar mun vefsvæðið stilla sumar
eða allar af eftirfarandi kökum:

 * MSCC. Inniheldur val notenda fyrir flesta eiginleika Microsoft.
 * MUID, MC1, MSFPC, og MSPTC. Auðkennir einkvæma vefvafra sem heimsækja
   vefsvæði Microsoft. Þessar kökur eru notaðar við auglýsingar, greiningar á
   vefsvæðum og í öðru rekstrarskyni.
 * ANON. Inniheldur ANID, einkvæmt kenni sem dregið er af Microsoft-reikningnum
   þínum, sem er notað til auglýsinga, aðlögunar og í aðgerðatilgangi. Hún er
   einnig notuð til að muna val þitt um að afþakka áhugabundnar auglýsingar frá
   Microsoft ef þú hefur valið að tengja ákvörðunina við Microsoft-reikninginn
   þinn.
 * CC. Inniheldur landskóða eins og IP-talan þín segir til um.
 * PPAuth, MSPAuth, MSNRPSAuth, KievRPSAuth, WLSSC, MSPProf. Hjálpar til við að
   auðkenna þig þegar þú skráir þig inn með Microsoft-reikningnum þínum.
 * MC0. Greinir hvort kökur séu virkar í vafranum.
 * MS0. Auðkennir tiltekna lotu.
 * NAP. Inniheldur dulkóðaða útgáfu af landi, póstnúmeri, aldri, kyni, tungumáli
   og starfsheiti þínu, ef það er vitað, byggt á Microsoft-reikningnum þínum.
 * MH. Birtist á sammerktum vefsvæðum þar sem Microsoft er í samstarfi við
   auglýsanda. Þessi kaka ber kennsl á auglýsandann þannig að rétt auglýsing sé
   valin.
 * childinfo, kcdob, kcrelid, kcru, pcfm. Inniheldur upplýsingar sem
   Microsoft-reikningur notar innan sinna síðna í tengslum við reikninga barna.
 * MR. Þessi kaka er notuð af Microsoft til að endurstilla eða endurnýja
   MUID-kökuna.
 * x-ms-gateway-slice. Auðkennir gátt fyrir álagsjöfnun.
 * TOptOut. Skráir ákvörðun þína um að fá ekki áhugabundnar auglýsingar frá
   Microsoft. Þar sem þess er krafist vistum við kökuna sjálfgefið og fjarlægjum
   hana þegar þú samþykkir áhugabundnar auglýsingar.
 * ApplicationGatewayAffinity og ApplicationGatewayAffinityCORS. Þessi
   lotufótspor eru notuð til að jafna álag og til að tryggja að beiðnir um
   notendalotu séu meðhöndlaðar af sama þjóni.

Við gætum einnig notað kökur annarra hlutdeildarfélaga, fyrirtækja og
samstarfsaðila Microsoft, eins og LinkedIn og Xandr.

Kökur þriðja aðila

Fyrir utan þær kökur sem Microsoft stillir þegar þú heimsækir vefsvæði okkar
notum við einnig kökur frá þriðju aðilum til að bæta þjónustu á vefsvæðum okkar.
Sumir þriðju aðilar geta einnig stillt kökur þegar þú heimsækir vefsvæði
Microsoft. Dæmi:

 * Fyrirtæki sem við ráðum til að veita þjónustu fyrir okkar hönd, t.d.
   greiningar á vefsvæðum, vista kökur þegar þú heimsækir vefsvæði okkar.
 * Fyrirtæki sem veita efni á vefsvæðum Micosoft, svo sem myndbönd, fréttir, eða
   auglýsingar, setja inn kökur á eigin vegum.

Þessi fyrirtæki nota gögn sem þau vinna úr í samræmi við persónuverndarstefnur
þeirra, sem kann að gera þessum fyrirtækjum kleift að safna og sameina
upplýsingar um aðgerðir þínar yfir mörg vefsvæði, forrit eða netþjónustur.

Hægt er að nota eftirfarandi gerðir af kökum frá þriðja aðila, eftir samhengi,
þjónustu eða vöru, sem og stillingum þínum og heimildum:

 * Kökur á samfélagsmiðlum. Við og þriðju aðilar notum fótspor á samfélagsmiðlum
   til að sýna þér auglýsingar og efni sem byggist á samfélagsmiðlasniðum þínum
   og virkni á vefsvæðum okkar. Þau eru notuð til að tengja virkni þína á
   vefsvæðum okkar við samfélagsmiðlasniðin þín svo auglýsingarnar og efnið sem
   þú sérð á vefsvæðum okkar og á samfélagsmiðlum endurspegli áhugamál þín
   betur.
 * Greiningarkökur.Við leyfum þriðja aðilum að nota greiningarfótspor til að
   skilja hvernig þú notar vefsvæðin okkar svo við getum gert þau betri og
   þriðju aðilar geti þróað og bætt vörur sínar, sem þeir kunna að nota á
   vefsvæðum sem eru ekki í eigu eða rekin af Microsoft. Þær eru til dæmis
   notaðar til að safna upplýsingum um síðurnar sem þú heimsækir og hversu marga
   smelli þú þarft til að klára verk. Þessi fótspor gætu einnig verið notuð í
   auglýsingaskyni.
 * Auglýsingakökur.Við og þriðju aðilar notum auglýsingafótspor til að sýna þér
   nýjar auglýsingar með því að skrá hvaða auglýsingar þú hefur þegar séð. Þau
   eru einnig notuð til að fylgjast með hvaða auglýsingar þú smellir á eða kaup
   sem þú gerir eftir að hafa smellt á auglýsingu í greiðsluskyni, og til að
   sýna þér auglýsingar sem eiga betur við þig. Til dæmis eru þau notuð til að
   greina hvenær þú smellir á auglýsingu og sýna þér auglýsingar sem byggjast á
   áhugamálum þínum á samfélagsmiðlum og vefferil vefsvæða.
 * Nauðsynlegar kökur.Við notum nauðsynleg fótspor til að framkvæma nauðsynlegar
   aðgerðir á vefsvæðinu. Til dæmis eru þau notuð til að skrá þig inn, vista
   tungumálastillingarnar þínar, bjóða upp á innkaupakörfu, bæta frammistöðu,
   leiða umferð milli vefþjóna, greina stærð skjásins, ákvarða hleðslutíma síðu
   og til að mæla stærð notendahóps. Þessi fótspor eru nauðsynleg til að
   vefsvæðin okkar virki.

Þegar þess er krafist biðjum við þig um samþykki áður en við vistum eða notum
valfrjálsar kökur sem ekki eru (i) algjörlega nauðsynlegar til að bjóða upp á
vefsvæðið eða (ii) í þeim tilgangi að greiða fyrir samskiptum.

Til að fá lista yfir þriðju aðila sem setja kökur á vefsvæðum okkar, þar á meðal
þjónustuveitur sem starfa fyrir okkur, skaltu fara í  kökugeymslu þriðja aðila.
Geymsla fyrir kökur þriðja aðila inniheldur einnig tengla á vefsvæði þriðju
aðila eða tilkynningar um persónuvernd. Ráðfærðu þig við vefsvæði þriðja aðila
eða tilkynningar um persónuvernd til að fá frekari upplýsingar um
persónuverndarvenjur þeirra hvað varðar kökur þeirra sem kunna að vera stilltar
á vefsvæðum okkar. Sum vefsvæða okkar geyma lista yfir þriðju aðila. Þriðju
aðilar þessara vefsvæða eru hugsanlega ekki á listanum á  kökugeymslu þriðja
aðila.

Hvernig kökum er stjórnað

Flestir vafrar samþykkja kökur sjálfvirkt en bjóða upp á stýringar sem gera þér
fært að útiloka þær eða eyða þeim. Í Microsoft Edge er til dæmis hægt að útiloka
eða eyða kökum með því að velja Stillingar > Persónuvernd og þjónusta  >Hreinsa
vefskoðunargögn > Kökur og önnur vefsvæðisgögn. Frekari upplýsingar um hvernig
kökum er eytt í Microsoft-vöfrum er að finna í Microsoft Edge, eldri Microsoft
Edge vöfrum eða Internet Explorer. Ef þú notar annan vafra skaltu fara eftir
leiðbeiningum hans.

Eins og minnst er á hér að ofan biðjum við þig um samþykki þegar þess er krafist
áður en við vistum eða notum valfrjálsar kökur sem ekki eru (i) algjörlega
nauðsynlegar til að bjóða upp á vefsvæðið eða (ii) í þeim tilgangi að greiða
fyrir samskiptum. Við flokkum þessar valfrjálsu kökur eftir tilgangi þeirra, til
dæmis fyrir auglýsingar eða samfélagsmiðla. Þú getur valið að samþykkja einstaka
flokka valfrjálsra kaka en ekki aðra. Þú getur einnig breytt vali þínu með því
að smella á „Stjórna kökum“ í síðufæti vefsvæðisins eða með stillingum sem eru í
boði á vefsvæðinu. Tilteknir eiginleikar Microsoft vara eru háðir kökum. Ef þú
velur að loka fyrir kökur getur þú ekki skráð þig inn eða notað suma af þessum
eiginleikum, og kjörstillingar sem reiða sig á kökur munu glatast. Ef þú velur
að eyða kökum verður öllum stillingum og kjörstillingum sem þessar kökur stjórna
eytt, þ. á m. kjörstillingum fyrir auglýsingar, og þarf því að búa þær til
aftur.

Frekari upplýsingar um stjórnun á persónuvernd sem tengist kökum, þar á meðal
hvernig Microsoft vafrar fylgjast með notendum er lýst í hlutanum Hvernig skal
nálgast og stjórna persónuupplýsingum þínum   í þessari yfirlýsingu um
persónuvernd.

Notkun okkar á vefvitum og greiningarþjónustu

Rafræn merki sem kallast vefvitar er komið fyrir á sumum vefsíðum Microsoft. Við
notum vefvitana til að birta kökur á vefsvæðum okkar, telja notendur sem hafa
heimsótt vefsvæðin og birta sammerktar vörur. Við setjum einnig vefvita eða
svipaða tækni í rafræn samskipti okkar til að komast að því hvort þú opnir
skilaboðin og bregðist við þeim.

Auk þess að setja vefvita á vefsvæði okkar, kunnum við einnig að vinna með öðrum
fyrirtækjum og setja vefvitana okkar á vefsvæðin eða auglýsingarnar þeirra.
Þetta hjálpar okkur til dæmis að fá fram talnagögn um það hversu oft smellur á
auglýsingu á vefsvæði Microsoft leiðir til kaupa eða annarrar virkni á vefsvæði
auglýsandans. Þetta gerir okkur einnig kleift að greina það sem þú gerir á
vefsvæðum samstarfsaðila Microsoft í tengslum við notkun þína á vöru eða
þjónustu Microsoft.

Loks geta Microsoft-vörur innihaldið vefvita eða álíka tækni frá
greiningarveitum þriðju aðila sem hjálpar við söfnun talnagagna um áhrifamátt
kynningarherferða okkar og annarra aðgerða. Þessi tækni gerir greiningaraðilum
kleift að setja eða lesa eigin kökur eða önnur auðkenni í tækinu þínu, þar sem
þeir geta safnað upplýsingum um starfsemi þína á netinu yfir forrit, vefsíður
eða aðrar vörur. Hins vegar leyfum við þessum greiningarveitum ekki að nota
vefvita á svæðum okkar til að safna eða fara í upplýsingar sem bera bein kennsl
á þig (eins og nafn þitt eða tölvupóstfang). Þú getur afþakkað gagnasöfnun eða
notkun sumra þessara greiningarveitna með því að fara á einhverja af
eftirfarandi síðum: Adjust, AppsFlyer, Clicktale, Flurry Analytics, Google
Analytics  (krefst þess að þú setjir upp
vafraviðbót), Kissmetrics, Mixpanel, Nielsen, Acuity Ads, WebTrends
eða Optimizely.

Önnur álíka tækni

Til viðbótar við staðlaðar kökur og vefvita geta vörur okkar einnig notað aðra
svipaða tækni til að geyma og lesa gagnaskrá í tölvunni þinni. Þetta er
yfirleitt gert til að viðhalda kjörstillingum þínum eða til að bæta hraða og
afköst með því að geyma ákveðnar skrár í tölvunni. En eins og með staðlaðar
kökur getur þessi tækni einnig geymt einkvæmt auðkenni fyrir tölvuna þína, sem
síðan getur rakið hegðun. Dæmi um slíka tækni eru staðbundnir samnýttir hlutir
eða ("Flash-kökur") og Silverlight geymslupláss.

Staðbundnir samnýttir hlutir eða "Leifturkökur." Vefsvæði sem nota Adobe
Flash-tækni geta notað staðbundna samnýtta hluti eða "Flash-kökur" til að geyma
gögn á tölvunni þinni. Lærðu að stjórna eða útiloka Flash-kökum hér  hjálparsíða
Flash Player.

Forritageymsla Silverlight. Vefsvæði eða forrit sem nota Microsoft
Silverlight-tæknina geta einnig vistað gögn með því að nota forritageymslu
Silverlight. Lærðu að stjórna eða útiloka slíka geymslu í Silverlight í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


VÖRUR FRÁ FYRIRTÆKINU ÞÍNU—TILKYNNING TIL NOTENDA

Ef þú notar vöru frá Microsoft með reikningi sem þú færð frá fyrirtæki sem þú
tengist, eins og vinnu- eða skólareikningi, getur það fyrirtæki:

 * Stjórnað Microsoft-vöru þinni og reikningi vörunnar, þar á meðal stjórnað
   stillingum sem tengjast persónuvernd vörunnar eða reikningi vörunnar.
 * Fengið aðgang að og unnið úr gögnunum þínum, þ.m.t. samskipta- og
   greiningargögnum og efni samskipta þinna og skráa, sem tengjast
   Microsoft-vörunni og reikningi vörunnar þinnar.

Ef þú glatar aðgangi að vinnu- eða skólareikningnum þínum (til dæmis út af nýrri
vinnu) gætir þú glatað aðgangi að vörum og efni sem tengist þessum vörum, þ.m.t.
þeim vörum sem þú eignaðist á eigin vegum, ef þú notaðir vinnu- eða
skólareikninginn til að skrá þig inn í slíkar vörur.

Margar Microsoft-vörur eru ætlaðar til notkunar hjá stofnunum, t.d. skólum og
fyrirtækjum. Lestu hluta Enterprise og Developer vörur í þessari yfirlýsingu um
persónuvernd. Ef stofnunin/fyrirtækið þitt veitir þér aðgang að Microsoft-vörum
takmarkast notkun þín á Microsoft-vörunum við stefnur
stofnunarinnar/fyrirtækisins ef einhverjar eru til staðar. Þú ættir að beina
fyrirspurnum um persónuvernd, þ.m.t. öllum beiðnum um að nýta rétt þinn á
gagnvernd, til kerfisstjóra stofnunarinnar/fyrirtækisins. Þegar þú notar
samfélagsaðgerðir í Microsoft-vörum kunna aðrir notendur á netkerfinu að sjá
einhverjar aðgerðir þínar. Frekari upplýsingar um netsamfélagsaðgerðir og aðra
virkni má finna í upplýsingaskjölum eða hjálparefninu tengdu Microsoft-vörunni.
Microsoft ber ekki ábyrgð á persónuverndar- eða öryggisstefnu eða -hegðun
viðskiptavina sinna, sem gæti verið önnur en sú sem er sett fram í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd.

Þegar þú notar Microsoft-vöru sem fyrirtækið þitt veitir mun vinnsla Microsoft á
persónuupplýsingum í tengslum við þá vöru falla undir samning milli Microsoft og
fyrirtækisins. Microsoft vinnur úr persónuupplýsingum þínum til að geta veitt
fyrirtækinu og þér vöruna, og í sumum tilfellum fyrir viðskiptaaðgerðir
Microsoft sem tengjast því að veita vöruna eins og lýst er í  Enterprise og
developer vöru  hlutunum. Ef þú vil fá nánari upplýsingar um úrvinnslu Microsoft
á persónuupplýsingum þínum sem tengjast því hvernig fyrirtækið þitt fær vörur
frá okkur skaltu hafa samband við fyrirtækið þitt, eins og nefnt er hér fyrir
ofan. Ef þú hefur spurningar um viðskiptaaðgerðir Microsoft sem tengjast því
hvernig stofnunin/fyrirtækið þitt fær vörur frá okkur eins og fram kemur í
vöruskilmálunum skaltu hafa samband við Microsoft eins og lýst er í the hvernig
á að hafa samband við okkur  hlutanum. Fyrir meiri upplýsingar um
viðskiptaaðgerðir okkar atugaðu  Enterprise og developer vöru hlutana.

Hvað varðar Microsoft-vörur frá leik- eða grunnskóla, þar á meðal Microsoft 365
Education, mun Microsoft:

 * hvorki safna né nota persónuupplýsingar nemenda nema að því marki sem
   nauðsynlegt og heimilt er í mennta- eða skólastarfi;
 * hvorki selja né leigja persónuupplýsingar nemenda;
 * hvorki nota né deila persónuupplýsingum nemenda í auglýsingatilgangi eða
   öðrum viðskiptatilgangi, svo sem auglýsingamiðun til nemenda;
 * ekki gera persónulegan prófíl af nemendum nema slíkt sé gert til að styðja
   við heimilað mennta- eða skólastarf eða með heimild foreldris, forráðamanns
   eða nemanda á viðeigandi aldri; og
 * krefjast þess að verktakar, ef einhverjir eru, sem við veitum aðgang að
   persónuupplýsingum nemenda til að veita menntaþjónustuna sé skylt að uppfylla
   sömu kröfur um persónuupplýsingar nemenda.

Fara aftur efst


MICROSOFT-REIKNINGUR

Með Microsoft-reikningi er hægt að skrá sig inn í vörur Microsoft, ásamt vörum
valinna samstarfsaðila Microsoft. Persónugögn sem tengjast Microsoft-reikningnum
þínum fela í sér innskráningarupplýsingar, nafn og samskiptaupplýsingar,
greiðsluupplýsingar, tækja- og gagnanotkun, tengiliði þína, upplýsingar um
aðgerðir þínar og áhugamál þín og eftirlæti. Innskráning á Microsoft-reikninginn
þinn virkjar sérstillingar og veitir samfellda upplifun þvert á vörur og tæki,
gerir þér kleift að nota gagnageymslu í skýjaþjónustu og leyfir þér að greiða
með greiðslumáta sem er vistaður á Microsoft-reikningnum þínum ásamt því að
virkja aðra eiginleika.

Það eru til þrjár gerðir af Microsoft-reikningum:

 * Þegar þú býrð til þinn eigin Microsoft-reikning sem er tengdur við
   persónulega netfangið þitt vísum við til þess reiknings sem persónulegs
   Microsoft-reiknings.
 * Þegar þú eða stofnunin/fyrirtækið þitt (t.d. vinnuveitandi eða skóli) búið
   til Microsoft-reikning sem er tengdur við netfangið þitt sem
   stofnunin/fyrirtækið veitir vísum við til þess reiknings sem vinnu- eða
   skólareiknings.
 * Þegar þú eða þjónustuveitan þín (t.d. kapalsjónvarp eða netfyrirtæki) búið
   til Microsoft-reikning sem er tengdur við netfangið þitt með léni
   þjónustuveitunnar vísum við til þess reiknings sem reiknings þriðja aðila.

Ef þú notar Microsoft-reikninginn þinn til innskráningar í þjónustu sem þriðji
aðili býður upp á verður þú að deila þeim reikningsgögnum sem þjónustan þarf að
nota með þessum þriðja aðila.

Með Microsoft-reikningi er hægt að skrá sig inn í vörur Microsoft, ásamt vörum
valinna samstarfsaðila Microsoft. Persónugögn sem tengjast Microsoft-reikningnum
þínum fela í sér innskráningarupplýsingar, nafn og samskiptaupplýsingar,
greiðsluupplýsingar, tækja- og gagnanotkun, tengiliði þína, upplýsingar um
aðgerðir þínar og áhugamál þín og eftirlæti. Innskráning á Microsoft-reikninginn
þinn virkjar sérstillingar, veitir samfellda upplifun þvert á vörur og tæki,
gerir þér kleift að nota gagnageymslu í skýjaþjónustu og leyfir þér að greiða
með greiðslumáta sem er vistaður á Microsoft-reikningnum þínum ásamt því að
virkja aðra eiginleika. Það eru til þrjár gerðir af Microsoft-reikningum:

 * Þegar þú býrð til þinn eigin Microsoft-reikning sem er tengdur við
   persónulega netfangið þitt vísum við til þess reiknings sem  persónulegs
   Microsoft-reiknings.
 * Þegar þú eða stofnunin/fyrirtækið þitt (t.d. vinnuveitandi eða skóli) búið
   til Microsoft-reikning sem er tengdur við netfangið þitt sem
   stofnunin/fyrirtækið veitir vísum við til þess reiknings sem  vinnu- eða
   skólareiknings.
 * Þegar þú eða þjónustuveitan þín (t.d. kapalsjónvarp eða netfyrirtæki) búið
   til Microsoft-reikning sem er tengdur við netfangið þitt með léni
   þjónustuveitunnar vísum við til þess reiknings sem  reiknings þriðja aðila.

Persónulegir Microsoft-reikningar. Gögnin sem tengjast persónulega
Microsoft-reikningnum þínum, og það hvernig gögnin eru notuð, fer eftir því
hvernig þú notar reikninginn.

 * Að búa til Microsoft-reikninginn þinn. Þegar þú býrð til þinn eigin
   Microsoft-reikning verður þú beðin(n) um að útvega tiltekin persónugögn og
   við munum úthluta þér einkvæmu kenni til að hægt sé að auðkenna reikninginn
   þinn og upplýsingar sem honum tengjast. Þótt einhverjar vörur, t.d. vörur sem
   tengjast greiðslum, krefjist innskráningar undir nafni geturðu skráð þig inn
   á og notað aðrar Microsoft-vörur án þess að gefa upp rétt nafn þitt. Einhver
   gögn sem þú veitir, t.d. nafn til birtingar, netfang og símanúmer, er hægt að
   nota til að hjálpa öðrum að finna þig og tengjast þér innan Microsoft-vara.
   Til dæmis geta einstaklingar sem þekkja birtingarnafn, netfang eða símanúmer
   þitt notað þessar upplýsingar til að finna þig á Skype eða Microsoft Teams
   til einkanota og sent þér boð um að tengjast þeim. Athugaðu að ef þú notar
   vinnu- eða skólanetfang til að búa til persónulegan Microsoft-reikning er
   mögulegt að vinnuveitandinn eða skólinn geti fengið aðgang að gögnunum þínum.
   Í sumum tilvikum verður þú að breyta netfanginu í persónulegt netfang til að
   halda áfram að fá aðgang að neytendamiðuðum vörum (til dæmis Xbox netkerfið).
 * Innskráning á Microsoft-reikning. Þegar þú skráir þig inn á
   Microsoft-reikninginn skráum við hjá okkur innskráninguna. Skráningin
   inniheldur dag- og tímasetningu, upplýsingar um vöruna sem þú skráðir þig inn
   á, innskráningarnafnið þitt, einkvæma númerið sem er tengt við reikninginn,
   einkvæma kennið sem er tengt við tækið þitt, IP-töluna þína, stýrikerfið og
   útgáfu vafrans.
 * Innskráning í Microsoft-vörur. Innskráning á reikninginn þinn gerir
   aðlögunina auðveldari, veitir snurðulausa og samfellda upplifun þvert á vörur
   og tæki, gerir þér kleift að opna og nota gagnageymslu í skýjaþjónustu og
   leyfir þér að greiða með greiðslumáta sem er vistaður á Microsoft-reikningnum
   þínum ásamt því að virkja aðra viðbótareiginleika og -stillingar. Þegar þú
   skráir þig inn gerir Microsoft til dæmis upplýsingar sem vistaðar eru á
   reikninginn þinn aðgengilegar í öllum Microsoft-vörum þannig að mikilvægir
   hlutir eru einmitt þar sem þú þarft á þeim að halda. Þegar þú skráir þig inn
   á reikninginn ertu innskráð(ur) þar til þú skráir þig út. Ef þú bætir
   Microsoft-reikningnum við Windows-tæki (útgáfa 8 eða hærri) mun Windows
   sjálfkrafa skrá þig inn í vörur sem nota Microsoft-reikning þegar þú opnar
   vörurnar á því tæki. Þegar þú ert innskráð(ur) birta einhverjar vörur nafn
   þitt eða notandanafn og notandamyndina þína (ef þú hefur bætt mynd við
   notandasíðuna þína) sem hluta af notkun þinni á Microsoft-vörum, þ.m.t. í
   samskiptum þínum, þátttöku þinni í félagslífi og almennum færslum. Frekari
   upplýsingar um Microsoft-reikninginn, gögnin og val þitt.
 * Innskráning í vörur frá þriðju aðilum. Ef þú skráir þig inn í vöru þriðja
   aðila með Microsoft-reikningnum þínum verður þú að deila gögnum með þriðja
   aðilanum í samræmi við persónuverndarstefnu hans. Þriðji aðilinn fær einnig
   upplýsingar um útgáfunúmer reikningsins (nýju útgáfunúmeri er úthlutað í
   hvert skipti sem þú breytir innskráningargögnunum þínum) og upplýsingar sem
   greina frá því hvort reikningurinn hafi verið gerður óvirkur. Ef þú deilir
   notandagögnunum þínum getur þriðji aðilinn birt nafn þitt eða notandanafn og
   notandamyndina þína (ef þú hefur bætt mynd við notandasíðuna þína) þegar þú
   ert skráð(ur) inn í þá vöru þriðja aðila. Ef þú kýst að greiða söluaðila, sem
   er þriðji aðili, með Microsoft-reikningnum þínum mun Microsoft senda vistaðar
   upplýsingar af Microsoft-reikningnum þínum til þriðja aðila eða söluaðila
   hans (t.d. aðila sem vinnur úr greiðslum) eins og nauðsynlegt er til að vinna
   úr greiðslu og ljúka pöntun þinni (til dæmis nafn, kreditkortanúmer,
   heimilisföng greiðanda og viðtakanda ásamt viðeigandi samskiptaupplýsingum).
   Þriðji aðilinn getur notað eða deilt gögnunum sem þeim berast í samræmi við
   eigin starfsvenjur og stefnumál þegar þú skráir þig inn eða verslar. Þú ættir
   að fara vandlega yfir yfirlýsingu um persónuvernd hjá hverri vöru þar sem þú
   skráir þig inn og hjá hverjum söluaðila þar sem þú verslar til að geta komist
   að því hvernig aðilinn notar gögnin sem hann safnar.

Vinnu- eða skólareikningur. Gögnum sem tengjast vinnu- eða skólareikningi, og
notkun þeirra, svipar að mestu leyti til notkunar og söfnunar á gögnum sem
tengjast persónulegum Microsoft-reikningi.

Ef vinnuveitandinn eða skólinn notar Microsoft Entra ID til að stjórna
reikningnum getur þú notað vinnu- eða skólareikninginn til að skrá þig inn í
vörur Microsoft, t.d. Microsoft 365 og Office 365, og vörur þriðja aðila sem
stofnunin/fyrirtækið útvegar þér. Ef fyrirtækið/stofnunin þín krefst þess,
verður þú einnig beðin(n) um að gefa upp símanúmer eða annað netfang fyrir
aukalega öryggisauðkenningu. Ef stofnunin/fyrirtækið leyfir getur þú einnig
notað vinnu- eða skólareikninginn til að skrá þig inn í vörur Microsoft eða
þriðja aðila sem þú aflar þér á eigin vegum.

Ef þú skráir þig inn í Microsoft-vörur með vinnu- eða skólareikningi skaltu
athuga að:

 * Eigandi lénsins sem tengist netfanginu þínu getur hugsanlega stjórnað og haft
   umsjón með reikningnum þínum og fengið aðgang að gögnunum þínum og unnið úr
   þeim, þ.m.t. innihaldi samskipta þinna og skjala, m.a. gögnum sem safnað er
   af vörum sem stofnunin/fyrirtækið þitt útvegaði þér og vörum sem þú eignast á
   eigin vegum.
 * Notkun þín á vörunum takmarkast af stefnum stofnunarinnar/fyrirtækisins (ef
   einhverjar eru til staðar). Þú ættir að skoða vel bæði stefnu
   stofnunarinnar/fyrirtækisins og það hvort þú sættir þig við að leyfa
   stofnuninni/fyrirtækinu að hafa aðgang að gögnunum þínum áður en þú ákveður
   að nota vinnu- eða skólareikninginn þinn til að skrá þig inn í vörur sem þú
   eignast á eigin vegum.
 * Ef þú glatar aðgangi að vinnu- eða skólareikningnum þínum (t.d. ef þú skiptir
   um starf) gætir þú glatað aðgangi að vörum, þ.m.t. efni sem tengist þessum
   vörum sem þú eignaðist á eigin vegum ef þú notaðir vinnu- eða
   skólareikninginn til að skrá þig inn í slíkar vörur.
 * Microsoft ber ekki ábyrgð á persónuvernd eða öryggisráðstöfunum
   stofnunarinnar/fyrirtækisins þíns, sem gætu verið aðrar en þær sem eru settar
   fram af Microsoft.
 * Ef stofnunin/fyrirtækið þitt er að stjórna notkun þinni á Microsoft-vörum
   skaltu beina fyrirspurnum þínum um persónuvernd, þ.m.t. öllum beiðnum um að
   nýta rétt þinn á gagnavernd, til kerfisstjórans. Sjá einnig
   hlutann Tilkynning til notenda í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.
 * Ef þú ert óviss hvort reikningurinn þinn er vinnu- eða skólareikningur skaltu
   hafa samband við fyrirtækið þitt.

Reikningar þriðju aðila. Gögnum sem tengjast reikningi þriðja aðila, og notkun
þeirra, svipar að mestu leyti til notkunar og söfnunar á gögnum sem tengjast
persónulegum Microsoft-reikningi. Þjónustuveitan þín hefur stjórn á reikningnum
þínum, þ.m.t. getuna til að opna eða eyða reikningnum. Þú ættir að lesa vandlega
skilmála sem þriðji aðili lét þig hafa til að skilja hvað hann getur gert við
reikninginn þinn.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


GAGNASÖFNUN FRÁ BÖRNUM

Fyrir notendur undir 13 ára aldri eða sem samkvæmt lögum í þeirra
lögsagnarumdæmi munu tilteknar vörur og þjónusta Microsoft annaðhvort útiloka
notendur undir þeim aldri eða biðja þá um að fá samþykki eða heimild frá
foreldri eða forráðamanni áður en þeir geta notað hana, þ.m.t. þegar reikningur
er stofnaður til að fá aðgang að þjónustu Microsoft. Við munum ekki vísvitandi
biðja börn undir þessum aldri um að leggja til meiri upplýsingar en þarf til að
bjóða upp á vöruna.

Um leið og samþykki eða heimild foreldris liggur fyrir verður reikningur
barnsins meðhöndlaður á sama máta og aðrir reikningar. Frekari upplýsingar um
persónulega og skólareikninga í hlutanum Microsoft-reikningur í yfirlýsingunni
um persónuvernd og Microsoft Family Safety í hlutanum um tilteknar vörur. Barnið
getur fengið aðgang að samskiptaþjónustum, t.d. Outlook og Skype, og er frjálst
að senda og deila gögnum með öðrum notendum á öllum aldri. Foreldrar eða
forráðamenn geta breytt eða afturkallað samþykki sem áður var valið. Frekari
upplýsingar um samþykki foreldris og reikninga barna í Microsoft. Sem
skipuleggjandi Microsoft-fjölskylduhóps getur foreldri eða forráðamaður haft
umsjón með upplýsingum og stillingum barns síns á síðunni Family Safety og
skoðað og eytt gögnum barnsins í persónuverndaryfirlitinu. Reikningar sem
krefjast þess að foreldri samþykki stofnun þeirra verða sjálfkrafa hluti af
fjölskylduhópi einstaklingsins sem samþykkti stofnun reikningsins. Fyrir
reikninga barna sem krefjast ekki samþykkis foreldris, (t.d. fyrir börn sem eru
yfir þeim aldri sem lagaleg krafa er gerð um samþykki foreldris), getur foreldri
eða forráðamaður enn notað fjölskylduhóp, en verður að bæta reikningi barnsins
við fjölskylduhópinn eftir stofnun reikningsins. Veldu „Frekari upplýsingar“ hér
að neðan fyrir upplýsingar um hvernig skal fá aðgengi að og eyða gögnum barna.

Fyrir notendur undir 13 ára aldri eða sem samkvæmt lögum í þeirra
lögsagnarumdæmi munu tilteknar vörur og þjónusta Microsoft annaðhvort útiloka
notendur undir þeim aldri eða biðja þá um að fá samþykki eða heimild frá
foreldri eða forráðamanni áður en þeir geta notað hana, þ.m.t. þegar reikningur
er stofnaður til að fá aðgang að þjónustu Microsoft. Við munum ekki vísvitandi
biðja börn undir þessum aldri um að leggja til meiri upplýsingar en þarf til að
bjóða upp á vöruna.

Um leið og samþykki eða heimild foreldris liggur fyrir verður reikningur
barnsins meðhöndlaður á sama máta og aðrir reikningar. Barnið getur fengið
aðgang að samskiptaþjónustum, t.d. Outlook og Skype, og er frjálst að senda og
deila gögnum með öðrum notendum á öllum aldri.Frekari upplýsingar um samþykki
foreldris og Microsoft-reikninga barna.

Foreldrar eða forráðamenn geta breytt eða afturkallað fyrra vali um samþykki.
Sem skipuleggjandi Microsoft-fjölskylduhóps getur foreldri eða forráðamaður haft
umsjón með upplýsingum og stillingum barns síns á síðunni Family Safety og
skoðað og eytt gögnum barnsins í persónuverndaryfirlitinu. Reikningar sem
krefjast þess að foreldri samþykki stofnun þeirra verða sjálfkrafa hluti af
fjölskylduhópi einstaklingsins sem samþykkti stofnun reikningsins. Fyrir
reikninga barna sem krefjast ekki samþykkis foreldris, (t.d. fyrir börn sem eru
yfir þeim aldri sem lagaleg krafa er gerð um samþykki foreldris), getur foreldri
eða forráðamaður enn notað fjölskylduhóp, en verður að bæta reikningi barnsins
við fjölskylduhópinn eftir stofnun reikningsins. Sjá hér að neðan til að fá
frekari upplýsingar um hvernig á að fá aðgang að og eyða gögnum barna.

Hér að neðan eru viðbótarupplýsingar um söfnun gagna frá börnum ásamt
upplýsingum sem tengjast Xbox.

Að fá aðgang að og eyða gögnum barna Fyrir vörur og þjónustu Microsoft sem
krefjast samþykkis frá foreldri getur foreldri skoðað og eytt ákveðnum gögnum
sem tilheyra barninu úr persónuverndaryfirliti foreldrisins: vefferli,
leitarferli, staðsetningarvirkni, virkni á miðlum, virkni í forritum og þjónustu
og gögnum um frammistöðu vöru og þjónustu. Til að eyða þessum gögnum getur
foreldri skráð sig inn á persónuverndaryfirlit sitt og stjórnað aðgerðum barns
síns. Athugaðu að geta foreldris til að opna og/eða eyða persónuupplýsingum
barns á persónuverndaryfirliti sínu er mismunandi eftir lögum þar sem þú ert
staðsett(ur).

Foreldri getur að auki haft samband við persónuverndarteymi okkar í gegnum
persónuverndareyðublað og eftir sannvottun beðið um að gagnagerðum á
persónuverndaryfirlitinu ásamt eftirfarandi gögnum sé eytt: Hugbúnaði,
uppsetningu og geymslu; tengigetu og grunnstillingu tækis; ábendingum og
einkunnum; líkamsrækt og virkni; stuðningsefni; stuðningssamskiptum; og
umhverfisskynjara. Við vinnum úr sannvottuðum eyðingarbeiðnum innan 30 daga frá
móttöku.

Athugaðu að efni eins og tölvupóstur, tengiliðir og spjall er aðgengilegt með
þjónustumöguleikum vörunnar. Frekari upplýsingar um gögn sem þú getur haft
stjórn á í vörum Microsoft er að finna í Algengar spurningar um persónuvernd
(algengar spurningar).

Ef reikningur barnsins þíns er ekki hluti af Microsoft-fjölskylduhópnum þínum og
þú hefur ekki aðgang að aðgerðum barnsins þíns á persónuverndaryfirliti þínu
þarftu að senda inn beiðni sem tengist gögnum barnsins þíns með
persónuverndareyðublaði. Persónuverndarteymið mun biðja um sannprófun reiknings
áður en beiðnin er fullunnin.

Til að eyða öllum persónuupplýsingum barnsins þíns verður þú að biðja um að
reikningi barnsins verði eytt með eyðublaði um lokun reiknings. Þessi tengill
biður þig um að skrá þig inn með innskráningarupplýsingum barnsins. Athugaðu
hvort síðan sýnir réttan Microsoft-reikning og fylgdu síðan leiðbeiningunum til
að biðja um að reikningi barnsins þíns verði eytt.Frekari upplýsingar um hvernig
á að loka Microsoft-reikningi.

Eftir að þú hefur sent inn beiðni um að loka reikningi barnsins þíns munum við
bíða í 60 daga áður en reikningnum er varanlega eytt ef ske kynni að þú skiptir
um skoðun eða þarft að fá aðgang að einhverju á reikningnum áður en honum er
varanlega lokað og eytt. Á meðan að biðtímanum stendur er reikningurinn merktur
til lokunar og varanlegrar eyðingar, en hann er enn til. Ef þú vilt opna
Microsoft-reikning barnsins þíns aftur skráðu þig aftur inn innan þessa 60 daga
tímabils. Við hættum við lokun reikningsins og reikningurinn verður
enduruppsettur.

Hvaðer XBox? Xbox er leikja- og afþreyingardeild Microsoft. Xbox hýsir netkerfi
sem samanstendur af hugbúnaði og sem bætir upplifun á netinu á mörgum
vettvöngum. Þetta netkerfi gerir barninu þínu kleift að finna og spila leiki,
skoða efni og tengjast vinum á Xbox og öðrum leikja- og samfélagsmiðlum.

Þegar notendur skrá sig inn í Xbox, í forritum, leikjum eða Xbox-leikjatölvu,
úthlutum við tækjum þeirra einkvæmu auðkenni. Til dæmis þegar Xbox-leikjatölvan
er tengd við internetið og barnið skráir sig inn í leikjatölvuna auðkennum við
hvaða leikjatölvu og hvaða útgáfu af stýrikerfi leikjatölvunnar það notar.

Xbox heldur áfram að veita nýja upplifun í biðlaraforritum sem eru tengd við og
studd af þjónustu eins og Xbox-net og leikjaspilun í skýi. Þegar þú er skráð(ur)
inn í Xbox-upplifun söfnum við nauðsynlegum gögnum til að tryggja að upplifunin
sé örugg, uppfærð og virki sem skyldi.

Gögn sem við söfnum þegar þú býrð til Xbox-prófíl. Þú sem foreldri eða
forráðamaður þarft að samþykkja söfnun persónuupplýsinga frá barni yngra en 13
ára eða eins og tilgreint er í lögsagnarumdæminu þínu. Með þínu leyfi getur
barnið þitt verið með Xbox-prófíl og notað Xbox-netið á netinu. Meðan á
skráningu Xbox-prófíl barnsins stendur skráir þú þig inn með eigin
Microsoft-reikningi til að staðfesta að þú sért fullorðinn skipuleggjandi í
Microsoft-fjölskylduhópnum þínum. Við söfnum aukanetfangi eða símanúmeri til að
auka öryggi reikningsins. Ef barnið þitt þarf hjálp við að fá aðgang að
reikningnum sínum geta það notað einn af þessum valkostum til að staðfesta að
þau séu eigandi Microsoft-reikningsins.

Við söfnum takmörkuðum upplýsingum um börn, þ.á m. nafn, fæðingardag, netfang og
svæði. Þegar þú skráir barnið þitt fyrir Xbox-prófíl fær það spilaramerki
(opinbert gælunafn) og einkvæmt auðkenni. Þegar þú býrð til Xbox-prófíl barnsins
þíns samþykkir þú að Microsoft safni, noti og deili upplýsingum á grundvelli
persónuverndar- og samskiptastillinga þess á netkerfi Xbox. Persónuverndar- og
samskiptastillingar barnsins eru sjálfgefið þær takmarkandi sem mestar.

Gögn sem við söfnum. Við söfnum upplýsingum um notkun barnsins þíns á
Xbox-þjónustu, leikjum, forritum og tækjum, þar á meðal:

 * Þegar það skráir sig inn og út úr Xbox, innkaupaferil og efni sem það fær.
 * Hvaða leiki þau spila og forrit sem þau nota, framvindu leiksins, árangur,
   spilunartíma á leik og aðra tölfræðiupplýsingar um spilun.
 * Gögnum um frammistöðu Xbox-leikjatölva, Xbox Game Pass-forritsins og annarra
   Xbox-forrita, tengdra aukabúnaða og nettengingar, þ.m.t. hugbúnaðar- og
   vélbúnaðarvillur.
 * Efni sem barnið bætir við, hleður upp eða samnýtir í gegnum Xbox-netið, þar á
   meðal texta, myndir og myndefni sem það tekur upp í leikjum og forritum.
 * Félagsleg virkni, þ.m.t. spjallgögn og samskipti við aðra spilara, og
   tengingar sem barnið gerir (vinir sem það bætir við og fólk sem fylgir því) á
   Xbox-netinu.

Ef barnið notar Xbox-leikjatölvu eða annað Xbox-forrit á öðru tæki sem getur
haft aðgang að Xbox-netinu, og það tæki er með geymslutæki (harðan disk eða
minniseiningu) verða notkunargögnin geymd í geymslutækinu og send til Microsoft
næst þegar barnið skráir sig inn í Xbox, jafnvel þegar það hefur spilað utan
nets.

Xbox-greiningargögn. Ef barnið þitt notar Xbox-leikjatölvu mun Xbox senda
Microsoft nauðsynleg gögn. Áskilin gögn eru lágmarksgögn sem þarf til að halda
Xbox-leikjatölvunni öruggri og uppfærðri og til að tryggja að hún starfi rétt.

Leikjaupptökur. Allir spilarar í fjölspilunarlotu geta tekið upp myndefni
(leikjamyndskeið) og tekið skjámyndir af sinni sýn í leiknum. Leikjamyndskeið og
skjámyndir annarra spilara geta tekið upp karakter barnsins og spilaramerki í
leiknum meðan á þeirri lotu stendur. Ef spilari tekur leikjamyndskeið og
skjámyndir á tölvu gætu leikjamyndskeiðin sem verða til einnig tekið upp
hljóðspjall ef persónuverndar- og samskiptastillingar barnsins á netkerfi Xbox
leyfa það.

Skjátextar. Við spjall í rauntíma („partí“) í Xbox geta spilarar virkjað
talgervilseiginleika sem gerir þeim kleift að sjá spjallið sem texta. Ef spilari
virkjar þennan eiginleika notar Microsoft textagögnin sem til verða til þess að
setja skjátexta á spjall fyrir spilara sem þurfa á því að halda. Þessi gögn má
einnig nota til að bjóða upp á öruggt leikjaumhverfi og framfylgja
samfélagsstöðlum fyrir Xbox.

Gagnanotkun. Microsoft notar gögnin sem við söfnum, þegar barnið þitt notar
Xbox, til að bæta leikjavörur og upplifun – sem gerir það öruggara og
skemmtilegra með tímanum. Gögn sem við söfnum gera okkur einnig kleift að veita
barninu sérvalda upplifun. Þetta felur í sér að tengja barnið við leiki, efni,
þjónustu og ráðleggingar.

Xbox-gögn sem aðrir geta skoðað. Þegar barnið þitt notar Xbox-netið er nærvera
þess á netinu (sem hægt er að stilla á „birtast utan nets“ eða „útilokað“),
spilaramerki, tölfræðiupplýsingar um spilun og árangur sýnileg öðrum spilurum á
netinu. Út frá Xbox-öryggisstillingum barnsins gæti það samnýtt upplýsingar
þegar það spilar leiki eða á í samskiptum við aðra á Xbox-netinu.

Öryggi. Til að gera Xbox-netið að öruggu leikjaumhverfi og framfylgja
samfélagsstöðlunum fyrir Xbox gætum við safnað og farið yfir raddgögn, texta,
myndir, myndbönd og efni í leiknum (t.d. myndskeiðum úr leikjum sem barnið
hleður upp, samtölum sem það hefur sett upp og efni sem það sendir inn í klúbbum
og leikjum).

Vörn gegn svindli og svikum. Það er okkur mikilvægt að bjóða upp á sanngjarnt
leikjaspilunarumhverfi. Við bönnum svindl, netárásir, reikningsstuld og hvers
kyns aðrar óleyfilegar eða svikular aðgerðir þegar barnið þitt notar
Xbox-netleik eða hvaða nettengda forrit sem er í Xbox-leikjatölvunni,
einkatölvunni eða fartækinu. Til að greina og koma í veg fyrir svik og svindl
kunnum við að nota verkfæri, forrit og aðra tækni til að hindra svindl og svik.
Slík tækni getur búið til stafrænar undirritanir (þekkt sem „tætigildi”) með því
að nota tilteknar upplýsingar sem fengnar eru úr Xbox-leikjatölvunni,
einkatölvunni eða fartækinu og hvernig viðkomandi notar tækið. Þetta geta verið
upplýsingar um vafra, tæki, aðgerðir, auðkenni leikja og stýrikerfi.

Xbox-gögn sem deilt er með útgefendum leikja og forrita. Þegar barnið þitt notar
leik eða forrit sem virkar með Xbox-neti eða hvaða nettengdu forriti sem er í
gegnum Xbox-leikjatölvu þess, tölvu eða fartæki, hefur útgefandi viðkomandi
leiks eða forrits aðgang að gögnum um notkun barnsins til að hjálpa útgefandanum
að bjóða upp á, veita stuðning og bæta vörur sínar. Þessi gögn kunna að
innihalda: Xbox-notandakenni barnsins, spilaramerki barnsins, takmarkaðar
upplýsingar um reikning á borð við land og aldursbil, gögn um samskipti barnsins
í leikjum, hvers kyns Xbox-framkvæmdaraðgerðir, gögn um spilunarlotur barnsins í
leikjum (til dæmis hreyfingar gerðar í leik, gerðir ökutækja sem eru notaðar í
leik), viðveru barnsins á Xbox-netinu, hversu lengi barnið spilar leikinn eða
notar forritið, stöður, talnagögn, leikjaferla, notandamyndir eða leikjamyndir,
vinalista, aðgerðatrauma fyrir opinbera klúbba sem barnið er meðlimur í,
félagsaðild og efni sem barnið býr til eða sendir í leiknum eða forritinu.

Þriðju aðila útgefendur og þróunaraðilar leikja og forrita eiga í sínu eigin og
sjálfstæðu sambandi við notendur og söfnun þeirra og notkun á persónuupplýsingum
falla undir þeirra eigin persónuverndarstefnu. Þú ættir að fara vandlega yfir
stefnur þeirra til að sjá hvernig þeir nota gögn barnsins þíns. Útgefendur geta
til dæmis valið að deila eða birta leikjagögn (t.d. stigatöflur) í gegnum þeirra
eigin þjónustur. Þú getur fundið stefnur þeirra sem tengjast upplýsingasíðum
leiksins eða forritsins í verslunum okkar.

Frekari upplýsingar er að finna á samnýtingu gagna með leikjum og forritum.

Til að hætta að deila leik- eða forritagögnum með útgefanda skaltu fjarlægja
leiki hans eða forrit úr öllum tækjum þau hafa verið sett upp í. Suman aðgang
sem útgefendur hafa að gögnunum þínum kann að vera hægt að afturkalla á
microsoft.com/consent.

Umsjón með stillingum barnsins. Sem skipuleggjandi Microsoft-fjölskylduhóps
getur þú stjórnað upplýsingum og stillingum barnsins á Fjölskylduverndar síðu
þess, sem og persónuverndarstillingum Xbox-prófílsins á Xbox persónuverndar &
netöryggissíðunni.

Þú getur einnig notað forritið Xbox-fjölskyldustillingar til að stjórna upplifun
barnsins á Xbox-netinu, þar á meðal: eyðslu í verslunum Microsoft og Xbox,
skoðun Xbox-aðgerða barnsins og stillingu aldursflokkana og skjátímamagns.
Stillingar Family Safety í Xbox munu gilda í Xbox-leikjatölvu eða í gegnum Xbox
í tölvu eða fartæki, en gilda hugsanlega ekki í öðrum kerfum.

Frekari upplýsingar um stjórnun Xbox-notendasíðna í öryggis- og
persónuverndarstillingum Xbox.

Fáðu frekari upplýsingar um Microsoft-fjölskylduhópa í Einfaldaðu líf
fjölskyldunnar.

Gamalt.

 * Xbox 360. Þessi Xbox-leikjatölva safnar takmörkuðum nauðsynlegum
   greiningargögnum. Þessi gögn hjálpa til við að leikjatölva barnsins haldi
   áfram að virka sem skyldi.
 * Kinect. Kinect-skynjarinn er samsetning myndavélar, hljóðnema og innrauðs
   skynjara til að hægt sé að nota hreyfingar og rödd til að stjórna
   leikjaspilun. Dæmi:
   * Þú getur einnig notað myndavélina til að skrá þig sjálfvirkt inn í
     Xbox-netið með andlitskennslum. Þessi gögn verða á leikjatölvunni, þeim er
     ekki deilt með neinum og hægt er að eyða þeim hvenær sem er.
   * Í leikspilun kortfærir Kinect fjarlægðir milli liðamóta barnsins til að búa
     til einfalda mynd svo hægt sé að spila.
   * Hljóðnemar Kinect gera spilurum kleift að spjalla saman á meðan þeir spila
     leiki. Þeir gera notendum einnig kleift að gefa raddskipanir til að stjórna
     leikjatölvunni, leiknum, forritinu eða færa inn leitarorð.
   * Einnig er hægt að nota Kinect-skynjarann til að eiga samskipti með hljóði
     og mynd í gegnum þjónustu á borð við Skype.

Frekari upplýsingar um Kinect er að finna á Xbox Kinect og persónuvernd.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


AÐRAR MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR UM PERSÓNUVERND

Hér að neðan finnur þú viðbótarupplýsingar um persónuvernd, t.d. um það hvernig
við tryggjum öryggi gagnanna þinna, hvar við vinnum úr þeim og hversu lengi við
geymum þau. Frekari upplýsingar um Microsoft og skuldbindingu fyrirtækisins til
að tryggja persónuvernd þína má finna á Persónuvernd Microsoft.

Hér að neðan finnur þú viðbótarupplýsingar um persónuvernd, t.d. um það hvernig
við tryggjum öryggi gagnanna þinna, hvar við vinnum úr þeim og hversu lengi við
geymum þau. Frekari upplýsingar um Microsoft og skuldbindingu fyrirtækisins til
að tryggja persónuvernd þína má finna á  Persónuvernd Microsoft.

ÖRYGGI PERSÓNUGAGNA

Microsoft skuldbindur sig til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þinna. Við
notum úrval af öryggistækni og -verklagi til að vernda persónuupplýsingar þínar
fyrir óheimiluðum aðgangi, notkun eða birtingu. Til dæmis geymum við þau
persónulegu gögn sem þú gefur upp í tölvukerfum sem hafa takmarkaðan aðgang og
eru í stýrðu umhverfi. Þegar við sendum afar viðkvæm gögn (eins og
kreditkortanúmer eða aðgangsorð) í gegnum internetið verndum við þau með því að
nota dulkóðun. Microsoft fer eftir gildandi lögum um gagnavernd, þ.m.t. gildandi
lögum um tilkynningar á öryggisbresti.

Fara aftur efst

HVAR VIÐ GEYMUM OG VINNUM ÚR PERSÓNUGÖGNUM

Persónugögn sem Microsoft safnar geta verið geymd og unnið úr þeim á þínu
landsvæði, í Bandaríkjunum eða annarri lögsögu þar sem Microsoft eða
hlutdeildarfélög, dótturfyrirtæki eða þjónustuaðilar þess eru með starfsemi.
Microsoft rekur stór gagnaver í Austurríki, Ástralíu, Bandaríkjunum, Brasilíu,
Bretlandi, Finnlandi, Frakklandi, Hong Kong, Hollandi, Indlandi, Írlandi, Japan,
Kanada, Kóreu, Lúxemborg, Malasíu, Singapúr, Suður-Afríku og Þýskalandi.
Yfirleitt er aðalgeymslustaður viðskiptavinarins á svæði hans eða í
Bandaríkjunum, oftast með afriti í gagnaveri á annarri staðsetningu.
Geymslustaðir eru valdir til að stýra þjónustu okkar og gera hana skilvirkari,
bæta afköst og vera með varakerfi til að vernda gögnin ef sambandsleysi eða
önnur vandamál koma upp. Við gerum ráðstafanir til að vinna úr gögnum sem við
söfnum samkvæmt þessari yfirlýsingu um persónuvernd í samræmi við ákvæði
yfirlýsingarinnar og kröfur gildandi laga.

Við flytjum persónugögn frá Evrópska efnahagssvæðinu, Bretlandi og Sviss til
annarra landa, sem sum hver eru í þeirri stöðu að framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur ekki enn ákvarðað að þau verndi gögn með fullnægjandi
hætti. Til dæmis er hugsanlegt að lögin þeirra tryggi ekki sömu réttindi eða það
sé ekki til staðar eftirlitsstofnun persónuverndar sem getur brugðist við
kvörtunum þínum. Þegar við tökum þátt í þess konar flutningum notum við ýmis
lögleg ferli, þar á meðal samninga eins og stöðluð samningsbundin ákvæði útgefin
af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undir framkvæmdarákvörðun
framkvæmdastjórnarinnar 2021/914, til að vernda réttindi þín og gera þessari
vörn kleift að ferðast með gögnunum þínum. Frekari upplýsingar um ákvarðanir
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins varðandi fullnægjandi vernd persónugagna í
löndum þar sem Microsoft vinnur úr persónugögnum má finna í eftirfarandi grein á
 vefsíðu Evrópusambandsins.

Microsoft Corporation uppfyllir gagnaverndarramma ESB-BNA, breskan viðauka við
gagnaverndarramma ESB-BNA og gagnaverndarramma Sviss-BNA eins og sett er fram af
bandaríska viðskiptaráðuneytinu. Microsoft Corporation hefur staðfest hjá
bandaríska viðskiptaráðuneytinu að það fylgi ákvæðum gagnaverndarramma ESB-BNA
hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga frá Evrópusambandinu og Evrópusambandinu í
samræmi við gagnaverndarramma ESB-BNA og frá Bretlandi (og Gíbraltar) í samræmi
við viðauka Bretlands við gagnaverndarramma ESB-BNA. Microsoft Corporation hefur
staðfest hjá bandaríska viðskiptaráðuneytinu að það fylgi ákvæðum
gagnaverndarramma Sviss-BNA hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga frá Sviss í
samræmi við gagnaverndarramma Sviss-BNA. Hvað framsendingar varðar ber Microsoft
Corporation ábyrgð á vinnslu persónuugagna sem það móttekur samkvæmt DPF og eru
síðan fluttar til þriðja aðila sem starfar sem fulltrúi fyrir okkar hönd.
Microsoft Corporation ber áfram ábyrgð samkvæmt DPF ef fulltrúi okkar vinnur úr
slíkum persónuupplýsingum sem samræmast ekki DPF, nema Microsoft Corporation
geti sannað að við berum ekki ábyrgð á skaðanum sem hlýst af. Komi til árekstrar
á milli skilmála þessarar persónuverndaryfirlýsingar og ákvæða gagnaverndarramma
ESB-BNA og Sviss-BNA skulu ákvæði gagnaverndarrammins gilda. Til að læra meira
um Data Privacy Framework (DPF) áætlunina og til að skoða vottun okkar
skaltu fara á vefsíðu bandaríska viðskiptaráðuneytisins Data Privacy Framework.
Stjórnað bandarískt dótturfyrirtæki Microsoft Corporation, eins og skilgreint er
í sjálfsvottunarskjalinu okkar, fylgja einnig DPF meginreglunum—fyrir frekari
upplýsingar, sjá listann yfir   Microsoft-fyrirtæki í Bandaríkjunum sem falla
undir vottun Persónuverndarrammans .

Ef þú ert með spurningu eða kvörtun varðandi þátttöku Microsoft í
gagnaverndarrömmunum hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í gegnum
 vefform. Vegna hugsanlegra kvartana út af gagnaverndarrömmunum sem Microsoft
getur ekki leyst úr með beinum hætti höfum við ákveðið að vera í samstarfi við
viðeigandi gagnaverndaryfirvöld Evrópusambandsins, eða hóp sérfræðinga sem
gagnaverndaryfirvöld í Evrópu hafa komið á fót, til að vinna úr ágreiningi hjá
einstaklingum innan Evrópusambandsins, bresku persónuverndarstofnuninni (fyrir
einstaklinga í Bretlandi) og svissnesku gagna- og persónuverndarstofnunina
(FDPIC) til að vinna úr ágreiningi svissneskra einstaklinga. Hafðu samband við
okkur ef þú vilt að við vísum þér á tengiliði gagnaverndaryfirvalda. Eins og
nánar er útskýrt í ákvæðum gagnaverndarrammans er bindandi gerðardómur í boði
til að taka á eftirstandandi kvörtunum sem ekki er leyst úr með öðrum hætti.
Microsoft lýtur rannsóknar- og framkvæmdarheimildum Alríkisviðskiptastofnunar
Bandaríkjanna (FTC).

Einstaklingar sem njóta verndar samkvæmt lögum Japans um vernd persónuupplýsinga
ættu að vísa í greinina á vefsvæði japönsku nefndarinnar um persónuverndarlög
 (aðeins birt á japönsku) til að fá frekari upplýsingar um umsögn nefndarinnar
um persónuverndarkerfi ákveðinna landa. Fyrir einstaklinga í Japan skal
smella hér  til að fá frekari upplýsingar um vinnslu upplýsinga samkvæmt
fjarskiptalögum í atvinnurekstri (aðeins á japönsku).

Fara aftur efst

VARÐVEISLA OKKAR Á PERSÓNUGÖGNUM

Microsoft varðveitir persónugögn eins lengi og nauðsynlegt er til að bjóða upp á
vörur og framkvæma færslur sem þú hefur beðið um, eða í öðrum lögmætum tilgangi,
t.d. til að uppfylla lagalegar skyldur, leysa úr deilum og framfylgja samningum
okkar. Þar sem kröfur geta verið mismunandi eftir gagnagerðum, samhengi
samskipta okkar við þig eða notkun þinni á vörum, getur raunverulegur
varðveislutími verið mjög mismunandi.

Önnur skilyrði sem eru notuð til að ákvarða varðveislutíma er eftirfarandi:

 * Veita viðskiptavinir, búa til eða viðhalda gögnunum með þeirri von að við
   munum geyma þau þar til þeir fjarlægja þau?  Sem dæmi má nefna skjal sem þú
   geymir á OneDrive eða tölvupóstskeyti sem þú geymir í Outlook.com innhólfinu.
   Í slíkum tilfellum myndum við stefna að því að geyma gögnin þar til að þú
   eyðir þeim sjálf(ur), til dæmis með því að færa tölvupóst úr innhólfi
   Outlook.com í möppuna „Eydd atriði“ og tæma síðan möppuna (þegar mappan „Eydd
   atriði“ er tæmd eru atriði sem var eytt enn í kerfi okkar í allt að 30 daga
   áður en þeim er eytt fyrir fullt og allt). (Athugaðu að það geta verið aðrar
   ástæður fyrir því að það þurfi að eyða gögnunum fyrr, t.d. ef þú ferð yfir
   mörk um gagnamagn sem hægt er að geyma á reikningnum þínum.)
 * Er sjálfvirk stýring, eins og á persónuverndaryfirliti Microsoft, sem gerir
   viðskiptavininum kleift að opna og eyða persónugögnum hvenær sem er? Ef svo
   er ekki verður almennt tekið upp styttri varðveislutími gagna.
 * Eru persónuupplýsingar af viðkvæmri gerð? Ef svo er yrði almennt tekið upp
   styttri varðveislutími.
 * Hefur Microsoft samþykkt og tilkynnt tiltekinn varðveislutíma fyrir tiltekna
   gagnagerð? Fyrir leitarfyrirspurnir á Bing eyðum við til dæmis auðkenningu
   vistaðra fyrirspurna með því að fjarlægja IP-töluna í heild sinni eftir 6
   mánuði og fjarlægja kökukenni og önnur auðkenni þvert á lotur sem eru notuð
   til að bera kennsl á tiltekinn reikning eða tæki eftir 18 mánuði.
 * Hefur notandinn veitt samþykki fyrir lengri varðveislutíma? Ef svo er munum
   við geyma gögn í samræmi við samþykki þitt.
 * Er Microsoft bundið lagalegri, samningsbundinni eða sambærilegri skyldu til
   að varðveita eða eyða gögnunum? Sem dæmi má nefna lögboðin lög um varðveislu
   gagna í viðeigandi lögsögu, fyrirmæli stjórnvalda um að varðveita gögn sem
   skipta máli fyrir rannsókn eða gögn sem eru geymd í þágu málaferla. Á móti
   kemur að ef lög krefjast þess að við fjarlægjum ólögmætt efni munum við gera
   það.

Fara aftur efst

GAGNAVERND Í RÍKJUM BANDARÍKJANNA

Ef þú ert íbúi í Bandaríkjunum vinnum við úr persónuupplýsingum þínum í samræmi
við gildandi persónuverndarlög í ríkjum Bandaríkjanna, þ.m.t. persónuverndarlög
fyrir neytendur í Kaliforníu (CCPA). Þessi hluti persónuverndaryfirlýsingar
okkar inniheldur upplýsingar sem krafist er í samræmi við CCPA og önnur
gagnaverndarlög í ríkjum Bandaríkjanna og koma til viðbótar við
persónuverndaryfirlýsingu okkar.

Hafðu í huga að reglum sem innleiða sum þessara laga hefur ekki enn verið lokið.
Við munum uppfæra ferli okkar, upplýsingar og þessa tilkynningu þar sem þessar
útfærslureglur eru endanlegar, og eins og annað er nauðsynlegt.

Einnig er hægt að sjá yfirlýsingu okkar um persónuvernd í Bandaríkjunum  og um
heilsuverndargögn neytenda  til að fá viðbótarupplýsingar um gögnin sem við
söfnum, vinnum úr, deilum og birtum, og réttindi þín samkvæmt viðeigandi lögum
um persónuvernd í Bandaríkjunum.

Sala. Við seljum ekki persónuupplýsingarnar þínar. Þess vegna bjóðum við ekki
upp á að afþakka sölu persónuupplýsinga.

Persónugreining.  Við tökum ekki þátt í "persónugreiningu" sem notar
persónuupplýsingar þínar til sjálfvirkrar ákvarðanatöku sem hefur lagaleg eða
álíka veruleg áhrif. Þannig að við bjóðum ekki upp á afþökkun á þessari tegund
af persónugreiningu.

Deila. Við gætum „deilt“ persónugögnum þínum, eins og það er skilgreint í
Kaliforníu og öðrum gildandi lögum bandaríska ríkisins til notkunar í sérsniðnum
auglýsingum. Eins og kemur fram í  auglýsinga  kaflanum sýnum við ekki
sérsniðnar auglýsingar börnum undir 18 ára aldri samkvæmt skráðum afmælisdegi á
Microsoft-reikningnum þeirra.

Í áherslumerkta listanum hér að neðan gerum við grein fyrir þeim flokkum gagna
sem við deilum fyrir sérsniðnar auglýsingar, viðtakendum persónuupplýsinganna og
tilgangi okkar með úrvinnslu. Lýsing á upplýsingunum sem felast í hverjum flokki
má finna í kaflanum um persónuleg gögn sem við söfnum .

Flokkar persónuupplýsinga

 * Nafn og samskiptaupplýsingar
   * Viðtakendur: Þriðju aðilar sem veita auglýsingaþjónustu á netinu fyrir
     Microsoft eða nota auglýsingatækni Microsoft
   * Tilgangur úrvinnslu: Til að veita sérsniðnar auglýsingar út frá áhugamálum
     þínum
 * Lýðfræðileg gögn
   * Viðtakendur: Þriðju aðilar sem veita auglýsingaþjónustu á netinu fyrir
     Microsoft eða nota auglýsingatækni Microsoft
   * Tilgangur úrvinnslu: Til að veita sérsniðnar auglýsingar út frá áhugamálum
     þínum
 * Gögn um áskriftir og leyfi
   * Viðtakendur: Þriðju aðilar sem veita auglýsingaþjónustu á netinu fyrir
     Microsoft eða nota auglýsingatækni Microsoft
   * Tilgangur úrvinnslu: Til að veita sérsniðnar auglýsingar út frá áhugamálum
     þínum
 * Notkun
   * Viðtakendur: Þriðju aðilar sem veita auglýsingaþjónustu á netinu fyrir
     Microsoft eða nota auglýsingatækni Microsoft
   * Tilgangur úrvinnslu: Til að veita sérsniðnar auglýsingar út frá áhugamálum
     þínum

Skoðið auglýsingar kaflann og  bandaríska tilkynningu um gagnaverndarlög ríkja 
fyrir meiri upplýsingar um samnýtingu á persónulegum auglýsingum undir
ríkislögum Bandaríkjanna.

RéttindiÞú hefur rétt á að óska eftir því að við (i) gefum upp hvaða
persónuupplýsingum við söfnum, notum, birtum, deilum og seljum, (ii) eyðum
persónuupplýsingum þínum, (iii) leiðréttum persónuupplýsingar þínar, (iv)
takmörkum notkun og birtingu viðkvæmra gagna þinna og (v) „deilum“ ekki
persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum í því skyni að sýna sérsniðnar
auglýsingar á vefsvæðum þriðju aðila. Þú getur lagt fram þessar beiðnir
sjálf(ur) eða gegnum fulltrúa. Ef fulltrúi kemur fram fyrir þína hönd veitum við
honum nákvæmar leiðbeiningar um hvernig þú getir nýtt þér persónuverndarréttindi
þín. Lestu tilkynningu okkar um gagnaverndarlög í Bandaríkjunum til fá frekari
upplýsingar um hvernig hægt er að nota þessi réttindi.

Þú gætir átt viðbótarréttindi sem tengjast heilsufarsgögnum neytenda eins og þau
eru skilgreind í gildandi lögum ríkja um persónuvernd neytenda
heilbrigðisþjónustu. Sjá  um persónuverndarstefnu fyrir neytendur á
heilbrigðisþjónustu hér fyrir neðan til að fá upplýsingar um réttindi sem finna
má í lögum í Washington-ríki um heilsuvernd (MHMDA) og öðrum gildandi lögum um
neytendavernd í Bandaríkjunum.

Ef þú ert með Microsoft-reikning getur þú nýtt réttindi þín í gegnum
persónuverndaryfirlit Microsoft, sem krefst þess að þú skráir þig inn á
Microsoft-reikninginn þinn. Ef upp koma fleiri beiðnir eða spurningar eftir að
þú hefur farið gegnum stjórnborðið getur þú haft samband við Microsoft á
netfangið sem fram kemur í hvernig á að hafa samband við okkur -hlutanum, þú
getur einnig notaðvefeyðublað, eða hringt í tollfrjálst bandarískt númer okkar
+1 (844) 931 2038. Ef þú ert ekki með reikning getur þú nýtt réttindi þín með
því að hafa samband við okkur eins og lýst er hér að ofan. Til að vernda
persónuupplýsingar þínar enn frekar biðjum við þig um frekari upplýsingar, t.d.
um búsetuland, netfang og símanúmer til að staðfesta auðkenni þitt og beiðni
áður en við höfum tekið ákvörðun um hana.

Þú getur látið í ljós val þitt um að afþakka deilingu persónuupplýsinga þinna
með þriðju aðilum fyrir sérsniðnar auglýsingar á vefsvæðum þriðja aðila með því
að fara á síðu okkar fyrir afþökkun samnýtingar. Þú getur einnig stjórnað
sérsniðnum auglýsingum sem þú sérð í eiginleikum Microsoft með því að fara á
afþökkunarsíðuna.

Við notum ekki né birtum viðkvæm gögn þín í öðrum tilgangi en þeim sem taldir
eru upp hér að neðan án samþykkis þíns eða eins og leyft er samkvæmt gildandi
gagnaverndarlögum. Þess vegna bjóðum við ekki upp á möguleika á að takmarka
notkun viðkvæmra gagna.

Ef þú hefur sent beiðni til Microsoft til að komast að, eyða, leiðrétta eða taka
á móti persónuupplýsingum þínum og telur að Microsoft hafi hafnað beiðni þinni
getur þú nýtt þér rétt þinn til að áfrýja niðurstöðu beiðninnar með því að hafa
samband við þjónustudeild okkar varðandi persónuvernd í gegnum vefeyðublað
okkar. Ef áfrýjunin misheppnast og eftir því ríki sem þú býrð í getur þú átt
rétt á að koma áhyggjuefni þínu á framfæri eða leggja fram kvörtun til
ríkissaksóknara.

Ef þú nýtir persónuverndarréttindi þín hefur þú rétt á að mál þín séu afgreidd
án þess að þér sé mismunað með einhverjum hætti. Við munum ekki mismuna þér
þegar þú nýtir persónuverndarréttindi þín.

Vinnsla persónuupplýsinga. Í áherslumerkta listanum hér fyrir neðan teljum við
upp þá flokka persónuupplýsinga sem við söfnum, hvaðan þessar persónuupplýsingar
koma, tilgang okkar með úrvinnslu þeirra og flokka viðtakenda þriðju aðila sem
við látum í té persónuupplýsingar. Lýsing á upplýsingunum sem felast í hverjum
flokki má finna í  persónuleg gögn sem við söfnum kaflanum. Vinsamlegast skoðaðu
hlutann Varðveisla okkar á persónuupplýsingum til að fá upplýsingar um viðmið um
varðveislu persónuupplýsinga.

Flokkar persónuupplýsinga

 * Nafn og samskiptaupplýsingar
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og samstarfsaðila sem við
     bjóðum sammerkta þjónustu
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á
     vörurnar okkar; svara spurningum viðskiptavina; hjálpa, veita öryggi og
     úrræðaleit; og markaðssetning
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Skilríki
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og stofnanir/fyrirtæki
     sem tákna notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á
     vörurnar okkar; sannvottun og aðgang að reikningum; og hjálpa, veita öryggi
     og úrræðaleit
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Lýðfræðileg gögn
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og kaup frá gagnamiðlurum
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á og
     sérsníða vörur okkar; stunda vöruþróun; hjálpa, veita öryggi og úrræðaleit;
     og markaðssetning
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Greiðsluupplýsingar
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og fjármálastofnanir
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Stunda viðskipti;
     vinna úr færslum; uppfylla pantanir; hjálpa, veita öryggi og úrræðaleit; og
     greina og koma í veg fyrir svik
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Gögn um áskriftir og leyfi
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og stofnanir sem eru
     fulltrúar notenda; verslunarglugga þriðja aðila og verkvanga þar sem vörur
     okkar eru keyptar
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Veita, sérsníða
     og virkja vörur okkar; þjónusta við viðskiptavini; hjálpa, veita öryggi og
     úrræðaleit; og markaðssetning
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Notkun
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur, þ.m.t. gögn sem
     Microsoft býr til í gegnum þessi samskipti
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á og
     sérsníða vörur okkar; bæta vörur okkar, vöruþróun; markaðssetningu; hjálpa,
     veita öryggi og úrræðaleit
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
   * Efni
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og stofnanir/fyrirtæki
     sem tákna notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á
     vörurnar okkar; öryggi; og hjálpa, veita öryggi og úrræðaleit
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Myndskeið eða upptökur
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur og heimildir sem eru
     aðgengilegar almenningi
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á vörur
     okkar; bæta vörur okkar, vöruþróun; markaðssetningu; hjálpa, veita öryggi
     og úrræðaleit; og öryggi
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar
 * Athugasemdir og einkunnir
   * Uppruni persónuupplýsinga: Samskipti við notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á vörur
     okkar; endurbætur á vörunni; vöruþróun; þjónusta við viðskiptavini; og
     hjálpa, veita öryggi og úrræðaleit
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og notendamiðaðar einingar

Þó áherslumerkti listinn hér að ofan tilgreini helstu uppruna og tilgang
úrvinnslu fyrir sérhvern flokk persónuupplýsinga, söfnum við einnig
persónuupplýsingum sem koma frá uppruna sem skráðar eru í hlutanum
um Persónuupplýsingar sem við skráum svo sem frá þróunaraðilum sem búa til
upplifanir í gegnum eða fyrir vörur frá Microsoft. Á sama hátt vinnum við úr
öllum flokkum persónuupplýsinga í þeim tilgangi sem lýst er í kaflanum Hvernig
við notum persónuupplýsingar til dæmis til að mæta lagalegum skyldum okkar, þróa
starfsfólk okkar og gera rannsóknir.

Háð þínum persónuverndarstillingum, samþykki þínu og eftir því hvaða vörur þú
notar og vali þínu, gætum við safnað, unnið úr eða opinberað tiltekin
persónugögn sem gilda sem „viðkvæm gögn“ samkvæmt viðeigandi lögum um
persónuvernd í Bandaríkjunum. Viðkvæm gögn eru hlutmengi persónuupplýsinga. Í
listanum hér fyrir neðan teljum við upp þá flokka viðkvæmra gagna sem við
söfnum, hvaðan þessi viðkvæmu gögn koma, tilgang okkar með úrvinnslu þeirra og
flokka viðtakenda þriðju aðila sem viðkvæmum gögnum er deilt með. Frekari
upplýsingar um viðkvæm gögn sem við kunnum að safna er að finna í
kaflanum persónugögn sem við söfnum fyrir meiri upplýsingar um gögn sem við
söfnum.

Flokkar viðkvæmra gagna

 * Innskráning reiknings, fjárhagsreikningur, debet- eða kreditkortanúmer og
   aðgangsleiðir reikningsins (öryggis- eða aðgangskóði, aðgangsorð, skilríki
   o.s.frv.)
   * Uppruni viðkvæmra gagna: Samskipti við notendur og stofnanir/fyrirtæki sem
     tákna notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Veita vöruna og
     uppfylla umbeðnar fjárhagsfærslur
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og greiðsluþjónustuveitur
 * Nákvæmar upplýsingar um landfræðilega staðsetningu
   * Uppruni viðkvæmra gagna: Samskipti notenda við vörurnar
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Veita umbeðna
     þjónustu; endurbætur á vörunni; einhverjar eigindir gætu verið birtar
     þriðju aðilum til að veita þjónustuna
   * Viðtakendur: Notendur og þjónustuveitur (sjá nánar
     í Windows-staðsetningarþjónustu og upptöku kaflanum í yfirlýsingu okkar um
     persónuvernd til að fá frekari upplýsingar)
 * Kynþáttur eða þjóðernislegur uppruni, trúarbrögð eða heimspekileg viðhorf eða
   aðild að verkalýðsfélagi
   * Uppruni viðkvæmra gagna: Samskipti við notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Framkvæma
     rannsóknir til að skilja betur hvernig vörur okkar eru notaðar og skynjaðar
     og í þeim tilgangi að bæta upplifun vörunnar
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur
 * Líkamleg heilsa eða geðheilbrigði, kynlíf eða kynhneigð
   * Uppruni viðkvæmra gagna: Samskipti við notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Framkvæma
     rannsóknir til að skilja betur hvernig vörur okkar eru notaðar og skynjaðar
     og í þeim tilgangi að bæta upplifun og aðgengileika vörunnar
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur
 * Efni pósts, tölvupósts eða textaskilaboða (þar sem Microsoft er ekki ætlaður
   viðtakandi samskiptanna)
   * Uppruni viðkvæmra gagna: Samskipti notenda við vörurnar
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á vörur
     okkar; bæta vöruupplifunina; öryggi; og hjálpa, veita öryggi og úrræðaleit
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur
 * Persónuupplýsingum safnað frá þekktu barni undir 13 ára aldri
   * Uppruni viðkvæmra gagna: Samskipti við notendur og stofnanir/fyrirtæki sem
     tákna notendur
   * Tilgangur úrvinnslu (söfnun og birting til þriðju aðila): Bjóða upp á vörur
     okkar; endurbætur á vörunni; vöruþróun; ráðleggingar; hjálpa, veita öryggi
     og úrræðaleit; og öryggi
   * Viðtakendur: Þjónustuveitur og aðilar sem beint er að notendum (í samræmi
     við Microsoft Family Safety stillingar)

Þó áherslumerkti listinn hér að ofan innihaldi helsta uppruna og tilgang
úrvinnslu fyrir persónuupplýsingar sem safnað er frá börnum yngri en 13 ára,
söfnum við einnig persónuupplýsingum frá þeim uppruna sem fram koma hlutanum
um Söfnun gagna frá börnum .

Við notum ekki eða birtum viðkvæmu gögnin þín í öðrum tilgangi en eftirfarandi:

 * Uppfylla þjónustuna eða bjóða upp á vörurnar sem þú gerir eðlilegar væntingar
   um
 * Hjálpa til við að tryggja öryggi og heilleika þjónustu okkar, kerfa og gagna
   til að berjast gegn skaðlegum, villandi, svikulum eða ólöglegum aðgerðum og
   til að vernda öryggi einstaklinga, að því marki sem úrvinnslan telst
   nauðsynleg og í eðlilegu samræmi við aðstæður
 * Til tímabundinnar notkunar til skamms tíma (þ.m.t. ekki sérsníddar
   auglýsingar), svo lengi sem persónuupplýsingar eru ekki birtar þriðja aðila,
   eru ekki notaðar til að persónugreina og eru ekki notaðar til að breyta
   upplifun einstaklings utan núverandi samskipta við Microsoft
 * Uppfylla þjónustu fyrir hönd Microsoft, svo sem að halda utan um reikninga,
   bjóða upp á notendaþjónustu eða uppfylla pantanir/færslur, staðfesta
   upplýsingar um viðskiptavini, vinna úr greiðslum, útvega fjármagn, bjóða upp
   á greiningu, geymslupláss og svipaða þjónustu
 * Grípa til aðgerða til að staðfesta eða viðhalda gæðum eða öryggi á, eða til
   að bæta eða uppfæra þjónustu eða tæki í eigu eða undir stjórn Microsoft
 * Safna eða vinna úr viðkvæmum gögnum þar sem söfnun eða vinnsla er ekki til að
   draga ályktanir um persónueinkenni einstaklingsins
 * Allar aðrar aðgerðir í samræmi við allar síðari reglugerðir sem gefnar eru út
   í samræmi við gagnaverndarlög í ríkjum Bandaríkjanna

Afgreind gögn. Við sumar aðstæður kann Microsoft að vinna úr afgreindum gögnum.
Gögn eru í þessari stöðu þegar ekki er hægt að tengja gögn við einstakling þar
sem slík gögn kunna að eiga við án þess að taka viðbótarskref. Í þeim tilfellum
og nema leyft sé samkvæmt gildandi lögum munum við viðhalda slíkum upplýsingum í
afgreindri stöðu og munum ekki reyna að auðkenna aftur einstaklinginn sem
afgreindu gögnin eiga við um.

Birting persónuupplýsinga í viðskiptalegum tilgangi eða í auglýsingaskyni. Eins
og kemur fram í kaflanum  ástæður þess að við deildum persónuupplýsingum deilum
við persónuupplýsingum með þriðju aðilum í ýmsum viðskiptalegum tilgangi og í
auglýsingaskyni. Þegar við deilum persónuupplýsingum í viðskiptalegum tilgangi
eða í auglýsingaskyni er fyrst og fremst um að ræða úrvinnslu sem talin er upp í
töflunni hér fyrir ofan. Hins vegar deilum við öllum flokkum persónuupplýsinga í
þeim viðskiptalega tilgangi og auglýsingaskyni sem lýst er í kaflanum  ástæður
þess að við deilum persónuupplýsingum .

Aðilar sem stjórna söfnun persónuupplýsinga. Í ákveðnum aðstæðum kunnum við að
leyfa þriðja aðila að stjórna söfnun persónuupplýsinga þinna. Til dæmis kunna
forrit eða viðbætur þriðja aðila sem keyra í Windows eða Edge-vafra að safna
persónuupplýsingum samkvæmt þeirra eigin venjum.

Microsoft leyfir auglýsingafyrirtækjum að safna upplýsingum um samskipti þín við
vefsvæði okkar til að birta sérsniðnar auglýsingar fyrir hönd Microsoft.  Þú
getur skoðað auglýsingasamstarfsaðila okkar þriðju aðila í tilkynningu um
gagnaverndarlög í Bandaríkjunum og afþakkað gagnadeilingu með þriðju aðilum á
afþökkunarsíðunni okkar.

Fara aftur efst

AUGLÝSINGAR

Auglýsingar leyfa okkur að útvega, styðja og bæta sumar af vörunum okkar.
Microsoft notar ekki það sem þú segir í tölvupósti, spjalli við annað fólk,
myndsímtölum eða talhólfsskilaboðum né skjöl, ljósmyndir eða aðrar persónulegar
skrár til að beina auglýsingum að þér. Við notum önnur gögn, eins og útskýrt er
fyrir neðan, til að auglýsa í eiginleikum okkar og eiginleikum þriðja aðila. Til
dæmis:

 * Microsoft kann að nota gögn sem við söfnum til að velja og birta einhverjar
   þeirra auglýsinga sem þú sérð í vefeiginleikum Microsoft á borð við
    Microsoft.com, Microsoft Start og Bing. Við kunnum einnig að nota slík gögn
   til að velja og birta auglýsingar á stafrænum eignum þriðja aðila.
 * Þegar auglýsingaauðkennið er virkt í Windows, sem hluti af
   persónuverndarstillingum þínum, geta þriðju aðilar fengið aðgang að og notað
   auglýsingaauðkennið (á mjög svipaðan hátt og vefsvæði geta fengið aðgang að
   og notað einkvæmt kennimerki sem vistað er í köku) til að velja og birta
   auglýsingar í slíkum forritum.
 * Við kunnum að deila gögnum sem við söfnum með innri og ytri samstarfsaðilum
   okkar á borð við Xandr, Yahoo eða Facebook (sjá að neðan) til að
   auglýsingarnar sem þú sérð í vörum okkar og vörum þeirra eigi meira erindi
   við þig og skipti þig meira máli.
 * Auglýsendur geta kosið að setja vefvita á vefsvæðin sín, eða notað svipaða
   tækni, til að leyfa Microsoft að safna upplýsingum á vefsvæðum þeirra, eins
   og um aðgerðir, kaup og heimsóknir. Við notum þessi gögn fyrir hönd
   samstarfsaðila okkar í auglýsingum til að birta auglýsingar.

Auglýsingarnar sem þú sérð kunna að vera valdar út frá gögnum sem við höfum
unnið úr um þig á borð við áhugamál þín og eftirlæti, staðsetningu þína, færslur
þínar, það hvernig þú notar vörur okkar, leitarfyrirspurnir þínar eða það hvaða
efni þú skoðar. Ef þú skoðar til dæmis efni í Microsoft Start um bíla kunnum við
að sýna þér bílaauglýsingar; ef þú leitar að „pítsastöðum í Reykjavík“ á Bing
kanntu að sjá auglýsingar í leitarniðurstöðum þínar um veitingastaði í
Reykjavík.

Auglýsingarnar sem þú sérð kunna einnig að vera valdar út frá öðrum upplýsingum
sem við höfum aflað um þig smátt og smátt með lýðfræðilegum gögnum,
staðsetningargögnum, leitarfyrirspurnum, áhugamálum og eftirlæti, notkunargögnum
úr vörum okkar og vefsvæðum, og upplýsingum sem við söfnum um þig af vefsvæðum
og forritum auglýsenda okkar og samstarfsaðila. Við vísum í þær auglýsingar sem
"sérsniðnar auglýsingar" í þessari yfirlýsingu. Ef þú skoðar til dæmis
leikjaspilun á  xbox.comkanntu að sjá tilboð um leiki í Microsoft Start. Til
þess að bjóða upp á sérsniðnar auglýsingar sameinum við kökur í tækinu þínu með
því að nota gögn sem við söfnum (eins og IP-tölu) þegar vafrinn þinn á í
samskiptum við vefsvæði okkar. Ef þú vilt hætta að fá sendar sérsniðnar
auglýsingar verða gögn sem tengjast þessum kökum ekki notuð.

Við kunnum að nota upplýsingar um þig til að birta þér sérsniðnar auglýsingar
þegar þú notar Microsoft-þjónustu. Ef þú ert skráð(ur) inn með
Microsoft-reikningnum þínum og hefur samþykkt að leyfa Microsoft Edge að nota
aðgerðir þínar á netinu til að sérsníða auglýsingar sérðu tilboð fyrir vörur og
þjónustu í samræmi við aðgerðir þínar á netinu þegar þú notar Microsoft Edge.
Til að grunnstilla persónuverndarstillingarnar þínar fyrir Edge skaltu opna
Microsoft Edge > Stillingar > Persónuvernd og þjónusta. Til að grunnstilla
persónuverndar- og auglýsingastillingar þínar fyrir Microsoft-reikninginn þinn
með tilliti til virkni þinnar á netinu í ýmsum vöfrum, þar á meðal Microsoft
Edge, eða þegar þú heimsækir vefsvæði eða forrit frá þriðju aðilum, skaltu fara
í yfirlitið þitt á  privacy.microsoft.com.

Nánari upplýsingar um auglýsingatengda notkun okkar á gögnum eru meðal annars:

 * Bestu starfsvenjur og skuldbinding í markaðsmálum. Microsoft er aðili að
    Network Advertising Initiative (NAI) og fylgir siðareglum þeirra. Við
   fylgjum einnig eftirfarandi sjálfseftirlitsáætlunum:
   * Í Bandaríkjunum:  Digital Advertising Alliance (DAA)
   * Í Evrópu:  European Interactive Digital Advertising Alliance (EDAA)
   * Í Kanada:  Auglýsingaval Stafrænt auglýsingabandalag Kanada (DAAC) / Choix
     de Pub: l'Alliance de la publicité numérique du Canada (DAAC)
 * Birting heilsutengdra auglýsinga. Í Bandaríkjunum bjóðum við upp á sérsniðnar
   auglýsingar sem byggjast á takmörkuðum fjölda staðlaðra, ekki viðkvæmra
   heilsutengdra áhugaflokka, sem fela m.a. í sér ofnæmi, gigt, kólesteról, kvef
   og flensu, sykursýki, heilsu meltingarvegar, höfuðverk/mígreni, heilbrigt
   mataræði, hjartaheilsu, heilsu karlmanna, tannheilsu, beinþynningu,
   húðheilsu, svefn, sjón og augnvernd. Við sérsníðum einnig auglýsingar á
   grundvelli sérsniðinna, ekki viðkvæmra heilsutengdra áhugaflokka samkvæmt
   óskum auglýsenda.
 * Börn og auglýsingar. Við sendum ekki sérsniðnar auglýsingar til barna sem eru
   undir 18 ára aldri samkvæmt skráðum afmælisdegi á Microsoft-reikningnum
   þeirra.
 * Varðveisla gagna. Við varðveitum ekki gögn fyrir sérsniðnar auglýsingar
   lengur en í 13 mánuði nema með leyfi frá þér.
 * Viðkvæm gögn. Microsoft Advertising hvorki safnar, vinnur úr né birtir
   persónuupplýsingar sem flokkast undir „viðkvæm gögn“ samkvæmt gildandi
   gagnaverndarlögum í ríkjum Bandaríkjanna í þeim tilgangi að bjóða upp á
   sérsniðnar auglýsingar.
 * Samnýting gagna. Í sumum tilfellum deilum við skýrslum með auglýsendum um
   gögnin sem við höfum safnað á þeirra svæðum eða auglýsingum.

Gögn sem safnað er af öðrum auglýsingafyrirtækjum. Auglýsendur setja stundum
sína eigin vefvita (eða frá öðrum samstarfsaðilum fyrir auglýsingar) inn í
auglýsingar sem við birtum fyrir þá, sem auðveldar þeim að setja inn og lesa úr
eigin köku. Þar að auki er Microsoft í samstarfi við  Xandr, fyrirtæki Microsoft
og auglýsingafyrirtæki þriðju aðila sem sjá um suma auglýsingaþjónustu okkar og
við leyfum einnig öðrum auglýsingafyrirtækjum þriðju aðila að birta auglýsingar
á svæðum okkar. Þessir þriðju aðilar kunna að setja vafrakökur upp í tölvunni
þinni og safna gögnum um athafnir þínar á netinu af vefsvæðum eða nettengdum
þjónustum. Þessi fyrirtæki eru með, en takmarkast ekki við: 
Facebook, Media.net, Útirigningu, Taboola og Yahoo. Veldu einhvern af tenglunum
hér á undan til að fá frekari upplýsingar um starfsemi hvers fyrirtækis, þ.m.t.
þá valkosti sem það býður upp á. Mörg þessara fyrirtækja eru einnig aðilar í
 NAI eða DAA, en bæði samtökin bjóða upp á einfalda leið til að afþakka
markauglýsingar frá samstarfsfyrirtækjum.

Til að afþakka sérsniðnar auglýsingar frá Microsoft skaltu fara á
 afþökkunar síðuna. Þegar þú afþakkar er kjörstilling þín vistuð í köku sem
gildir aðeins fyrir vafrann sem þú ert að nota. Úrsagnarkakan er með
fyrningardagsetningu upp á fimm ár. Ef þú eyðir kökum úr tækinu þínu þarftu að
afþakka aftur.

Fara aftur efst

TALGREININGARTÆKNI

Talgreiningartækni er byggð inn í margar vörur og þjónustur Microsoft. Microsoft
veitir bæði eiginleika talgreiningu sem byggir á tækjum og skýjum (á netinu).
Talgreiningartækni Microsoft breytir raddgögnum í texta. Með þínu leyfi geta
starfsmenn Microsoft og aðrir sem vinna fyrir hönd Microsoft farið yfir búta af
raddgögnum eða raddklippum þínum til að byggja upp og bæta talgreiningartækni
okkar. Þessar umbætur leyfa okkur að bæta getu raddvirkjunar sem kemur notendum
allra okkar vara og þjónustu til góða. Áður en starfsmaður eða söluaðili fer
yfir raddgögn verndum við persónugögn notenda með því að taka skref til að
afgreina gögnin, krefjast trúnaðarsamninga við viðeigandi söluaðila og
starfsmenn þeirra og krefjast þess að starfsmenn og söluaðilar uppfylli háa
staðla um persónvernd.  Lærðu meira um Microsoft og raddgögnin þín.

Fara aftur efst

FORÚTGÁFUR EÐA ÓKEYPIS ÚTGÁFUR

Microsoft býður upp á forútgáfur, insider-útgáfur, beta-útgáfur eða aðrar
ókeypis vörur og eiginleika ("forútgáfur") til að gera þér kleift að meta þær á
meðan þú veitir Microsoft gögn um notkun þína á vörunni, þ.m.t. athugasemdir og
tækja- og notkunargögn. Prufuútgáfur geta sjálfkrafa safnað viðbótargögnum,
bjóða upp á færri stillingar og nota aðrar persónuverndar- og öryggisráðstafanir
en þær sem eru yfirleitt til staðar í vörunum okkar. Ef þú tekur þátt í prófunum
á prufuútgáfum kunnum við að hafa samband við þig í sambandi við athugasemdirnar
frá þér eða áhuga þinn á að nota vöruna eftir að hún kemur á markað.

Fara aftur efst

BREYTINGAR Á ÞESSARI YFIRLÝSINGU UM PERSÓNUVERND

Við uppfærum þessa yfirlýsingu um persónuvernd þegar nauðsynlegt reynist að
veita aukið gagnsæi eða sem viðbrögð við:

 * Athugasemdum frá viðskiptavinum, eftirlitsaðilum, iðnaðinum eða öðrum
   hagsmunaaðilum.
 * Breytingum á vörum okkar.
 * Breytingum á gagnavinnsluaðgerðum okkar eða stefnum.

Ef við gerum breytingar á þessari yfirlýsingu munum við uppfæra dagsetninguna
"síðast uppfært" sem er að finna efst í yfirlýsingunni og lýsa breytingunum á
síðunni  breytingasaga . Ef efnislegar breytingar verða á yfirlýsingunni, t.d.
breytingar á ástæðum fyrir úrvinnslu persónugagna sem samræmast ekki
upprunalegri ástæðu gagnasöfnunarinnar, munum við tilkynna þér um það annaðhvort
með því að birta áberandi tilkynningu um slíkar breytingar áður en þær taka
gildi eða með því að senda þér beina tilkynningu. Við hvetjum þig til að skoða
þessa friðhelgisyfirlýsingu reglulega til að sjá hvernig Microsoft verndar
upplýsingarnar þínar.

Fara aftur efst

HVERNIG Á AÐ HAFA SAMBAND VIÐ OKKUR

Ef þú hefur áhyggjur af persónuvernd eða vilt leggja fram kvörtun eða spurningu
um persónuvernd til yfirmanns eftirlits með persónuvernd hjá Microsoft eða
yfirmanns gagnaverndar á þínu svæði skaltu hafa samband með því að nota
 vefform. Við munum svara spurningum eða ábendingum eins og lög mæla fyrir um og
innan 30 daga að hámarki. Þú getur einnig komið málum á framfæri eða lagt fram
kvörtun til gagnaverndaryfirvalda eða annars fulltrúa með lögsögu.

Þegar Microsoft er ábyrgðaraðili eru Microsoft Corporation og, fyrir þá sem eru
á Evrópska efnahagssvæðinu, Bretlandi og í Sviss, Microsoft Ireland Operations
Limited, ábyrgðaraðilar persónugagna sem við söfnum í gegnum þær vörur okkar sem
falla undir þessa yfirlýsingu, nema annað sé tekið fram. Heimilisföng okkar eru:

 * Microsoft Privacy, Microsoft Corporation, One Microsoft Way, Redmond,
   Washington 98052, Bandaríkjunum. Sími: +1 (425) 882 8080.
 * Microsoft Ireland Operations Limited, Attn: Gagnaverndarfulltrúi, One
   Microsoft Place, South County Business Park, Leopardstown, Dublin 18,
   Írlandi. Sími: +353 1 706 3117.

Til að finna dótturfyrirtæki Microsoft í þínu landi eða á þínu svæði skaltu
skoða lista yfir staðsetningar Microsoft-skrifstofa um allan heim.

Fulltrúi Microsoft Ireland Operations Limited í skilningi 14. gr. svissnesku
alríkislaganna um gagnavernd er Microsoft Schweiz GmbH, The Circle 02, 8058
Zürich-Flughafen, Sviss.

Ef þú vilt nýta réttindi þín samkvæmt gagnaverndarlögum í ríkjum Bandaríkjanna
geturðu haft samband við Microsoft í ofangreindu aðsetri í Bandaríkjunum, notað
 vefform okkar eða hringt í tollfrjálst bandarískt númer okkar +1 (844) 931
2038.

Ef þú ert íbúi Kanada og héruðum þess getur þú haft samband við
gagnaverndarfulltrúa Microsoft fyrir Kanada í höfuðstöðvum Microsoft í Kanada,
4400-81 Bay St, Toronto, ON, M5J 0E7, í +1 (416) 349 2506 eða notað
 vefformokkar.

Samkvæmt lögum í Frakklandi geturðu einnig sent okkur sérstakar leiðbeiningar
varðandi notkun persónugagna þinna eftir andlát þitt með því að notast við
 vefform.

Ef spurningar vakna um tæknileg mál eða þjónustu skaltu fara á  Notendaþjónustu
Microsoft  til að fá nánari upplýsingar um hvað notendaþjónusta Microsoft býður
upp á. Ef þú þarft að spyrja um aðgangsorð inn á persónulegan Microsoft-reikning
skaltu fara á  notendaþjónustu fyrir Microsoft-reikninga.

Við bjóðum upp á ýmsar leiðir svo þú getir stjórnað persónugögnum þínum sem
Microsoft hefur yfir að ráða og nýtt rétt þinn á gagnavernd. Það er hægt að gera
með því að hafa samband við Microsoft með vefeyðublaði okkar eða upplýsingarnar
hér að ofan, eða með því að nota ýmis verkfæri sem við bjóðum upp á. Skoðaðu
kaflann aðgangur og stjórnun persónugagna  fyrir frekari upplýsingar.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


GERVIGREIND OG MÖGULEIKAR MICROSOFT COPILOT

Microsoft nýtir sér krafta gervigreindar í mörgum vörum okkar og þjónustu,
þ.m.t. með því að fella inn gervigreindareiginleika, eins og möguleika Microsoft
Copilot. Innleiðing og notkun Microsoft á gervigreind falla undir  reglur  og
 staðla Microsoft um ábyrga gervigreind, og söfnun og notkun Microsoft á
persónuupplýsingum við þróun og innleiðingu gervigreindareiginleika er í samræmi
við skuldbindingar sem fram koma í þessari persónuverndaryfirlýsingu.
Upplýsingar um tilteknar vörur veita frekari upplýsingar. Þú getur fengið nánari
upplýsingar um hvernig Microsoft notar gervigreind hér.

Möguleikar Microsoft Copilot. Microsoft Copilot er daglegur gervigreindarfélagi
Microsoft og er hannaður til að hjálpa þér að koma meiru í verk í gegnum eina
upplifun sem keyrir þvert á tæki, skilur viðeigandi samhengi á vefnum, í
tölvunni og þvert á forrit til að færa þér rétta kunnáttu á réttum tíma. Með
hjálp Copilot geta notendur byrjað á drögum að nýju Word-skjali, búið til
kynningu í PowerPoint, fundið svör við flóknum leitarfyrirspurnum á netinu á
fljótlegan hátt, fundið viðeigandi skjöl og annað persónulegt efni eða fengið
innblástur til að semja ný lög, sögur, búa til myndir eða annað efni ásamt öðrum
verkum. Copilot býður upp á alls konar þjónustu, og söfnun og notkun Microsoft á
gögnum getur verið breytileg eftir því hver þjónustan er og hver fyrirhuguð
virkni hennar er í tilteknum aðstæðum.

 Vefsvæði og forrit Copilot (í boði fyrir iOS og Android) er kjarninn í
Copilot-upplifun notenda. Í þessari grunnupplifun geta notendur leitað á vefnum,
búið til texta, myndir, samið lög eða annað úttak, eða notað aðra eiginleika,
eins og innbætur. Á vefsvæðinu og í forritinu slá notendur inn „kvaðningar“ sem
gefa Copilot leiðbeiningar (t.d. „Stingdu upp á veitingastað nálægt mér sem
rúmar 10 manns“). Til að gefa viðeigandi svar mun Copilot nota þessa kvaðningu,
ásamt staðsetningu og tungumáli notanda og svipuðum stillingum, til að setja
saman gagnlegt svar. Á sumum markaðssvæðum geta sannvottaðir notendur leyft
Copilot að fá aðgang að fyrri kvaðningaferli til að sérsníða vöruna betur.
Copilot-vara notanda notar gögnin sem safnað er til að bjóða upp á og bæta
Copilot-þjónustuna, þ.m.t. bjóða upp á viðeigandi auglýsingar. Notendur sem eru
skráðir inn á reikninginn sinn geta stjórnað kvaðningaferli sínum í vörunni og á
persónuverndaryfirliti Microsoft og geta breytt staðsetningu, tungumáli og öðrum
stillingum í vörunni.

Copilot birtist einnig sem aðstoðarmaður í öðrum vörum Microsoft, eins og Bing
og Microsoft Edge. Í slíkum aðstæðum samræmast gagnavinnsluaðgerðir yfirleitt
helstu notkun á slíkum vörum. Notkun og söfnun Copilot í Bing á
persónuupplýsingum er til dæmis í samræmi við grunnvefleit Bing eins og lýst er
í hlutanum „Leita og fletta“ í þessari persónuverndaryfirlýsingu. Frekari
upplýsingar um Copilot í Bing er að finna á  Copilot í Bing:. Nálgun okkar á
ábyrga gervigreind. Í Microsoft Edge birtist Copilot á hliðarstikunni og getur
hjálpað notanda að ljúka verkum sem tengjast vefsíðum sem viðkomandi heimsækir
(t.d. „taka saman þessa síðu“). Þessi gögn eru notuð í samræmi við hlutann um
Microsoft Edge í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Copilot Pro er önnur Copilot-þjónusta sem býður áskrifendum forgangsaðgang að
nýjustu líkönum, bættri myndsköpunargetu og aðgang að Copilot í Microsoft Word,
PowerPoint, OneNote, Excel og Outlook. Aðalvefsvæði og forrit Copilot Pro er með
svipaða gagnasöfnun, notkun og stýringu og almennt Copilot, eins og lýst er hér
að ofan. Þegar Copilot er samþætt við vörur Microsoft 365 er gagnasöfnun Copilot
í samræmi við lýsingu á söfnun og notkun gagna í hlutanum „Afköst og samskipti“
í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Einnig er til Copilot-þjónusta sem hönnuð er fyrir notendur í fyrirtækjum. Þegar
gjaldgengt fyrirtæki virkjar það er notendum, sem eru skráðir inn með auðkenni
Entra og vilja fá aðgang að almennri Copilot-þjónustu, boðið Copilot með
viðskiptagagnavörn, sem lágmarkar söfnun og notkun gagna í samræmi við væntingar
notenda í fyrirtækjum. Frekari upplýsingar um Copilot með viðskiptagagnavörn er
að finna  hér.

Microsoft Copilot fyrir Microsoft 365 fyrir fyrirtæki býður upp á gagnavernd sem
hentar fyrirtækjum ásamt aðgangi að grafi fyrirtækis, Copilot í Microsoft 365 og
Teams og frekari sérsniðseiginleikum. Söfnun og notkun gagna í Copilot fyrir
Microsoft 365 fyrir fyrirtæki er í samræmi við venjurnar sem lýst er í hlutanum
„Vörur fyrir fyrirtæki og þróunaraðila“ í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Fara aftur efst


VÖRUR FYRIR FYRIRTÆKI OG ÞRÓUNARAÐILA

Enterprise- og Developer-vörur eru Microsoft-vörur og tengdur hugbúnaður sem
sérstaklega er hannaður og ætlaður til notkunar fyrir fyrirtæki og þróunaraðila.
Þar á meðal er:

 * Skýjaþjónusta, sem kölluð er netþjónusta í vöruskilmálunum, eins og Microsoft
   365 og Office 365, Microsoft Azure, Microsoft Dynamics365 og Microsoft
   Intune, sem stofnun/fyrirtæki (viðskiptavinur okkar) gerir samning um við
   Microsoft vegna þjónustunnar („Enterprise Online-þjónusta“).
 * Önnur enterprise og developer tól og skýjaþjónustur, eins og Azure
   PlayFab-þjónustan (sjá frekari upplýsingar íþjónustuskilmálum Azure PlayFab).
 * Netþjónar, þróunaraðilar og blandaðar skýjakerfisvörur, til dæmis Windows
   Server, SQL Server, Visual Studio, kerfismiðstöð, Azure Stack og opinn
   hugbúnaður eins og Bot Framework-lausnir („Enterprise- og
   Developer-hugbúnaður“).
 * Tæki og vélbúnaður notaður fyrir geymsluinnviði á borð við StorSimple
   („Enterprise-tæki“).
 * Fagþjónusta sem vísað er til í vöruskilmálunum og er í boði með
   Enterprise-netþjónustu, svo sem innleiðingarþjónusta, gagnaflutningsþjónusta,
   gagnavísindaþjónusta eða þjónusta sem felur í sér viðbót við fyrirliggjandi
   eiginleika í Enterprise-netþjónustu.

Ef árekstur verður á milli yfirlýsingar um persónuvernd frá Microsoft og
skilmála einhvers samkomulags á milli viðskiptavinar og Microsoft for Enterprise
og Developer vara, gildir samkomulagið.

Þú getur einnig kynnt þér eiginleika og stillingar Enterprise og Developer vara
nánar, þ.m.t. það hvað hefur áhrif á persónuvernd þína eða persónuvernd notenda,
í fylgiskjölum vöru.

Ef einhverjir af eftirfarandi skilmálum eru ekki skilgreindir í þessari
yfirlýsingu um persónuverndvöruskilmálareru þeir með skilgreiningarnar hér að
neðan.

Almennt. Þegar viðskiptavinur prófar, kaupir, notar eða gerist áskrifandi að
Enterprise- og Developer-vörum, eða fær stuðning fyrir eða fagþjónustu með
slíkum vörum, fær Microsoft upplýsingar frá þér og safnar þeim og vinnur úr þeim
gögn í því skyni að veita þjónustuna, (þ.m.t. til að bæta, tryggja öryggi og
uppfæra þjónustuna), í viðskiptatilgangi og til að eiga samskipti við
viðskiptavininn. Dæmi:

 * Þegar viðskiptavinur á í samskiptum við sölufulltrúa Microsoft, söfnum við
   nafni viðskiptavinarins, samskiptaupplýsingum ásamt upplýsingum um
   fyrirtæki/stofnun viðskiptavinarins til að styðja þessa skuldbindingu.
 * Þegar viðskiptavinur á í samskiptum við tæknimann Microsoft söfnum við
   upplýsingum um tæki og notkun eða villuskýrslum til að greina og leysa úr
   vandanum.
 * Þegar viðskiptavinur borgar fyrir vöru, söfnum við samskipta- og
   greiðsluupplýsingum til að vinna úr greiðslunni.
 * Þegar Microsoft sendir tilkynningar til viðskiptavinar notum við gögn til að
   sérsníða efni tilkynningarinnar.
 * Þegar viðskiptavinur á samskipti við Microsoft vegna fagþjónustu skráum við
   nafn og samskiptaupplýsingar hjá tilgreindum tengilið viðskiptavinar og notum
   upplýsingarnar sem viðskiptavinurinn veitir til að veita honum umbeðna
   þjónustu.

Enterprise- og Developer-vörur gera þér kleift að kaupa, gerast áskrifandi að
eða nota aðrar vörur og netþjónustu frá Microsoft eða þriðju aðilum þar sem
gildir önnur yfirlýsing um persónuvernd, og um þessar vörur og netþjónustu gilda
viðkomandi yfirlýsing um persónuvernd og skilmálar.

Enterprise- og Developer-vörur eru Microsoft-vörur og tengdur hugbúnaður sem
sérstaklega er hannaður og ætlaður til notkunar fyrir fyrirtæki og þróunaraðila.
Þar á meðal er:

 * Skýjaþjónusta, sem kölluð er netþjónusta í vöruskilmálunum, eins og Microsoft
   365 og Office 365, Microsoft Azure, Microsoft Dynamics365 og Microsoft
   Intune, sem stofnun/fyrirtæki (viðskiptavinur okkar) gerir samning um við
   Microsoft vegna þjónustunnar („Enterprise Online-þjónusta“).
 * Önnur enterprise og developer tól og skýjaþjónustur, eins og Azure
   PlayFab-þjónustan (sjá frekari upplýsingar á  þjónustuskilmálar Azure
   PlayFab).
 * Netþjónar, þróunaraðilar og blandaðar skýjakerfisvörur, til dæmis Windows
   Server, SQL Server, Visual Studio, kerfismiðstöð, Azure Stack og opinn
   hugbúnaður eins og Bot Framework-lausnir („Enterprise- og
   Developer-hugbúnaður“).
 * Tæki og vélbúnaður notaður fyrir geymsluinnviði á borð við StorSimple
   („Enterprise-tæki“).
 * Fagþjónusta sem vísað er til í vöruskilmálunum og er í boði með
   Enterprise-netþjónustu, svo sem innleiðingarþjónusta, gagnaflutningsþjónusta,
   gagnavísindaþjónusta eða þjónusta sem felur í sér viðbót við fyrirliggjandi
   eiginleika í Enterprise-netþjónustu.

Ef árekstur verður á milli yfirlýsingar um persónuvernd frá Microsoft og
skilmála einhvers samkomulags á milli viðskiptavinar og Microsoft for Enterprise
og Developer vara, gildir samkomulagið.

Þú getur einnig kynnt þér eiginleika og stillingar Enterprise og Developer vara
nánar, þ.m.t. það hvað hefur áhrif á persónuvernd þína eða persónuvernd notenda,
í fylgiskjölum vöru.

Ef einhver af eftirfarandi skilmálum eru ekki skilgreindir í þessari yfirlýsingu
um persónuvernd eða í vöruskilmálum, þá eru skilgreiningarnar hér að neðan.

Almennt. Þegar viðskiptavinur prófar, kaupir, notar eða gerist áskrifandi að
Enterprise- og Developer-vörum, eða fær stuðning fyrir eða fagþjónustu með
slíkum vörum, fær Microsoft upplýsingar frá þér og safnar þeim og vinnur úr þeim
gögn í því skyni að veita þjónustuna, (þ.m.t. til að bæta, tryggja öryggi og
uppfæra þjónustuna), í viðskiptatilgangi og til að eiga samskipti við
viðskiptavininn. Dæmi:

 * Þegar viðskiptavinur á í samskiptum við sölufulltrúa Microsoft, söfnum við
   nafni viðskiptavinarins, samskiptaupplýsingum ásamt upplýsingum um
   fyrirtæki/stofnun viðskiptavinarins til að styðja þessa skuldbindingu.
 * Þegar viðskiptavinur á í samskiptum við tæknimann Microsoft söfnum við
   upplýsingum um tæki og notkun eða villuskýrslum til að greina og leysa úr
   vandanum.
 * Þegar viðskiptavinur borgar fyrir vöru, söfnum við samskipta- og
   greiðsluupplýsingum til að vinna úr greiðslunni.
 * Þegar Microsoft sendir tilkynningar til viðskiptavinar notum við gögn til að
   sérsníða efni tilkynningarinnar.
 * Þegar viðskiptavinur á samskipti við Microsoft vegna fagþjónustu skráum við
   nafn og samskiptaupplýsingar hjá tilgreindum tengilið viðskiptavinar og notum
   upplýsingarnar sem viðskiptavinurinn veitir til að veita honum umbeðna
   þjónustu.

Enterprise- og Developer-vörur gera þér kleift að kaupa, gerast áskrifandi að
eða nota aðrar vörur og netþjónustu frá Microsoft eða þriðju aðilum þar sem
gildir önnur yfirlýsing um persónuvernd, og um þessar vörur og netþjónustu gilda
viðkomandi yfirlýsing um persónuvernd og skilmálar.

ENTERPRISE ONLINE-ÞJÓNUSTA

Til að veita Enterprise Online-þjónustu notar Microsoft gögn sem þú gefur upp
(þ.m.t. gögn um viðskiptavini, persónuupplýsingar, gögn um stjórnendur,
greiðslugögn og þjónustugögn) og upplýsingar sem Microsoft safnar eða býr til í
tengslum við notkun þína á Enterprise Online-þjónustunni. Við vinnum úr gögnum
eins og lýst er  ívöruskilmálum, viðauka um gagnavernd fyrir vörur og þjónustu
Microsoft (vörur og þjónusta DPA)  og öryggismiðstöð Microsoft.

Persónuupplýsingar. Viðskiptavinur er ábyrgðaraðili persónugagna og Microsoft er
vinnsluaðili slíkra gagna nema þegar (a) viðskiptavinur sér um vinnslu
persónugagna en í slíkum tilvikum er Microsoft undirvinnsluaðili eða (b) þegar
annað er tekið fram í stöðluðum Vörur og þjónusta DPA. Að auki, eins og fram
kemur í stöðluðum Vörur og þjónusta DPA, hefur Microsoft gert að viðbættri
ábyrgð ábyrgðaraðila gagna samkvæmt GDPR þegar unnið er úr persónuupplýsingum í
tengslum við viðskiptaaðgerðatilvik til að veita þjónustu sína til viðskiptavina
Microsoft, svo sem greiðslu- og reikningsumsjón; bætur; innri skýrslugerð og
viðskiptalíkana; og fjárhagsskýrslugerð. Við notum persónuupplýsingar á því
formi sem er minnst persónugreinanlegt en gerir okkur þó kleift að nýta þær í
viðskiptalegum tilgangi. Við reiðum okkur á tölfræðigögn og sameinum
persónuupplýsingar með dulnefnum áður en við notum þær í viðskiptalegum
tilgangi, og komum þannig í veg fyrir að hægt sé að auðkenna tiltekna
einstaklinga.

Stjórnandagögn. Stjórnandagögn eru upplýsingar sem Microsoft fær sendar við
innskráningu, kaup eða stjórnun á Enterprise Online-þjónustunni. Við notum
stjórnandagögn til að veita Enterprise Online-þjónustuna, ljúka færslum,
þjónusta reikninga, til að finna og koma í veg fyrir svik og framfylgja
lagalegum skyldum okkar. Stjórnandagögn innihalda nafnið, heimilisfangið,
símanúmerið og netfangið sem þú gefur upp og samantekt á notkunargögnum sem
tengjast reikningnum, t.d. stillingarnar sem þú velur. Í stjórnandagögnum gætu
einnig verið samskiptaupplýsingar samstarfsfélaga þinna og vina ef þú samþykkir
að senda þær til Microsoft í þeim takmarkaða tilgangi að senda þeim boð um að
nota Enterprise Online-þjónustuna; við höfum samband við þessa einstaklinga með
skilaboðum sem innihalda upplýsingar um þig, t.d. nafn þitt og notandamynd.

Við notum stjórnandagögn, eins og þörf krefur, til að hafa samband við þig til
að veita þér upplýsingar um reikninginn, áskriftir, greiðslur og uppfærslur á
Enterprise Online-þjónustunni, þ.m.t. upplýsingar um nýja eiginleika, öryggi eða
aðrar tæknilegar upplýsingar. Við höfum einnig samband við þig vegna fyrirspurna
frá þriðju aðilum, sem við fáum í tengslum við notkun á Enterprise
Online-þjónustunni, eins og lýst er í samningi þínum. Þú getur ekki sagt upp
áskrift að þessum samskiptum sem eru ekki í kynningarskyni. Við gætum einnig
haft samband við þig með upplýsingar um og tilboð á öðrum vörum og þjónustu, eða
deilt samskiptaupplýsingunum þínum með samstarfsaðilum Microsoft. Þegar slíkur
samstarfsaðili er með ákveðna þjónustu eða lausnir sem mæta þínum þörfum, eða
geta sérsniðið notkun þína á Enterprise Online-þjónustunni, gætum við deilt
takmörkuðum, uppsöfnuðum upplýsingum um reikning stofnunar/fyrirtækis þíns hjá
samstarfsaðilanum. Microsoft mun ekki deila trúnaðarupplýsingum eða
samskiptaupplýsingum þínum með viðurkenndum samstarfsaðila nema hafa heimild til
að gera svo. Þú getur stjórnað tengiliðastillingum þínum eða uppfært
upplýsingarnar þínar á notandasíðu reikningsins.

Greiðsluupplýsingar. Við notum greiðslugögn til að ljúka við færslur, sem og til
að bera kennsl á og koma í veg fyrir svik.

Þjónustugögn. Viðskiptavinir veita eða leyfa Microsoft að safna gögnum í
tengslum við tæknilega aðstoð fyrir Enterprise Online-þjónustuna. Við vinnum úr
þjónustugögnum til að veita tæknilega aðstoð og eins og lýst er í  Vöru- og
þjónustusamningnum.

Staðbundinn hugbúnaður og greiningargögn. Fyrir suma Enterprise Online-þjónustu
kann að vera nauðsynlegt eða betra að setja upp staðbundinn hugbúnað (t.d.
biðlara, tækjastjórnunarforrit). Staðbundin hugbúnaður kann að safna
greiningargögnum (eins og þau eru skilgreind í Vörur og þjónustu samningnum) um
notkun og afköst þess hugbúnaðar. Þessi gögn kunna að vera flutt til Microsoft
og notuð í þeim tilgangi sem lýst er í  vöru og þjónustu samningnum.

Bing leitarþjónustugögn. Leitarþjónusta Bing, eins og hún er skilgreind í
vöruskilmálunum, notar gögn á borð við leitarfyrirspurnir eins og lýst er í
hlutanum um  Bing í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Fara aftur efst

ENTERPRISE OG DEVELOPER HUGBÚNAÐUR OG ENTERPRISE APPLIANCES

Enterprise og Developer hugbúnaður og Enterprise Appliances safna gögnum til að
vinna á skilvirkan hátt og til að veita þér bestu upplifunina af þjónustu okkar.
Gögnin sem við söfnum velta á þeim eiginleikum sem þú notar, ásamt þeim
stillingum sem þú velur, en þau eru yfirleitt takmörkuð við tækja- og
notkunargögn. Viðskiptavinir geta valið hvaða gögn þeir leggja fram. Hér eru
dæmi um gögnin sem við söfnum:

 * Við uppsetningu eða þegar þú uppfærir Enterprise- og Developer-hugbúnað
   kunnum við að safna gögnum um tækið og notkun til að sjá hvort þú eigir í
   einhverjum vandræðum.
 * Þegar þú notar Enterprise-hugbúnað eða Enterprise Appliances kunnum við að
   safna gögnum um tækið og notkun til að fá upplýsingar um stýrikerfi þitt til
   að bæta öryggiseiginleika okkar.
 * Þegar eitthvað hrynur hjá þér við notkun Enterprise-hugbúnaðar eða Enterprise
   Appliances getur þú valið að senda villuskýrslu til Microsoft til að hjálpa
   okkur að greina vandann og aðstoða þig.

Microsoft notar gögnin sem er safnað úr Enterprise og Developer hugbúnaði og
Enterprise Appliances til að veita og bæta vörur, fyrir þjónustuver, til að
virkja vöru, til að eiga samskipti við þig og í viðskiptatilgangi.

Microsoft SQL Server er tengdur vettvangur fyrir stjórnun gagnagrunns sem felur
í sér vörur sem hægt er að setja upp sérstaklega (svo sem SQL Server Management
Studio). Frekari upplýsingar um hvaða gögnum við söfnum, hvernig við notum þau
og hvernig þú getur stjórnað valkostum þínum fyrir persónuvernd er að finna á
 Persónuverndarsíðu SQL þjóninum. Ef þú vinnur hjá stofnun/fyrirtæki getur
kerfisstjórinn stillt ákveðnar fjarmælingastillingar í SQL Server með hópstefnu.

HoloLens. HoloLens höfuðtól eru sjálfbirgðar Windows tölvur búnar Wi-Fi
tengigetu sem virkja blandaða veruleikaupplifun í forritum og lausnum. Microsoft
notar greiningargögn til að leysa vandamál og halda Windows sem keyrt er af
HoloLens öruggu, uppfærðu og til að það starfi á réttan hátt. Greiningargögn
hjálpa okkur einnig að bæta HoloLens og tengdar vörur og þjónustu Microsoft
eftir þeim greiningargagnastillingum sem þú valdir fyrir tækið þitt. Frekari
upplýsingar um greiningargögn Windows.

HoloLens vinnur einnig úr og safnar saman gögnum tengdum HoloLens upplifuninni
og tækinu, sem eru myndavélar, hljóðnemar og innrauðir skynjarar sem virkja
hreyfingu og raddstýringu.

 * Ef þú vilt getur þú notað myndavélar til að skrá þig inn sjálfkrafa með því
   að nota lithimnu þína. Í því skyni tekur HoloLens mynd af auga þínu og
   fjarlægðir á milli lykilpunkta eru mældar til að stofna og geyma tölugildi
   sem á aðeins við um þig. Þessi gögn verða í HoloLens-tækinu og þeim er ekki
   deilt með neinum og þú getur alltaf valið að eyða þessum gögnum úr HoloLens.
 * HoloLens nemur einnig handahreyfingar ætlaðar einföldum kerfissamskiptum
   (eins og skoða valmynd, auka/minnka aðdrátt og fletta). Þessi gögn eru unnin
   á HoloLens-tækinu og ekki geymd.
 * HoloLens mælir ákveðna eltipunkta byggða á umhverfi þínu sem gera tækinu
   kleift að skilja yfirborð í rýminu og gera þér kleift að setja stafrænar
   eignir á þau. Það eru engar myndir tengdar þessum umhverfisgögnum og eru þau
   geymd í HoloLens-tækinu. Þú getur alltaf valið að eyða þessum gögnum úr
   HoloLens-tækinu.

Hljóðnemar í heyrnartólunum virkja raddskipanir ætlaðar stýringu, stjórnun
forrita eða til að slá inn leitarorð. Frekari upplýsingar um raddgagnasöfnun.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


SKIPULAGS- OG SAMSKIPTAVÖRUR

Afkasta- og samskiptavörur eru forrit, hugbúnaður og þjónusta sem hægt er að
nota til að stofna, vista og deila skjölum, ásamt því að eiga í samskiptum við
aðra.

Afkasta- og samskiptavörur eru forrit, hugbúnaður og þjónusta sem hægt er að
nota til að stofna, vista og deila skjölum, ásamt því að eiga í samskiptum við
aðra.

MICROSOFT 365, OFFICE OG ÖNNUR SKIPULAGSFORRIT

Microsoft 365, fyrri útgáfur kallaðar Office 365, er áskriftarsafn af
skipulagsþjónustum og forritum á borð við Word, Excel, PowerPoint, Outlook,
OneNote o.fl. Office er kaup í eitt skipti á þessum forritum sem eru í boði
fyrir PC eða Mac og inniheldur Access og Publisher. Bæði Microsoft 365 og Office
samanstanda af hugbúnaðarforritum biðlara og tengdri netþjónustu (eða
vefforritum fyrir Microsoft 365 á vefnum) sem ná yfir marga verkvanga og
innihalda margar upplifanir sem eru háðar innbyrðis. Nánari upplýsingar um
Outlook má sjá í Outlook hluta í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Ýmsar Microsoft 365-þjónustur í skýinu gera þér kleift að nota efni í skránum
þínum fyrir hönnun og ráðleggingar, til að vinna með öðrum í skjölunum og bjóða
þér upp á eiginleika annarra Microsoft-vara, t.d. Bing og tengdra vara frá
þriðja aðila. Ef þú vinnur hjá stofnun/fyrirtæki kann stjórnandinn að slökkva á
eða gera þessa tengdu þjónustu óvirka. Þú getur opnað persónuverndarstýringarnar
í Microsoft 365- og Office-forritunum þínum. Frekari upplýsingar er að finna í
Persónuverndarstillingar reiknings.

Office-reikiþjónusta. Office-reikiþjónustan gerir þér kleift að halda stillingum
þínum, þ.m.t. persónuverndarstillingum, uppfærðum í öllum tækjum þínum sem nota
Microsoft 365- eða Office-forrit. Þegar þú skráir þig inn í forritin þín með
Microsoft-reikningnum eða reikningi sem fyrirtækið þitt gefur út samstillir
þjónustan sumar sérstillingar þínar við Microsoft-þjóna. Til dæmis samstillir
þjónustan lista yfir nýlega notuð skjöl eða síðasta staðinn sem var skoðaður í
skjali. Þegar þú skráir þig inn í annað tæki á sama reikningi, sækir
Office-reikiþjónustan þessar stillingar af Microsoft-þjónum og notar þær í því
tæki. Þegar þú skráir þig úr forritum fjarlægir þjónustan stillingarnar þínar úr
tækinu. Allar breytingar sem þú gerir á sérstillingum þínum eru sendar til
Microsoft-þjóna.

Uppfærslur frá Microsoft. Microsoft notar þjónustur eins og Click-to-Run,
Microsoft AutoUpdate (fyrir Mac) eða Microsoft Update (fyrir sumar útgáfur af
Office) til að tryggja öryggi þitt og bjóða þér upp á mikilvægar uppfærslur.

Þessar þjónustur geta greint framboð á uppfærslum á netinu sjálfkrafa fyrir
Microsoft 365- eða Office-forrit í tækinu þínu, sótt þær og sett þær upp
sjálfkrafa.

Greiningargögn. Greiningargögn eru notuð til að (i) halda Microsoft 365- eða
Office-forritum þínum öruggum og uppfærðum, (ii) greina og lagfæra vandamál og
(iii) bæta vörur. Þessi gögn innihalda ekki notandanafn eða netfang, skráarefni
notandans eða upplýsingar um forrit sem ekki tengjast Microsoft 365 eða Office.
Notendur geta valið á milli tveggja ólíkra stiga í söfnun greiningargagna;
Áskilið og Valfrjálst.

 * Áskilið. Lágmarksgögn sem nauðsynleg eru til að halda forritum öruggum,
   uppfærðum og til að þau starfi sem skyldi í tækinu sem þau eru uppsett í.
 * Valfrjáls. Viðbótargögn sem hjálpa okkur að bæta vörur okkar og veita okkur
   auknar upplýsingar til að hjálpa til við að greina og lagfæra vandamál.

Sjá Greiningargögn fyrir frekari upplýsingar.

Tengd upplifun. Microsoft 365 heldur áfram að veita fleiri upplifanir í
biðlaraforritum sem eru tengd við og studd af skýjaþjónustu. Hlutmengi þessara
tengdu upplifana er einnig í boði í Office. Ef þú velur að nota tengda upplifun
verður nauðsynlegum þjónustugögnum safnað svo þessi tengda upplifun haldi áfram
að vera áreiðanleg, uppfærð, örugg og starfi sem skyldi. Sjá hér að neðan til að
fá frekari upplýsingar um nauðsynleg þjónustugögn.

Dæmi um tengda upplifun eru samvinna í skjali sem geymt er í OneDrive eða þýðing
á efni í Word-skjali yfir á annað tungumál. Tengdri upplifun má skipta í tvennt.

 * Upplifun sem greinir efnið þitt. Upplifun sem notar skráarefnið þitt til að
   bjóða þér upp á hönnunartillögur, breytingartillögur, gagnainnsýn og svipaða
   eiginleika. Til dæmis, PowerPoint Designer eða ritill í Word.
 * Upplifun sem sækir efni á netinu. Upplifun sem gerir þér kleift að leita að
   og sækja efni á netinu, þ.m.t. sniðmát, myndir, þrívíddarlíkön, myndbönd og
   hliðsjónarefni til að bæta skjölin þín. Til dæmis sniðmát eða
   uppsetningarhjálp PowerPoint.

Þú getur opnað persónuverndarstýringarnar í forritum Microsoft 365- og
Office-biðlara. Þessar persónuverndarstillingar gera þér kleift að stilla tengda
upplifun. Til dæmis getur þú valið að virkja tengda upplifun sem sækir efni á
netinu en ekki tengda upplifun sem greinir efni. Ef slökkt er á tengdri upplifun
verður einnig slökkt á annarri upplifun, t.d. samvinnu í skjali og skráageymslu
á netinu. Þótt þú notir þessa persónuverndarstillingu til að slökkva á tengdri
upplifun verða tilteknir eiginleikar enn tiltækir, t.d. samstilling á pósthólfi
í Outlook og nauðsynleg þjónusta sem lýst er hér fyrir neðan. Þessar stýringar
eru ekki í boði þegar notað er Microsoft 365 fyrir vefinn, þar sem þú verður
þegar tengd(ur) við skýið. Frekari upplýsingar um aðgang að þessum stýringum má
finna íPersónuverndarstillingar reiknings.

Ef þú velur að slökkva á ákveðinni gerð tengdrar upplifunar verður annaðhvort
borðinn eða valmyndarskipunin fyrir þessa tengdu upplifun skyggð eða þú færð
send villuboð þegar þú reynir að nota þessa tengdu upplifun.

Nauðsynleg þjónusta. Ákveðin þjónusta er nauðsynleg fyrir starfsemi Microsoft
365 og Office og ekki er hægt að slökkva á henni. Til dæmis er leyfisþjónustan
sem staðfestir að þú hafir tilskilin leyfi til að nota Microsoft 365 nauðsynleg.
Nauðsynlegum þjónustugögnum um þessa þjónustu er safnað og þau send til
Microsoft, óháð öðrum stillingum sem þú hefur valið. Sjá Nauðsynleg þjónusta
fyrir frekari upplýsingar.

Nauðsynleg þjónustugögn fyrir tengdar upplifanir. Þegar þú notar tengda upplifun
eru gögn send til og unnin af Microsoft til að veita þér þá tengdu upplifun.
Þessi gögn eru nauðsynleg vegna þess að upplýsingarnar gera okkur kleift að
veita þessar skýjatengdu upplifanir. Við vísum til þessara gagna sem
nauðsynlegra þjónustugagna.

Nauðsynleg þjónustugögn geta innihaldið upplýsingar sem tengjast virkni tengdrar
upplifunar sem þarf til að halda undirliggjandi þjónustu öruggri, uppfærðri og
þannig að virki eins og ætlast er til. Ef þú velur að nota tengda upplifun sem
greinir efnið þitt, til dæmis að þýða í Word, er textinn sem þú ritaðir og
valdir til að þýða einnig sendur og unnið úr honum til að veita þér tengdu
upplifunina. Þjónusta okkar geymir ekki textann þinn og þýðinguna. Nauðsynleg
þjónustugögn geta einnig innihaldið upplýsingar sem tengd upplifun þarf til að
framkvæma verkefni sitt, t.d. upplýsingar um grunnstillingu Microsoft 365- eða
Office-forritsins.

Sjá Áskilin þjónustugögn fyrir frekari upplýsingar.

Copilot Pro. Eiginleikar Copilot Pro, sem koma fram í Microsoft 365, eru í boði
sem sérstök áskriftarþjónusta í völdum löndum, en þessir eiginleikar bjóða upp á
gervigreindarknúna afkastamöguleika í gegnum samtalsupplifun í rauntíma með því
að nota vinnslu stórs tungumálalíkans á efni sem þú velur að gefa upp í
Microsoft 365-forritum, þ.m.t. Word, Excel, OneNote, Outlook og PowerPoint. Ekki
er í boði að nota Copilot Pro í Office. Þegar Copilot Pro er notað með tiltækum
Microsoft 365-forritum notar það eingöngu efnið í skránum þínum þegar þú biður
það um að framkvæma ákveðna aðgerð á þessu tiltekna efni - til dæmis þegar þú
biður Copilot Pro um að hjálpar þér að endurskrifa efnisgrein í Word-skjali eða
biður það um að búa til verkefnalista úr minnispunktunum þínum í OneNote. Svipað
og með tengdar upplifanir, þá er nauðsynlegum þjónustugögnum safnað á meðan þú
notar Copilot Pro, en gögnin innihalda upplýsingar sem tengjast aðgerð Copilot
Pro sem þarf til að undirliggjandi þjónusta haldist örugg, uppfærð og að hún
virki sem skyldi.

Sjá Copilot Pro: Microsoft 365-forrit og persónuvernd þín fyrir frekari
upplýsingar.

Önnur skipulagsforrit. Microsoft býður upp á nokkur skipulagsforrit sem aðskilin
eru frá Microsoft 365 og Office, þ.m.t. Whiteboard (stafrænn strigi á frjálsu
sniði með snertingu, innslætti og penna), To Do (verkefnastjórnunarforrit í
skýi) og Minnismiða (minnismiðaforrit á skjáborðinu).

Forritin nota ýmsar skýjaþjónustur til að bjóða þér upp á eiginleika úr öðrum
Microsoft-vörum, t.d. myndir frá Bing í Whiteboard, mæla með tillögum að verkum
til að bæta við Daginn minn í To Do og nota samþættingu Minnismiða við Outlook.

Notkun tækjagetu. Sum Microsoft 365-forrit nýta sér getu tækisins með ákveðnum
eiginleikum. Í PowerPoint getur upptökueiginleiki kynningar fengið aðgang að
hljóðnema og myndavél tækisins til að taka upp kynningar með hljóði og mynd.
Hljóðnemi tækisins er einnig aðgengilegur í gegnum eiginleika hljóðupptöku og
þegar Ræðumannsþjálfari er notaður. Þegar þú talar færðu leiðbeiningar á skjánum
frá Ræðumannsþjálfara um hraða, viðeigandi málfar, notkun blótsyrða,
uppfyllingarorð og hvort þú ert að lesa skyggnutextann. Við gerð
PowerPoint-kynningar geturðu einnig notað eiginleika skjámyndar og skjáklippu
til að taka upp efni á skjánum. Sum Microsoft 365-forrit, PowerPoint, Word og
OneNote, bjóða upp á upplestur, sem er tengd upplifun sem gerir þér kleift að
nota talgreiningu til að semja efni með hljóðnemanum. Í Word og OneNote breytir
tengd umritunarupplifun afriti tals, sem tekið er upp í forritinu með
hljóðnemanum eða með hljóðupptöku á tali, í textaafrit þar sem mælendur eru
aðskildir. OneNote getur sett inn myndir eða tekið upp myndband með myndavélinni
þinni. Öll Microsoft 365-forrit ásamt To-Do og Whiteboard eru með
deilingarvirkni sem hefur aðgang að tengiliðum þínum til að gera þér kleift að
deila skjölum þínum með öðrum á tengiliðalistanum. Forrit munu ekki nálgast getu
tækisins fyrr en þú byrjar að nota eiginleikann.

Þú getur stjórnað aðgangsstillingum hljóðnema og myndavélar í valmynd
persónuverndarstillinga fyrir Windows. Farðu í Start-hnappinn > Stillingar >
Persónuvernd eða Persónuvernd & Öryggi. Frekari upplýsingar um hvernig þú
stjórnar persónuverndarstillingum þínum í forritum má finna í
persónuverndarstillingum Windows sem forrit nota.

Fara aftur efst

MICROSOFT-FJÖLSKYLDA

Þessi hluti á við um Microsoft Family Safety M365 vöruna, sem gerir
fjölskylduhópi kleift að tengjast í gegnum Microsoft Family Safety forritið á
Windows, Xbox eða fartækjum þeirra. Farðu vandlega yfir upplýsingarnar á
Microsoft Family Safety ef þú velur að stofna eða ganga í fjölskylduhóp.

Microsoft Family Safety getur hjálpað foreldrum og forráðamönnum að búa til
öruggara umhverfi fyrir fjölskylduhópinn sinn með stafrænni efnissíun,
skjátímamörkum, eyðslu fyrir Microsoft- og Xbox-verslanir, stilla aldurstakmark
fyrir forrit og leiki, og staðsetningardmiðlun. Frekari upplýsingar um hvernig
Microsoft safnar og notar gögn barna má finna í hlutanum Söfnun gagna frá börnum
í yfirlýsingunni um persónuvernd. Ef þú notar Microsoft Family Safety í Windows
skoðaðu Öryggiseiginleika í Windows í yfirlýsingunni um persónuvernd til að fá
frekari upplýsingar.

Til að virkja stýringar Family Safety á reikningi barns þarf reikningur barnsins
að vera hluti af fjölskylduhópi. Reikningar sem krefjast þess að foreldri
samþykki stofnun þeirra verða sjálfkrafa hluti af fjölskylduhópi einstaklingsins
sem samþykkti stofnun á reikningi barnsins. Fyrir reikninga sem krefjast þess
ekki að foreldri samþykki stofnun þeirra verður foreldri eða forráðamáður að
bæta reikningnum við fjölskylduhópinn til að geta notað stýringar Family Safety.

Þegar þú hefur virkjað aðgerðaskráningu fjölskyldunnar fyrir barn safnar
Microsoft upplýsingum um notkun barnsins á tækinu,svo sem leit, vef, forrit og
leikjavirkni, og gefur foreldrum skýrslur um aðgerðir barnsins. Aðgerðaskýrslum
er eytt reglulega af þjónum Microsoft.

Tilteknir Eiginleikar Family Safety, svo sem staðsetningardeiling,
akstursöryggi, samnýtingardrif, staðir og staðsetningartilkynningar, nota
staðsetningarupplýsingar þínar þegar kveikt er á þessu. Þegar þú hefur til dæmis
virkjað staðsetningardeilingu mun tækið þitt hlaða staðsetningargögnum upp í
skýið og deila þeim með öðrum í fjölskylduhópnum þínum. Microsoft varðveitir
aðeins síðustu þekktu staðsetningu þína sem hluta af
staðsetningardeilingareiginleikanum (ný staðsetning kemur í stað fyrri
staðsetningar). Þegar þú virkjar Akstursöryggi er staðsetning þín notuð til að
skrá akstursvenjur þínar, eins og hvort þú ekur innan tímamarka á hraða, ef þú
notar símann við akstur og ef þú hraðar eða bremsar skyndilega. Þessum skýrslum
verður hlaðið upp í skýið og þú getur valið að deila drifskýrslum með
fjölskylduhópnum þínum. Þú getur slökkt á þessum eiginleikum hvenær sem er í
stillingum Family Safety. Þú getur stjórnað staðsetningargögnumtækisins þíns á
persónuverndaryfirliti Microsoft. Frekari upplýsingar um Family Safety og
staðsetningargögn.

Fara aftur efst

MICROSOFT LAUNCHER

Microsoft Launcher er Android app sem býður upp á mjög sérhannaðar upplifun af
forritaræsingu á Android tækjum.

Microsoft Launcher gerir þér kleift að skrá þig inn með eigin
Microsoft-reikningi eða vinnureikningi eða nota hann án nokkurs reiknings. Hins
vegar geta sumar aðgerðir verið takmarkaðar ef þú veitir ekki ákveðnar
heimildir.

Til að nota Microsoft Launcher þarf forritið að vera uppsett á Android tækinu
þínu og valfrjálsar heimildir eru nauðsynlegar til að virkja eftirfarandi
eiginleika:

Microsoft Copilot. Þegar þú ert skráð(ur) inn með Microsoft-reikningnum þínum
geturðu notað eiginleika Copilot á borð við spjall, vefleit, raddleit og
myndaleit. Ákveðnir eiginleikar Copilot krefjast aðgangs að hlutgengi tækisins,
svo sem myndavél tækisins, hljóðnema, myndir og myndbönd. Vinsamlegast skoðaðu
hlutann okkar um gervigreind og Copilot getu til að fá frekari upplýsingar.
Frekari upplýsingar um notkunarskilmála Copilot hér. 

Horfðu á straum. Yfirlit hjálpar þér að skipuleggja daglegar athafnir, eins og
Outlook-dagbók, verkefnalista, Minnismiðar og nýleg skjöl í M365-forritunum
þínum. Þegar þú hefur skráð þig inn með eigin Microsoft-reikningi eða
vinnureikningi verða gögnin samstillt á milli tækja sem eru skráð inn á sama
reikning til að veita þér sérsniðna upplifun. Það gerir þér einnig kleift að
skoða nýlegar athafnir, eins og nýlegar myndir og notkun forrita, sem krefjast
heimilda til að fá aðgang að myndum á tæki, skrám og notkunargögnum forrita.

Fréttastraumur. Þegar þú skráir þig inn með Microsoft-reikningnum þínum geturðu
notið sérsniðins fréttastraums og auglýsinga í fréttastreymi ræsivalmyndar,
samstillt á milli allra tækjanna þinna. Þú getur einnig fengið staðbundnar
sýningarfréttir þegar þú veitir Microsoft Launcher leyfi til að fá aðgang að
staðsetningarupplýsingum þínum. Þú getur stjórnað auglýsingastillingum þínum í
gegnum persónuverndaryfirlit Microsoft til að sérsníða upplifun þína.

Veður tilkynningar. Microsoft Launcher gerir þér kleift að fá nýjustu og
mikilvægustu veðurbreytingarnar á heimaskjánum þínum með MSN-veðri. Þú getur
fengið uppfærðar staðbundnar veðurupplýsingar þegar þú leyfir Launcher að fá
aðgang að staðsetningu þinni eða gefa upp póstnúmerið þitt.

Afritun og endurheimt: Flyttu auðveldlega á milli síma eða prófaðu mismunandi
uppsetningar á heimaskjánum með öryggisafriti og endurheimtareiginleika
Microsoft Launcher. Hægt er að vista öryggisafrit staðbundið í tækinu þínu eða
vista það á OneDrive-reikningnum þínum sem tengist Microsoft-reikningnum þínum
til að auðvelda aðgang.

Microsoft Launcher styður eiginleika vinnuprófíls í Android, sem gerir þér
kleift að viðhalda skýrum mörkum á milli persónulegra gagna og vinnugagna í
tækinu þínu. Þetta þýðir að þú getur fengið öruggan aðgang að vinnuauðlindum án
þess að blanda þeim saman við persónuleg forrit og gögn.

Til að læra meira um Microsoft Launcher og studda eiginleika þess skaltu fara
hér.

Fara aftur efst

MICROSOFT TEAMS

Þessi hluti gildir um tilboð til neytenda á Teams; ef verið er að nota Teams með
skóla- eða vinnureikningi, sjá Vörur fyrir fyrirtæki og þróunaraðila í þessari
persónuverndaryfirlýsingu.

Teams allt-í-einu samvinnu- og samskiptamiðstöð. Teams gerir þér kleift að vera
skipulagður/-lögð og tengd(ur) yfir alla þætti lífs þíns. Teams gerir þér kleift
að eiga símtöl eða myndsímtöl við fólk. Teams gerir þér auðveldlega kleift að
finna fólk, skrár, myndir, samtöl, verkefni og dagatöl á einum hentugum og
öruggum stað. Teams gerir þér kleift að geyma trúnaðarupplýsingar eins og
lykilorð, umbunarnúmer eða innskráningarupplýsingar og deila þeim með öðrum
innan Teams. Með samþykki þínu getur þú deilt staðsetningu þinni með vinum og
fjölskyldu.

Sem hluti af útvegun þessara aðgerða safnar Microsoft gögnum um notkun
aðgerðanna auk upplýsinga um samskipti þín, þ.m.t. tíma og dagsetningu
samskiptanna og notendur sem eru hluti af samskiptunum. Microsoft kann að deila
þessum upplýsingum með fyrirtækjaviðskiptavinum þegar þú átt í samskiptum við
notendur í gegnum fundi og spjall sem nota skóla- eða vinnureikninginn sinn. Ef
þú til dæmis tekur þátt í Teams-spjalli við notanda sem notar Teams sem tengist
skólareikningi viðkomandi kann Microsoft að deila upplýsingum þínum með skóla
notandans til að geta boðið upp á Teams-þjónustuna.

Notandasíða Teams. Notandasíða þín á Teams inniheldur upplýsingar sem þú veittir
þegar þú settir upp Microsoft-reikning. Til að gera öðrum kleift að finna þig á
Teams (eða vörur sem tengjast Teams til einkanota, þar á meðal Teams fyrir
fyrirtæki) eru birtingarnafn þitt og mynd sýnileg öðrum notendum á Teams sem
hafa tengiliðaupplýsingar þínar. Notandasíður þínar í Teams kunna að vera
sýnilegar fyrirtækjaviðskiptavinum og notendum þeirra þegar þú átt samskipti við
notanda fyrirtækis í spjalli og fundum.

Teams tengiliðir. Með þínu leyfi mun Teams samstilla tengiliði tækisins, Outlook
og Skype reglulega og leita að öðrum Teams-notendum sem passa við tengiliði í
tækinu þínu, Outlook eða Skype-tengiliðaskrám. Þú ert alltaf með stjórnina á
tengiliðum þínum og getur stöðvað samstillingu hvenær sem er. Ef þú velur að
hætta að samstilla tengiliði tækisins, Outlook eða Skype, eða þú ert óvirk(ur) í
tækinu þínu, verður öllum tengiliðum sem ekki hafa fundið samsvörun við
samstillingarferlið eytt úr Teams. Ef þú vilt bjóða einhverjum tengiliðum
tækisins, Outlook eða Skype að taka þátt í samtali geturðu boðið notendum í 1:1
beint, eða Microsoft getur sent boð fyrir þína hönd með SMS eða tölvupósti fyrir
boð í hópsamtöl. Þú getur útilokað notendur ef þú vilt ekki eiga í samskiptum
við þá; auk þess er hægt að tilkynna áhyggjuefni til Microsoft.

Tilkynningar til tengiliða sem eru ekki notendur.Ef upplýsingarnar þínar birtast
í tæki, Outlook eða Skype tengiliðaskrá hjá Teams notanda sem velja að samstilla
tæki, Outlook eða Skype tengiliði við tengiliði sína í Teams, er Microsoft
heimilt að vinna úr gögnunum þínum til að ákvarða hvort þú ert núverandi
Teams-notandi og leyfa Teams-notendum að bjóða þér í þjónustuna, þar á meðal með
SMS og tölvupósti. Svo lengi sem Teams-notandinn verður áfram virkur í Teams í
tækinu sínu og heldur áfram að samstilla tengiliði við viðeigandi tæki eða
þjónustu verða upplýsingarnar þínar vistaðar á netþjónum okkar og við vinnum
reglulega úr upplýsingum þínum sem hluta af samstillingarupplifun Teams notanda
til að athuga hvort þú hafir tengst Teams í kjölfarið.

Frekari upplýsingar um hvernig við vinnum úr upplýsingum þínum í tengslum við
samstillingar eiginleika tengiliða sem Teams-notendum er boðið.

Ef þú velur að tengjast Teams birtist þú sem ráðlagður nýr Teams-tengiliður
fyrir alla Teams-notendur sem eru með upplýsingarnar þínar í tengiliðaskrám
tækis, Outlook eða Skype. Sem Teams-notandi getur þú útilokað aðra
Teams-notendur ef þú vilt ekki eiga í samskiptum við þá; auk þess er hægt að
tilkynna áhyggjuefni til Microsoft.

Tengiliðir þriðja aðila. Þú getur einnig valið að samstilla tengiliði frá þriðja
aðila. Ef þú velur að taka tengiliði þriðja aðila úr Teams úr hópnum er öllum
tengiliðum þriðja aðila eytt úr Teams. Ef þú gafst þitt samþykki til að nota
þessa tengiliði frá þriðja aðila í öðrum forritum og þjónustu Microsoft verða
þessi tengiliðir áfram aðgengilegir öðrum forritum og þjónustu Microsoft.

Þú getur fjarlægt tengiliði þriðju aðila úr öllum forritum og þjónustu Microsoft
með því að fjarlægja reikninga þriðja aðila úr Teams. Athugaðu að ef þú
fjarlægir reikning þriðja aðila úr Teams getur það haft áhrif á upplifun þína af
öðrum forritum og þjónustu Microsoft sem einnig nota þann reikning frá þriðja
aðila.

Teams dagatal. Þú getur einnig valið að samstilla Teams-dagbókina þína við
dagatöl frá þriðja aðila. Þú getur hætt að samstilla Teams-dagbókina þína hvenær
sem er með því að fjarlægja reikning þriðja aðila úr Teams. Ef þú hefur samþykkt
að nota gögn frá þriðja aðila í öðrum forritum og þjónustu Microsoft skaltu hafa
í huga að ef þessi reikningsgögn þriðja aðila eru fjarlægð í Teams getur það
haft áhrif á upplifun þína af öðrum forritum og þjónustu Microsoft.

Deiling staðsetningar. Þú getur deilt fastri eða beinni staðsetningu þinni með
einstaklingum eða hópum innan Teams. Þú ert með stjórnina og getur hætt að deila
hvenær sem er. Leyft er að deila staðsetningu barna með samþykki foreldra og í
hópum þar sem fullorðinn úr hópi Microsoft-fjölskyldunnar er til staðar.

Vöktunartilkynningar. Til að láta þig vita af símtölum sem berast,
spjallskilaboðum og öðrum skilaboðum notar Teams tilkynningaþjónustu tækisins. Í
mörgum tækjum eru það önnur fyrirtæki sem sjá um þjónustu af þessu tagi. Til að
geta sagt þér hver er að hringja eða birta þér fyrstu orðin í nýjum
spjallskilaboðum verður Teams að upplýsa tilkynningaþjónustuna um þetta til að
hún geti birt þér þessar upplýsingar. Fyrirtækið sem sér um
tilkynningaþjónustuna í tækinu notar þessar upplýsingar í samræmi við eigin
skilmála og persónuverndarstefnu. Microsoft ber ekki ábyrgð á gögnum sem
fyrirtækið sem sér um tilkynningaþjónustuna safnar.

Ef þú vilt ekki nota tilkynningaþjónustuna fyrir Teams-símtöl og skilaboð sem
berast skaltu slökkva á henni í stillingunum í tækinu.

Spjall og fundir með notendum fyrirtækjaviðskiptavinar. Margar vörur Microsoft
eru hugsaðar fyrir fyrirtæki, t.d. skóla og rekstur, auk einstaklinga. Sjáðu
kaflann um vörur fyrir fyrirtæki og þróunaraðila í þessari
persónuverndaryfirlýsingu ef þú ert að nota Teams með vinnu- eða skólaaðgangi.
Ef þú tekur þátt í Teams-fundum eða -spjalli við notendur fyrirtækja heyra
gögnin sem þú deilir með notendum undir reglur fyrirtækisins ef þær eru til
staðar. Þú ættir að beina fyrirspurnum um persónuvernd sem tengjast gögnunum
þínum sem deilt er í gegnum spjall og fundi með notendum fyrirtækis, þ.m.t.
öllum beiðnum um að nýta gagnaverndarrétt þinn, til stjórnanda fyrirtækisins.
Microsoft ber ekki ábyrgð á persónuverndar- eða öryggisstefnu eða -hegðun
viðskiptavina sinna, sem gæti verið önnur en sú sem er sett fram í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd.

Fara aftur efst

ONEDRIVE

OneDrive leyfir þér að geyma og fara í skrárnar þínar á svo til hvaða tæki sem
er. Þú getur einnig deilt og starfað með öðrum í skránum þínum. Í sumum útgáfum
af OneDrive-forritinu geturðu opnað bæði þitt eigið OneDrive með því að skrá þig
inn með eigin Microsoft-reikningi og OneDrive for Business með því að skrá þig
inn með vinnu- eða skólareikningi hjá Microsoft sem hluta af notkun
stofnunarinnar/fyrirtækisins þíns á Microsoft 365 eða Office 365.

Þegar þú notar OneDrive söfnum við gögnum um notkun þína á þjónustunni, ásamt
því efni sem þú geymir til að veita, bæta og vernda þjónusturnar. Dæmi um þetta
er að gera efnisyfirlit yfir efni OneDrive-skjalanna svo að þú getir leitað að
þeim seinna og að nota staðsetningarupplýsingar til að gera þér kleift að leita
að myndum eftir því hvar myndin var tekin. Við söfnum einnig tækjaupplýsingum
til að geta veitt persónusniðnar þjónustur, til dæmis svo að þú getir samstillt
efni þvert yfir tæki og reikað sérsniðnar stillingar.

Þegar þú geymir efni í OneDrive mun það efni erfa deilingarheimildir möppunnar
sem þú geymir það í. Ef þú geymir efni til dæmis í almennri möppu verður efnið
opinbert og opið öllum þeim sem geta fundið möppuna á internetinu. Ef þú geymir
efni í einkamöppu verður efnið prívat.

Þegar þú deilir efni á samfélagsmiðli eins og Facebook, af tæki sem þú hefur
samstillt við OneDrive-reikninginn þinn, verður efninu annaðhvort hlaðið upp á
þann miðil eða tengill á efnið birtur á þeim miðli. Með þessum hætti verður
efnið aðgengilegt fyrir alla á þessum samfélagsmiðli. Til að eyða efninu þarftu
að eyða því af samfélagsmiðlinum (ef því var hlaðið upp þar í stað þess að birta
tengil) og af OneDrive.

Þegar þú deilir efni þínu á OneDrive með vinum þínum í gegnum tengil er
tölvupóstur með tenglinum sendur til þessara vina. Tengillinn inniheldur
heimildarkóða sem veitir öllum sem hafa tengilinn aðgang að efninu þínu. Ef einn
af vinum þínum sendir tengilinn á annað fólk fær það einnig aðgang að efninu
þínu, jafnvel þó að þú hafir ekki valið að deila efninu með þeim. Til að
afturkalla heimildir fyrir efni þínu á OneDrive þarftu að skrá þig inn á
reikninginn þinn og velja síðan tiltekið efni til að stýra heimildarstigum.
Afturköllun á heimildum fyrir tengil afvirkjar tengilinn á skilvirkan hátt.
Enginn á eftir að geta notað tengilinn til að fara í efnið nema þú ákveðir að
deila tenglinum aftur.

Skrár sem er stýrt í OneDrive fyrir fyrirtæki eru geymdar aðskildar frá skrám
sem eru geymdar á persónulegu OneDrive þínu. OneDrive for Business safnar og
sendir persónugögn til auðkenningar, eins og netfangið þitt og aðgangsorð, sem
verður sent til Microsoft og/eða til þjónustuveitu þinnar á Microsoft 365 eða
Office 365.

Fara aftur efst

OUTLOOK

Vörur frá Outlook eru hannaðar til þess að bæta afköst með bættum samskiptum og
fela í sér Outlook.com, Outlook-forrit og tengdar þjónustu.

Outlook.com. Outlook.com er aðaltölvupóstþjónustan frá Microsoft fyrir almenning
og nær til tölvupóstreikninga með netföngum sem enda á outlook.com, live.com,
hotmail.com og msn.com. Outlook.com býður að gerðir sem gera þér kleift að
tengjast við vini á samfélagsmiðlum. Þú þarft að stofna Microsoft-reikning til
að geta notað Outlook.com.

Þegar þú eyðir tölvupósti eða atriði úr pósthólfi á Outlook.com er atriðið
yfirleitt fært yfir í möppuna þína fyrir eyddan tölvupóst, þar sem það er geymt
í u.þ.b. 7 daga nema þú færir það aftur í innhólfið, tæmir möppuna eða þjónustan
tæmi hana sjálfkrafa, hvert sem kemur fyrst. Þegar mappan „Eydd atriði“ er tæmd
verða þessi eyddu atriði áfram í kerfinu okkar í allt að 30 daga áður en þeim er
eytt endanlega, nema okkur beri lagaleg skylda til að varðveita gögnin lengur.

Outlook-forrit. Outlook-biðlaraforrit eru hugbúnaður sem þú setur upp í tækinu
sem gerir þér kleift að stjórna tölvupósti, dagbókaratriðum, skrám, tengiliðum
og öðrum gögnum úr tölvupósti, skráargeymslu og annarri þjónustu, eins og
Exchange Online eða Outlook.com, eða þjónum eins og Microsoft Exchange. Þú getur
notað marga reikninga frá mismunandi þjónustuveitum, þ.m.t. þjónustuveitum frá
þriðja aðila, með Outlook-forritum, þar á meðal nýja Outlook fyrir Windows
forritið.

Til að bæta við reikningi verður þú að gefa Outlook aðgang að gögnum úr
tölvupósts- og geymsluþjónustum.

Þegar þú bætir við reikningi í Outlook er tölvupóstur, dagbókaratriði, skrár,
tengiliðir, stillingar og önnur gögn af þeim reikningi samstillt sjálfkrafa við
tækið. Ef þú notar Outlook-forritið fyrir fartæki verða þau gögn einnig
samstillt við netþjóna Microsoft til að virkja viðbótareiginleika eins og
hraðari leit, sérsniðna síu á tölvupóst sem er ekki mjög mikilvægur og
eiginleikann að geta bætt viðhengjum við tölvupóst úr tengdum
skráargeymsluveitum án þess að fara úr Outlook-forritinu. Ef þú notar
Outlook-forritið fyrir borðtölvur getur þú valið hvort þú viljir samstilla
gögnin við okkar netþjóna. Þú getur fjarlægt reikning eða gert breytingar á
gögnunum sem eru samstillt af reikningnum hvenær sem er.

Ef þú bætir við reikningi frá fyrirtæki/stofnun (eins og vinnuveitanda þínum eða
skólanum) getur eigandi fyrirtækjalénsins innleitt stefnur og stýringar (t.d.
beðið um fjölþætta sannvottun eða bætt við möguleikanum að þurrka út gögn af
tækinu þínu í gegnum fjartengingu) sem geta haft áhrif á notkun þína á Outlook.

Notkun tækjagetu. Fyrir Outlook-biðlara sem styðja slíkt getur notandinn talað
efni tölvupóstsins upphátt og sent hann með upplestrareiginleikanum. Hægt er að
grunnstilla upplestrareiginleikann til að nota hljóðnema tækisins eða annan
hljóðnema sem notandi gæti tengt við tækið, eins og heyrnartól með innbyggðan
hljóðnema. Outlook kann einnig að nota staðsetningarupplýsingar tækisins til að
bjóða þér upp á upplýsingar um veðrið á núverandi staðsetningu þinni og getuna
til að leita að nálægum staðsetningum.

Fyrir frekari upplýsingar um gögnin sem Outlook-forritin safna og vinna úr má
sjá í hlutanum Microsoft 365 í þessum hluta yfirlýsingar um persónuvernd.

Fara aftur efst

SKYPE

Með Skype geturðu sent og tekið á móti símtölum, myndsímtölum, SMS og
spjallskilaboðum. Þessi hluti á við um almenna útgáfu Skype; ef þú ert að nota
Skype for Business skaltu lesa hlutann Vörur fyrir fyrirtæki og þróunaraðila í
þessum hluta yfirlýsingar um persónuvernd.

Sem hluti af veitingu þessara aðgerða safnar Microsoft notkunargögnum um
samskipti þín, sem innihalda tíma og dagsetningu samskiptanna og þau númer eða
notendanöfn sem eru hluti af samskiptunum.

Skype prófíll. Skype prófíllinn þinn inniheldur upplýsingar sem þú veittir þegar
þú settir upp Microsoft-reikning. Til að gera öðru fólki kleift að finna þig á
Skype (eða öðrum vörum sem tengjast Skype, t.d. Skype for Business) eru
notandaupplýsingar þínar hjá Skype hafðar með í almennri leit á Skype, allt
eftir stillingum í notandaupplýsingunum þínum. Notandaupplýsingarnar þínar
innihalda notandanafn, notandapersónu og önnur gögn sem þú velur að bæta við
notandaupplýsingarnar þínar eða birta öðrum.

Neyðarsímtöl í Bandaríkjunum.Ef þú virkjar staðsetningardeilingu fyrir
neyðarsímtöl verður staðsetningu þinni reglulega safnað til að gera Microsoft
kleift að deila staðsetningu þinni með þjónustuveitum neyðarsímtala ef þú
hringir í 911. Staðsetningarupplýsingum þínum er aðeins deilt ef þú virkjar
staðsetningardeilingu fyrir neyðarsímtöl og þú hringir í 911.

Skype tengiliðir. Ef þú notar Outlook.com til að stjórna tengiliðum mun Skype
sjálfkrafa bæta fólki sem þú þekkir á Skype-tengiliðalistann þinn þar til þú
segir forritinu að hætta. Með þínu leyfi mun Skype samstilla tengiliði tækisins,
Outlook og Skype reglulega og leita að öðrum Skype-notendum sem passa við
tengiliði í tengiliðaskrám tækisins eða Outlook. Þú ert alltaf með stjórnina á
tengiliðum þínum og getur stöðvað samstillingu hvenær sem er. Þú getur útilokað
notendur ef þú vilt ekki eiga í samskiptum við þá. Ef þú velur að hætta að
samstilla tengiliði tækisins eða þú ert óvirk(ur) í tækinu þínu, verður öllum
tengiliðum sem ekki hafa fundið samsvörun við samstillingarferlið eytt úr Skype.
Ef þú vilt bjóða einhverjum tengiliðum tækisins eða Outlook að taka þátt í
samtali geturðu boðið notendum í 1:1 beint, eða Microsoft getur sent boð fyrir
þína hönd með SMS eða tölvupósti fyrir boð í hópsamtöl. Þú getur útilokað
notendur ef þú vilt ekki eiga í samskiptum við þá; auk þess er hægt að tilkynna
áhyggjuefni til Microsoft.

Tilkynning til tengiliða sem eru ekki notendur. Ef upplýsingarnar þínar birtast
í tengiliðaskrám tækis eða Outlook hjá notendum Skype sem velja að samstilla
tengiliði tækis, eða Outlook við tengiliði sína í Skype, er Microsoft heimilt að
vinna úr gögnunum þínum til að ákvarða hvort þú ert núverandi Skype-notandi og
leyfa Skype-notendum að bjóða þér í þjónustuna, þar á meðal með SMS og
tölvupósti. Svo lengi sem Skype-notandinn verður áfram virkur í Skype í tækinu
sínu og heldur áfram að samstilla tengiliði við viðeigandi tæki eða þjónustu
verða upplýsingarnar þínar vistaðar á netþjónum okkar og við vinnum reglulega úr
upplýsingum þínum sem hluta af samstillingarupplifun Skype notanda til að athuga
hvort þú hafir tengst Skype í kjölfarið.

Frekari upplýsingar um hvernig við vinnum úr upplýsingum þínum í tengslum við
samstillingareiginleika tengiliða sem boðið er upp á fyrir Skype-notendur.

Ef þú velur að tengjast Skype birtist þú sem ráðlagður nýr Skype-tengiliður
fyrir alla Skype-notendur sem eru með upplýsingarnar þínar í tengiliðaskrám
tækis eða Outlook. Sem Skype-notandi getur þú útilokað aðra Skype-notendur ef þú
vilt ekki eiga í samskiptum við þá; auk þess er hægt að tilkynna áhyggjuefni til
Microsoft.

Samstarfsfyrirtæki. Til að gera Skype tiltækt fyrir fleiri einstaklinga eigum
við í samstarfi við önnur fyrirtæki þar sem hægt er að nota Skype í gegnum
þjónustu þessara fyrirtækja. Ef þú notar Skype í gegnum annað fyrirtæki en
Microsoft er hugsanlegt að persónuverndarstefna þess fyrirtækis gildi um það
hvernig farið er með gögnin þín. Ef það er nauðsynlegt til að fara eftir
gildandi lögum eða bregðast við gildum málarekstri, eða til að gera
samstarfsfyrirtæki eða staðbundnum rekstraraðila kleift að fara að lögum eða
bregðast við slíku, munum við hugsanlega opna gögnin þín, flytja þau, láta þau
af hendi og varðveita þau. Þessi gögn gætu t.d. náð til einkaefnis, s.s.
innihalds í spjallskilaboðum, vistaðra myndskilaboða, talhólfsskilaboða eða
skráaflutnings.

Skype Manager. Með Skype Manager geturðu stjórnað Skype-notkun tiltekins hóps
(t.d. fjölskyldunnar þinnar) frá einum stað. Þegar þú setur upp hóp verður þú
Skype Manager-stjórnandi hópsins og getur, ef aðrir meðlimir í hópnum hafa
samþykkt slíkan aðgang, skoðað notkunarmynstur hópsins, þ.m.t. nákvæmar
upplýsingar um t.d. gagnamagn og upplýsingar um kaup á netinu. Ef þú bætir við
upplýsingum, t.d. nafninu þínu, geta aðrir í hópnum séð það. Meðlimir í hópnum
geta tekið samþykki til Skype Manager til baka með því að heimsækja notendasíðu
Skype.

Vöktunartilkynningar. Til að láta þig vita af símtölum sem berast,
spjallskilaboðum og öðrum skilaboðum nota Skype-forritin tilkynningaþjónustu
tækisins. Í mörgum tækjum eru það önnur fyrirtæki sem sjá um þjónustu af þessu
tagi. Til að geta sagt þér hver er að hringja eða birta þér fyrstu orðin í nýjum
spjallskilaboðum verður Skype að upplýsa tilkynningaþjónustuna um þetta til að
hún geti birt þér þessar upplýsingar. Fyrirtækið sem sér um
tilkynningaþjónustuna í tækinu notar þessar upplýsingar í samræmi við eigin
skilmála og persónuverndarstefnu. Microsoft ber ekki ábyrgð á gögnum sem
fyrirtækið sem sér um tilkynningaþjónustuna safnar. Ef þú vilt ekki nota
tilkynningaþjónustuna fyrir Skype-símtöl og skilaboð sem berast skaltu slökkva á
henni í stillingunum í Skype-forritinu eða í tækinu.

Þýðingareiginleikar. Þegar þú notar þýðingareiginleika Skype safnar Skype og
notar samtalið þitt til að veita þýðingaþjónustuna. Með þínu leyfi gætu gögnin
þín verið notuð til að bæta vörur og þjónustu Microsoft. Til að hjálpa þýðingar-
og talgreiningartækninni að læra og vaxa eru setningar og sjálfvirkar umritanir
greindar og allar leiðréttingar eru færðar inn í kerfið okkar, til að byggja upp
þjónustu sem virkar betur. Þessi gögn kunna að innihalda handknúinn flutning á
raddbútum frá þér. Kynntu þér frekari upplýsingar um hvernig Microsoft safnar og
notar raddgögnin þín, sjáðu talgreiningartækni.

Upptökueiginleikar. Sumar útgáfur af Skype eru með upptökueiginleika þannig að
hægt er að taka upp og deila, í heild sinni eða að hluta til, hljóðskrá/myndskrá
úr símtali. Upptakan verður vistuð og henni deilt sem hluta af þínu samtalsferli
við einstakling eða hóp sem tóku þátt í símtalinu.  Þú ættir að skilja lagalega
ábyrgð þína áður en þú tekur upp samskipti. Þetta felur m.a. í sér hvort þú
þarft að fá fyrirfram samþykki allra sem eiga þátt í samskiptunum eða önnur
tilskilin leyfi eftir þörfum. Microsoft ber ekki ábyrgð á því hvernig þú notar
upptökurnar þínar eða upptökueiginleikana.

Skype-þjarkar. Þjarkar eru forrit sem Microsoft eða þriðju aðilar bjóða upp á og
geta gert marga nytsamlega hluti eins og að leita að fréttum, spila leiki,
o.m.fl. Það fer eftir getu þjarkanna, en þeir geta hugsanlega fengið aðgang að
birtingarnafni þínu, Skype-auðkenni, landi, svæði, tungumáli og þeim skilaboðum,
hljóðum, myndböndum eða efni sem þú deilir með þjarkinum. Farðu yfir notandasíðu
og persónuverndaryfirlýsingu þjarksins áður en þú byrjar einstaklings- eða
hópsamtal við þjark. Þú getur eytt þjarki sem þú vilt ekki lengur eiga samskipti
við. Áður en þjarki er bætt við hóp skal ganga úr skugga um að þátttakendur
hópsins hafi gefið samþykki fyrir því að deila upplýsingum sínum með þjarkinum.

Skjátextar. Tilteknir eiginleikar Skype fela í sér aðgengi á borð við skjátexta.
Í Skype-símtölum getur þátttakandi í símtalinu virkjað eiginleika sem breytir
tali í texta og gerir notandanum þannig kleift að sjá spjallið sem texta. Aðrir
þátttakendur í símtalinu fá ekki tilkynningu ef notandi virkjar þennan
eiginleika. Microsoft notar þessi radd- og textagögn til þess að bjóða notendum
upp á skjátexta fyrir hljóð.

Eiginleikar myndavélar. Þegar þú notar eiginleika myndavélar í Skype geturðu
valið að bæta myndbönd og myndir með linsuþjónustu þriðja aðila. Linsa er
eiginleiki sem notar aukinn veruleika til að breyta sjálfsmyndum þínum á
skemmtilegan hátt, t.d. láta þig líta út eins og uppáhaldsdýrið þitt. Með því að
nota myndavélina í Skype geturðu valið linsueiginleikann sem felldur er inn í
Skype til að breyta andliti og höndum þínum. Eftir því hvaða linsu þú velur er
hægt að vinna úr myndbandi og myndum til að draga út upplýsingar um staðsetningu
mismunandi svæða á andliti og höndum. Útdregin gögn eru notuð í þeim eina
tilgangi að nota áhrif aukins veruleika á andlit og hendur þínar. Engin af
þessum gögnum eru notuð til að persónugreina þig. Eingöngu er unnið úr þessum
gögnum í tækinu þínu meðan á lotunni stendur og er þeim síðan strax eytt. Þessi
gögn eru ekki send á Skype eða þriðja aðila.

Fara aftur efst

SURFACE

Microsoft býður upp á safn Surface-tækja og aukabúnaðar til að veita frábæra
tölvuupplifun, þar með talið að vafra á vefnum, horfa á og streyma myndböndum,
spila leiki, keyra forrit á borð við Excel, Word og OneNote og fleira. Þar á
meðal eru tæki og aukabúnaður á borð við Surface Laptops, Surface Studios,
Surface Book, Surface Pro, Surface Headphones, Surface Earbuds, Surface Dock,
Surface-lyklaborð og fleira. Sem hluti af þeirri upplifun safnar Microsoft
ákveðnum greiningargögnum eins og lýst er hér á eftir.

Greiningargögn. Microsoft safnar greiningargögnum þegar þú notar Surface-tæki,
Surface-aukabúnað og Surface-forrit. Greiningargögn geta innihaldið upplýsingar
um hrun, afköst og notkun á Surface-vörum. Gögnin sem send eru til Microsoft eru
notuð til að halda Surface öruggu, uppfærðu og í eðlilegum afköstum og þau geta
hjálpað okkur að bæta Surface á annan hátt.

Gögn um greiningu og aðgerðir eru á tveimur stigum: Nauðsynleg greiningargögn og
valfrjáls greiningargögn.

 * Nauðsynleg greiningargögn er lágmarksmagn gagna sem við þurfum til að halda
   Surface-tækjum, Surface-aukabúnaði og Surface-forritinu öruggu, uppfærðu og
   afköstum uppi.
 * Valfrjáls greiningargögneru frekari greiningar- og notkunargögn um
   Surface-tækin, Surface-aukabúnaðinn og Surface-forritið. Ef þú velur að senda
   valfrjáls greiningargögn til Microsoft eru nauðsynleg greiningargögn einnig
   innifalin.

Nauðsynleg greiningargögn eru alltaf send til Microsoft fyrir öll Surface-tæki,
Surface-aukabúnað og Surface-forritið. En þú getur valið hvort þú leyfir Surface
að safna valfrjálsum greiningargögnum og senda þau til Microsoft. Þú getur valið
þetta þegar þú setur upp Surface-tæki í fyrsta skipti eða breytir stillingunni
hvenær sem er í Surface-forritinu.

Frekari upplýsingar er að finna í Greiningargögnum fyrir Surface vörur og
Greiningargögnum í Surface forritinu. Listi yfir nauðsynleg greiningargögn
Surface sem safnað er að finna í Nauðsynleg greiningargögn fyrir Surface vörur.

Fara aftur efst

SURFACE DUO

Surface Duo er tæki með tveimur skjáum sem kemst fyrir í vasa svo þú getir komið
hlutum í verk þegar þú ert á ferðinni. Surface Duo, sem er knúið af
Android-stýrikerfi Google, styður bæði nettengingu um farsímakerfi og Wi-Fi og
hentar því vel til að skoða tölvupóst, vafra á netinu, spila leiki og eiga í
vinnusamskiptum.

Grunnvirknin sem Microsoft býður upp á fyrir Surface Duoe keyrir á
Android-stýrikerfinu. Grunnvirkni Surface Duo felur í sér forrit á borð við
Microsoft Launcher, uppsetningarleiðsögn og Símatengingin þín. Þú getur skráð
þig inn með Google-notandanafni og virkjað ýmsa þjónustu Google og getur þá
einnig skráð þig inn með Microsoft-reikningi og virkjað þjónustu Microsoft.
Forrit og þjónustur Microsoft kunna að nota upplýsingar sem Google veitir. Sumir
eiginleikar, svo sem staðsetning, krefjast þess að þú leyfir þessa virkni fyrir
Google og leyfir Microsoft sérstaklega að nota þessar upplýsingar.

Greiningargögn. Surface Duo safnar greiningargögnum til að leysa vandamál og
halda grunnvirkni Surface Duo uppfærðri og öruggri og til að tryggja að hún
starfi rétt. Þessi gögn hjálpa okkur að bæta Surface Duo og tengdar vörur og
þjónustu Microsoft. Gögnin innihalda ekki notandanafn þitt, netfang eða innihald
skránna þinna. Greiningargögn eru á tveimur stigum: Nauðsynleg greiningargögn og
valfrjáls greiningargögn.

 * Áskilið. Lágmarksgögn sem þarf til að halda grunnvirkni Surface Duo öruggri
   og uppfærðri og til að tryggja að hún starfi rétt.
 * Valfrjáls. Viðbótargögn sem hjálpa okkur að bæta vörur okkar og veita okkur
   auknar upplýsingar til að Microsoft að greina og lagfæra vandamál.

Frekari upplýsingar eru í persónuverndarstillingum Surface Duo.

Staðsetningarstillingar Surface Duo. Surface Duo notar staðsetningarþjónustu
Google til að komast að nákvæmri landfræðilegri staðsetningu tækisins til að
birta upplýsingar um veður á viðkomandi stað. Mismunandi er með hversu mikilli
nákvæmni hægt er að ákvarða staðsetningu Surface Duo, en í sumum tilvikum er
hægt að ákvarða hana nákvæmlega. Ef þú vilt að Microsoft-forrit geti vísað þér á
upplýsingar um veður eða birt þær og aðrar upplýsingar tengdar staðsetningu
þarftu að virkja staðsetningarþjónustu Google og staðsetningaraðgang Microsoft.
Sum forrit gætu krafist þess að þessar báðar þessar stillingar séu virkjaðar
fyrir forritið og hægt er að stilla eða breyta þeim í stillingum Surface Duo.
Persónuverndarstefna Google veitir upplýsingar um staðsetningarþjónustu Google
og vinnubrögð varðandi persónuvernd tengdra gagna. Sjá Staðsetningarstillingar
Surface Duo fyrir frekari upplýsingar.

Microsoft-forrit sem fylgja með Surface Duo. Valkostir greiningargagna fyrir
grunnvirkni Surface Duo eru stilltir þegar Surface Duo er sett upp í fyrsta sinn
og hægt er að breyta þeim í stillingum Surface Duo undir „Greiningargögn“.

Önnur Microsoft-forrit í Surface Duo gætu beðið þig um að kveikja á virkni sem
gerir heildarvirkni forritsins mögulega eða beðið þig um að leyfa valfrjálsa
söfnun greiningargagna. Þú getur breytt stillingum þessara forrita í stillingum
Surface Duo undir heiti forritsins. Frekari upplýsingar um þessi forrit eru í
Framleiðni- og samskiptavörum og Leit og Vafra svæðunum í þessari yfirlýsingu um
persónuvernd.

Fara aftur efst

LINKEDIN

Til að fræðast um gögnin sem LinkedIn safnar og hvernig þau eru notuð og þeim
deilt skaltu skoða persónuverndarstefnu LinkedIn.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


LEITA OG FLETTA

„Leita að og fletta vörum“ tengir þig við upplýsingar og ber kennsl á, vinnur úr
og bregst við upplýsingum á snjallan hátt, og lærir og aðlagast með tímanum.
Frekari upplýsingar um gervigreind og möguleika Copilot í leitarvörum Microsoft
er að finna í hlutanum Gervigreind og geta Microsoft Copilot hér að ofan.

„Leita að og fletta vörum“ tengir þig við upplýsingar og ber kennsl á, vinnur úr
og bregst við upplýsingum á snjallan hátt, og lærir og aðlagast með tímanum.
Frekari upplýsingar um gervigreind og möguleika Copilot í leitarvörum Microsoft
er að finna í hlutanum gervigreind og geta Microsoft Copilotkaflanum hér að
ofan.

BING

Bing-þjónusta felur í sér leitar- og kortlagningarþjónustu ásamt öðrum forritum
sem lýst er í þessum hluta. Bing-þjónusta safnar og vinnur úr ýmiss konar
gögnum, þ.m.t. handskrifuðum eða innslegnum texta, raddgögnum og myndum.
Bing-þjónusta fylgir einnig með annarri Microsoft-þjónustu, eins og Microsoft
365 og ákveðnum eiginleikum í Windows (sem við köllum Bing-upplifanir).

Þegar þú leitar að einhverju eða notar eiginleika Bing-upplifunar þar sem þú
þarft að leita eða slá inn skipun mun Microsoft safna upplýsingum um leitirnar
eða skipanirnar sem þú gafst upp (sem getur verið texti, raddgögn eða mynd) og
auk þess um IP-töluna þína, staðsetningu, einkvæm kennimerki sem eru í kökum
okkar, tímasetningu og dagsetningu leitarinnar og grunnstillingar vafrans. Ef þú
notar til dæmis raddstýrða Bing-þjónustu verða raddinntak þitt og gögn um
frammistöðu sem tengjast raddvirkninni send til Microsoft. Kynntu þér frekari
upplýsingar um hvernig Microsoft safnar og notar raddgögnin þín, sjáðu
talgreiningartækni. Og ef þú notar myndaþjónustu Bing verður myndin þín send til
Microsoft. Þegar þú notar Bing-upplifun, t.d. „Leita á Bing“ til að leita að
orði eða setningu á vefsíðu eða í skjali er orðið eða setningin send til Bing
ásamt hluta samhengisins til að geta skilað leitarniðurstöðum þar sem tekið er
tillit til samhengis.

Bing-leit bætt með gervigreind. Bing-leitin felur nú í sér gervigreindarbætta
vefleit, Bing-spjall, með Microsoft Copilot í Bing, sem styður notendur með því
að bjóða upp á viðeigandi leitarniðurstöður, fara yfir og taka saman af netinu,
fínstilla rannsóknarfyrirspurnir í gegnum spjallupplifunina og auka
sköpunargleðina með því að hjálpa notendum að búa til efni. Notkun og söfnun
Copilot í Bing á persónuupplýsingum er í samræmi við grunnvefleit Bing eins og
lýst er í þessum hluta. Frekari upplýsingar um Copilot í Bing er að finna á
Copilot í Bing: Nálgun okkar á ábyrga gervigreind.

Leitartillögur. Til að leitartillögueiginleikinn virki rétt eru upplýsingar um
stafina sem þú slærð inn í Bing-upplifun (svo sem leitar- og síðutillögur í
Microsoft Edge-vafranum) til að framkvæma leit, og það sem þú smellir á, sendar
til Microsoft. Með þessum hætti getum við birt þér viðeigandi tillögur um leið
og þú slærð inn leitarorðin. Til að kveikja eða slökkva á þessum eiginleika
þegar Bing-leit er notuð skaltu opna stillingar í Bing. Það eru aðrar aðferðir
til að stýra þessum eiginleika í öðrum Bing-upplifunum, til dæmis Microsoft
Edge-vafranum. Ekki er hægt að slökkva á leitartillögum í leitarreit Windows 10
og Windows 11. Ef þú velur geturðu alltaf falið leitargluggann eða táknið á
verkstikunni.

Áætlun um endurbætur á Bing-upplifuninni fyrir Bing-skjáborð og
Bing-tækjastikuna. Ef þú notar Bing-skjáborðið eða Bing-tækjastikuna og velur að
taka þátt í áætlun um endurbætur á Bing-upplifuninni munum við einnig safna
viðbótargögnum um það hvernig þú notar þessi tilteknu Bing-forrit, t.d. um
vefföng þeirra vefsvæða sem þú skoðar, til að gera endurbætur á röðun og vægi
leitarniðurstaðna. Í persónuverndarskyni notum við ekki þau gögn sem safnað er í
gegnum áætlun um endurbætur á Bing-upplifuninni til að bera kennsl á þig, hafa
samband við þig eða sérsníða fyrir þig auglýsingar. Þú getur hvenær sem er
slökkt á áætlun um endurbætur á Bing-upplifuninni í stillingum Bing-skjáborðs
eða Bing-tækjastikunnar. Að lokum má nefna að við eyðum þeim upplýsingum sem
safnað er í gegnum áætlun um endurbætur á Bing-upplifuninni að 18 mánuðum
liðnum.

Varðveisla og eyðing auðkenningar. Við eyðum auðkenningu vistaðra
leitarfyrirspurna með því að fjarlægja IP-töluna í heild sinni eftir sex mánuði
og fjarlægja kökukenni og önnur auðkenni þvert á lotur sem notuð eru til að bera
kennsl á sérstakan reikning eða tæki að 18 mánuðum liðnum.

Sérsnið með Microsoft-reikningi. Í sumri Bing-þjónustu færðu betri upplifun
þegar þú skráir þig inn með þínum eigin Microsoft-reikningi, til dæmis með því
að samstilla leitarferilinn þinn þvert á tækin þín. Þú getur notað þessa
sérsniðseiginleika til að sérstilla áhugamálin þín, eftirlæti og stillingar og
til að tengja reikninginn þinn við þjónustu þriðju aðila. Farðu í Bing
stillingar til að stjórna sérstillingunum þínum eða á persónuverndaryfirlit
Microsoft til að hafa umsjón með gögnunum þínum.

Unnið með leitarferilinn. Þegar þú ert skráð(ur) inn á eigin Microsoft reikning
geturðu eytt leitar- og spjallferilinnum á persónuverndaryfirliti Microsoft.
Leitarferilsþjónusta Bing, sem finna má í Bing-stillingum, býður upp á aðra
aðferð til að sækja aftur þau leitarorð sem þú hefur áður slegið inn og þær
leitarniðurstöður sem þú hefur smellt á í gegnum Bing-leitina í vafranum. Þú
getur hreinsað leitarferilinn þinn á tækinu með þessari þjónustu. Samtölin sem
þú átt við Microsoft Copilot í Bing eru einnig vistuð sem „Nýleg virkni“. Ferill
nýlegrar virkni er vistaður með nöfnum spjalla sem byggja sjálfgefið á fyrstu
fyrirspurninni í spjallinu. Nýleg virkni þín birtist hægra megin í
spjallglugganum þegar þú notar þjónustuna. Ef þú hreinsar ferilinn kemur það í
veg fyrir að hann birtist á svæði leitar eða spjallferilsins, en upplýsingum úr
leitarannálum okkar er ekki eytt, heldur haldið og þær gerðar
ópersónugreinanlegar, eins og lýst er hér að ofan eða eins og þú hefur gefið
fyrirmæli um í persónuverndaryfirlitinu. Ef þú ert innskráð(ur) á
Microsoft-reikning fyrir vinnu eða skóla þegar þú notar Microsoft-leit í Bing
geturðu flutt út Microsoft-leitina í leitarferli Bing, en ekki eytt henni.
Stjórnandi Microsoft-leitar í Bing getur séð heildarleitarferil allra notenda
innan fyrirtækisins en ekki tilteknar leitir notenda.

Þjónusta þriðju aðila sem nota Bing. Þú getur nýtt þér Bing-upplifun þegar þú
notar þjónustu þriðja aðila, t.d. þjónustu frá Yahoo!. Til að veita þessa
þjónustu fær Bing gögn frá þessum aðila og öðrum samstarfsaðilum, þ.m.t.
leitarfyrirspurnir þínar og tengd gögn (t.d. dagsetningu, tíma, IP-tölu og
einkvæmt kennimerki). Þessi gögn verða send til Microsoft til að veita
leitarþjónustuna. Microsoft mun nota þessi gögn eins og lýst er í þessari
yfirlýsingu eða eins og takmarkast frekar af samningsbundnum skyldum við
samstarfsfyrirtæki okkar. Þú skalt skoða persónuverndarstefnur fyrir þjónustu
þriðju aðila ef þú hefur spurningar um hvernig gögnum er safnað og þau notuð.

Gögn send á áfangavefsvæði. Þegar þú velur leitarniðurstöðu eða auglýsingu á
Bing-leitarniðurstöðusíðu og ferð á viðkomandi vefsvæði eru stöðluðu gögnin sem
vafrinn sendir öllum vefsvæðum sem þú heimsækir send á vefsvæðið – t.d.
IP-talan, gerð vafrans og tungumál hans og hýsilheiti svæðisins sem þú komst frá
(í þessu tilviki er það https://www.bing.com/).

Að deila gögnum frá Bing og Bing-upplifunum með þriðju aðilum. Við deilum
einhverjum ópersónugreinanlegum gögnum (gögn þar sem auðkenni tiltekins
einstaklings þekkist ekki) frá Bing og Bing-upplifunum með völdum þriðju aðilum.
Áður en það er gert keyrum við gögnin í gegnum aðgerð sem er hönnuð til að
fjarlægja ákveðin viðkvæm gögn sem notendur gætu sjálfir hafa sett inn sem
leitarorð (eins og kennitölur eða kreditkortanúmer). Þar að auki krefjumst við
þess að þessir þriðju aðilar haldi gögnunum öruggum og að þeir noti gögnin ekki
í öðrum tilgangi en tilgreindur er þegar þeir fá þau.

Fara aftur efst

MICROSOFT EDGE

Þegar þú notar vafra til að komast á internetið eru gögn um tækið þitt ("stöðluð
gögn tækis") send til vefsvæðanna sem þú heimsækir og netþjónustunnar sem þú
notar. Stöðluð gögn tækis eru IP-tala tækisins þíns, gerð vafra og tungumál,
tími aðgangs og vefföng tilvísunarvefsvæða. Þessi gögn kunna að vera skráð á
vefþjóna þessara vefsvæða eða netþjónustu. Hvaða gögn eru skrá og hvernig þau
gögn eru notuð fer eftir friðhelgisstarfsvenjum vefsvæðanna sem heimsótt eru og
þeirrar vefþjónustu sem þú notar. Ákveðnir eiginleikar í Microsoft Edge, eins og
þegar opnaður er nýr flipi í vafranum, tengja þig við efni Microsoft Start og
upplifanir þínar af slíku efni heyrir undir Microsoft Start-hlutann í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd. Að auki sendir Microsoft Edge tilteknum vefsvæðum
einkvæmt vafrakenni til að gera okkur kleift að þróa heildargögn sem notuð eru
til að bæta eiginleika og þjónustu vafrans.

Microsoft Edge fyrir Windows, Linux og macOS. Microsoft Edge er sjálfgefinn
vafri fyrir Windows 10 og nýrri og er einnig fáanlegur í öðrum studdum útgáfum
af Windows og macOS.

Gögn um hvernig þú notar vafrann, t.d. vefferill, upplýsingar um vefeyðublöð,
tímabundnar internetskrár og kökur, eru vistuð í tækinu. Þú getur eytt þessum
gögnum af tækinu þínu með því að nota Hreinsa vefferil.

Microsoft Edge gera þér kleift að fanga og vista efni á tækið þitt, eins og:

 * Stillingar og fleira. Gerir þér kleift að stjórna eftirlætum þínum,
   niðurhali, sögu, viðaukum og söfnum.
 * Söfn. Gerir þér kleift að safna texta, myndum, myndböndum og öðru efni á
   glósusíðu í vafranum þínum. Þegar þú færir efni í safnið þitt er það fært í
   skyndiminni tækis þíns og getur þú eytt því í safninu þínu.
 * Festa vefsvæði við verkstiku. Gerir þér kleift að festa eftirlætis vefsvæðin
   þín við Windows verkstikuna. Vefsvæði geta séð hvaða vefsíður þeirra þú hefur
   fest við verkstiku, sem gerir þeim kleift að láta þig vita með
   tilkynningatákni ef eitthvað nýtt er komið sem þú getur þá athugað á
   vefsvæðum þeirra.

Microsoft safnar gögnum sem eru nauðsynleg til að bjóða upp á eiginleika sem þú
biður um í Microsoft Edge. Þegar þú ert skráð(ur) inn í Microsoft Edge með
Microsoft-einkareikningi þínum eða vinnu- eða skólareikningi mun Microsoft Edge
samstilla vafragögnin þín sem vistuð eru í tækinu í öðrum innrituðum tækjum. Þú
getur valið hvaða vafragögn á að samstilla, þ.m.t. eftirlæti, vafraferil,
viðbætur og tengd gögn, stillingar, opna flipa, færslur fyrir sjálfvirka
útfyllingu (svo sem nafn þitt, netfang og símanúmer), aðgangsorð,
greiðsluupplýsingar og aðrar gagnagerðir eftir því sem þær verða tiltækar. Ef þú
velur að samstilla viðbætur sem þú keyptir úr vefverslunum þriðju aðila verður
afriti af þessum viðbótum hlaðið niður beint úr vefverslununum í samstillt tæki.
Ef þú hefur kveikt á aðgangsorðavaktara þá verða vistuð skilríki þín tætt,
dulkóðuð og send til aðgangsorðavaktara þjónustu Microsoft til að vara þig við
ef skilríki þín fundust sem hluti af skaðlegri árás eða bresti. Microsoft
varðveitir ekki þessi gögn eftir að athuguninni er lokið. Hægt er að slökkva á
eða grunnstilla samstillingu í stillingum Microsoft Edge.

Þegar þú skráir þig inn í Microsoft Edge með persónulegum Microsoft-reikningi
eða vinnu- eða skólareikningi vistar Microsoft Edge persónuverndarstillingar
reikningsins þíns. Microsoft Edge mun nota vistaðar kjörstillingar til að flytja
val um persónuvernd fyrir reikninginn þinn yfir í öll innrituð tæki þín, þar á
meðal við uppsetningu Windows-tækis eða þegar þú skráir þig inn í Microsoft Edge
með reikningnum þínum í nýju tæki.

Leitar- og vefsvæðatillögur Microsoft Edge nota leitarfyrirspurnir þínar og
vefferil til að bjóða þér upp á hraðari vefnotkun og meira viðeigandi
leitartillögur. Microsoft Edge sendir upplýsingarnar sem þú slærð inn í
veffangastikuna í vafranum til sjálfgefinnar leitarþjónustu sem er grunnstillt í
veffangastikunni til að stinga upp á leitartillögum um leið og þú slærð inn
hvern staf. Þú getur slökkt á þessum eiginleikum hvenær sem er í stillingum
vafrans. Til að veita leitarniðurstöður sendir Microsoft Edge leitarfyrirspurnir
þínar, staðlaðar tækjaupplýsingar og staðsetningu (ef þú ert með staðsetningu
virkjaða) til sjálfgefinnar leitarþjónustu þinnar. Ef Bing er sjálfgefin
leitarþjónusta þín notum við þessi gögn eins og lýst er í hlutanum um Bing í
þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Microsoft Edge safnar og notar gögn úr leitarvirkni þinni á netinu, þar á meðal
vefsvæðum sem Microsoft á ekki eða rekur, til að bæta þjónustu Microsoft, eins
og Microsoft Edge, Microsoft Bing og Microsoft News. Þessi gögn kunna að
innihalda leitarfyrirspurnina, leitarniðurstöðurnar sem birtast þér,
lýðfræðilegar upplýsingar sem eru hluti af leitarniðurstöðunum og samskipti þín
við leitarniðurstöðurnar, t.d. tenglana sem þú smellir á. Microsoft Edge tekur
skref til að gera auðkenningu á gögnunum sem safnað er saman með því að
fjarlægja gögn sem auðkenna einstaklinginn eða tækið sem þeim var safnað úr og
geyma þau í eitt ár frá því að þeim er safnað. Microsoft notar ekki þessi
söfnuðu gögn til að sérsníða eða birta þér auglýsingar. Þú getur slökkt á söfnun
þessara gagna hvenær sem er í stillingum vafrans.

Microsoft Edge sækir efni frá Microsoft-þjónustum til að bæta vefupplifun þína;
til dæmis, þegar gögnum er hlaðið niður til að forútbúa efni svæðis fyrir
hraðari skoðun eða til að útvega efni sem þarf til að knýja eiginleika sem þú
velur að nota, svo sem að útvega sniðmát fyrir söfn.

Þú getur einnig valið að deila vefvirkni þinni í Microsoft Edge til að gera
okkur kleift að sérsníða Microsoft Edge og Microsoft-þjónustu á borð við
auglýsingar, leit, verslun og fréttir. Vafravirkni í Microsoft Edge felur í sér
ferilinn þinn, eftirlæti, notkunargögn, vefefni og önnur vafragögn. Nánari
upplýsingar um persónuverndarstefnur auglýsinga er að finna í auglýsingahlutanum
í yfirlýsingunni um persónuvernd. Í persónuverndarstjórnborði Microsoft getur þú
stjórnað notkun vafravirkni þinnar fyrir sérsniðnar auglýsingar í stillingunni
Sjá auglýsingar sem þú hefur áhuga á. Ef slökkt er á þessari stillingu í
persónuverndaryfirliti Microsoft færðu áfram sérsniðna vefupplifun á borð við
leit og fréttir sem byggja á vafravirkninni þinni. Þú getur hætt að deila
vafravirkni Microsoft Edge með því að slökkva á Leyfa Microsoft að nota
vafravirkni þína, þ.m.t. feril, eftirlæti, notkun og önnur vafragögn til að
sérsníða Microsoft Edge og Microsoft-þjónustu, eins og auglýsingar, leit,
verslun og fréttir í stillingum Edge. Þegar þú notar Copilot-eiginleika á
hliðarstiku Microsoft Edge getur þú valið að leyfa Microsoft Copilot í Edge að
fá aðgang að efni vefsíðunnar sem þú ert að skoða til að fá betri innsýn, t.d.
samantekt á síðum. Gagnanotkun sem tengist Copilot-upplifun er í samræmi við
gagnanotkun Copilot sem lýst er í hlutanum um Bing í þessari
friðhelgisyfirlýsingu.

Microsoft Edge safnar nauðsynlegum greiningargögnum til að leysa vandamál og til
að halda Microsoft Edge uppfærðu, öruggu og til að það vinni rétt. Nauðsynleg
greiningargögn hjálpa okkur einnig að bæta Microsoft Edge og Windows.

Óháð leitaraðgerðagögnunum sem minnst var á hér að ofan getur þú valið að senda
valfrjáls greiningargögn um það hvernig þú notar Microsoft Edge og upplýsingar
um vafravirkni þína, þar á meðal vefferil og leitarorð, til Microsoft til að
hjálpa okkur að bæta Microsoft Edge og aðrar vörur og þjónustu Microsoft. Fyrir
Microsoft Edge í Windows 10 og nýrri eru þessar upplýsingar gefnar upp þegar þú
hefur virkjað valfrjáls greiningargögn. Frekari upplýsingar er að finna í
hlutanum Windows-greining í yfirlýsingunni um persónuvernd. Fyrir Microsoft Edge
í öðrum stýrikerfum eru valfrjálsar greiningarupplýsingar gefnar upp þegar þú
virkjar Bættu Microsoft-vörur með því að senda gögn um notkun þína á vafranum
eða Gerðu leit og vörur Microsoft betri með því að senda upplýsingar um vefsvæði
sem þú heimsækir í Microsoft Edge í vafrastillingunum.

Greiningargögnin sem Microsoft Edge safnar eru send til Microsoft og eru vistuð
með einu eða fleiri einkvæmum kennimerkjum sem aðstoða okkur við að bera kennsl
á einstaka vafrauppsetningu í tæki og skilja betur vandamál í þjónustu vafrans
og notkunarmynstur hans.

Frekari upplýsingar um Microsoft Edge, vefskoðunargögn og persónuvernd.

Microsoft Edge í iOS og Android. Microsoft Edge í iOS- og Android-tækjum safnar
gögnum sem eru nauðsynleg til að bjóða upp á eiginleika sem þú biður um í
Microsoft Edge. Microsoft safnar einnig nauðsynlegum greiningargögnum til að
leysa vandamál og til að halda Microsoft Edge uppfærðu, öruggu og til að það
vinni rétt. Nauðsynleg greiningargögn hjálpa okkur einnig að bæta Microsoft
Edge.

Þú getur einnig deilt valfrjálsum greiningargögnum um það hvernig þú notar
Microsoft Edge og upplýsingum um vefsvæði sem þú heimsækir (vefferil) til að
veita þér sérsniðna upplifun í vafranum, Windows og öðrum vörum og þjónustu
Microsoft. Þessar upplýsingar hjálpa okkur einnig að bæta Microsoft Edge og
aðrar vörur og þjónustu Microsoft. Þessi valfrjálsu greiningargögn eru send til
okkar þegar þú virkjar Deila gagnanotkun til að bjóða upp á sérsnið eða Deila
upplýsingum um vefsvæði sem þú heimsækir í stillingum vafrans.

Greiningargögnin sem Microsoft Edge safnar eru send til Microsoft og eru vistuð
með einu eða fleiri einkvæmum kennimerkjum sem aðstoða okkur við að bera kennsl
á einstakan notanda í tæki og skilja betur vandamál í þjónustu vafrans og
notkunarmynstur hans.

Microsoft Edge notar gögn úr leitarvirkni þinni á netinu, þar á meðal
leitarvirkni á vefsvæðum sem Microsoft á ekki eða rekur, til að bæta þjónustu
Microsoft, eins og Microsoft Edge, Microsoft Bing og Microsoft News. Gögnin sem
Microsoft Edge safnar kunna að innihalda persónuupplýsingar; Microsoft Edge sér
hins vegar um að hreinsa og eyða auðkenningu gagnanna. Microsoft Edge notar ekki
þessi gögn til að sérsníða eða birta þér auglýsingar. Þú getur slökkt á söfnun
þessara gagna hvenær sem er í stillingum vafrans.  Frekari upplýsingar um gögn
leitarniðurstaðna til að gera endurbætur á vörunni.

Upplýsingar um vinnureglur um persónuvernd í eldri útgáfum Microsoft Edge
(útgáfur 44 og eldri) er að finna í hlutanum „Vefvafrar — Microsoft Edge Legacy
og Internet Explorer“ í yfirlýsingunni um persónuvernd.

Fara aftur efst

MICROSOFT TRANSLATOR

Microsoft Translator er vélþýðingarkerfi og þjónusta sem hannað er til að þýða
texta og raddinntak sjálfkrafa á milli fjölda studdra tungumála. Microsoft
Translator er tiltækt sem sjálfstætt notendaforrit fyrir Android, iOS og Windows
og þjónustugeta þess er einnig hluti af ýmsum Microsoft-vörum og þjónustum, eins
og Translator Hub, Translator for Bing og Translator for Microsoft Edge.
Microsoft Translator vinnur úr texta-, mynd- og raddgögnum sem þú sendir inn,
ásamt tækja- og notkunargögnum. Við notum þessi gögn til að bjóða upp á
Microsoft Translator, sérsníða upplifun þína og bæta vörur okkar og þjónustu.
Microsoft hefur innleitt viðskiptalegar- og tæknilegar ráðstafanir sem hannaðar
eru til að aðstoða við að eyða auðkenningu á gögnunum sem þú sendir til
Microsoft Translator. Þegar við til að mynda söfnum texta og hljóði af handahófi
til að bæta Microsoft Translator og talgreiningartækni, eyðum við auðkenningum
og tilteknum texta, t.d. netföngum og sumum númeraröðum, sem borið er kennsl á í
sýnishorninu og gætu innihaldið persónugögn. Kynntu þér frekari upplýsingar um
hvernig Microsoft safnar og notar raddgögnin þín, sjáðu talgreiningartækni.

Þýðingaþjónustur Microsoft, aðskildar frá Microsoft Translator, eru einnig
tiltækar sem eiginleikar í öðrum Microsoft-vörum og þjónustum sem hafa aðrar
persónuverndarvenjur en Microsoft Translator. Frekari upplýsingar um Microsoft
Azure Cognitive Services Translator Text API, Custom Translator og Translator
Speech API er að finna í hlutanum um Vörur fyrir fyrirtæki og þróunaraðilaí
þessari yfirlýsingu um persónuvernd. Varðandi þýðingareiginleikann í Microsoft
365-forritum og Skype skal skoða kaflann Skipulag og samskiptavörur í þessari
persónuverndaryfirlýsingu.

Fara aftur efst

SWIFTKEY

Microsoft SwiftKey-lyklaborðið og tengdar skýjavörur (saman nefnt
„SwiftKey-þjónusta“) vinna úr gögnum um orð sem þú notar og hvernig þú skrifar
og notar þessi gögn til að læra inn á ritstílinn þinn og bjóða upp á sérsniðnar
sjálfvirkar textaleiðréttingar og flýtiritun sem lagar sig að þér. Við notum
þessi gögn einnig til að bjóða upp á ýmsa aðra eiginleika, t.d. ágiskanir um
emoji-tákn.

SwiftKey-ágiskunartæknin lærir af því hvernig þú notar tungumálið og býr til
sérsniðið tungumálslíkan. Þetta líkan er aðlagað yfirlit yfir orðin og
setningarnar sem þú notar mest, í samhengi, og endurspeglar þinn einstaka
skrifstíl. Líkanið sjálft inniheldur orð sem þú slærð oft inn raðað á þann hátt
sem gerir reikniritum SwiftKey kleift að gera ágiskanir byggðar á texta sem þú
hefur áður slegið inn. Líkanið sækir upplýsingar úr öllum kringumstæðum þar sem
þú notar lyklaborðið, þ. á m. við innslátt þegar þú notar forrit eða ferð inn á
vefsvæði. SwiftKey-lyklaborðið og líkanið reyna að forðast að safna viðkvæmum
gögnum með því að safna ekki gögnum úr tilteknum reitum, svo sem þeim sem gefið
er til kynna að innihaldi aðgangsorð eða greiðsluupplýsingar. SwiftKey-þjónustan
hvorki skráir né geymir gögn sem líkanið þitt inniheldur, nema þú kjósir að
deila gögnum þínum með okkur (eins og er lýst neðar). Þegar þú notar
SwiftKey-þjónustu söfnum við einnig tækja- og notkunargögnum. Þegar þú skráir
þig inn á SwiftKey-reikninginn þinn og samþykkir að deila eftirfarandi gögnum
munum við nota tækjagögn, notkunargögn og líkanagögn til að greina frammistöðu
þjónustunnar og bæta vörur okkar.

SwiftKey-þjónustan felur einnig í sér valfrjálsan skýjaíhlut sem kallast
SwiftKey-reikningur. Ef þú velur að stofna SwiftKey-reikning verður
tungumálalíkanið þitt samstillt við skýjaþjónustu SwiftKey-reikningsins svo þú
getir notið góðs af þessu líkani í öðrum tækjum sem þú notar og fengið aðgang að
öðrum þjónustum eins og samstilltum ágiskunum og öryggisafritun. Þegar þú
stofnar SwiftKey-reikning mun Microsoft einnig safna netfangi þínu og almennum
lýðfræðilegum gögnum. Öll gögn sem við söfnum eru flutt á netþjóna okkar með
dulkóðun. Ef þú ert skráð(ur) inn á SwiftKey-reikninginn þinn getur þú stjórnað
kjörstillingum persónuupplýsinga þinna og SwiftKey-reiknings á
data.swiftkey.com.

Sem hluti af SwiftKey-reikningnum þínum geturðu einnig valið að deila tungumála-
og/eða innsláttargögnum í þeim tilgangi að bæta vörur og þjónustu Microsoft. Ef
þú gefur samþykki getur SwiftKey sent stutta gagnabúta um hvað og hvernig þú
skrifar og tilheyrandi leiðréttingargögn á þjónana okkar til úrvinnslu. Þessi
textabútar eru notaðir í ýmsum sjálfvirkum vinnslum til að ganga úr skugga um að
ágiskunarþjónustan okkar virki rétt og til að bæta vöruna. SwiftKey-þjónustan
gerir þessi textabrot nafnlaus til að varðveita friðhelgi þína og jafnvel þótt
þú sért með SwiftKey-reikning verða þessir textabútar ekki tengdir við hann.

Ef þú skráir þig inn á SwiftKey-reikninginn og velur að deila tungumáls- og
innsláttargögnum mun Microsoft vinna úr deildum gögnum til að leita að nýjum
mynstrum í málnotkun notenda okkar. Þetta gerir okkur kleift að bæta grunnlíkan
okkar fyrir einstök tungumál. Tungumál og innsláttargögn sem notuð eru í þessu
ferli eru samantekin og öll orð eða orðasamsetningar sem gætu verið persónuleg
fyrir einstaklinga eða litla notendahópa eru síuð út.

Þú getur afturkallað samþykki á því að deila tungumáls- og innsláttargögnum
fyrir endurbætur á vörunni hvenær sem er í stillingum SwiftKey. Þú getur einnig
afturkallað samþykki þitt fyrir því að leyfa SwiftKey-þjónustu að og geyma
persónugögnin þín hvenær sem er í stillingum SwiftKey. Þegar þú afturkallar
samþykki á því að SwiftKey geymi persónugögn þín verður persónugögnunum þínum
sem safnað var í gegnum notkun þína á SwiftKey-þjónustunni eytt.

Þú gætir fengið sendar tilkynningar í tækið öðru hverju til að láta þig vita af
vöruuppfærslum og eiginleikum sem þú gætir haft áhuga á. Þú getur slökkt á
þessum tilkynningum hvenær sem er í stillingum SwiftKey.

Þegar þú notar eiginleika myndavélar í SwiftKey geturðu valið að bæta myndbönd
og myndir með linsuþjónustu þriðja aðila. Linsa er eiginleiki sem notar aukinn
veruleika til að breyta sjálfsmyndum þínum á skemmtilegan hátt, t.d. láta þig
líta út eins og uppáhaldsdýrið þitt. Með því að nota myndavélina í
SwiftKey-lyklaborði geturðu valið linsueiginleikann sem felldur er inn í
lyklaborðið til að breyta andliti og höndum þínum. Eftir því hvaða linsu þú
velur er hægt að vinna úr myndbandi og myndum til að draga út upplýsingar um
staðsetningu mismunandi svæða á andliti og höndum. Útdregin gögn eru notuð í
þeim eina tilgangi að nota áhrif aukins veruleika á andlit og hendur þínar.
Engin af þessum gögnum eru notuð til að persónugreina þig. Eingöngu er unnið úr
þessum gögnum í tækinu þínu meðan á lotunni stendur og er þeim síðan strax eytt.
Þessi gögn eru ekki send á SwiftKey eða þriðja aðila.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


WINDOWS

Windows er sérsniðið tölvuumhverfi sem gerir þér kleift að nálgast þjónustu,
kjörstillingar og efni í öllum tölvubúnaði, hvort sem um er að ræða síma,
spjaldtölvur eða Surface Hub-töfluskjá. Í stað þess að vera staðbundinn
hugbúnaður í tækinu þínu eru lykilíhlutir í Windows í skýinu og bæði skýtengdir
og staðbundnir þættir í Windows eru reglulega uppfærðir, sem sér þér fyrir
nýjustu endurbótum og eiginleikum. Til að veita þér þessa tölvuupplifun söfnum
við gögnum um þig, tækið þitt og hvernig þú notar Windows. Og þar sem Windows er
sérsniðið að þér gefum við þér valkosti um þau persónugögn sem við söfnum og
hvernig við notum þau. Athugaðu að ef Windows-tækinu þínu er stýrt af
stofnuninni þinni (eins og vinnuveitanda þínum eða skóla) gæti hún notað
miðstýrð stjórntæki frá Microsoft eða öðrum til að fá aðgang að og vinna úr
gögnunum þínum og til að stýra stillingum tækisins (þ.m.t.
persónuverndarstillingum), tækjareglum, hugbúnaðaruppfærslum, gagnasöfnun okkar
eða stofnunarinnar, eða öðrum hlutum tækisins. Stofnunin þín getur að auki notað
stjórntæki frá Microsoft eða öðrum til að fá aðgang að og vinna úr gögnunum
þínum á þessu tæki, þ.m.t. samskipta- og greiningargögnum þínum og efni
samskipta þinna og skráa.

The Windows stllingar, áður kallað tölvustillingar, er nauðsynlegur hluti af
Microsoft Windows. Hann býður upp á þægilegt viðmót til að breyta kjörstillingum
notenda, grunnstilla stýrikerfið og stjórna tengdum tækjum svo þú getir stjórnað
notandareikningum, breytt netstillingum og sérsniðið ýmsa þætti í Windows.
Windows býður upp á leið fyrir forrit til að fá aðgang að ýmsum möguleikum
tækisins, eins og myndavél, hljóðnema, staðsetningu, dagbók, tengiliðum,
símtalaskrá, skilaboðum og fleiru, en stjórnað aðgangi að persónuupplýsingum
þínum. Hver möguleiki er með sína eigin síðu fyrir persónuverndarstillingar í
Windows-stillingum svo þú getir stjórnað því hvaða forrit geta notað hvern
möguleika. Hér eru nokkrir lykileiginleikar stillinga:

 1. Sérsnið: Þú getur sérsniðið ýmsa þætti í Windows, þar á meðal útlit og
    yfirbragð, tungumálastillingar og valkosti persónuverndar.
    Windows-stillingar nota hljóðnemann þegar hljóðstyrk er stjórnað, myndavél
    þegar innbyggð myndavél og staðsetning eru notuð til að breyta birtunni að
    næturlagi til að hjálpa þér að sérstilla Windows.
 2. Jaðarstjórnun: Settu upp og stjórnaðu jaðarbúnaði á borð við prentara, skjái
    og utanáliggjandi drifum.
 3. Netkerfi: Stilltu netstillingar, þ.m.t. Wi-Fi-, Ethernet-, farsíma- og
    VPN-tengingar og notaðu efnislegt MAC-vistfang, IMEI- og farsímanúmer ef
    tækið styður farsímakerfi.
 4. Reikningsstjórnun: Bættu við eða fjarlægðu notandareikninga, breyttu
    reikningsstillingum og stjórnaðu valkostum innskráningar.
 5. Valkostir á kerfisstigi: Grunnstilltu skjástillingar, tilkynningar,
    orkukosti, stjórnaðu lista yfir uppsett forrit og fleira.
 6. Persónuverndarstjórnun&: grunnstilla kjörstillingar persónuverndar, eins og
    staðsetningu, söfnun greiningargagna o.s.frv. Fínstilla hvaða einstök forrit
    og þjónusta geta opnað eiginleika tækis með því að kveikja eða slökkva á
    þeim.

Frekari upplýsingar um gagnasöfnun í Windows er að finna í Samantekt
gagnasöfnunar fyrir Windows. Þessi yfirlýsing fjallar um Windows 10 og Windows
11 og tilvísanir í Windows í þessum hluta tengjast þessum útgáfum. Eldri útgáfur
af Windows (þ.m.t. Windows Vista, Windows 7, Windows 8 og Windows 8.1) falla
undir sína eigin yfirlýsingu um persónuvernd.

Windows er sérsniðið tölvuumhverfi sem gerir þér kleift að nálgast þjónustu,
kjörstillingar og efni í öllum tölvubúnaði, hvort sem um er að ræða síma,
spjaldtölvur eða Surface Hub-töfluskjá. Í stað þess að vera staðbundinn
hugbúnaður í tækinu þínu eru lykilíhlutir í Windows í skýinu og bæði skýtengdir
og staðbundnir þættir í Windows eru reglulega uppfærðir, sem sér þér fyrir
nýjustu endurbótum og eiginleikum. Til að veita þér þessa tölvuupplifun söfnum
við gögnum um þig, tækið þitt og hvernig þú notar Windows. Og þar sem Windows er
sérsniðið að þér gefum við þér valkosti um þau persónugögn sem við söfnum og
hvernig við notum þau. Athugaðu að ef Windows-tækinu þínu er stýrt af
stofnuninni þinni (eins og vinnuveitanda þínum eða skóla) gæti hún notað
miðstýrð stjórntæki frá Microsoft eða öðrum til að fá aðgang að og vinna úr
gögnunum þínum og til að stýra stillingum tækisins (þ.m.t.
persónuverndarstillingum), tækjareglum, hugbúnaðaruppfærslum, gagnasöfnun okkar
eða stofnunarinnar, eða öðrum hlutum tækisins. Stofnunin þín getur að auki notað
stjórntæki frá Microsoft eða öðrum til að fá aðgang að og vinna úr gögnunum
þínum á þessu tæki, þ.m.t. samskipta- og greiningargögnum þínum og efni
samskipta þinna og skráa.

The Windows stllingar, áður kallað tölvustillingar, er nauðsynlegur hluti af
Microsoft Windows. Hann býður upp á þægilegt viðmót til að breyta kjörstillingum
notenda, grunnstilla stýrikerfið og stjórna tengdum tækjum svo þú getir stjórnað
notandareikningum, breytt netstillingum og sérsniðið ýmsa þætti í Windows.
Windows býður upp á leið fyrir forrit til að fá aðgang að ýmsum möguleikum
tækisins, eins og myndavél, hljóðnema, staðsetningu, dagbók, tengiliðum,
símtalaskrá, skilaboðum og fleiru, en stjórnað aðgangi að persónuupplýsingum
þínum. Hver möguleiki er með sína eigin síðu fyrir persónuverndarstillingar í
Windows-stillingum svo þú getir stjórnað því hvaða forrit geta notað hvern
möguleika. Hér eru nokkrir lykileiginleikar stillinga:

 1. Sérsnið: Þú getur sérsniðið ýmsa þætti í Windows, þar á meðal útlit og
    yfirbragð, tungumálastillingar og valkosti persónuverndar.
    Windows-stillingar nota hljóðnemann þegar hljóðstyrk er stjórnað, myndavél
    þegar innbyggð myndavél og staðsetning eru notuð til að breyta birtunni að
    næturlagi til að hjálpa þér að sérstilla Windows.
 2. Jaðarstjórnun: Settu upp og stjórnaðu jaðarbúnaði á borð við prentara, skjái
    og utanáliggjandi drifum.
 3. Netkerfi: Stilltu netstillingar, þ.m.t. Wi-Fi-, Ethernet-, farsíma- og
    VPN-tengingar og notaðu efnislegt MAC-vistfang, IMEI- og farsímanúmer ef
    tækið styður farsímakerfi.
 4. Reikningsstjórnun: Bættu við eða fjarlægðu notandareikninga, breyttu
    reikningsstillingum og stjórnaðu valkostum innskráningar.
 5. Valkostir á kerfisstigi: Grunnstilltu skjástillingar, tilkynningar,
    orkukosti, stjórnaðu lista yfir uppsett forrit og fleira.
 6. Persónuverndarstjórnun&: grunnstilla kjörstillingar persónuverndar, eins og
    staðsetningu, söfnun greiningargagna o.s.frv. Fínstilla hvaða einstök forrit
    og þjónusta geta opnað eiginleika tækis með því að kveikja eða slökkva á
    þeim.

Frekari upplýsingar um gagnasöfnun í Windows er að finna í Samantekt
gagnasöfnunar fyrir Windows. Þessi yfirlýsing fjallar um Windows 10 og Windows
11 og tilvísanir í Windows í þessum hluta tengjast þessum útgáfum. Eldri útgáfur
af Windows (þ.m.t. Windows Vista, Windows 7, Windows 8 og Windows 8.1) falla
undir sína eigin yfirlýsingu um persónuvernd.

VIRKJUN

Þegar þú gerir Windows virkt er sérstakur virkjunarlykill tengdur við tækið sem
hugbúnaðurinn er settur upp á. Virkjunarlykillinn og gögn um hugbúnaðinn og
tækið er sent til Microsoft til að aðstoða við staðfestingu hugbúnaðarleyfisins.
Þessi gögn gæti þurft að senda aftur ef það þarf að endurvirkja eða staðfesta
leyfið. Á símum sem nota Windows er auðkenni tækis og netkerfa ásamt
staðsetningu tækis á þeim tíma sem fyrst er kveikt á því einnig send til
Microsoft fyrir ábyrgðarskráningu, birgðaendurnýjun og ráðstafanir gegn svikum.

Fara aftur efst

AÐGERÐAFERILL

Aðgerðaferill hjálpar þér að fylgjast með því hvað þú gerir með tækinu, á borð
við það hvaða forrit og þjónustu þú notar, hvaða skrár þú opnar og hvaða
vefsvæði þú skoðar. Aðgerðaferillinn þinn er búinn til þegar þú notar mismunandi
forrit og eiginleika á borð við microsoft Edge Legacy - eldri útgáfu Microsoft
Edge, sum Microsoft Store-forrit og Microsoft 365-forrit og hann er vistaður
staðbundið í tækinu þínu.

Þú getur kveikt og slökkt á stillingum til að vista virkniferil staðbundið í
tækinu þínu og þú getur einnig hreinsað virkniferil tækisins hvenær sem er
í Persónuvernd > Virkniferill í stillingaforriti Windows.  Frekari upplýsingar
um aðgerðaferil í Windows.

Fara aftur efst

AUGLÝSINGAAUÐKENNI

Windows býr til einkvæmt auglýsingaauðkenni fyrir hvern einstakling sem notar
tæki sem þróunaraðilar forrita og auglýsinganet geta notað í sínum eigin
tilgangi, til dæmis til að birta viðeigandi auglýsingar í forritum. Þegar
auglýsingaauðkennið er virkt geta bæði forrit frá Microsoft og forrit frá þriðja
aðila fengið aðgang að og notað auglýsingaauðkennið á svipaðan hátt og vefsíður
fá aðgang að og nota einkvæmt kennimerki sem geymt er í köku. Þannig geta
þróunaraðilar forrita og auglýsinganet notað auglýsingaauðkennið þitt til að
sýna þér markvissari auglýsingar og annað sem er sniðið að þínum þörfum, bæði í
forritum og á netinu. Microsoft safnar auglýsingaauðkennum til ofantalinna nota
eingöngu þegar þú hefur valið að leyfa auglýsingaauðkenni sem hluta af
persónuverndarstillingum þínum.

Stilling auglýsingaauðkennis gildir um Windows-forrit sem nota
auglýsingaauðkenni Windows. Þú getur slökkt á aðgangi að þessu auðkenni hvenær
sem er með því að slökkva á auglýsingaauðkenni í stillingaforriti Windows. Ef þú
velur að kveikja á því aftur verður auglýsingaauðkennið endurstillt og nýtt
auðkenni myndað. Þegar forrit þriðja aðila opnar auglýsingaauðkennið fellur
notkun þess á auðkenninu undir yfirlýsingu forritsins um persónuvernd.  Frekari
upplýsingar um auglýsingaauðkenni í Windows.

Stilling auglýsingaauðkennis gildir ekki um aðrar útfærslur á áhugabundnum
auglýsingum sem Microsoft eða þriðju aðilar birta, til dæmis kökur sem eru
notaðar til að birta áhugabundnar skjáauglýsingar á vefsvæðum. Vörur þriðja
aðila sem eru opnaðar eða settar upp í Windows gætu einnig birt annars konar
áhugabundnar auglýsingar samkvæmt þeirra eigin persónuverndarstefnum. Microsoft
birtir annars konar áhugabundnar auglýsingar í tilteknum vörum Microsoft, bæði
með beinum hætti og í samstarfi við auglýsingaveitur þriðja aðila. Frekari
upplýsingar um notkun Microsoft á gögnum í auglýsingaskyni eru í hlutanum
 hvernig við notum persónuleg gögn  í þessari yfirlýsingu.

Fara aftur efst

GREINING

Microsoft notar greiningargögn úr Windows til að leysa vandamál og halda Windows
öruggu, uppfærðu og til að það starfi á réttan hátt. Það hjálpar okkur einnig að
bæta Windows og tengdar vörur og þjónustu frá Microsoft. Á meðan tækið er í
gangi er greiningargögnum safnað og þau send með reglulegu millibili til
Microsoft og vistuð með einu eða fleiri einkvæmum kennimerkjum sem auðvelda
okkur að bera kennsl á einstakan notanda í einstöku tæki og skilja betur
vandamál í þjónustu tækisins og notkunarmynstur þess.

Gögn um greiningu og aðgerðir eru á tveimur stigum: Nauðsynleg greiningargögn og
valfrjáls greiningargögn. Í sumum fylgiskjölum og öðru efni eru „nauðsynleg
greiningargögn“ kölluð „einföld greiningargögn“, og „valfrjáls greiningargögn“
kölluð „öll greiningargögn“.

Ef fyrirtæki (t.d. vinnuveitandi þinn eða skóli) notar Microsoft Entra ID til að
stjórna reikningnum sem það veitir þér og skráir tækið þitt í grunnstillingu
fyrir vinnsluaðila greiningargagna í Windows, mun gilda samningur milli
Microsoft og fyrirtækisins um vinnslu Microsoft á greiningargögnum í tengslum
við Windows. Ef stofnun/fyrirtæki notar stjórntæki Microsoft eða fær Microsoft
til að stýra tækjunum þínum mun Microsoft og stofnunin/fyrirtækið nota og vinna
úr greiningargögnum og villuupplýsingum frá tækinu þínu til að leyfa stjórnun,
eftirlit og úrræðaleit á tækjum þínum í umsjá stofnunarinnar/fyrirtækisins, og í
öðrum tilgangi stofnunarinnar/fyrirtækisins.

Nauðsynleg greiningargögn fela í sér upplýsingar um tækið þitt, stillingar og
getu þess og hvort það virkar rétt. Við söfnum eftirfarandi greiningargögnum sem
teljast nauðsynleg:

 * Gögn um tæki, tengigetu og grunnstillingar:
   * Gögn um tækið, svo sem gerð örgjörva, framleiðanda OEM, gerð rafhlöðu og
     afkastageta, fjölda og gerð myndavéla, fastbúnað og eiginleikar minnis.
   * Netgetu og tengingargögn, eins og IP-tala tækisins, farsímakerfi (þar með
     talið IMEI- og farsímafyrirtæki) og hvort tækið er tengt við frítt eða
     greitt net.
   * Gögn um stýrikerfið og grunnstillingu þess, svo sem útgáfu stýrikerfis og
     tegundarnúmer, svæðis- og tungumálastillingar, stillingar greiningargagna
     og hvort tækið sé hluti af Windows Insider-kerfinu.
   * Gögn um tengdan jaðarbúnað á borð við líkan, framleiðanda, rekla og
     samhæfisgögn.
   * Gögn um forrit sem eru uppsett í tækinu, svo sem heiti forrits, útgáfu og
     útgefanda.
 * Hvort tæki er tilbúið fyrir uppfærslu og hvort til staðar eru þættir sem geta
   hindrað tækið í að taka á móti uppfærslum, svo sem lítil hleðsla á rafhlöðu,
   takmarkað pláss á diski eða tengigeta um gjaldskylt net.
 * Hvort uppfærslur takast eða mistakast.
 * Gögn um áreiðanleika sjálfs kerfisins sem safnar greiningargögnunum.
 * Einfaldar villuskýrslur, sem veita heilsufarsgögn um ástand stýrikerfisins og
   þeirra forrita sem keyra á tækinu þínu. Til dæmis láta einfaldar
   villuskýrslur okkur vita ef forrit, eins og t.d. Microsoft-málun eða leikur
   frá þriðja aðila, frýs eða hrynur.

Valfrjáls greiningargögn innihalda ítarlegri upplýsingar um tækið þitt og
stillingar þess, getu og ástand tækisins. Valfrjáls greiningargögn gætu einnig
innihaldið gögn um vefsvæðin sem þú skoðar, virkni tækis (einnig stundum talað
um notkun) og ítarlegar villuskýrslur sem gera Microsoft kleift að lagfæra og
bæta vörur og þjónustu fyrir alla notendur. Þegar þú velur að senda valfrjáls
greiningargögn eru nauðsynleg greiningargögn alltaf innifalin og við söfnum
eftirfarandi viðbótarupplýsingum:

 * Viðbótargögn um tækið, tenginguna og grunnstillingu, sem eru nákvæmari en þau
   sem safnað er undir nauðsynlegum greiningargögnum.
 * Stöðu- og innskráningarupplýsingar um ástand stýrikerfisins og annarra
   kerfishluta sem eru nákvæmari en þau gögn um uppfærslur og greiningarkerfi
   sem safnað var saman undir nauðsynlegum greiningargögnum.
 * Virkni forrits, svo sem hvaða forrit eru ræst á tækinu, hversu lengi þau
   keyra og hve fljótt þau bregðast við innslætti.
 * Vafravirkni, þar með talið vefferill og leitarorð, í Microsoft-vöfrum
   (Microsoft Edge eða Internet Explorer).
 * Bættar villuskýrslur, þ.m.t. minnisstaða tækisins þegar kerfi eða forrit frýs
   (sem geta óvart falið í sér notandaefni, s.s. hluta skjals sem þú varst að
   nota þegar villan kom upp).

Hugsanlega er ekki öllum gögnum sem lýst er hér á undan safnað í tækinu þínu
jafnvel þó þú veljir að senda valfrjáls greiningargögn. Microsoft lágmarkar
gagnamagn valfrjálsra greiningargagna sem safnað er úr öllum tækjum með því að
safna sumum gögnum aðeins úr litlum hluta tækja (úrtaki). Með því að keyra
verkfærið „Skoðari greiningargagna“ geturðu fengið upp tákn sem sýnir hvort
tækið þitt er í úrtakinu og einnig hvaða gögnum er safnað úr tækinu.
Leiðbeiningar um hvernig á að sækja verkfærið „Skoðari greiningargagna“ er að
finna í stillingaforriti Windows undir „Greiningar og &ábendingar“.

Mögulega er mismunandi gögnum safnað í Windows-greiningum. Þetta veitir
Microsoft sveigjanleika til að safna gögnum í þeim tilgangi sem lýst er hér á
undan. Microsoft gæti þurft að safna gagnaatriðum sem ekki hefur verið safnað
áður, til dæmis svo Microsoft finni lausn á vandamálum tengdum afköstum sem hafa
áhrif á tölvunotkun notenda eða geti uppfært Windows-tæki sem er nýkomið á
markað. Núverandi lista yfir gagnagerðir sem safnað er undir Nauðsynleg
greiningargögn og Valfrjáls greiningargögn er að finna í Nauðsynleg
greiningartilvik og reitir Windows (grunnstig) eða Valfrjáls greiningargögn
Windows (fullt stig). Við veitum samstarfsaðilum okkar (t.d. framleiðanda
tækisins) upplýsingar um takmarkaða hluta villutilkynninga til að auðvelda þeim
að bera kennsl á vandamál í vörum og þjónustu sem virka með Windows og öðrum
vörum og þjónustu frá Microsoft. Þeir hafa aðeins leyfi til að nota þessar
upplýsingar til að gera við eða bæta þessar vörur og þjónustu. Við kunnum einnig
að deila sumum uppsöfnuðum, ópersónugreinanlegum greiningargögnum, t.d. almennu
notkunarmynstri í Windows-forritum og -eiginleikum, með völdum þriðju aðilum. 
Frekari upplýsingar um greiningargögn í Windows.

Greining handskriftar og innsláttar. Þú getur aðstoðað Microsoft við að bæta
handskriftar- og innsláttargreiningu með því að senda greiningargögn fyrir
handskrift og innslátt. Ef þetta er valið safnar Microsoft sýnishornum úr efni
sem þú slærð inn eða skrifar til að bæta eiginleika á borð við
handskriftargreiningu, sjálfvirka útfyllingu, flýtiritun og
stafsetningarleiðréttingu fyrir þau tungumál sem viðskiptavinir Microsoft nota.
Þegar Microsoft safnar greiningargögnum fyrir handskrift og innslátt er þeim
skipt upp í lítil sýnishorn og meðhöndluð á þann hátt að öll auðkenni,
upplýsingar um röðun og önnur gögn (svo sem netföng og töluleg gildi) sem hægt
væri að nota til að endurbyggja upprunalegt efni eða tengja innslátt við þig eru
fjarlægð. Þar er einnig að finna tengd gögn um frammistöðu, t.d. handvirkar
breytingar á texta auk orða sem bætt hefur verið við orðabókina.  Frekari
upplýsingar um hvernig skal bæta handskrift og innslátt í Windows.

Sérsniðin tilboð

Ef þú velur að kveikja á Sérsniðnum tilboðum notum við upplýsingar um tækið þitt
og hvernig þú notar það, þ.m.t. greiningargögn Windows, ásamt
reikningsupplýsingum þínum og gögnum sem safnað er af öðrum vörum og þjónustu
Microsoft til að bjóða þér sérsniðnar ábendingar, auglýsingar og ráðleggingar
til að bæta upplifun þína af Windows. Sérsniðin tilboð fela meðal annars í sér
ráðleggingar um hvernig á að sérstilla og fínstilla Windows, sem og auglýsingar
og ráðleggingar um vörur og þjónustu Microsoft og þriðju aðila, eiginleika,
forrit og vélbúnað fyrir notkun þína á Windows. Windows gæti til dæmis sagt þér
frá nýjum eiginleikum til að hjálpa þér að fá sem mest út úr tækinu þínu. Ef þú
streymir kvikmyndir í vafranum þínum færðu mögulega ábendingu frá Windows um
forrit í Microsoft Store sem býður upp á betri straumspilun. Og ef harði
diskurinn þinn er að fyllast kann Windows að stinga upp á að þú prófir OneDrive
eða kaupir vélbúnað til að auka geymsluplássið.

Þegar kveikt er á sérsniðnum tilboðum kann Windows að nota nauðsynleg
greiningargögn til að sérsníða tilboð. Þessi gögn geta falið í sér upplýsingar
um tækið þitt, stillingar þess og getu, og hvort það virki rétt. Ef þú hefur
ákveðið að deila valkvæðum greiningargögnum, geta gögn sem eru notuð til að
sérsníða tilboð einnig innihaldið upplýsingar um hvernig þú notar forrit og
eiginleika, auk viðbótarupplýsinga um heilsu tækisins. Við gætum einnig notað
upplýsingar um tækið þitt og virkni til að sérsníða tilboð beint á tækinu þínu,
jafnvel þegar gögnin fara ekki frá tækinu. Við notum ekki innihald villuskýrslna
né radd-, skrif- eða pennaaðföng til að sérsníða tilboð.

Auk upplýsinga um tækið þitt og notkun þess, þar með talið greiningargögn frá
Windows, gætum við notað eða sameinað eftirfarandi gögn úr öðrum Microsoft vörum
og reikningnum þínum með greiningargögnum Windows til að sérsníða tilboð:

 * Vefvirkni, ef þú veitir Microsoft Edge leyfi til að safna vefvirkni þinni
   fyrir sérsniðnar leitir, auglýsingar og fréttir.

 * Upplýsingar um notkun þína á öðrum Microsoft vörum og þjónustu, þar á meðal
   Microsoft Bing, Microsoft 365, Xbox og Microsoft vefsíðum, eins og MSN.com.

 * Áskriftar- og kaupsaga.

 * Gögn frá vefsíðum þriðja aðila sem gætu verið deild með Microsoft.

Við gætum einnig notað upplýsingar um samskipti þín við leiðsögn, ráðleggingar
og kynningar til að veita og bæta sérsniðin tilboð og svipuð skilaboð í öðrum
Microsoft vörum.

Til að stjórna hvernig gögn sem eru söfnuð af öðrum Microsoft vörum eru notuð
til að sérsníða tilboð, getur þú heimsótt Síðu fyrir sérsniðnar auglýsingar og
tilboð . Gögnin sem við notum til að sérsníða tilboð kunna að breytast með
tímanum, en þessi síða mun alltaf innihalda nýjustu listann yfir gagnagjafa
þannig að þú getir tekið ákvarðanir um hvernig Microsoft notar gögnin þín. Í
sumum svæðum, eins og Evrópska efnahagssvæðinu, fer að slökkva á sérsniðnum
tilboðum í Windows einnig að stöðva notkun gagna frá öðrum Microsoft vörum til
að sérsníða ábendingar, auglýsingar og ráðleggingar í Windows. Á öðrum svæðum
geturðu stjórnað því hvernig gögnum sem safnað er með öðrum Microsoft-vörum eru
notuð til að sérsníða tilboð með því að fara á Síðu fyrir sérsniðnar auglýsingar
og tilboð.

Samhengisupplýsingar frá tækinu þínu og einhverjar grunnupplýsingar um
reikninginn þinn eru notaðar til að sýna þér viðeigandi skilaboð í Windows, óháð
því hvort sérsniðin tilboð eða notkun gagna frá öðrum Microsoft vörum til að
sérsníða tilboð hafi verið slökkt á. Til dæmis eru þessi gögn notuð til að
tryggja að efni sé á réttum tungumáli og viðeigandi fyrir aldurshópinn þinn.

Sérsniðin tilboð eiga við um ábendingar, tilboð, auglýsingar og ráðleggingar sem
þú sérð í Windows. Að breyta þessari stillingu mun ekki hafa áhrif á hvaða
tilboð þú getur séð í öðrum Microsoft vörum. Þú getur breytt þessari stillingu
hvenær sem er með því að leita að Sérsniðin tilboð í Windows stillingum. Frekari
upplýsingar um sérsniðin tilboð.

Sérsniðin notkun

Sérsniðinni upplifun er skipt út fyrir sérsniðin tilboð í nýrri útgáfum af
Windows. Ef þú hefur ekki sett upp nýjustu Windows uppfærsluna getur þú samt séð
sérsniðna notkun í tækinu þínu.

Ef þú velur að kveikja áSérsniðnum upplifunum notum við Windows-greiningargögnin
þín (nauðsynleg eða valfrjáls eins og þú hefur valið) til að bjóða þér upp á
sérsniðnar ábendingar, auglýsingar og ráðleggingar til að bæta upplifun þína af
Microsoft. Ef þú valdir greiningargagnastillinguna „Nauðsynleg“ er sérsniðið
byggt á upplýsingum um tækið þitt, stillingar þess og getu og því hvort tækið
virkar rétt. Ef þú valdir „Valfrjáls“ er sérsniðið einnig byggt á upplýsingum um
hvernig þú notar forrit og eiginleika og viðbótarupplýsingum um ástand á tækinu
þínu. Hins vegar notum við ekki upplýsingar um vefsvæðin sem þú skoðar, efni úr
hrunskrám eða tal-, innsláttar- eða handskriftargögnum fyrir sérsnið þegar við
fáum slík gögn send frá viðskiptavinum sem völdu „Valfrjáls“. Gögn um sérsniðna
upplifanir eru send til Microsoft og geymd með einu eða fleiri einstökum
auðkennum sem geta hjálpað okkur að þekkja einstakan notanda á einstöku tæki og
skilja þjónustuvandamál tækisins og notkunarmynstur.

Sérsniðin notkun felur meðal annars í sér ráðleggingar um hvernig á að sérstilla
og fínstilla Windows, sem og auglýsingar og ráðleggingar um vörur og þjónustu
Microsoft og þriðju aðila, eiginleika, forrit og vélbúnað fyrir notkun þína á
Windows. Til dæmis kunnum við að tilkynna þér um eiginleika sem þú veist ekki af
eða eru nýir til að gera þér kleift að nýta tækið þitt til hins ýtrasta. Þú
gætir fengið senda lausn á vandamáli sem upp kann að koma í Windows-tæki sem þú
átt. Þér gæti verið boðið upp á að sérsníða lásskjáinn með myndum eða þér eru
mögulega birtar fleiri myndir áþekkar þeim sem þér líkar eða færri áþekkar þeim
sem þér líkar ekki. Ef þú streymir kvikmyndum í vafranum þínum færðu mögulega
ábendingu um forrit í Microsoft Store sem býður upp á betri straumspilun. Og ef
harði diskurinn þinn er að fyllast kann Windows að stinga upp á að þú prófir
OneDrive eða kaupir vélbúnað til að auka geymsluplássið. Frekari upplýsingar um
sérsniðna upplifun í Windows.

Fara aftur efst

ÁBENDINGAMIÐSTÖÐ

Ábendingamiðstöðin býður upp á leið til að safna saman ábendingum um
Microsoft-vörur og uppsett forrit frá okkur og þriðja aðila. Þegar þú notar
ábendingamiðstöðina mun hún les reglulega yfir lista yfir uppsett forrit til að
ákveða forrit sem má senda ábendingu um. Ábendingamiðstöðin velur forritin sem
eru sett upp í tækinu þínu með almennum forritunarviðmótum. Fyrir HoloLens notar
abendingamiðstöðin auk þess myndavélina og hljóðnemann þegar þú velur að deila
umhverfi og hljóðinntaki. Hún notar einnig mynda- og skjalasafn til að fá aðgang
að skjámyndum og skjáupptökum sem þú hengir við til að senda sem hluta af
ábendingum.

Þú getur skráð þig inn í ábendingamiðstöðina með persónulega
Microsoft-reikningnum þínum eða reikningi sem stofnunin þín (t.d. vinnuveitandi
eða skóli) sér um sem þú notar til að skrá þig inn í Microsoft-vörur.
Innskráning með vinnu- eða skólareikningi gerir þér kleift að senda athugasemdir
til Microsoft í tengslum við fyrirtæki/stofnun þína. Allar ábendingar sem þú
veitir hvort sem er með vinnu- eða skólareikningi þínum eða persónulegum
Microsoft-reikningi getur verið hægt að skoða opinberlega eftir stillingunum sem
stjórnendur fyrirtækisins/stofnunarinnar hafa skilgreint. Að auki, ef vinnu- eða
skólareikningur er notaður til að senda ábendingar, geta stjórnendur
fyrirtækisins skoðað ábendingar þínar í gegnum ábendingamiðstöðina eða
stjórnendamiðstöðina.

Þegar þú sendir ábendingu til Microsoft um vandamál eða bætir við meiri
upplýsingum um vandamál, verða greiningargögn send til Microsoft til að bæta
vörur og þjónustu Microsoft. Það fer eftir stillingum þínum á greiningargögnum í
hlutanum  Greiningar &og ábendingar hlutanum í stillingum Windows hvort
ábendingamiðstöðin komi til með að senda greiningargögn sjálfkrafa eða hvort þú
hafir þess kost að senda þau til Microsoft þegar þú gefur ábendingu. Eftir því
hvaða flokkur er valinn þegar ábendingar eru sendar inn gætu frekari
persónuupplýsingum verið safnað sem hjálpa til við frekari úrræðaleit; til
dæmis, staðsetningartengdar upplýsingar þegar sendar eru ábendingar um
staðsetningarþjónustur eða upplýsingar sem tengjast starandi augnaráði þegar
sendar eru ábendingar um blandaðan veruleika. Microsoft kann að deila ábendingu
þinni ásamt gögnunum sem safnað hefur verið með samstarfsaðilum Microsoft (t.d.
framleiðanda tækisins eða þróunaraðila fastbúnaðar) til að auðvelda þeim að bera
kennsl á vandamál í vörum og þjónustu sem virka með Windows og öðrum vörum og
þjónustu frá Microsoft.  Frekari upplýsingar um greiningargögn í Windows.

Fara aftur efst

AÐSTOÐ

Get Help gerir Windows-notendum kleift að fá tæknilega aðstoð í Windows og öðrum
forritum Microsoft. Það veitir sjálfsþjónustu (t.d. tengla í greinar eða
leiðsögn um hvernig Windows-notendur geta leyst vandamál sjálfir), greiningar og
tengingu viðskiptavinarins við þjónustufulltrúa Microsoft eins og við á. Þú
getur skráð þig inn í þáttinn Get Help með Microsoft-reikningnum þínum til að
búa til notendaþjónustumál. Notendur fyrirtækjareikninga geta einnig haft
heimild til að búa til þjónustumál eftir þjónustusamningi fyrirtækisins og ef
það er virkjað af stjórnanda leigjanda.

Aðstoðin gæti stungið upp á því að þú keyrir greiningu. Ef þú samþykkir eru
greiningargögn meðhöndluð í samræmi við  greiningar hlutann.

Ef kerfisstillingar leyfa er hægt að nota hljóðnema kerfisins til að grípa
þjónustutengda spurningu í stað þess að þurfa að slá inn. Þú getur stjórnað
þessu í persónuverndarstillingum hljóðnemans í forriti Windows-stillinga.
Aðstoðin fær einnig aðgang að forritalistanum þínum til að opna
ábendingamiðstöðina í réttu forriti ef þú velur að hefja ábendingaferlið í
aðstoðinni. Allar ábendingar verða færðar inn og stjórnað af
ábendingamiðstöðinni, eins og lýst er í hlutanum Ábendingamiðstöð í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd. Fá hjálp notar ekki staðsetningargögnin þín sem
hluta af þjónustu sinni.

Fara aftur efst

SKJÁTEXTAR Í BEINNI

Skjátextar í beinni umrita hljóð til að auðvelda skilning á töluðu efni.
Skjátextar í beinni geta búið til skjátexta úr hvaða hljóði sem er sem
inniheldur tal, hvort sem hljóðið er á netinu, hljóð sem þú hefur hlaðið niður í
tækið þitt eða hljóð móttekið úr hljóðnemanum. Umritun hljóðs úr hljóðnema er
sjálfgefið óvirkt.

Raddgögn sem eru skjátextuð eru aðeins unnin í tækinu þínu og þeim er ekki deilt
í skýið eða með Microsoft.  Frekari upplýsingar um skjátexta í beinni.

Fara aftur efst

STAÐSETNINGARÞJÓNUSTA OG UPPTAKA

Staðsetningarþjónusta Windows. Microsoft rekur staðsetningarþjónustu sem hjálpar
til við að ákvarða nákvæma landfræðilega staðsetningu tiltekins Windows-tækis.
Það fer eftir getu tækisins með hversu mikilli nákvæmni hægt er að ákvarða
staðsetningu þess og í sumum tilvikum er hugsanlega hægt að ákvarða hana
nákvæmlega. Þegar þú hefur virkjað staðsetningu á Windows-tæki, eða ef þú veitir
Microsoft-forritum heimild að aðgangsupplýsingum á tækjum sem ekki eru
Windows-tæki, er gögnum um farsímasenda og Wi-Fi aðgangsstaði og staðsetningar
þeirra safnað af Microsoft og bætt við staðsetningargagnabanka eftir að öll
persónugreinanleg gögn eða gögn sem bera kennsl á tækið þaðan sem þessu var
safnað hafa verið fjarlægð. Þessar ópersónugreinanlegu staðsetningarupplýsingar
eru notaðar til að bæta staðsetningarþjónustu Microsoft.

Windows-þjónusta og -eiginleikar, forrit sem keyra í Windows og vefsvæði sem
opnuð eru í Windows-vöfrum hafa aðgang að staðsetningu tækisins í gegnum Windows
ef stillingar þínar leyfa slíkt. Sumir eiginleikar og forrit krefjast
staðsetningarheimildar þegar þú setur Windows upp í fyrsta sinn, sum forrit
spyrja í fyrsta skiptið sem þau eru notuð og önnur spyrja í hvert skipti sem þú
opnar staðsetningu tækisins. Upplýsingar um tiltekin Windows-forrit sem nota
staðsetningu tækisins er að finna í hlutanum  Windows forrit  í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd.

Þegar forrit eða eiginleiki opnar staðsetningu tækisins og þú hefur skráð þig
inn með Microsoft-reikningnum þínum mun Windows-tækið einnig hlaða staðsetningu
sinni upp í skýið þar sem önnur forrit og þjónusta sem nota
Microsoft-reikninginn þinn geta notað hana í öllum tækjunum þínum og þar sem þú
hefur veitt leyfi fyrir slíku. Við varðveitum aðeins síðustu þekktu
staðsetninguna (ný staðsetning kemur í stað fyrri staðsetningar). Gögn um
nýlegan staðsetningarferil Windows-tækisins eru einnig geymd í tækinu, jafnvel
þótt Microsoft-reikningur sé ekki notaður, og ákveðin forrit og eiginleikar í
Windows hafa aðgang að þessum staðsetningarferli. Þú getur hreinsað
staðsetningarferil tækisins hvenær sem er í stillingaforriti Windows.

Í stillingaforriti Windows er einnig hægt að skoða hvaða forrit hafa aðgang að
nákvæmri staðsetningu tækisins eða staðsetningarferli þess, gera aðgang að
staðsetningu tækisins virkan eða óvirkan fyrir tiltekin forrit eða gera
staðsetningu tækisins óvirka. Þú getur einnig valið sjálfgefna staðsetningu sem
verður notuð þegar staðsetningarþjónustan getur ekki greint nákvæmari
staðsetningu fyrir tækið.

Það eru nokkrar undantekningar á því hvernig hægt er að ákvarða staðsetningu
tækis sem staðsetningarstillingarnar stjórna ekki með beinum hætti.

Skjáborðsforrit eru ákveðnar gerðir forrita sem biðja ekki um sérstakt leyfi til
að komast að staðsetningarupplýsingum tækis og koma ekki til með að birtast í
listanum sem leyfir þér að velja forritin sem mega nota staðsetningu þína. Hægt
er að sækja þau í Microsoft Store, af netinu eða setja upp með ákveðnu
margmiðlunarefni (til dæmis geisladiski, DVD-diski eða USB-geymslutæki). Þau eru
opnuð með .EXE-, .MSI- eða .DLL-skrá og keyra venjulega í tækinu þínu, ólíkt
forritum af vefnum (sem keyra í skýinu).  Frekari upplýsingar um skjáborðsforrit
þriðja aðila og hvernig þau gætu áfram ákvarðað staðsetningu tækisins þegar
staðsetningarstilling tækisins er óvirk.

Sumar vefupplifanir eða forrit þriðju aðila sem koma fyrir í Windows gætu notað
aðra tækni (til dæmis Bluetooth, Wi-Fi, farsímamótald o.s.frv.) eða
staðsetningarþjónustur í skýinu til að ákvarða staðsetningu tækis með mismikilli
nákvæmni jafnvel þegar þú hefur slökkt á staðsetningarstillingu tækisins.

Til að greiða fyrir aðstoð í neyðartilvikum mun Windows að auki reyna að ákvarða
og deila nákvæmri staðsetningu þinni burtséð frá staðsetningarstillingum þínum í
hvert skipti sem þú hringir neyðarsímtal. Ef SIM-kort er í tækinu eða ef
farsímaþjónusta er notuð mun farsímafyrirtækið hafa aðgang að staðsetningu
tækisins.  Frekari upplýsingar um staðsetningu í Windows.

Áætluð staðsetning. Ef þú kveikir á staðsetningarþjónustu gætu forrit sem geta
ekki notað nákvæma staðsetningu þína samt fengið aðgang að áætlaðri staðsetningu
þinni, t.d. borg, póstnúmeri eða svæði.

Finna tækið mitt. Eiginleikinn „Finna tækið mitt“ gerir kerfisstjóra
Windows-tækis kleift að leita að staðsetningu tækisins á
account.microsoft.com/devices. Til að virkja „Finna tækið mitt“ þarf
kerfisstjóri að vera skráður inn með Microsoft-reikningi og vera með kveikt á
staðsetningarstillingunni. Þessi eiginleiki virkar þó að aðrir notendur hafi
neitað öllum forritum um aðgang að staðsetningu. Þegar kerfisstjórinn reynir að
staðsetja tækið sjá notendur tilkynningu á tilkynningasvæðinu.  Frekari
upplýsingar um „Finna tækið mitt“ í Windows.

Upptaka. Sum Windows-tæki eru með upptökueiginleika sem gerir þér kleift að taka
upp hljóðbúta og myndskeið af aðgerðum þínum í tækinu, þ.m.t. samskiptum við
aðra. Ef þú kýst að taka upp samtal verður upptakan vistuð staðbundið í tækinu
þínu. Í einhverjum tilfellum hefur þú val um að senda upptöku í vöru eða
þjónustu Microsoft sem sendir upptökuna út opinberlega.  Mikilvægt Þú ættir að
skilja lagalega ábyrgð þína áður en þú tekur upp og/eða sendir samskipti. Þetta
felur í sér að afla fyrirfram samþykkis allra sem taka þátt í samtalinu eða
allar aðrar heimildir eins og þörf er á. Microsoft ber ekki ábyrgð á því hvernig
þú notar upptökueiginleika eða upptökurnar þínar.

Fara aftur efst

ÞULUR

Þulur er innbyggt skjálestrarverkfæri sem auðveldar þér að nota Windows án þess
að hafa skjá. Þulur býður upp á snjalllýsingu mynda og síðutitla sem og
samantekt vefsíðna þegar kemur að myndum án lýsingar eða óljósum tenglum.

Þegar valin er myndalýsing með því að ýta á „Þulur + Ctrl + D“ verður myndin
send til Microsoft til greiningar og myndalýsing búin til. Myndir eru aðeins
notaðar til að búa til lýsingu en eru ekki geymdar hjá Microsoft.

Þegar valin er lýsing síðutitla með því að ýta á „Þulur + Ctrl + D“ er vefslóð
síðunnar send til Microsoft til að búa til lýsingu síðutitils og til að bæta
Microsoft-þjónustu, eins og Bing-þjónustu eins og lýst er í Bing efnisflokknum
hér að ofan.

Þegar valið er að sækja lista yfir vinsæla tengla vefsíðu með því að ýta á
„Þulur + ýta tvisvar á S“ er vefslóð síðunnar send til Microsoft til að búa til
samantekt vinsælla tengla og til að bæta Microsoft-þjónustu, eins og Bing.

Hægt er að gera þessa eiginleika óvirka hvenær sem er með því að fara
í Narrator>fá myndalýsingar, síðutitla og vinsæla tengla í stillingar í Windows.

Þú getur einnig sent ábendingar um Þulinn til að aðstoða Microsoft við að greina
og leysa vandamál og til að bæta vörur og þjónustu Microsoft, eins og Windows.
Hægt er að senda munnlegar ábendingar í Þulnum hvenær sem er með því að ýta á
lykil þular + Alt + F. Þessi skipun ræsir forritið „Ábendingamiðstöð“ þar sem þú
getur sent inn munnlega ábendingu. Þegar þú virkjar stillinguna „Hjálpaðu okkur
að gera þulinn betri“ í stillingaforriti Windows og sendir inn munnlega
ábendingu í gegnum ábendingamiðstöð verða nýleg notkunar- og tækisgögn, þar á
meðal gögn rakningarkladda atvika (ETL), send með munnlegu ábendingunni til að
bæta vörur og þjónustu Microsoft, eins og Windows.

Fara aftur efst

SÍMATENGILL - TENGJA VIÐ WINDOWS

Eiginleiki Símatengils gerir þér kleift að tengja Android-símann við
Microsoft-reikninginn þinn og iPhone-símann í gegnum Bluetooth til að tengjast
Windows-tölvunni þinni. Android-tækið mun tengjast með Microsoft-reikningnum og
iPhone-tækið mun tengjast í gegnum Bluetooth, sem virkjar fjölbreytta upplifun á
milli tækja í öllum Windows-tækjum þínum þar sem þú ert skráð(ur) inn eða
tengd(ur) í gegnum Bluetooth. Þú getur notað símatengilsforritið til að skoða
nýlegar myndir úr Android-símanum í Windows-tækinu þínu; hringt og svarað
símtölum í rauntíma úr Android-símanum þínum í Windows-tækinu; skoðað og sent
textaskilaboð úr Windows-tækinu; skoðað, hafnað eða framkvæmt aðrar aðgerðir við
tilkynningar úr Android-símanum í Windows-tækinu; og deilt skjá símans í
Windows-tækið með því að nota speglunareiginleika símatengilsforritsins; og
fengið aðgang að Android-forritum sem sett eru upp á Android-símanum þínum í
Windows-tækinu. Þú getur notað Símatengil til að hringja og svara símtölum úr
iPhone-símanum, skoða og senda textaskilaboð og skoða, hunsa eða framkvæma aðrar
aðgerðir í iPhone-tilkynningunni í Windows-tækinu.

Til að nota Símatengil verður Tenging við Windows að vera uppsett í
Android-tækinu þínu. Einnig er hægt að sækja Símatengil í iPhone.

Til að nota Símatengil þarftu að skrá þig inn á Microsoft-reikninginn í
eiginleika Símatengils í Windows-tækinu og Tengingu við Windows í
Android-símanum eða vera með kveikt á Bluetooth í iPhone-símanum. Android-síminn
þinn og Windows-tækið verða að vera nettengd. Sumir eiginleikar krefjast þess að
þú gerir Bluetooth virkt og parar símann við tölvuna. Til að nota „Símtöl“
eiginleikann verður Android-síminn þinn að vera með kveikt á Bluetooth.

Þegar að þú setur upp Windows-tækið geturðu valið að tengja símann þinn við
Microsoft-reikninginn þinn. Þetta er gert með því að skrá þig inn í „Tengja við
Windows“ í Android-símanum þínum, veita heimildir og ljúka við
innleiðingarferlið. Að þessu loknu mun Tenging við samstilla gögnin þín við
allar Windows-tölvurnar þínar þar sem þú hefur skráð þig inn á
Microsoft-reikninginn þinn. Sjá hér að neðan til að fá frekari upplýsingar um
hvernig gögnin þín eru notuð.

Til þess að geta veitt þér eiginleika símatengils safnar Microsoft gögnum um
afköst, notkun og tækið, svo sem um vélbúnaðareiginleika farsímans og
Windows-tækisins, fjölda og tímalengd lotna í símatenglinum og tímalengd
uppsetningar.

Þú getur aftengt Android-símann frá Windows-tækinu hvenær sem er með því að fara
í stillingar Símatengils og velja að fjarlægja Android-símann. Þú getur gert það
sama í stillingum í Tengingu við Windows í Android-símanum. Nánari upplýsingar
er að finna á stuðningssíðunni okkar.

Þú getur aftengt iPhone-símann frá Windows-tækinu hvenær sem er með því að fara
í stillingar Símatengils og velja að fjarlægja iPhone-símann. Þú getur gert það
sama í iPhone-símanum með því að fara í stillingar > Bluetooth > Veldu heiti
tölvunnar > smelltu á (i) táknið > og velja Gleyma þessu tæki. Allir notendur
geta fjarlægt Bluetooth-pörunina með því að gera upplifunina óvirka.

Textaskilaboð – Android tæki. Símatengill gerir þér kleift að skoða
textaskilaboð sem berast í Android-símann í Windows-tækinu og senda
textaskilaboð úr Windows-tækinu. Aðeins textaskilaboð sem hafa verið móttekin og
send á síðustu 30 dögum eru sýnileg í Windows-tækinu. Þessi textaskilaboð eru
vistuð tímabundið í Windows-tækinu. Við vistum aldrei textaskilaboð á þjónunum
okkar, né breytum við eða eyðum textaskilaboðum í Android-símanum. Þú getur séð
skilaboð sem eru send með SMS (Short Message Service) og MMS (Multimedia
Messaging Service) í Android-tækjum og skilaboð send með RCS (Rich Communication
Services) í ákveðnum Samsung-tækjum á netkerfum ákveðinna farsímafyrirtækja.
Þessi virkni veltur á því að símatengillinn geti nálgast innihald textaskilaboða
og samskiptaupplýsingar um einstaklinga eða fyrirtæki sem senda textaskilaboð
eða fá textaskilaboð frá þér.

Textaskilaboð – iPhone. Símatengill gerir þér kleift að skoða textaskilaboð sem
berast í iPhone-símann í Windows-tæki og senda textaskilaboð úr Windows-tækinu.
Aðeins textaskilaboð sem berast og eru send innan Bluetooth-lotunnar eða
iMessage eru sýnileg í Windows-tækjum þínum. Þessi textaskilaboð eru vistuð
tímabundið í Windows-tækinu. Við vistum aldrei textaskilaboð á þjónunum okkar og
breytum ekki eða eyðum textaskilaboðum í iPhone-símanum. Þú getur séð skilaboð
send með SMS (Short Message Service). Þessi virkni veltur á því að
símatengillinn geti nálgast innihald textaskilaboða og samskiptaupplýsingar um
einstaklinga eða fyrirtæki sem senda textaskilaboð eða fá textaskilaboð frá þér.

Símtöl– Android tæki. Símatengill gerir þér kleift að hringja og svara símtölum
úr Android-símanum í Windows-tækinu. Í símatenglinum getur þú líka skoðað nýleg
símtöl í Windows-tækinu. Til þess að nota þennan eiginleika þarf að gera
tilteknar heimildir virkar í bæði Windows-tækinu og Android-símanum, svo sem
aðgang að símtalaskrá og heimild til að hringja úr tölvunni. Hægt er að
afturkalla þessar heimildir hvenær sem er á stillingasíðu símatengils í
Windows-tækinu og í stillingum Android-símans. Aðeins móttekin og hringd símtöl
frá síðustu 30 dögum eru sýnileg í símtalaskránni í Windows-tækinu. Upplýsingar
um símtöl eru vistuð tímabundið í Windows-tækinu. Við breytum ekki eða eyðum
símtalaskránni í Android-símanum.

Símtöl – iPhone. Símatengill gerir þér kleift að hringja og svara símtölum úr
iPhone-símanum í Windows-tækinu. Í símatenglinum getur þú líka skoðað nýleg
símtöl í Windows-tækinu. Til að virkja þennan eiginleika verður þú að virkja
eiginleikann „Samstilla tengiliði“ undir Bluetooth-stillingum í iPhone-símanum.
Upplýsingar um símtöl eru vistuð tímabundið í Windows-tækinu. Við breytum ekki
eða eyðum símtalaskránni í iPhone-símanum.

Myndir – Android devices. „Símatengill“ gerir þér kleift að afrita, deila,
breyta, vista eða eyða myndum úr Android-símanum í Windows-tækinu. Aðeins
takmarkaður fjöldi nýjustu myndanna í möppunum „Myndir úr myndavél“ og
„Skjámyndir“ í Android-símanum er sýnilegur í Windows-tækinu hverju sinni.
Þessar myndir eru vistaðar tímabundið í Windows-tækinu og eftir því sem þú tekur
fleiri myndir með Android-símanum fjarlægjum við bráðabirgðaafrit af eldri
myndum í Windows-tækinu. Við vistum aldrei myndirnar þínar á þjónunum okkar, né
breytum við eða eyðum myndum í Android-símanum.

Tilkynningar – Android tæki. Símatengill gerir þér kleift að skoða tilkynningar
úr Android-símanum í Windows-tækinu. Með símatenglinum getur þú lesið og hafnað
tilkynningum úr Android-símanum í Windows-tækinu eða framkvæmt aðrar aðgerðir
sem tengjast tilkynningunum. Til að virkja þennan eiginleika símatengils þarftu
að gera tilteknar heimildir virkar, svo sem til að samstilla tilkynningar, í
bæði Windows-tækinu og Android-símanum. Hægt er að afturkalla þessar heimildir
hvenær sem er á stillingasíðu símatengils í Windows-tækinu og í stillingum
Android-símans. Nánari upplýsingar er að finna á stuðningssíðunni okkar.

Tilkynningar – iPhone. Símatengill gerir þér kleift að skoða tilkynningar úr
iPhone-símanum í Windows-tækinu. Með Símatenglinum getur þú lesið og hunsað
tilkynningar úr iPhone-símanum í Windows-tækinu eða framkvæmt aðrar aðgerðir sem
tengjast tilkynningunum. Til að virkja þennan eiginleika Símatengils þarftu að
gera tilteknar heimildir virkar, eins og samstillingu tilkynninga, í bæði
Windows-tækinu og iPhone-símanum. Hægt er að afturkalla þessar heimildir hvenær
sem er á stillingasíðu Símatengils í Windows-tækinu og í Bluetooth-stillingum
iPhone-símans.

Skjáspeglun síma – Android-tæki.  Á tengdum tækjumgerir símatengill þér kleift
að skoða skjá Android-símans í Windows-tækinu. Skjár Android-símans birtist sem
dílastraumur í Windows-tækinu og hljóð sem þú kveikir á á skjá Android-símans
þegar hann er tengdur við Windows-tækið í gegnum símatengilinn spilast í
Android-símanum.

Að spegla forrit – Android tæki. Á studdum tækjum gerir símatengill þér kleift
að nota Android-forritin þín sem eru uppsett í Android-símanum í Windows-tækinu
þínu. Þú getur til dæmis ræst tónlistarforrit í Windows-lotunni og hlustað á
hljóðefni úr þeim forritum í hátölurum tölvunnar. Microsoft safnar saman lista
yfir uppsett Android-forrit og nýlega virkni til að veita þjónustuna og sýna þér
síðast notuðu forritin. Microsoft geymir ekki hvaða forrit þú hefur sett upp eða
hvers kyns upplýsingar sem forritið birtir af upplifun þinni af því.

Efnafærsla – Android tæki. Í studdum tækjum gerir „Símatengill“ þér kleift að
afrita og líma efni á borð við skrár, skjöl, myndir o.s.frv. á milli
Android-símans og Windows-tækisins. Þú getur flutt efni úr Android-símanum yfir
í Windows-tækið og úr Windows-tækinu yfir í Android-símann þinn með því að draga
og sleppa efni á milli tækja.

Heitur WiFi reitur– Android tæki. Í studdum tækjum gerir „Tengja við Windows“
notendum kleift að deila upplýsingum um fartækisaðgangsstaði með paraðri tölvu
með öruggum Bluetooth-samskiptum. Þá er hægt að tengja tölvuna við internetið í
gegnum hliðarglugga Windows-nets. Athugaðu að gjöld fyrir farsímagögn kunna að
eiga við, eftir því hver gagnaáskrift fartækis þíns er.

Samstilla tengiliði – Android tæki. „Tengja við Windows“ gerir þér kleift að
samstilla Android-tengiliðina þína við Microsoft-skýið til að fá aðgang að þeim
í öðrum vörum og þjónustu Microsoft. Þú getur virkjað þennan eiginleika með því
að fara í stillingarnar í „Tengja við Windows“ og kveikja á „Samstilling
tengiliða“ eiginleikanum. Tengiliðaupplýsingar þínar eru geymdar á netinu og
tengdar við Microsoft-reikninginn þinn. Þú getur valið að slökkva á samstillingu
og eyða þessum tengiliðum hvenær sem er.  Frekari upplýsingar.

Samstilla tengiliði – iPhone. Símatengill gerir þér kleift að samstilla
tengiliðina þína úr iPhone-símanum til að fá aðgang að þeim fyrir skilaboð og
símtöl. Þú getur virkjað þennan eiginleika með því að fara í
Bluetooth-stillingar í iPhone-símanum og kveikja á samstillingu tengiliða undir
heiti tölvunnar eftir að hafa tengt iPhone-símann við Símatengil. Þú getur valið
að slökkva á samstillingu hvenær sem er með því að slökkva á víxlhnappi fyrir
samstillingu tengiliða.

Upplestur texta. Eiginleikar símatengils eru m.a. aðgengiseiginleikar á borð við
upplestur á texta. Hægt er að virkja upplestur til að fá efni textaskilaboða eða
tilkynningar á hljóðformi. Ef þú kveikir á þessum eiginleika eru textaskilaboð
og tilkynningar lesnar upphátt þegar þær berast.

Office Enterprise – Android tæki. Tenging við Windows gerir þér kleift að setja
inn myndir í vef- og skjáborðsútgáfur af völdum forritum Microsoft 365 á borð
við PowerPoint, Excel og Word beint úr farsímanum. Þetta krefst þess að
kerfisstjórinn þinn hafi kveikt á valfrjálsri tengdri upplifun fyrir Microsoft
Office-forrit og að þú þarft að tengja fartækið við vinnu- eða skólareikninginn
þinn og veita forritinu „Myndir“ heimild að reikningnum þínum. Eftir innleiðingu
mun lotan þín endast í 15 mínútur til að gera þér kleift að flytja myndirnar
þínar úr fartækinu. Þú þarft að skanna QR-kóðann til að nota þennan eiginleika
aftur. Tengja við Windows safnar ekki upplýsingum um vinnu- eða skólareikninginn
þinn eða upplýsingum um fyrirtækið. Til að veita þessa þjónustu notar Microsoft
skýjaþjónustu til að miðla skránum þínum í þeim tilgangi að setja myndirnar inn
í vef- og skjáborðsútgáfu af völdum forritum Microsoft 365 á borð við
PowerPoint-, Excel- og Word-skrár.

Fara aftur efst

UPPLIFUN Á MILLI TÆKJA

Upplifun á milli tækja í Windows veitir þér aðgang að fartækinu þínu úr tölvunni
með Microsoft-reikningnum þínum. Þessu má stjórna undir „Fartæki“ í hlutanum
„Bluetooth &og tæki“ í stillingum Windows-tölvunnar. Til þess að geta boðið upp
á þessa eiginleika safnar Microsoft gögnum um afköst, notkun og tæki, þ.m.t.
upplýsingum um vélbúnaðargetu fartækis og Windows-tækis. Þú getur kveikt eða
slökkt á þessum eiginleika hvenær sem er í stillingum Windows-tölvunnar.

Notaðu fartækið sem tengda myndavél. Þessi eiginleiki gerir þér kleift að nota
myndavél fartækisins í forritum eða vörum í Windows sem styður myndavélarvirkni.
Hægt er að kveikja á þessum eiginleika undir „Fartæki“ í hlutanum „Bluetooth og
&tæki“ í stillingum tölvunnar. Microsoft tekur ekki upp eða geymir
myndavélarlotur þínar eða neinar upplýsingar sem myndavélin sýnir í neinum
forritum eða vörum.

Fáðu nýjar myndatilkynningar úr fartækinu. Þessi eiginleiki gerir þér kleift að
fá tilkynningar frá tengda fartækinu þínu í Windows-tölvunni. Þessar myndir eru
vistaðar tímabundið í Windows-tölvunni þinni þegar þú ert að gera breytingar eða
opna þessar myndir. Þú þarft að passa upp á að vista myndirnar í tölvunni til að
geyma þær þar til þú ákveður að eyða þeim. Við vistum aldrei myndirnar þínar á
þjónum okkar og hvorki breytum né eyðum myndum úr fartækinu.

Sýna snjalltæki í File Explorer. Þessi eiginleiki gerir þér kleift að fá aðgang
að skrám farsímans þíns í File Explorer. Hægt er að kveikja á þessum eiginleika
undir „Fartæki“ í hlutanum „Bluetooth og &tæki“ í stillingum tölvunnar.
Microsoft mun ekki vista innihald skráa þinna í þjónustu sinni.

Fara aftur efst

ÖRYGGI OG ÖRYGGISAÐGERÐIR

Tækisdulritun. Tækisdulritun ver gögnin sem vistuð eru í tækinu með því að
dulrita þau með BitLocker-dulritun á hörðum diski. Þegar kveikt er á
tækisdulritun dulritar Windows sjálfkrafa harða diskinn sem Windows er uppsett á
og býr til endurheimtarlykil. Tekið er sjálfkrafa öryggisafrit af
BitLocker-endurheimtarlyklinum fyrir tækið þitt á Microsoft OneDrive-reikningnum
þínum. Microsoft mun ekki nota endurheimtarlyklana þína í neinum tilgangi.

Verkfæri til að fjarlægja spilliforrit. Verkfærið til að fjarlægja spilliforrit
fer yfir tækið þitt a.m.k. einu sinni í mánuði sem hluti af Windows Update. MSRT
athugar smit tækja með tilteknum, algengum spilliforritum ("spilliforrit") og
hjálpar til við að fjarlægja þau sem finnast. Þegar MSRT er í keyrslu fjarlægir
það spillibúnað sem er skráður á vefsvæði Microsoft Support ef spillibúnaðurinn
finnst í tækinu þínu. Á meðan athugun stendur verður skýrsla send til Microsoft
með tilteknum gögnum um þann spillibúnað sem fannst, villur og öðrum gögnum um
tækið þitt. Ef þú vilt ekki að verkfærið sendi þessi gögn til Microsoft geturðu
gert tilkynningaþáttinn í verkfærinu óvirkan.

Microsoft-fjölskylda. Foreldrar geta notað Microsoft Family Safety til að átta
sig á hvernig barnið þeirra notar tækið sitt og takmarka notkunina. Farðu
vandlega yfir upplýsingarnar á í Microsoft Family Safety til að velja hvort þú
velur að búa til eða ganga í fjölskylduhóp. Ef þú býrð á svæði sem krefst leyfis
til að búa til reikning fyrir aðgang að Microsoft-þjónustu gætir þú fengið
beiðni um að biðja um eða veita samþykki foreldris. Ef notandi er undir lögaldri
á þínu svæði verður viðkomandi beðinn um samþykki foreldris eða forráðamanns á
skráningarferlinu, með því að slá inn netfang fullorðins einstaklings. Þegar
kveikt er á aðgerðaskráningu fjölskyldunnar fyrir barn safnar Microsoft
upplýsingum um notkun barnsins á tækinu og sendir foreldrum skýrslur um aðgerðir
barnsins. Aðgerðaskýrslum er eytt reglulega af þjónum Microsoft.

Microsoft Defender Smartscreen og Snjöll forritastjórn. Microsoft leitast við að
vernda tækið þitt og aðgangsorð fyrir óöruggum forritum, skrám og vefefni.

Microsoft Defender SmartScreen verndar þig þegar þú notar þjónustu okkar með því
að bera kennsl á ógnir gegn þér, tækinu þínu og aðgangsorðum. Þessar ógnir gætu
innihaldið hugsanlega óörugg forrit eða vefefni sem Microsoft Defender
SmartScreen uppgötvar þegar það athugar vefsvæði sem þú heimsækir, skrár sem þú
sækir og forrit sem þú setur upp og keyrir. Þegar Microsoft Defender SmartScreen
athugar vef- og forritsefni eru gögn um efnið og tækið þitt send til Microsoft,
þ.m.t. allt veffang efnisins. Þegar þörf er á frekari greiningu til að bera
kennsl á öryggisógnir gætu upplýsingar um grunsamlegt vefsvæði eða forrit – svo
sem birt efni, spiluð hljóð og minni forrits – verið sendar til Microsoft. Þessi
gögn verða aðeins notuð í öryggisskyni við að greina, verjast og bregðast við
öryggistilvikum, auðkennisþjófnaði, svikum eða annarri skaðlegri, villandi eða
ólöglegri starfsemi. Ef Microsoft Defender SmartScreen telur að efnið sé
hugsanlega óöruggt birtist viðvörun í stað efnisins. Hægt er að kveikja og
slökkva á Microsoft Defender SmartScreen í stillingum Windows-öryggis.

Þegar snjöll forritastjórn er studd hjálpar hún við að athuga hugbúnað sem er
uppsettur og keyrir í tækinu þínu til að ákvarða hvort hann sé skaðlegur,
hugsanlega óæskilegur eða ógnar þér og tækinu þínu á annan hátt. Í studdu tæki
ræsist snjöll forritastjórn í matsstillingu og gögnin sem við söfnum fyrir
Microsoft Defender SmartScreen, eins og skráarheiti, tætigildi fyrir innihald
skráar, staðsetningu niðurhals og stafrænum vottorðum skráar, eru notuð til að
ákvarða hvort snjöll forritastjórn henti tækinu þínu til að auka öryggið enn
frekar. Snjöll forritastjórn er ekki virkjuð og mun ekki útiloka neitt meðan á
matsstillingu stendur yfir. Sum tæki eru hugsanlega ekki hentug ef snjöll
forritastjórn fer að þvælast fyrir og trufla fyrirhuguð og lögmæt verk notanda –
til dæmis þróunaraðila sem nota mikið af óundirrituðum skrám. Ef snjöll
forritastjórn hentar þér vel þá verður sjálfkrafa kveikt á henni og hún mun
veita tækinu þínu frekari vernd umfram Microsoft Defender SmartScreen. Að öðrum
kosti verður snjöll forritastjórn ekki í boði og varanlega slökkt á henni. Ef
tækið þitt er óstutt eða hentar ekki fyrir snjalla forritastjórn mun Microsoft
Defender SmartScreen halda áfram að verja tækið þitt. Þegar snjöll forritastjórn
er virkjuð og auðkennir forrit sem skaðlegt, hugsanlega óumbeðið eða óþekkt og
óundirritað mun hún loka á og tilkynna þér áður en forritið er opnað, keyrt eða
sett upp.  Frekari upplýsingar um snjalla forritastjórn.

Þegar annaðhvort Microsoft Defender SmartScreen eða snjöll forritastjórn athugar
skrá eru gögn um skrána send til Microsoft, þ.m.t. skráarheitið, tætigildi fyrir
innihald skráarinnar, staðsetningu niðurhals og stafræn vottorð skráarinnar.

Hægt er að kveikja og slökkva á snjallri forritastjórn í forriti
Windows-öryggis.

Vírusvörn Microsoft Defender. Vírusvörn Microsoft Defender leitar að
spilliforritum og öðrum óumbeðnum hugbúnaði, hugsanlega óumbeðnum forritum og
öðru skaðlegu efni í tækinu. Kveikt er sjálfkrafa á vírusvörn Microsoft Defender
til að verja tækið þitt ef ekkert annað spillivarnarforrit ver tækið. Ef kveikt
er á vírusvörn Microsoft Defender fylgist hún með öryggisstöðu tækisins. Þegar
kveikt er á vírusvörn Microsoft Defender, eða hún er í keyrslu vegna þess að
kveikt er á takmarkaðri reglulegri leit, sendir hún skýrslur sjálfkrafa til
Microsoft sem innihalda gögn um möguleg spilliforrit og annan óumbeðinn
hugbúnað, hugsanlega óumbeðin forrit og hún kann einnig að senda skrár sem gætu
innihaldið skaðlegt efni eins og spilliforrit eða aðrar óþekktar skrár til
frekari skoðunar. Ef líklegt er að skýrsla innihaldi persónugögn er hún ekki
send sjálfkrafa heldur færðu kvaðningu áður en hún er send. Hægt er að stilla
vírusvörn Microsoft Defender á að senda ekki skýrslur og grunuð spilliforrit til
Microsoft.

Fara aftur efst

TAL, RADDVIRKJUN, SKRIFT OG INNSLÁTTUR

Tal. Microsoft býður bæði upp á talgreiningareiginleika í tæki og
talgreiningarþjónustu í skýi (á netinu).

Ef kveikt er á nettengdu talgreiningunni geta forrit notað talgreiningu
Microsoft í skýi. Í Windows 10 gerir talgreining á netinu þér auk þess kleift að
nota taltúlkun innan Windows.

Þegar kveikt er á rödd við uppsetningu á HoloLens-tæki eða Windows Mixed Reality
getur þú notað röddina fyrir skipanir, upplestur og samskipti við forrit. Þá
kviknar á bæði talgreiningu í tæki og nettengdri talgreiningu. Þegar kveikt er á
báðum stillingum hlustar tækið stöðugt á raddstýrðan innslátt þinn á meðan
kveikt er á höfuðtólinu og raddgögn eru send til talgreiningartækni Microsoft í
skýinu.

Þegar þú notar talgreiningatækni í skýi frá Microsoft, hvort sem er virk í
nettengdu talgreiningunni eða þegar þú notar HoloLens eða raddinnslátt, safnar
og notar Microsoft raddupptökunum þínum til að veita talgreiningarþjónustuna með
því að búa til textaumritun af töluðu orðunum í raddgögnunum. Microsoft mun ekki
geyma, taka sýnishorn eða hlusta á raddupptökurnar þínar án þíns leyfis. Kynntu
þér frekari upplýsingar um hvernig Microsoft safnar og notar raddgögnin þín,
sjáðu  talreiningartæknikaflann.

Þú getur notað talgreiningu í tæki án þess að senda raddgögnin þín til
Microsoft. Talgreiningartækni Microsoft í skýinu er hins vegar nákvæmari en
talgreiningin í tækinu. Þegar slökkt er á stillingu talgreiningar á netinu mun
talþjónusta sem reiðir sig ekki á skýið og notar eingöngu greiningu í tæki –
eins og skjátexta í beinni, þul eða raddaðgang – virka áfram og Microsoft mun
ekki safna neinum raddgögnum.

Þú getur slökkt á nettengdri talgreiningu hvenær sem er. Þetta stöðvar öll
forrit sem treysta á að talgreining á netinu sendi raddgögnin þín til Microsoft.
Ef þú notar HoloLens eða höfuðtól fyrir blandaðan veruleika er einnig hægt að
slökkva á talgreiningu í tæki hvenær sem er. Það kemur í veg fyrir að tækið
hlusti eftir raddstýrðum innslætti.  Nánari upplýsingar um talgreiningu í
Windows.

Raddvirkjun. Windows gerir studdum forritum kleift að svara og bregðast við í
samræmi við raddlykilorð fyrir viðkomandi forrit.

Ef þú hefur heimilað forriti að hlusta eftir raddlykilorðum hlustar Windows á
hljóðnemann til að nema þessi lykilorð. Þegar raddlykilorð er greint hefur
forritið aðgang að raddupptökunni og getur greint hana og brugðist við henni,
t.d. með töluðu svari. Forritið kann að senda raddupptökuna til eigin
skýþjónustu til að vinna úr skipununum. Öll forrit eiga að biðja um leyfi áður
en þau opna raddupptökurnar þínar.

Auk þess er hægt að kveikja á raddvirkjun þegar tækið er læst. Þá heldur
viðkomandi forrit áfram að hlusta á hljóðnemann eftir raddlykilorðum þegar tækið
er læst og getur virkjast þegar einhver talar nálægt tækinu. Þegar tækið er læst
hefur forritið aðgang að sömu eiginleikum og upplýsingum og þegar tækið er opið.

Þú getur slökkt á raddvirkjun hvenær sem er.  Frekari upplýsingar um raddvirkjun
í Windows.

Þótt þú hafir slökkt á raddvirkjun geta sum skjáborðsforrit og þjónusta þriðju
aðila engu að síður hlustað á hljóðnemann og safnað raddstýrðum innslætti. 
Frekari upplýsingar um skjáborðsforrit þriðju aðila og hvernig þau geta áfram
haft aðgang að hljóðnemanum jafnvel þótt slökkt sé á þessum stillingum.

Raddinnsláttur. Í Windows 11 hefur taltúlkun verið uppfærð og endurnefnd sem
raddinnsláttur. Raddinnsláttur kann að nota bæði talgreiningartækni í tæki og á
netinu til að knýja þjónustu sína fyrir umritun tals yfir í texta. Þú getur
einnig valið að leggja fram raddbúta til að hjálpa við að bæta raddinnslátt. Ef
þú velur að leggja ekki fram raddbúta getur þú samt notað raddinnslátt. Þú getur
breytt vali þínu hvenær sem er í stillingum raddinnsláttar. Microsoft mun ekki
geyma, taka sýnishorn eða hlusta á raddupptökurnar þínar án þíns leyfis.  Lærðu
meira um Microsoft og raddgögnin þín.

Raddaðgangur. Windows gerir öllum, þ.m.t. hreyfihömluðum einstaklingum, kleift
að stjórna tölvunni sinni og skrifa texta með röddinni. Til dæmis styður
raddaðgangur aðstæður eins og að opna og skipta á milli forrita, vafra á vefnum
og lesa og semja póst. Raddaðgangur nýtir sér nútímalega talgreiningu í tækinu
til að bera kennsl á tal á nákvæman hátt og er stutt án nettengingar. Þegar
notandi virkjar raddaðgang notar hann hljóðnemann í tækinu.  Frekari upplýsingar
um raddaðgang.

Blek & Sérsniðin innsláttur. Innslegnum og handskrifuðum orðum þínum er safnað
til að bjóða þér upp á sérsniðinn orðalista, betri stafakennsl til að aðstoða
þig við að slá inn og skrifa á tækið þitt og textatillögur sem birtast þegar þú
slærð inn og skrifar.

Þú getur slökkt á sérsniði handskriftar & og innsláttar hvenær sem er. Þetta
eyðir orðalista viðskiptavinar sem er vistaður í tækinu þínu. Ef þú kveikir
aftur á orðalistanum þarftu að endurgera sérsniðinn orðalista.  Frekari
upplýsingar um sérsnið á handskrift& og innslætti í Windows.

Fara aftur efst

STILLINGAR FYRIR SAMSTILLINGU OG ÖRYGGISAFRITUN

Þegar þú skráir þig inn á Windows með Microsoft reikningnum þínum, getur Windows
geymt stillingar þínar, skrár og tæki stillingar á netþjónum Microsoft. Windows
notar aðeins vistaðar stillingar, skrár og grunnstillingargögn tækisins til að
auðvelda þér að flytja upplifun þína á annað tæki.

Þú getur slökkt á þessum eiginleika og komið í veg fyrir að Windows geymi
stillingar, skrár og grunnstillingargögn í Windows-stillingum. Þú getur eytt
gögnum sem tekið hefur verið öryggisafrit af og eru geymd á
Microsoft-reikningnum með því að fara í  tækjasíðu Microsoft-reikningsins þíns.

Frekari upplýsingar um stillingar öryggisafritunar og samstillingar Windows.

Fara aftur efst

UPPFÆRSLUÞJÓNUSTA

Uppfærsluþjónusta Windows inniheldur Windows Update og Microsoft Update. Windows
Update er þjónusta sem veitir þér uppfærslur á hugbúnaði fyrir Windows og öðrum
hugbúnaði til stuðnings, eins og reklum og fastbúnaði frá framleiðendum
tækisins. Microsoft Update er þjónusta sem býður upp á hugbúnaðaruppfærslur
fyrir annan hugbúnað frá Microsoft á borð við Microsoft 365.

Windows Update sækir hugbúnaðaruppfærslur í Windows sjálfvirkt í tækið þitt. Þú
getur samskipað Windows Update til að setja þessar uppfærslur sjálfkrafa upp um
leið og hægt er (ráðlagt) eða láta Windows tilkynna þér þegar tækið þarf að
endurræsa sig til að ljúka við uppsetningu á uppfærslum. Forrit sem eru
aðgengileg í gegnum Microsoft Store eru sjálfkrafa uppfærð í gegnum Microsoft
Store eins og lýst er í hlutanum  Microsoft Store  í þessari yfirlýsingu um
persónuvernd.

Fara aftur efst

VAFRAR – ELDRI ÚTGÁFA AF MICROSOFT EDGE OG INTERNET EXPLORER

Þessi hluti á við um eldri útgáfur af Microsoft Edge (útgáfur 44 og eldri). Sjá
hlutann  Microsoft Edge  í yfirlýsingunni um persónuvernd til að fá upplýsingar
um nýrri útgáfur af Microsoft Edge.

Microsoft Edge er sjálfgefinn vafri fyrir Windows. Internet Explorer, eldri
vafri Microsoft, er einnig tiltækur í Windows. Þegar þú notar vafra til að
komast á internetið eru gögn um tækið þitt ("stöðluð gögn tækis") send til
vefsvæðanna sem þú heimsækir og netþjónustunnar sem þú notar. Stöðluð gögn tækis
eru IP-tala tækisins þíns, gerð vafra og tungumál, tími aðgangs og vefföng
tilvísunarvefsvæða. Þessi gögn kunna að vera skráð á vefþjóna þessara vefsvæða.
Hvaða gögn eru skrá og hvernig þau gögn eru notuð fer eftir
friðhelgisstarfsvenjum vefsvæðanna sem heimsótt eru og þeirrar vefþjónustu sem
þú notar. Að auki sendir Microsoft Edge tilteknum vefsvæðum einkvæmt vafrakenni
til að gera okkur kleift að þróa heildargögn sem notuð eru til að bæta
eiginleika og þjónustu vafrans.

Þar að auki eru gögn um hvernig þú notar vafrann, t.d. vefferill, upplýsingar um
vefeyðublöð, tímabundnar internetskrár og kökur vistuð í tækinu. Þú getur eytt
þessum gögnum af tækinu þínu með því að nota Eyða flettisögu.

Microsoft Edge gera þér kleift að fanga og vista efni á tækið þitt, eins og:

 * Vefglósur. Gerir þér kleift að setja inn handskrifaðar skýringar og
   textaskýringar á vefsíður og klippa þær út, vista þær eða deila þeim.
 * Virkur lestur. Gerir þér kleift að búa til og vinna með leslista sem
   innihalda vefsvæði eða skjöl.
 * Miðstöð. Gerir þér kleift að vinna með leslista, eftirlætisatriði, niðurhal
   og feril á einum og sama stað.
 * Festa vefsvæði við verkstiku. Gerir þér kleift að festa eftirlætis vefsvæðin
   þín við Windows verkstikuna. Vefsvæði geta séð hvaða vefsíður þeirra þú hefur
   fest við verkstiku, sem gerir þeim kleift að láta þig vita með
   tilkynningatákni ef eitthvað nýtt er komið sem þú getur þá athugað á
   vefsvæðum þeirra.

Sumar vafraupplýsingar Microsoft sem voru vistaðar í tækinu þínu verða
samstilltar við önnur tæki þegar þú skráir þig inn með Microsoft-reikningnum svo
þú getir fengið aðgang að gögnunum í öllum innskráðum vöfrum í tækjum þínum. Í
Internet Explorer fela þessar upplýsingar t.d. í sér vefferilinn þinn og
eftirlæti og í Microsoft Edge fela þær í sér eftirlæti, leslista, færslur fyrir
sjálfvirka útfyllingu (t.d. nafn þitt, heimilisfang og símanúmer) og gætu falið
í sér gögn fyrir viðbætur sem þú hefur sett upp. Sem dæmi má nefna að ef
leslistinn í Microsoft Edge er samstilltur á milli tækja verða afrit af efninu
sem valið er að vista á leslista send í hvert og eitt samstillt tæki til að hægt
sé að skoða það síðar. Þú getur slökkt á samstillingu í Internet Explorer með
því að opna Ræsa > stillingar > Reikningar > Samstilla stillingarnar þínar.
(Frekari upplýsingar er að finna í hlutanum  samstilla stillingar  í þessari
yfirlýsingu um persónuvernd.) Einnig er hægt að afvirkja samstillingu á
vafraupplýsingum Microsoft Edge með því að slökkva á samstillingarvalkostinum í
Stillingum í Microsoft Edge.

Microsoft Edge og Internet Explorer nota leitarfyrirspurnir þínar og flettisögu
til að veita þér fljótlegri flettingar og meira viðeigandi leitarniðurstöður.
Þessar aðgerðir eru meðal annars:

 * Leitartillögur í Internet Explorer senda upplýsingar sem þú slærð inn í
   veffangastikuna í vafranum sjálfkrafa til sjálfgefinnar leitarþjónustu (til
   dæmis Bing) til að stinga upp á leitartillögum um leið og þú slærð inn hvern
   staf.
 * Leitar- og svæðistillögur í Microsoft Edge senda upplýsingar sem þú slærð inn
   í veffangastikuna í vafranum sjálfkrafa til Bing (jafnvel þótt þú hafir valið
   aðra leitarþjónustu sem sjálfgefna) til að stinga upp á leitartillögum um
   leið og þú slærð inn hvern staf.

Hægt er að slökkva á þessum eiginleikum hvenær sem er. Til að bjóða upp á
leitarniðurstöður senda Microsoft Edge og Internet Explorer leitarfyrirspurnir
þínar, staðlaðar tækjaupplýsingar og staðsetningu (ef þú ert með staðsetningu
virka) til sjálfgefinnar leitarþjónustu þinnar þegar forritið er notað. Ef Bing
er sjálfgefin leitarþjónusta þín notum við þessi gögn eins og lýst er í
hlutanum Bing hlutanum í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Fara aftur efst

WINDOWS-FORRIT

Nokkur Microsoft-forrit fylgja með í Windows en önnur eru fáanleg í Microsoft
Store. Sum þessara forrita eru eftirfarandi:

Forritið Kort. Forritið Kort veitir þjónustu sem notar staðsetningu og notar
þjónustu Bing til að vinna úr leit þinni í forritinu Kort. Þegar forritið Kort
hefur aðgang að staðsetningu þinni og þú hefur virkjað staðsetningarþjónustu í
Windows skráir Bing-þjónustan texta sem þú slærð inn á eftir tákninu „@“ í
studdum textareitum í Windows-forritum til að bjóða upp á tillögur út frá
staðsetningu. Frekari upplýsingar um þessa Bing-upplifun er að finna í hlutanum
 Bing hlutanum í þessari yfirlýsingu um persónuvernd. Þegar forritið Kort hefur
aðgang að staðsetningu þinni, jafnvel þótt forritið sé ekki í notkun, kann
Microsoft að safna staðsetningargögnum úr tækinu þínu þar sem auðkenningu hefur
verið eytt til að bæta þjónustu Microsoft. Þú getur slökkt á aðgangi forritsins
Kort að staðsetningu þinni með því að slökkva á staðsetningarþjónustunni eða
slökkva á aðgangi forritsins Kort að staðsetningarþjónustunni.

Þú getur rakið uppáhaldsstaðina þína og nýlegar kortaleitir í forritinu Kort.
Uppáhaldsstaðirnir þínir og leitarsaga verða hafðir með í leitartillögum. Ef þú
kortaforritinu aðgang að myndavélinni þinni getur þú gripið staðsetningarnar þar
sem myndirnar þínar voru teknar – mynd af bílnum þínum myndi til dæmis einnig
segja til um hvar bíllinn þinn er lagður. Þú getur einnig deilt staðsetningu
þinni með tengiliðum þínum. Ef þú ert skráð(ur) inn á Microsoft-reikninginn þinn
eru eftirlætisstaðirnir þínir, leitarferillinn og tilteknar forritsstillingar
samstilltar við önnur tæki og þjónustu. Frekari upplýsingar er að finna í
hlutanum Samstilling og öryggisafritun í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Myndavélarforrit. Ef þú leyfir Myndavélarforritinu að nota staðsetningu þína
verða staðsetningargögn felld inn í myndir og myndskeið sem þú tekur með tækinu.
Önnur lýsandi gögn, eins og tegund myndavélar og dagsetningin þegar myndin eða
myndskeiðið var tekið, eru einnig felld inn í myndir og myndskeið. Ef þú velur
að deila mynd eða myndskeiði verða öll innfelld gögn aðgengileg fólki og
þjónustu sem þú deilir með. Þegar kveikt er á þessu getur þú alltaf slökkt á
aðgangi Myndavélarforritsins að staðsetningu þinni með því að slökkva á öllum
aðgangi að staðsetningarþjónustunni í stillingavalmynd tækisins eða slökkva á
aðgangi Myndavélarforritsins að staðsetningarþjónustunni.

Þegar Myndavélarforritið er opið sýnir það rétthyrninga sem valin myndavél fann
fyrir svæði á myndinni sem hugsanlega eru notuð til endurbóta á mynd.
Myndavélarforritið varðveitir ekki nein gögn um endurbætur á myndum. Þú getur
alltaf breytt aðgangsstillingum myndavélarinnar í valmynd Windows-stillinga.
Myndavélarforritið notar ýmsa möguleika tækisins, svo sem staðsetningu,
myndavél, hljóðnema, mynd og myndasafn. Farðu í Microsoft Store til að fá
frekari upplýsingar.

Myndaforrit. Tvær útgáfur af forritinu Myndir eru í boði. Í uppfærða forritinu
Myndir eru eiginleikar á borð við iCloud-samþættingu og yfirlit yfir staðbundnar
möppur og skýjamöppur. Í eldri útgáfu myndaforritsins eru eiginleikar á borð við
myndbandsritil, flipann „Fólk“ og albúm. Þú ert að nota uppfærða myndaforritið
ef „Um“ hlutinn í stillingum forritsins gefur til kynna að forritið sé
„uppfærða“ forritið Myndir. Í sumum tilfellum gæti notandi verið með bæði
uppfærða forritið Myndir og eldri útgáfu af forritinu hlaðið niður í tækinu.

Uppfærða myndaforritið hjálpar þér að skipuleggja, skoða og deila myndum og
myndböndum þínum. Til dæmis býður forritið Myndir upp á mismunandi leiðir til að
flokka myndir og myndbönd eftir nafni, tökudagsetningu eða
breytingardagsetningu, og einnig í möppum þar sem þessar skrár eru geymdar, t.d.
vistaðar staðbundið í tækinu þínu eða samstilltar við tækið þitt úr OneDrive,
iCloud og öðrum skýjaþjónustum. Forritið gerir þér einnig kleift að færa, afrita
eða hlaða skrám upp á mismunandi staði í tölvunni þinni eða á OneDrive. Flipinn
„Allar myndir“ birtir staðbundnar eða samstilltar myndir og myndbönd eftir því
hvenær þær eru teknar. Á flipanum „Eftirlæti“ geturðu skoðað myndir og myndbönd
sem þér líkaði við eða settir í eftirlæti. Flipinn „Mappa“ gerir þér kleift að
skoða myndir eða myndbönd eftir geymslustað. Einnig eru flipar þar sem þú getur
séð myndir og myndbönd úr tiltækri skýjaþjónustu (t.d. OneDrive og annarri
þjónustu þriðja aðila) sem þú hefur samstillt við tækið þitt.

Eldri útgáfa af forritinu Myndir hjálpar þér að skipuleggja, skoða og deila
myndum og myndböndum þínum. Ef þú notar hins vegar eldri útgáfu af forritinu
Myndir gætirðu séð aðra eiginleika sem eru ekki í boði í nýrri útgáfu
forritsins, þ.m.t. söfn, albúm, myndritil og stillingin „Fólk“. Á flipanum
„Safn“ birtast myndir og myndbönd eftir dagsetningu. Flipinn „Albúm“ hjálpar þér
að flokka myndir og myndbönd eftir staðsetningu og sameiginlegum merkjum.
Myndritillinn gerir þér kleift að breyta, búa til og deila myndböndum.

Hægt er að virkja stillinguna „Fólk“ á stillingasíðu eldri útgáfu af Myndum og í
flipanum „Fólk“ í forritinu. Þegar hún er gerð virk mun eldri útgáfa
myndaforritsins nota andlitsflokkunartækni til að flokka myndir og myndbönd
niður í hópa. Flokkunareiginleikinn getur greint andlit í mynd eða myndbandi og
ákvarðað hvort þau séu sjónrænt svipuð andlitum í öðrum myndum og myndböndum í
myndasafninu þínu. Þú getur tengt andlitsflokkun við tengilið úr forritinu
Tengiliðir.

Þegar hún er virkjuð í eldri útgáfu af forritinu Myndir verða flokkanirnar
vistaðar í tækinu eins lengi og þú kýst að halda flokkunum eða myndum eða
myndböndum. Ef kveikt er á stillingunni „Fólk“ verður þú beðin(n) um að leyfa
eldra myndaforritinu að halda áfram að leyfa andlitsflokkanir ef forritið er
ekki notað í þrjú ár. Það er alltaf hægt að fara á stillingasíðuna í eldri
útgáfu myndaforritsins til að kveikja eða slökkva á stillingunni „Fólk“. Ef
slökkt er á eiginleikanum verða gögn um andlitsflokkun úr eldri útgáfu
myndaforritsins fjarlægð, en myndirnar eða myndböndin þín verða ekki fjarlægð. 
Kynntu þér betur eldri útgáfu af forritinu myndir og andlitsflokkun.

Ef þú velur að deila mynd eða myndbandi með því að nota myndaforritið eða eldri
útgáfu myndaforritsins verða öll innfelld gögn (eins og staðsetning, gerð
myndavélar og dagsetning) aðgengileg fólki og þjónustu sem þú deilir myndinni
eða myndbandinu með.

Forritið Tengiliðir. Forritið Tengiliðir gerir þér kleift að sjá og eiga
samskipti við alla tengiliðina þína á einum stað. Þegar þú bætir reikningi við
forritið Tengiliðir er tengiliðunum af reikningnum sjálfkrafa bætt við forritið
Tengiliðir. Þú getur bætt öðrum reikningum við í forritið Tengiliðir, þar með
talið á samskiptamiðlum (eins og Facebook og Twitter) og tölvupóstreikningum.
Þegar reikningi er bætt við látum við þig vita hvaða gögn forritið Tengiliðir
getur flutt inn eða samstillt við viðkomandi þjónustu og leyfum þér að velja
hverju þú vilt bæta við. Önnur forrit sem þú setur upp kunna einnig að samstilla
gögn við forritið Tengiliðir, þ.m.t. að bæta frekari upplýsingum við
fyrirliggjandi tengiliði. Þegar þú skoðar tengilið í Tengiliðir sækir forritið
og birtir upplýsingar um nýleg samskipti þín við tengiliðinn (til dæmis
tölvupóst og dagbókarfærslur, meðal annars úr forritum sem Tengiliðir samstillir
gögn frá). Þú getur alltaf fjarlægt reikning úr forritinu Tengiliðir.

Forritið Póstur og dagbók.. Forritið „Póstur og dagbók“ gerir þér kleift að
tengja öll skeyti, dagbækur og skrár saman á einum stað, þ.m.t. úr tölvupósti
þriðju aðila og skráargeymsluveitum. Forritið veitir þjónustu sem notar
staðsetningu, eins og veðurupplýsingar í dagbókinni, en þú getur slökkt á notkun
forritsins á staðsetningu þinni. Þegar þú bætir við reikningi í forritinu
„Póstur og dagbók“ er tölvupóstur, dagbókaratriði, skrár, tengiliðir og aðrar
stillingar af reikningnum samstillt sjálfkrafa við tækið og netþjóna Microsoft.
Þú getur fjarlægt reikning eða gert breytingar á gögnunum sem eru samstillt af
reikningnum hvenær sem er. Til að grunnstilla reikning verður þú að gefa
forritinu skilríkin fyrir reikninginn (t.d. notandanafn og aðgangsorð) sem verða
send í gegnum netið til netþjóns veitu þriðja aðila. Forritið reynir fyrst að
nota örugga (SSL) tengingu til að grunnstilla reikninginn en sendir þessar
upplýsingar ódulritaðar ef tölvupóstsveitan þín styður ekki SSL. Ef þú bætir við
reikningi frá fyrirtæki/stofnun (eins og netfangi fyrirtækis) getur eigandi
fyrirtækjalénsins innleitt tilteknar stefnur og stýringar (t.d. beðið um
fjölþætta sannvottun eða bætt við möguleikanum að þurrka út gögn af tækinu þínu
í gegnum fjartengingu) sem geta haft áhrif á notkun þína á forritinu. Þetta
forrit notar möguleika tækisins, eins og staðsetningu og myndavél. Farðu
í Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

Forritið Windows-skilaboð frá símafyrirtæki (áður Microsoft-skilaboð). Forritið
Windows-skilaboð frá símafyrirtæki tekur á móti og sýnir SMS-textaskilaboð sem
tengjast reikningi frá farsímafyrirtækinu þínu um gagnaáskrift þína (t.d.
innheimtu gagnamörk) í tölvunni eða tækinu þínu. Þessi skilaboð eru geymd
staðbundið í tækinu þínu. Í tækinu þínu getur þú einnig fengið aðgang að, skoðað
og eytt þessum skilaboðum. Þetta forrit notar möguleika tækisins, eins og
tengiliði. Farðu í Microsoft Store í Windows til að fá frekari upplýsingar.

Klukkuforritið er miðstöðin þín fyrir tímastjórnun og fókus í Windows. Þegar
notendur skrá sig inn með Microsoft-reikningum sínum geta þeir virkjað Microsoft
To Do sem er skýjatengd upplifun. Þegar notandinn kveikir á fókuslotu eru
lotugögn vistuð staðbundið og notandi getur hreinsað þau með því að fara á síðu
klukkustillingar. Fókuslotur styðja auk þess að tengja Spotify-reikninga til að
hlusta á umhverfishljóð til að hjálap notendum að einbeita sér. Farðu
í Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

Microsoft færslubók er Windows-forrit sem er sérstaklega hannað fyrir tæki sem
nota snertiskjái og penna, eins og spjaldtölvur og 2 fyrir 1 tæki. Það býður
notendum upp á upplifun fyrir persónulega minnispunkta á frjálsu sniði. Forritið
nýta sér gervigreind og vélnám til að þekkja handskrift þína betur sem vinnur úr
gögn staðbundið í tækinu þínu. Þegar notendur eru tengdir við Microsoft 365
(áskrift nauðsynleg) eru þeir með greiðan aðgang að M365-dagbókinni og
tengiliðunum sínum í forritinu. Allt efni sem notendur búa til er vistað
sjálfkrafa á sjálfgefinni vistunarstaðsetningu í skjalasafninu til síðari nota.
Færslubók gefur þér aðgang að myndasafni og myndavél og hljóðnema tækisins svo
þú getir bætt þeim við vinnubók. Frekari upplýsingar um tímaritaforritið hér eða
heimsóttu Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

Forritið Mobile Plans auðveldar þér að komast á netið á fleiri stöðum í Windows
10-tölvunni þinni og 11 LTE-tækjum. Þegar þú skráir þig fyrir gagnaáskrift í
tækinu er komið á tengingu við farsímafyrirtækið sem gerir þér kleift að ljúka
kaupum í gegnum netgátt farsímafyrirtækisins. Þú þarft stutt SIM-kort til að
geta notað þetta forrit. Farsímaáskriftarforitið mun nota IMEI-, IMSI-, EID-,
ICCID- og landsnúmer (gróf staðsetning ákvörðuð út frá auðkenni farsímakerfis
eða öfugri IP-tölu Wi-Fi-nets) til að ákvarða hvaða farsímafyrirtæki eru í boði
á þínu svæði. Farsímafyrirtækið getur sent tilkynningar til notenda í gegnum
forritið Farsímaáskriftir. Þetta forrit notar möguleika tækisins, eins og
myndavél og hljóðnema. Farðu í Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

Microsoft PC Manager er í boði á völdum svæðum og er skjáborðsverkfæri sem miðar
að því að auka afköst tölvunnar. Samkvæmt beiðni þinni mun Tölvustjóri skanna
tækið þitt og gerir þér kleift að eyða óþarfa eða tímabundnum skjölum, fínstilla
skyndiminni, stöðva eða endurheimta eftir óleyfilegar breytingar, eða nota aðra
eiginleika eins og ástandsathugun, örvun í einum smelli, hreinsun á geymslu,
skráa- og sprettigluggastjórnun og vörn á sjálfgefnum stillingum.

Tölvustjóri lokar á sprettiglugga í samræmi við reglur um auglýsingavörn og
sprettigluggana sem þú velur í sérsniðinni útilokun. Ef þú samþykkir að taka
þátt í „Sprettigluggaáætlun Microsoft-tölvustjóra“, þegar þú útilokar
sprettiglugga í gegnum sérsniðna útilokun, geturðu hjálpað okkur að fínstilla
eiginleika sprettigluggastjórnunar í Microsoft-tölvustjóra með því að taka
skjámyndir af sprettiglugganum og senda til Microsoft. Microsoft safnar ekki
öðrum upplýsingum en skjámyndum og titli og klasa Windows. Skjámyndir sem eru
sendar eru aðeins varðveittar í stuttan tíma og þeim er eytt reglulega. Þú getur
stjórnað kjörstillingum sprettigluggaáætlunarinnar í gegnum stillingar
Tölvustjóra hvenær sem er. Eiginleiki ábendinga í Tölvustjóra gæti einnig unnið
úr persónuupplýsingum ef þú lætur þær fylgja með ábendingunni sem þú lætur
Microsoft fá. Ábendingum frá notendum er eytt reglulega eftir úrvinnslu. Farðu
í Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

 Snipping Tool  er handhægt tól í Windows sem notar hljóðnema og myndasafnið
þitt til að taka upp og geyma skjámyndir og skjáupptökur. Klippiverkfærið
inniheldur eiginleika textaaðgerðar, sem notar stuðning innbyggðra stafakennsla.
Hægt er að velja og afrita texta beint úr myndum með stafakennslum. Að auki er
hægt að nota eiginleika textaaðgerða til að taka út viðkvæmar upplýsingar úr
uppteknum texta. Með samþættingu klippiborðs eru atriði sem afrituð eru frá
klippiverkfærinu einnig afrituð á klippiborðið. Ef þú virkjar klippiborðsferil á
milli tækja er hægt að nota afritaða efnið greiðlega á milli mismunandi tækja.
Notendur geta stjórnað klippiborðinu og kjörstillingum klippingar í gegnum
Windows-stillingarnar. Farðu í Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

 Windows raddupptaka  er fjölhæft verkfæri sem hannað er til að taka upp hljóð í
gegnum hljóðnemann þinn við ýmsar aðstæður. Við upptöku er hægt að merkja
mikilvæg augnablik til að auðveldlega finna mikilvæga hluta síðar. Þú getur
einnig klippt, stillt hljóðstyrksstig eða notað aðrar breytingar eftir þörfum og
spilað upptökurnar þínar. Upptökurnar þínar eru vistaðar sjálfkrafa og geymdar í
skjalamöppunni til að auðvelda aðgang og þú getur deilt hljóðupptökunum með
vinum og vandamönnum. Farðu í Microsoft Store til að fá frekari upplýsingar.

Microsoft Clipchamp er myndbandsritill sem er hannaður til að auðvelda gerð
myndbanda. Hann gerir notendum kleift að sameina myndbands-, mynd- og hljóðskrár
ásamt því að bæta við texta og áhrifum og vista síðan fullgert myndband í tækinu
eða vista myndböndin á persónulegu svæði á OneDrive í gegnum
Microsoft-reikninginn. Notendur geta einnig bætt við myndböndum og tónlist úr
safni eða hljóðáhrifum, límmiðum, myndrænum þáttum, bakgrunnum og fleiru.
Notendur geta valið að leyfa Clipchamp að fá aðgang að myndavélinni og
hljóðnemanum til að taka upp myndbönd beint úr tækinu sínu. Clipchamp mun finna
nákvæma staðsetningu þína til að bjóða upp á betri upplifun, eins og hvaða
tungumál á birta þér. Notendur geta opnað Clipchamp með persónulegum
Microsoft-reikningi eða fjölskyldureikningi í gegnum Clipchamp-forritið fyrir
Windows 10 eða Windows 11 og í Microsoft Edge- eða Chrome-vafranum
á https://app.clipchamp.com.

Media Player er sjálfgefinn innbyggður spilari margmiðlunarefnis (hljóð- og
myndefnis). Þegar þú opnar margmiðlunarskrá mun miðlaspilarinn lesa efni hennar.
Þegar þú opnar miðlaspilarann les hann efni í möppum tónlistar- og myndefnis til
að fylla út sínar eigin síður af tónlistar- og myndefni í miðlaspilaranum til að
hjálpa þér að skipuleggja, skoða og spila margmiðlunarefni.

Til að bæta upplifun þína þegar þú spilar tónlist mun miðlaspilarinn sjálfkrafa
reyna að sýna mynd listamanns og albúms fyrir efnið sem þú spilar og efnið í
tónlistarsafninu þínu. Til að veita þessar upplýsingar sendir miðlaspilarinn
upplýsingabeiðni til Microsoft um stöðluð tækjagögn, eins og IP-tölu og
hugbúnaðarútgáfu tækisins, svæðis- og tungumálastillingar þínar og auðkenni
efnisins. Þú getur gert þennan eiginleika óvirkan á stillingasíðu forritsins ef
þú vilt.

Movies and TV. Microsoft-kvikmyndir og sjónvarp& gerir þér kleift að leigja eða
kaupa kvikmyndir og sjónvarpsþætti og spila efnið í tækinu þínu.

Til að hjálpa þér að uppgötva efni sem þú gætir haft áhuga á safnar
Microsoft-kvikmyndir & og sjónvarp gögnum um hvaða kvikmyndir og sjónvarpsþætti
þú horfir á, þ.m.t. lengd spilunar og hvaða einkunnir þú gefur.

Microsoft-kvikmyndir & og sjónvarp getur einnig birt og spilað staðbundnar
myndbandaskrár sem geymdar eru í tölvunni. „Kvikmyndir og sjónvarp“ þarf aðgang
að myndsafni tækisins.

Eldri útgáfa af Windows-miðlaspilara. Þegar þú notar eldri útgáfu
Windows-miðlaspilara getur hann lesið margmiðlunarefni á borð við myndbands-,
hljóð- og myndskrár, sem gerir þér kleift að spila geisladiska og annað stafrænt
efni (svo sem myndbands- og hljóðskrár), afrita geisladiska og stjórna
miðlasafninu þínu. Til að bæta upplifun þína þegar þú spilar efni í safninu þínu
birtir eldri Windows-miðlaspilari upplýsingar sem tengjast margmiðlunarefninu,
svo sem nafn albúms, titil lags, mynd af albúmi, listamann og lagahöfund. Eldri
Windows-miðlaspilari sendir beiðni til Microsoft sem inniheldur staðlaðar
upplýsingar um tölvuna, auðkenni efnisins og upplýsingar um efni sem miðlasafn
eldri Windows-miðlaspilara inniheldur nú þegar (þar á meðal upplýsingar sem þú
kannt að hafa breytt eða fært inn) til að Microsoft geti greint lagið sem um
ræðir og birt frekari upplýsingar ef þær eru í boði.

Eldri Windows-miðlaspilari býður einnig upp á straumspilun efnis í gegnum netið.
Til að bjóða upp á þjónustuna þarf eldri Windows-miðlaspilari að eiga samskipti
við straumspilunarþjóninn. Slíkir þjónar eru yfirleitt reknir af efnisveitum sem
ekki tengjast Microsoft. Við straumspilun efnis sendir eldri
Windows-miðlaspilari annál til straumspilunarþjónsins eða annarra vefþjóna ef
straumspilunarþjónninn biður um það. Annállinn inniheldur upplýsingar á borð við
tengingartíma, IP-tölu, útgáfu stýrikerfis, útgáfu eldri Windows-miðlaspilara,
auðkennisnúmer spilarans (auðkenni spilara), dagsetningu og samskiptareglu.
Eldri Windows-miðlaspilari sendir sjálfgefið mismunandi auðkenni spilara fyrir
hverja lotu til að vernda friðhelgi þína.

Fara aftur efst

WINDOWS HELLO

Windows Hello veitir tafarlausan aðgang að tækjum þínum með lífkenni. Ef þú
kveikir á Windows Hello notar það andlitið á þér, fingrafar eða lithimnu til að
bera kennsl á þig út frá hópi einstakra atriða eða eiginleika sem eru dregnir út
úr myndinni og vistaðir í tækinu sem sniðmát – en sjálf myndin af andlitinu á
þér, fingrafarinu eða lithimnunni verður ekki vistuð. Gögn til sannprófunar með
lífkennum sem notuð eru þegar þú skráir þig inn fara ekki út fyrir tækið.
Lífkennissannprófunargögnin þín verða áfram á tækinu þínu þar til þú fjarlægir
þau. Hins vegar verður þú beðin(n) um að staðfesta að þú viljir halda áfram að
geyma lífkennissannprófunargögnin þín, eftir ákveðinn tíma í Windows Hello án
virkni. Þú getur eytt lífkennigögnum þínum í stillingum. Frekari upplýsingar
um Windows Hello.

Fara aftur efst

WINDOWS SEARCH

Windows Search gerir þér kleift að leita í dótinu þínu og af netinu af sama
stað. Ef þú kýst að nota Windows Search til að leita í "dótinu þínu"mun það gefa
niðurstöður fyrir atriði á þínu eigin svæði á OneDrive, OneDrive for Business ef
kveikt er á því, öðrum skýjageymslum að því marki sem slíkir þriðju aðila styðja
og á tækinu þínu. Ef þú kýst að nota Windows Search til að leita á vefnum, eða
til að fá leitartillögur með Windows Search, koma leitarniðurstöðurnar þínar frá
Bing og við notum leitarfyrirspurnina þína eins og lýst er í hlutanum  Bing  í
þessari yfirlýsingu um persónuvernd.  Frekari upplýsingar um leit í Windows.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst


SKEMMTUN OG TENGD ÞJÓNUSTA

Skemmtun og tengd þjónusta veitir þér aðgang að miklu magni efnis, forritum og
leikjum.

Skemmtun og tengd þjónusta veitir þér aðgang að miklu magni efnis, forritum og
leikjum.

XBOX-FORRITIÐ

Xbox-netið er leikja- og afþreyingarþjónusta á netinu frá Microsoft sem
samanstendur af hugbúnaði og virkjar upplifun á netinu á mismunandi vettvöngum.
Þessi þjónusta gerir þér kleift að finna og spila leiki, skoða efni og tengjast
vinum á Xbox og öðrum leikja- og samfélagsmiðlum.

Þegar þú skráir þig fyrir Xbox-notandasíðu á netinu úthlutum við þér
spilaramerki (almennu gælunafni) og einkvæmu auðkenni til að auðkenna þig. Þegar
þú skráir þig inn í Xbox-tæki, -forrit og -þjónustu eru gögnin sem við söfnum um
notkun þína geymd með þessum einkvæmu auðkennum.

Xbox-leikjatölvur eru tæki sem þú getur notað til að nálgast og spila leiki,
kvikmyndir, tónlist og ýmsa aðra stafrænna afþreyingu. Þegar þú skráir þig inn í
Xbox-upplifunina – í forritum eða á leikjatölvu – úthlutum við einnig einkvæmu
auðkenni á tækið þitt. Til dæmis þegar Xbox-leikjatölvan er tengd við internetið
og þú skráir þig inn í leikjatölvuna auðkennum við hvaða leikjatölvu og hvaða
útgáfu af stýrikerfi leikjatölvunnar þú ert að nota.

Gögn sem við söfnumum notkun þína á þjónustu Xbox, leikjum, forritum og
leikjatölvum felur í sér:

 * Hvenær þú skráir þig inn og út úr Xbox, hvað þú kaupir og það efni sem þú
   færð.
 * Hvaða leiki þú spilar og forritin sem þú notar, framvindu leiksins, árangur,
   spilunartíma á leik og aðra tölfræðiupplýsingar um spilun.
 * Gögnum um frammistöðu Xbox-leikjatölva, Xbox Game Pass-forritsins og annarra
   Xbox-forrita, tengdra aukabúnaða og nettengingarinnar þinnar, þ.m.t.
   hugbúnaðar- og vélbúnaðarvillur.
 * Efni sem þú bætir við, hleður upp eða samnýtir í gegnum Xbox-netið, þar á
   meðal texta, myndir og myndefni sem þú tekur upp í leikjum og forritum.
 * Félagsleg virkni, þ.m.t. spjallgögn og samskipti við aðra spilara, og
   tengingar sem þú gerir (vinir sem þú bætir við og fólk sem fylgir þér) á
   Xbox-netinu.

Ef þú skráir þig inn til að nota Xbox í öðru tæki sem getur fengið aðgang að
Xbox-netinu, og það tæki er með geymslutæki (harðan disk eða minniskubb) verða
notkunargögnin geymd í geymslutækinu og send til Microsoft næst þegar þú skráir
þig inn í Xbox, jafnvel þegar þú hefur spilað utan nets.

Gögn sem við söfnum gera okkur kleift að bjóða þér upp á þjónustu okkar og
sérvaldar upplifanir. Þetta felur í sér að tengja þig við leiki, efni og
þjónustur, auk þess að koma á framfæri tilboðum, afsláttum og ráðleggingum. Til
að breyta stillingum fyrir þessar tillögur skaltu fara ásíðu öryggis- og
persónuverndarstillingaXbox.

Myndavél og hljóðnemi. Þegar Xbox er notað geta spilarar notað möguleika
tækisins á borð við hljóðnema, myndavél og skjáupptöku til að bæta
leikjaupplifun sína. Þegar Xbox-leikur er spilaður í Windows Game Bar er hægt að
nota myndavélina og hljóðnemann, þar á meðal til að lesa myndir og myndbönd og
taka upp skjámyndir.

Xbox-greiningargögn. Greiningargögn eru tvenns konar: Nauðsynleg og valfrjáls.

 * Áskilið. Xbox mun senda Microsoft nauðsynleg gögn. Lágmarksgögn sem þarf til
   að halda Xbox-leikjatölvunni öruggri og uppfærðri og til að tryggja að hún
   starfi rétt.
 * Valfrjáls. Valfrjáls gögn eru viðbótargögn sem þú velur að deila með
   Microsoft. Valfrjáls gögn kunna að innihalda viðbótarupplýsingar um aðgerðir,
   notkun og afköst á vörum og þjónustu Xbox, auk ítarlegrar villuskýrslu.

Frekari upplýsingar er að finna íStjórna stillingum fyrir valfrjálsa deilingu
gagna.

Leikjaupptökur. Allir spilarar í fjölspilunarlotu geta tekið upp myndefni
(leikjamyndskeið) og tekið skjámyndir af sinni sýn í leiknum. Leikjamyndskeið og
skjámyndir annarra spilara geta tekið upp karakterinn þinn og spilaramerki í
leiknum meðan á þeirri lotu stendur. Ef spilari tekur upp myndskeið og
skjámyndir á tölvu gætu myndskeiðin sem verða til einnig tekið upp hljóðspjall.

Skjátextar. Við spjall í rauntíma („partí“) í Xbox geta spilarar virkjað
talgervilseiginleika sem gerir þeim kleift að sjá spjallið sem texta. Ef spilari
virkjar þennan eiginleika breytast öll raddsamskipti í partíinu í skjátexta hjá
spilaranum. Microsoft notar textagögnin sem til verða til þess að setja
skjátexta á spjall fyrir spilara sem þurfa á því að halda sem og vegna annarra
ástæðna sem er lýst í þessari yfirlýsingu.

Xbox-gögn sem aðrir geta skoðað. Spilaramerkið þitt, tölfræðiupplýsingar um
spilun, árangur, viðvera (hvort þú ert skráð(ur) inn á Xbox), efni sem þú deilir
og önnur gögn um aðgerðir þínar á Xbox eru sýnileg:

 * Öðrum spilurum sem eru innskráðir í Xbox.
 * Viðskiptavinum þriðju aðila þjónustum sem þú hefur tengt notandasíðuna þína
   við, eða
 * Annarri þjónustu sem tengist Xbox (þar á meðal þjónustu samstarfsfyrirtækja).

Til dæmis teljast spilaramerkið þitt og stig sem birtast á stigatöflum leikja
vera opinber og ekki er hægt að fela þau. Fyrir önnur gögn er hægt að breyta
persónuverndarstillingum í leikjatölvum og áXbox.com til að takmarka eða útiloka
hvað er deilt með almenningi eða með vinum.

Frekari upplýsingar um stjórnun Xbox-notendasíðna í öryggis- og
persónuverndarstillingum Xbox.

Xbox-gögn sem deilt er með þriðju aðilum, þ.m.t. útgefendum leikja og forrita.
Þegar þú notar leik eða forrit sem virkar með Xbox-netleik eða hvaða nettengdu
forriti sem er í gegnum Xbox-leikjatölvuna þína, tölvu eða fartæki, hefur
útgefandi viðkomandi leiks eða forrits aðgang að gögnum um notkun þína til að
hjálpa útgefandanum að bjóða upp á, veita stuðning og bæta vörur sínar. Þessi
gögn kunna að innihalda: Xbox-notandakennið þitt, spilaramerkið þitt,
takmarkaðar upplýsingar um reikning á borð við land og aldursbil, gögn um
samskipti þín í leikjum, hvers kyns Xbox-framkvæmdaraðgerðir, gögn um
spilunarlotur þínar í leikjum (til dæmis hreyfingar gerðar í leik, gerðir
ökutækja sem eru notaðar í leik), viðveru þína á Xbox-netinu, hversu lengi þú
ert að spila leikinn eða nota forritið, stöður, talnagögn, leikjaferla,
notandamyndir eða leikjamyndir, vinalista, virknistrauma fyrir opinbera klúbba
sem þú ert meðlimur í, félagsaðild og efni sem þú býrð til eða senda í leiknum
eða forritinu.

Þriðju aðila útgefendur og þróunaraðilar leikja og forrita eiga í sínu eigin og
sjálfstæðu sambandi við notendur og söfnun þeirra og notkun á persónuupplýsingum
falla undir þeirra eigin persónuverndarstefnu. Þú ættir að fara vandlega yfir
stefnur þeirra til að sjá hvernig þeir nota gögnin. Útgefendur geta til dæmis
valið að deila eða birta leikjagögn (t.d. stigatöflur) í gegnum þeirra eigin
þjónustur. Þú getur fundið stefnur þeirra sem tengjast upplýsingasíðum leikja
eða forrita í Microsoft Store.

Frekari upplýsingar er að finna á samnýtingu gagna með leikjum og forritum.

Til að hætta að deila leik- eða forritagögnum með útgefanda skaltu fjarlægja
leiki hans eða forrit úr öllum tækjum sem þú hefur sett þau upp í. Suman aðgang
sem útgefendur hafa að gögnunum þínum kann að vera hægt að afturkalla á
microsoft.com/consent.

Börn og fjölskylda. Ef þú átt börn sem vilja nota Xbox-netið geturðu sett upp
notandasíður fyrir börn og unglinga fyrir þau þegar þau eru komin með
Microsoft-reikninga. Fullorðnir skipuleggjendur í Microsoft-fjölskylduhópnum
þínum geta breytt áður gefnu samþykki og öryggisstillingum á netinu fyrir
notandasíður barna og unglinga á Xbox.com.

Fáðu frekari upplýsingar um Microsoft-fjölskylduhópa í Einfaldaðu líf
fjölskyldunnar.

Frekari upplýsingar um stjórnun Xbox-notendasíðna í öryggis- og
persónuverndarstillingum Xbox.

Frekari upplýsingar um gagnasöfnum Microsoft frá börnum, þar á meðal Xbox, er að
finna í hlutanum Gagnasöfnun frá börnum í þessari yfirlýsingu um persónuvernd.

Öryggi. Til að gera Xbox-netið að öruggu leikjaumhverfi og framfylgja
samfélagsstöðlum fyrir Xbox gætum við safnað og farið yfir raddgögn, texta,
myndir, myndbönd og efni í leiknum (t.d. myndskeið úr leikjum sem þú hleður upp,
samtöl sem þú átt og atriði sem þú sendir út í klúbbum og leikjum).

Vörn gegn svindli og svikum. Það er okkur mikilvægt að bjóða upp á sanngjarnt
leikjaspilunarumhverfi. Við bönnum svindl, netárásir, reikningsstuld og hvers
kyns aðrar óleyfilegar eða svikular aðgerðir þegar þú notar Xbox-netleik eða
hvaða nettengda forrit sem er í Xbox-leikjatölvunni, einkatölvunni eða fartækinu
þínu. Til að greina og koma í veg fyrir svik og svindl kunnum við að nota
verkfæri, forrit og aðra tækni til að hindra svindl og svik. Slík tækni getur
búið til stafrænar undirritanir (þekkt sem „tætigildi”) með því að nota
tilteknar upplýsingar sem fengnar eru úr Xbox-leikjatölvunni, einkatölvunni eða
fartækinu þínu og hvernig þú notar tækið. Þetta geta verið upplýsingar um vafra,
tæki, aðgerðir, auðkenni leikja og stýrikerfi.

Gamalt.

 * Xbox 360. Þessi Xbox-leikjatölva safnar takmörkuðum nauðsynlegum
   greiningargögnum til að leikjatölvan virki sem skyldi þegar þú notar
   leikjatölvu sem er tengd við Xbox-netið.
 * Kinect. Kinect-skynjarinn er samsetning myndavélar, hljóðnema og innrauðs
   skynjara til að hægt sé að nota hreyfingar og rödd til að stjórna
   leikjaspilun. Dæmi:
   * Ef þú vilt þá geturðu einnig notað myndavélina til að skrá þig sjálfvirkt
     inn í Xbox Live með andlitskennslum. Þessi gögn verða á leikjatölvunni og
     þeim er ekki deilt með neinum og þú getur alltaf valið að eyða þessum
     gögnum af leikjatölvunni.
   * Í leikjaspilun kortleggur Kinect fjarlægð á milli liðamóta líkamans og býr
     til einfalda teikningu af þér sem hjálpar Kinect að stjórna leikjaspilun.
   * Hljóðnemar Kinect gera spilurum kleift að spjalla saman á meðan þeir spila
     leiki. Þeir gera notendum einnig kleift að gefa raddskipanir til að stjórna
     leikjatölvunni, leiknum, forritinu eða færa inn leitarorð.
   * Einnig er hægt að nota Kinect-skynjarann til að eiga samskipti með hljóði
     og mynd í gegnum þjónustu á borð við Skype.
   
   Frekari upplýsingar um Kinect er að finna á Xbox Kinect og persónuvernd.

Fara aftur efst

MICROSOFT STORE

Microsoft Store er netþjónusta sem er aðgengileg í gegnum tölvu,
Xbox-leikjatölvu og Xbox-forritið, þar sem hægt er að skoða, sækja, kaupa, gefa
einkunn og skrifa umsagnir um forrit og annað stafrænt efni. Hún inniheldur:

 * Forrit og efni fyrir Windows-tæki á borð við síma, tölvur og spjaldtölvur.
 * Leikir, áskriftir og önnur forrit fyrir Xbox-leikjatölvur og önnur tæki.
 * Vörur og forrit fyrir Microsoft 365, SharePoint, Exchange, Access og Project
   (2013 útgáfur eða nýrri).

Við söfnum gögnum um hvernig þú færð aðgang að og notar Microsoft Store, vörur
sem þú skoðar, kaupir eða setur upp; kjörstillingar sem þú velur til að skoða
forrit í Microsoft Store og allar einkunnir, umsagnir eða tilkynningar um
vandamál sem þú hefur sent inn. Microsoft-reikningurinn þinn er tengdur við
einkunnagjöf og umsagnir frá þér og ef þú skrifar umsögn birtist nafnið og
myndin á Microsoft-reikningnum þínum með henni. Microsoft Store notar svæðið sem
er grunnstillt í tækinu þínu til að sýna viðeigandi efni og varning. Microsoft
Store notar kennimerki tækisins til að stjórna réttindum vöru sem tengd eru við
tiltekið tæki.

Heimild fyrir forrit úr Microsoft Store. Mörg forrit sem þú setur upp úr
Microsoft Store eru hönnuð til að nýta sér tiltekna vélbúnaðar- og
hugbúnaðareiginleika í tækinu þínu. Notkun forrits á tilteknum vélbúnaðar- og
hugbúnaðareiginleikum gæti veitt forritinu eða viðkomandi þjónustu aðgang að
gögnunum þínum. Myndvinnsluforrit gæti t.d. fengið aðgang að myndavél tækisins
til að gera þér kleift að taka nýja mynd eða aðgang að myndum og myndböndum sem
geymd eru í tækinu til að breyta þeim, auk þess sem veitingahúsavísir gæti notað
staðsetningu þína til að mæla með stöðum í nágrenninu. Upplýsingar um þá
eiginleika sem forrit notar er að finna á vöruupplýsingasíðu forritsins í
Microsoft Store. Í persónuverndarstillingum tækisins er hægt að kveikja eða
slökkva á ýmsum eiginleikum sem forrit úr Microsoft Store nota. Í Windows getur
þú oft valið hvaða forrit geta notað tiltekinn eiginleika. Farðu í
Upphafsvalmynd > Stillingar > Persónuvernd eða persónuvernd & Öryggi, veldu
eiginleikann (til dæmis Dagbók) og veldu síðan á hvaða forritaheimildum er
slökkt. Listinn yfir forrit í persónuverndarstillingum Windows sem geta notað
vélbúnaðar- og hugbúnaðareiginleika mun ekki innihalda "Sígild Windows"-forrit
og þessi forrit verða ekki fyrir áhrifum af þessum stillingum.

Uppfærslur forrita. Microsoft Store leitar sjálfkrafa að, sækir og setur upp
uppfærslur forrita til að staðfesta að þú sért með nýjustu útgáfurnar, nema þú
hafir slökkt á sjálfvirkri uppfærslu forrita í stillingum Microsoft Store eða
hafir fengið forrit sem var veitt og uppfært af þróunaraðilanum. Uppfærð forrit
gætu nota ólíkar aðgerðir vélbúnaðar og hugbúnaðar Windows úr fyrri útgáfum, sem
gæti gefið þeim aðgang að öðrum gögnum á tækinu þínu. Þú færð kvaðningu um
samþykki ef uppfært forrit fer í ákveðnar aðgerðir, eins og staðsetningu. Einnig
er hægt að skoða vélbúnaðar- og hugbúnaðareiginleika sem forrit notar með því að
skoða vörulýsingarsíðu þess í Microsoft Store.

Notkun sérhvers forrits á þeim gögnum sem safnað er í gegnum þessa eiginleika er
háð persónuverndarstefnu þróunaraðila forritsins. Ef forrit sem er í boði í
Microsoft Store safnar og notar einhver af persónugögnum þínum verður
þróunaraðili forritsins að vera með persónuverndarstefnu og tengill í
persónuverndarstefnuna að vera aðgengilegur á vörulýsingarsíðu forritsins í
Microsoft Store.

Forrit með hjáleiðaruppsetningu og stillingar þróunaraðila. Eiginleikar fyrir
þróunaraðila eins og "stilling fyrir þróunaraðila" eru einungis fyrir
hugbúnaðarþróun. Ef þú virkjar þróunaraðgerðir gæti tækið þitt orðið
óáreiðanlegt eða ónothæft og aukið hættu á öryggishættu. Ef forrit eru sótt eða
sótt á annan hátt en úr Microsoft Store, sem einnig kallast "hlaðið á milli
tækja"-forrit, getur það gert tækið þitt og persónugögn berskjaldaðri fyrir
árásum eða óvæntri notkun forrita. Stefnur Windows, tilkynningar, heimildir og
aðrir eiginleikar sem eiga að hjálpa til við að vernda friðhelgi þína þegar
forrit fá aðgang að gögnunum þínum virka hugsanlega ekki eins og þeim er lýst í
þessari yfirlýsingu fyrir forrit með hjáleiðaruppsetningu eða þegar kveikt er á
stillingum þróunaraðila.

Fara aftur efst

MICROSOFT START

Microsoft Start (áður MSN eða Microsoft Nes) er efnisþjónusta sem inniheldur
fréttir, veður, íþróttir og fjármál. Forritið Microsoft Start er fáanlegt fyrir
ýmis stýrikerfi, þar með talið Windows, iOS og Android. Þjónusta Microsoft Start
fylgir einnig með annarri Microsoft-þjónustu, þar á meðal Microsoft
Edge-vafranum og græjum í Windows.

Þegar þú setur upp Microsoft Start, MSN-veður eða Microsoft-fréttaforrit söfnum
við gögnum sem segja okkur hvort forritið var rétt sett upp, hver
uppsetningardagurinn er, forritsútgáfan og önnur gögn um tækið þitt, eins og
stýrikerfið og vafrann. Þessum gögnum er safnað reglulega til að hjálpa okkur að
skera úr um fjölda forritsnotenda og bera kennsl á afkastavandamál sem tengjast
mismunandi forritsútgáfum, stýrikerfum og vöfrum. Þegar þú notar veðurforritið
notum við staðsetningu þína til að bjóða þér upp á viðeigandi veðurupplýsingar.

Við söfnum einnig gögnum um hvernig þú notar efni Microsoft Start, til dæmis
notkunartíðni og skoðaðar greinar, til að bjóða þér viðeigandi efni. Microsoft
Start býður aukna upplifun þegar þú skráir þig inn með Microsoft-reikningnum
þínum, leyfir þér til að mynda að sérstilla áhugamál og eftirlæti. Við notum
staðsetningu þína til að bjóða þér upp á viðeigandi efni á borð við staðbundið
veður og fréttir. Þú getur haft umsjón með sérstillingum í stillingum Microsoft
Start og Bing ásamt öðrum stillingum í þjónustu Microsoft sem felur í sér
þjónust Microsoft Start. Við notuð einnig þau gögn sem við söfnum til að birta
þér auglýsingar sem þú gætir haft áhuga á. Þú getur afþakkað áhugamiðaðar
auglýsingar með því að nota auglýsingatenglana í Microsoft Start-þjónustunni eða
með því að fara áafþökkunarsíðu Microsoft.

Fyrri útgáfur af MSN Money gera þér kleift að fara í persónulegar
fjárhagsupplýsingar frá fjármálastofnunum þriðja aðila. MSN Money birtir aðeins
þessar upplýsingar og geymir þær ekki á netþjónum okkar. Innskráningarskilríki
þín sem notuð eru til að fara í fjármálaupplýsingar þínar frá þriðja aðila eru
dulkóðuð í tækinu þínu og eru ekki send til Microsoft. Þessar fjármálastofnanir,
og öll þjónusta frá þriðja aðila sem þú notar í gegnum MSN þjónustu, falla undir
eigin skilmála og friðhelgisstefnur.

Fara aftur efst

SILVERLIGHT

Microsoft Silverlight hjálpar þér að fara í og njóta auðgaðs efnis á netinu.
Silverlight auðveldar vefsvæðum og vefþjónustu að geyma gögn á tækinu þínu.
Aðrar aðgerðir Silverlight innifela tengingu við Microsoft til að fá uppfærslur
eða við Microsoft eða netþjóna þriðja aðila til að spila varið stafrænt efni.

Grunnstillingarverkfæri Silverlight. Þú finnur valkosti fyrir þessa eiginleika í
grunnstillingarverkfæri Silverlight. Til að fara í samskipunarverkfæri
Silverlight skaltu hægrismella á efnið sem er verið að sýna í Silverlight og
velja Silverlight. Einnig er hægt að keyra samskipunarverkfæri Silverlight
beint. Í Windows er t.d. hægt að opna verkfærið með því að leita "Microsoft
Silverlight."

Forritageymsla Silverlight. Forrit sem byggjast á Silverlight geta vistað
gagnaskrár staðbundið í tölvunni í ýmsum tilgangi, þ.m.t. til að vista
sérstillingar þínar, geyma stórar skrár sem notaðar eru í myndrænum eiginleikum
sem krefjast mikillar vinnslugetu (t.d. í leikjum, kortum og myndum) og geyma
efni sem þú býrð til í tilteknum forritum. Þú getur slökkt á forritageymslunni
eða grunnstillt hana í grunnstillingarverkfæri Silverlight.

Uppfærslur á Silverlight. Silverlight leitar reglulega á Microsoft-þjóni að
uppfærslum með nýjustu eiginleikum og endurbótum. Lítilli skrá með upplýsingum
um nýjustu útgáfu Silverlight verður hlaðið niður í tölvuna þína og
upplýsingarnar bornar saman við núverandi útgáfu. Ef nýrri útgáfa er í boði
verður hún sótt og sett upp í tölvunni. Þú getur slökkt á uppfærslum eða
grunnstillt þær í grunnstillingarverkfæri Silverlight.

DRM-vörn (Digital Rights Management). Silverlight notar DRM-tækni (Digital
Rights Management) frá Microsoft til að verja réttindi eigenda efnis. Ef þú
opnar DRM-varið efni (t.d. tónlist eða myndband) með Silverlight biður forritið
um notkunarréttindi frá réttindaþjóni á netinu. Til að tryggja hnökralausa
spilun færðu ekki kvaðningu fyrr en Silverlight sendir beiðnina til
réttindaþjónsins. Þegar beðið er um notkunarréttindi gefur Silverlight
réttindaþjóninum upp auðkenni fyrir DRM-vörðu skrána og grunnupplýsingar um
tækið þitt, þ.m.t. gögn um DRM-íhluti í tækinu, t.d. endurskoðunar- og
öryggisstig, og einkvæmt kennimerki fyrir tækið þitt.

DRM-uppfærslur. Í sumum tilvikum þarf að uppfæra Silverlight eða DRM-íhluti í
tækinu til að geta opnað DRM-varið efni. Þegar þú reynir að spila efni sem
krefst uppfærslu á DRM mun Silverlight senda beiðni til miðlara Microsoft sem
inniheldur grunngögn um tækið þitt, þar með talið upplýsingar um DRM-íhluti í
tölvunni þinni eins og endurskoðunar- og öryggisstig, bilanaleitargögn og
einkvæmt kenni fyrir tækið þitt. Microsoft-miðlarinn notar þetta kenni til að
skila einkvæmri DRM-uppfærslu fyrir tækið þitt, sem Silverlight setur síðan upp.
Þú getur slökkt á eða grunnstillt uppfærslur á DRM-íhlutum á flipanum Spilun í
grunnstillingarverkfæri Silverlight.

Fara aftur efst

WINDOWS MIXED REALITY

Windows Mixed Reality gerir þér kleift að virkja sýndarveruleikaupplifun sem
sökkvir þér í forrit og leiki. Mixed Reality nýtir myndavélar, hljóðnema og
innrauðan skynjara úr samrýmanlegu höfuðtóli til að virkja hreyfingar og rödd
til að stjórna leikjaspilun og fara á milli forrita og leikja.

Microsoft notar greiningargögn til að leysa vandamál og halda Mixed Reality sem
keyrt er af Windows öruggu, uppfærðu og til að það starfi á réttan hátt.
Greiningargögn hjálpa okkur einnig að bæta Mixed Reality og tengdar vörur og
þjónustu Microsoft eftir þeim greiningargagnastillingum sem þú valdir fyrir
tækið þitt.  Frekari upplýsingar um greiningargögn Windows.

Mixed Reality vinnur einnig úr og safnar gögnum sem tengjast upplifun af Mixed
Reality sérstaklega, eins og:

 * Mixed Reality reiknar út fjarlægðir milli liðamóta í líkama þínum til að búa
   til hermimynd af þér. Sért þú tengd/ur við netið söfnum við þessum tölugildum
   til að virkja og bæta upplifun þína.
 * Mixed Reality nemur einnig tilteknar handahreyfingar sem ætlað er að
   framkvæma einföld kerfissamskipti (eins og skoða valmynd, auka/minnka aðdrátt
   og fletta). Þessi gögn eru unnin í tölvunni þinni og ekki geymd.
 * Hljóðnemar í heyrnartólunum virkja raddskipanir ætlaðar stjórnun leikja,
   forrita eða til að slá inn leitarorð.  Frekari upplýsingar um
   raddgagnasöfnun.
 * Einnig er hægt að nota Windows Mixed Reality til að eiga samskipti með hljóði
   og mynd gegnum þjónustu á borð við Skype.

Sýna yfirlit Frekari upplýsingar

Fara aftur efst

Aftur efst
Afþökkunartákn fyrir persónuverndarval þitt Persónuverndarval þitt
Afþökkunartákn fyrir persónuverndarval þitt Persónuverndarval þitt Persónuvend
vegna heilsufars neytenda
 * Hafa samband
 * Persónuvernd
 * Stjórna kökum
 * Notkunarskilmálar
 * Vörumerki
 * Um auglýsingar okkar
 * © Microsoft 2024