passat.bjornsnorri.is Open in urlscan Pro
93.95.229.18  Public Scan

URL: https://passat.bjornsnorri.is/
Submission: On September 13 via api from US — Scanned from IS

Form analysis 0 forms found in the DOM

Text Content

Skip to content
 * 2012 VW Passat B7


2012 VW PASSAT B7

TSI 1.4 ECOFUEL METAN OG BENSÍN

Bíllinn er staðsettur á Sauðárkróki þar sem að eitthvað fór í gírkassanum við
Varmahlíð á leiðinni í útilegu í lok júlí. Ég náði að hiksta bílnum inn á stæði
hjá Olís þaðan sem hann var sóttur. Hann virðist vera fastur í öðrum gír. Ég bý
í Reykjavík og myndi vilja sleppa við að koma bílnum í bæinn með tilheyrandi
kostnaði. Bíllinn er keyrður 178.397km.

Bakkað var á framstuðarann þ.a. það stóð til að hann yrði lagaður gegnum
tryggingar en varð ekki úr fyrir ferðalagið. Hægt er að athuga að fá greiddar
tryggingar fyrir hann en ég er búinn að leggja númeraplötunum þ.a. ég veit
svosem ekki hvernig það gengi fyrir sig.

Vélin virðist vera í lagi, ég var nýbúinn að skipta um öll kertin og
háspennukefli á cylinder 4 sem sýndi misfire en er komið í lag. Við
bilanagreiningu sem ég gerði á staðnum koma nú í ljós misfire á cylindrum 1, 2
og 3, eitthvað sem birtist fyrst þá. Einnig er ABS sensorinn að aftan hægra
meginn bilaður sem skilar ýmsum villum út frá sér.

Bilanagreininguna má skoða með því að smella hér. Nánari upplýsingar um
bilanakóða er hægt að finna neðar á hlekknum með því að smella á viðkomandi
part.

Skipt var um bremsur að aftan fyrir rúmu ári ásamt stýrisbúnað. Nýleg
heilsársdekk.

Á myndunum má sjá að ég gerði tilraunir til að laga ryðbletti í fyrra sumar,
pússaði niður, notaði ryðbreyti, grunnaði, spreyjaði og lakkaði með tveggja
þátta glæru með misjöfnum árangri. Ætlunin var að massa svo hluta þá hluta af
bílnum, þ.á.m. húddið sem heppnaðist sæmilega að spreyja en ekkert varð úr því
þ.a. áferðin er misjöfn.



Björn Snorri Rosdahl
823-5152

2024