www.helgi.is Open in urlscan Pro
185.112.145.201  Public Scan

URL: http://www.helgi.is/
Submission: On December 02 via api from US — Scanned from IS

Form analysis 2 forms found in the DOM

GET http://www.helgi.is

<form class="form" action="http://www.helgi.is" id="searchform" method="get">
  <div>
    <label for="s" class="screen-reader-text">Search for:</label>
    <div class="col-8"><input type="search" id="s" name="s" value="" placeholder="Leitarorð"></div>
    <div class="col-4"><input type="submit" value="Leita" class="btn btn-primary" id="searchsubmit"></div>
  </div>
</form>

GET http://www.helgi.is

<form role="search" method="get" class="wpr-search-form" action="http://www.helgi.is"><label><input type="search" class="wpr-search-field" placeholder="Leita..." value="" name="s" title="Search for:"></label></form>

Text Content

Helgi Hjörvar




 * Um Helga Hjörvar
 * Hafa samband


STÓRKOSTLEGUR ÁRANGUR

9 september, 2016 — Blaðagreinar

Þegar við fyrir átta árum gengum í þingsal að hlusta á stefnuræðu Geirs Haarde
var dökkt og dimmt úti. Þegar við gengum svo út aftur í skugga hrunsins hafði
snjór lagst eins og teppi yfir allt og kominn hvítur kaldur vetur.

Olíuskipið í Stavanger fékkst ekki afgreitt, lyfjaskammtar voru afhentir til
skemmri tíma í senn, Íslendingar erlendis áttu í erfiðleikum með framfærslueyri,
Seðlabankinn tæknilega gjaldþrota, bankakerfið hrunið og enginn vildi lána
Íslandi. Í kjölfarið annað hvert fyrirtæki landsins gjaldþrota og tugþúsundir
heimila í uppnámi. Atvinnuleysi. Hættan stærst sú að ekkert byðist annað en
okurvextir sem jafnharðan ætu þau verðmæti sem við sköpuðum. Fátæktargildra.

Þúsundir þrekvirkja

Aðeins átta árum síðar hefur vinnuafl skort lengi, Ísland er að verða nettó
eignaland sem á meira í útlöndum en það skuldar, staða heimila og fyrirtækja
gjörbreytt og vöxtur verið viðvarandi um árabil. Svolítið skemmtilegt að hugsa
um að við sem oft belgjum okkur yfir litlu höfum enn ekki metið að verðleikum
þann gríðarlega árangur sem við höfum náð.

Um allt land unnu fólk og fyrirtæki þúsundir þrekvirkja. Greiðslumiðlun varin,
viðskiptasamböndum haldið opnum, fyrirgreiðslu aflað, velferðarþjónustu haldið
uppi gegnum erfiðan niðurskurð, fjárhagur fjölda fyrirtækja og heimila
endurreistur o.s.frv. Á spítölum, leikskólum, fyrirtækjum, heimilum voru
tugþúsundir að vinna hvert þrekvirkið af öðru sem saman skópu árangurinn. Og þó
við hefðum öll viljað gera betur og hraðar er þrekvirkið samt.

Í minn hlut kom að flytja frumvarp til síðari neyðarlaganna, lög sem læstu
erlenda kröfuhafa inni. Það tókst á einu kvöldi með samstilltu átaki fjölda
fólks. Það byggði á vinnu enn fleiri við undirbúning, en skilaði fyrst árangri
eftir þrotlausa vinnu stórra hópa við framkvæmd laganna. Þar er kominn tími til
að segja sem er að rétt eins og fólk í fjármálakerfinu gerði mörg mistök fyrir
hrun gerði það margt mjög vel  eftir það.

Nýtt upphaf

Hægri öflunum tókst ekki að einkavæða bankana á kjörtímabilinu sem nú er að
ljúka, þrátt fyrir stóran þingmeirihluta. Heldur ekki spilla aðildarviðræðum,
eyðileggja rammaáætlun um náttúruvernd né afhenda kvótann um alla framtíð í
samningum við sægreifana. Þess vegna höfum við tækifæri í kosningunum til að
leggja stóru línurnar um framtíðina. Öllu skiptir að efnahagslegur árangur okkar
verði ekki aftur eyðilagður með nýfrjálshyggju og skammsýni ört vaxandi
misskiptingar eins og 2007. Efnahagslegan árangur okkar treystum við best með
varanlegum, róttækum kerfisbreytingum um aukið lýðræði, heilbrigðara bankakerfi,
aukinn jöfnuð og opinbert velferðarkerfi. Aldrei aftur 2007.

 

Greinin birtist upphaflega í Morgunblaðinu 9. september 2016.


HÚSNÆÐISMÁL UNGS FÓLKS Í FORGANG

7 september, 2016 — Myndbönd


 

Unga fólkið núna er fyrsta kynslóðin sem býr við lakari kjör en kynslóðirnar á
undan.

Ástandið á húsnæðismarkaðnum og kjör þeirra á vinnumarkaði eru að skapa þeim
erfiðari skilyrði heldur en við sem á undan vorum höfðum.

Sem jafnaðarmenn þá þurfum við að taka á þessu og ekki síst húsnæðismál unga
fólksins verða að vera í algjörum forgangi á nýju kjörtímabili.


SÆKIST EFTIR 1. SÆTI Í PRÓFKJÖRI SAMFYLKINGARINNAR Í REYKJAVÍK

4 september, 2016 — Samfylkingin

Með bréfinu sem hér fer á eftir gerði ég völdum félögum í Samfylkingunni grein
fyrir framboði mínu í 1. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík þann 10.
september næstkomandi:

Kæri félagi!

Kjör aldraðra og öryrkja, heilbrigðismálin og húsnæðismál ungu kynslóðarinnar
verða kjarnamál í komandi kosningum. Þau eru jafnframt þungamiðjan í
stjórnmálaþátttöku minni frá upphafi. Ég hef þess vegna ákveðið að sækjast eftir
1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fer fram nú fimmtudag til laugardags
og leiða þannig annað kjördæmið í Reykjavík.

Ég þakka þann góða stuðning sem ég naut í formannskjöri í vor. Þó öðrum hafi
verið falið það vandasama verkefni var mér heiður að hátt í þúsund flokksmenn
skyldu vilja treysta mér fyrir því. Nú skiptir miklu að við stöndum öll að baki
nýrri forystu því samstaða er lykill að árangri fyrir Samfylkinguna.

Samstaða okkar í stjórnarandstöðunni skapar sterka stöðu og sóknarfæri á nýju
kjörtímabili. Hægri stjórnin hefur engum verulegum kerfisbreytingum náð fram og
hrökklast nú frá að eigin ósk áður en kjörtímabilinu er lokið. Fjölmörg
baráttumál okkar eru líka hugsjónamál annarra í stjórnarandstöðunni og flest sem
bendir til að saman getum við náð meirihluta til að gera þau að veruleika.

Ég hef kosið að opna ekki prófkjörsskrifstofu, úthringiver eða annað þess háttar
til að gefa nýju fólki svigrúm til að kynna sig og sjónarmið sín, því þó reynsla
sé nauðsynleg er nýliðun það líka. Sjálfur bið ég um stuðning þinn til að leiða
í fyrsta sinn framboð Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Ég
heiti þér því að gera allt sem í mínu valdi stendur til að hér taki við stjórn
landsins ríkisstjórn um jöfnuð og velferð með aðild okkar.

Bréf þetta sendi ég völdum hópi Samfylkingarfólks. Ég minni okkur á að ítrekað
höfum við bætt við okkur á annan tug prósentustiga frá könnunum til kosninga.
Aðeins tvö ár eru síðan 32% Reykvíkinga settu x við S. Það var fólkið í
Samfylkingunni sem náði þeim árangri með samstilltu átaki.

Með baráttukveðju,

Helgi Hjörvar


RÍKISSTJÓRN GÓÐA FÓLKSINS

4 september, 2016 — Blaðagreinar

Merkileg tímamót hafa orðið í stjórnmálum í sumar. Stór þingmeirihluti hægri
manna hefur sjálfur gefist upp, stytt eigið kjörtímabil og boðað til kosninga.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur klofnað því kjósendur hans og þungavigtarfólk unir
ekki afturhaldssemi og einangrunarhyggju sem þar hefur orðið ofan á og kallar á
Viðreisn. Forystukonur þriggja flokka, Samfylkingar, Pírata og VG, hafa útilokað
samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn að loknum kosningum. VG hefur tekið vel í
uppboðsleið í kvótamálum, sem verið hefur stefna Samfylkingarinnar og nú einnig
Pírata.

Tækifæri
Í þessu felast gríðarleg tækifæri til málefnalegra framfara í landinu. Fyrst og
fremst felast þau í kosningunum sjálfum og þeim skýru valkostum sem þar verða.
Annars vegar framhald núverandi stjórnarstefnu með ríkisstjórnarflokkunum, hins
vegar öfl sem eiga sameiginleg fjölmörg hugsjónamál um gjörbreyttar áherslur. Þó
flokkar í framboði geti orðið margir og stjórn fjölflokka skrifar málefnaskráin
sig nánast sjálf.

Stóru málin
Efling Landspítala og annarrar opinberrar heilbrigðisþjónustu, ásamt takmörkunum
á kostnaði sjúklinga, verður stærsta málið. Stóraukið framboð af góðu húsnæði á
sanngjörnum kjörum fyrir ungt fólk kemur þar næst og knýjandi þörf er á ný fyrir
félagslegar lausnir í húsnæðismálum. Þriðja stóra velferðarverkefnið verður
einföldun almannatrygginga og trygging fyrir því að öryrkjar og aldraðir njóti
sömu kjarabóta og aðrir á sama tíma.

Þetta eru fjárfrek verkefni og þess vegna sérstakt fagnaðarefni ef samstaða er
að takast milli stjórnarandstöðuflokka um að ríkið fái eðlilegar tekjur af
auðlindum landsins með uppboðum, því auknar tekjur þar geta staðið undir miklu.
Auk þess er augljós tekjuöflun af ferðamönnum og allra ríkasta fólkinu í landinu
svo misskipting hætti að aukast.

Góðu málin
Fleiri mál eru hins vegar mikilvæg en þau fjárfreku. Stjórnarskráin, friðlýsing
miðhálendisins, bætt samkeppnisstaða skapandi greina, græna hagkerfisins og
annarra vaxtarsprota atvinnulífs, þjóðar­atkvæðagreiðslur, fullgilding
mannréttindasáttmála, afnám málþófs á Alþingi, o.s.frv. o.s.frv. Hér verður
listin sú að takmarka sig því það er grundvallaratriði ef við náum saman
meirihluta að hann ætli sér ekki um of.

Til þess að fullkomna trúverðugan valkost við núverandi stjórn væri brýnt að
segja fólki sem fyrst hvaða verkefni önnur en stóru velferðarmálin verða í
forgangi. Að önnur mál séu ekki í forgangi þýðir ekki að þeim verði ekki hreyft.
Fjölmörg mál eru einfaldlega þannig að ekkert veitir af heilu kjörtímabili til
að undirbúa þau. Enda löngu tímabært að við hugsum til lengri tíma en eins
kjörtímabils í senn.

Skýrir valkostir
Þó ég vilji sameina flokka þarf það ekkert að vera verra að hafa þriggja eða
fjögurra flokka stjórn en tveggja. Undanfarin kjörtímabil hefur sýnt sig að
stórir þingflokkar eru margklofnir, húsbóndavald lítið og ráðherrar valdaminni
en var. Tal um einingu tveggja flokka stjórna er í besta falli lélegur brandari
eftir tvö síðustu kjörtímabil. Hitt væri eftirsóknarvert ef Píratar, Samfylking,
VG og jafnvel fleiri framboð gætu haft sameiginlegar áherslur fyrir kosningar um
verkefnaskrá næsta kjörtímabils. Því kjósendur eiga skilið skýrari valkosti.

Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu 1. september 2016.


TIL HAMINGJU, ODDNÝ

3 júní, 2016 — blog

Oddný Harðardóttir hlaut góða kosningu sem formaður Samfylkingarinnar í dag. Ég
óska henni innilega til hamingju með kjörið og alls velfarnaðar í verkefninu.
Öllum þeim sem studdu mig í framboðinu með ráðum og dáð í stóru og smáu þakka ég
af öllu hjarta.






SÝNUM Í VERKI

28 Maí, 2016 — Blaðagreinar

Þegar þrír af fjórum kjósendum flokks hætta að styðja hann snýst það ekki um
umbúðir heldur innihald, um stefnu og trúverðugleika. Til að snúa vörn í sókn
dugar ekki að tala. Samfylkingin þarf að gera.

Við þurfum að skapa traust með því að segja afdráttarlaust að við munum ekki
mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum bak kosningum. Hann er ósamstarfshæfur
vegna spillingarmála og hefur heitið því að standa gegn öllum kerfisbreytingum.
Það er þess vegna sjálfsagt að eyða efasemdunum sem urðu til 2007 með því að
ákveða strax að kjósi fólk okkur fær það ekki Sjálfstæðisflokkinn.

Stjórnarskrármálið er líka stórt trúverðugleikamál. Við eigum strax að semja við
aðra stjórnarandstöðuflokka um hvernig það verði klárað að kosningum loknum. Svo
við getum með sanni sagt að við höfum fylgt þessu lykilmáli í baráttunni gegn
spillingu og fyrir lýðræði alla leið. Það sé þegar umsamið og lýst því með hvaða
hætti því verði lokið.

Þá eigum við að ná stjórnarandstöðunni saman um fá en skýr sameiginleg loforð
sem verði að veruleika fáum við til þess meirihluta. Fá en skýr – til að skapa
traust á því að þeim megi ná.

Við þurfum líka að henda ýmsum áherslum sem urðu til í bólunni. Sækja nýjan
kraft í grunngildi jafnaðarstefnunnar. Almennt opinbert heilsugæslukerfi og
opinber spítali sem ekki sligar fólk með gjöldum. Félagslegar lausnir í
húsnæðismálum eins og við byggðum upp á síðustu öld, svo sem verkamannabústaðir,
kaupleiga og húsnæðissamvinnufélög. Evran er besta langtímalausnin en við verðum
að horfast í augu við að hún er ekki jafn nærtæk og áður var. Þess vegna þurfum
við að kynna miklu eindregnari stefnu gegn óhóflegum bankakostnaði og okurvöxtum
þangað til evran fæst.

(meira…)


MÍN SÝN Á VERKEFNI NÝS FORMANNS

27 Maí, 2016 — Myndbönd, Samfylkingin




FRAMTÍÐARSTJÓRNIN

25 Maí, 2016 — Blaðagreinar

Samfylkingin var stofnuð til þess að hugsjónin um jöfnuð, frelsi og samábyrgð
yrði sterkt afl í íslensku samfélagi. Hvort sem flokkurinn hefur mælst stór eða
lítill hef ég talað fyrir samstarfi við önnur félagshyggjuöfl. Því að það þarf
meirihluta til að stjórna.

Til að kjósendur hafi skýran valkost er samstaða stjórnarandstöðuflokkanna
mikilvæg fyrir komandi kosningar. Það á ekki að bjóða kjósendum upp á
baktjaldamakk eftir kjördag. Samfylkingin á að segja skýrt að atkvæði greitt
flokknum sé atkvæði með samstarfi við félagshyggjuflokka en ekki við
Sjálfstæðisflokkinn sem er ósamstarfshæfur vegna spillingarmála. Þá þurfum við
að ná saman við aðra fyrir kosningar um hvernig stjórnarskrármálinu verði komið
í heila höfn, svo að því megi treysta að ný ríkisstjórn ljúki því lykilverkefni.

(meira…)


ATHUGASEMD Á ÞINGI: UPP KOMAST SVIK UM SÍÐIR

24 Maí, 2016 — Þingræða

Virðulegur forseti. Upp komast svik um síðir. Umboðsmaður Alþingis var á fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun og upplýsti um að fram kynnu að
vera komin gögn sem færðu okkur heim sanninn um það með hvaða hætti staðið var
að aðkomu þýsks banka að einkavæðingu íslensku bankanna. Þegar fjárlaganefnd
þingsins rannsakaði þetta fyrir um tíu árum síðan voru það þær upplýsingar sem
helst skorti til að hægt væri að afhjúpa það svindl og svínarí sem þar var á
ferðinni.

Það er þess vegna grundvallaratriði og mikilvægasta mál fyrir þingið til að
afgreiða nú, ný löggjöf um rannsóknarnefndir og að skipa í kjölfarið
rannsóknarnefnd til að fara yfir hvaða hlutverk Hauck & Aufhäuser bankinn þýski
gegndi við einkavæðinguna. Það er auðvitað of snemmt að fullyrða um hvaða
upplýsingar það eru eða til hvers þær munu leiða okkur. En við höfum mörg haldið
því fram að ástæða sé til að ætla að þessi þýski einkabanki hafi ekki verið
raunverulegur kaupandi að hlut í Búnaðarbankanum heldur hafi hann verið leppur
fyrir íslenska aðila og að þessi erlenda fjárfesting sem svo var kölluRð og
notuð til að réttlæta að menn gengu að tilboði þessa hóps í bankann hafi ekkert
verið erlend fjárfesting heldur íslenskir peningar og jafnvel bara fengnir að
láni úr sömu ríkisbönkum og verið var að afhenda þeim aðilum. Það er
grundvallaratriði að kostað verði kapps um að upplýsa eins fljótt og verða má
allan almenning í landinu um hvernig þessu var háttað og að sá sem fer í þá
rannsókn fái alla fjármuni og starfsmenn sem hann þarf til að þær (Forseti
hringir.) upplýsingar megi liggja hér á borðum landsmanna sem allra fyrst því að
þarna er kjarnann í samsærinu um einkavæðingu bankanna að finna.

—
Ræða í umræðum um störf þingsins 24. maí 2016


UMRÆÐUR Á ÞINGI: VERÐA KOSNINGAR Í HAUST?

23 Maí, 2016 — Þingræða

Í tíma fyrir óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi 23. maí 2016 tók ég umræðu við
Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, um hvort
ætlunin væri að efna fyrirheit um þingkosningar í haust. Tilefni
fyrirspurnarinnar voru óvæntar yfirlýsingar formanns Framsóknarflokksins. Öll
umræðan er hér en texti með mínu framlagi til hennar er hér að neðan:

Fyrri ræðan:

Virðulegur forseti. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa ítrekað gefið út
um það yfirlýsingar að gengið verði til kosninga í haust. Síðari hluti
októbermánaðar hefur þar verið nefndur, en nú spyr ég: Má treysta því að þær
yfirlýsingar standi? Ástæðan fyrir því að ég spyr er sú að formaður
Framsóknarflokksins, sem nýkominn er úr leyfi, gaf út opinberar yfirlýsingar um
það í gær að ekki væri nauðsynlegt að ganga til kosninga í haust. Nú hafa þær
yfirlýsingar bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra verið nokkuð
afdráttarlausar. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur lýst því yfir að þetta
kjörtímabil verði stytt um eitt þing og meðan formaður Framsóknarflokksins var í
leyfi hefur hér verið afgreitt stærsta húsnæðismálið, sem var mál sem brann mjög
á Framsóknarflokknum að þyrfti að ljúka. Í gær lukum við aflandskrónumálinu sem
fjármálaráðherra hafði lagt ríka áherslu á.

Ég spyr þess vegna hvort við megum ekki treysta því að sú starfsáætlun sem lögð
hefur verið og þau áform að efna til kosninga í haust standist. Það er mikilvægt
fyrir starfið í þinginu en það er líka mikilvægt fyrir lýðræðislegt starf utan
þingsins og undirbúning flokka, bæði sem eru á þingi og eru utan þings, um
framboð og aðra slíka hluti og nauðsynlegt er að hæstv. fjármálaráðherra taki af
öll tvímæli um hvaða fyrirætlanir eru uppi.

(meira…)

« Eldri færslur



VIÐ JAFNAÐARMENN GETUM UNNIÐ SAMAN




SKIPTIR SKÖPUM UM HAGSMUNI FATLAÐS FÓLKS




Á FACEBOOK




EFNISORÐ

almannahagsmunir Alþingi atvinnumál Bankar efnahagsmál einkavæðing fatlaðir
ferðaþjónusta fjármálakerfið forgangsröðun formannskosning Fréttablaðið
fyrirspurn gagnsæi gjaldmiðill heilbrigðismál heilsugæsla heimili Hrunið
húsnæðismál jafnaðarmenn jafnaðarstefnan jafnræði jöfnuður kosningar Landspítali
launafólk leigjendur lýðræði menntamál Panamaskjölin Samfylkingin
skattgreiðendur Skuldamál Spilling stjórnarandstaða stjórnarskrá sérhagsmunir
Umboðsmaður Alþingis umhverfismál velferð Verðtryggingin vextir þingstörf
þjóðaratkvæði
Search for:





SARPURINN

 * september 2016
 * júní 2016
 * Maí 2016
 * apríl 2016
 * mars 2016
 * febrúar 2016
 * nóvember 2015
 * mars 2015
 * október 2014
 * september 2014
 * júní 2014
 * apríl 2014
 * mars 2014
 * nóvember 2013
 * október 2013
 * september 2013
 * apríl 2013
 * febrúar 2013
 * nóvember 2012
 * október 2012
 * september 2012
 * júní 2012
 * Maí 2012
 * apríl 2012
 * mars 2012
 * mars 2011
 * nóvember 2010
 * júní 2010
 * Maí 2010
 * október 2009
 * apríl 2009
 * mars 2009
 * febrúar 2009
 * janúar 2009
 * desember 2008
 * nóvember 2008
 * október 2008
 * september 2008
 * ágúst 2008
 * júlí 2008
 * júní 2008
 * Maí 2008
 * apríl 2008
 * mars 2008
 * febrúar 2008
 * janúar 2008
 * desember 2007
 * nóvember 2007
 * október 2007
 * Maí 2007
 * apríl 2007
 * mars 2007
 * febrúar 2007
 * janúar 2007
 * desember 2006
 * nóvember 2006
 * október 2006
 * september 2006
 * ágúst 2006
 * júní 2006
 * febrúar 2006
 * janúar 2006



©2022 Helgi Hjörvar

Vefstofan


Valmynd
 * Forsíða
 * Sample Page
 * Um Helga Hjörvar