cpanel.64-227-44-19.cprapid.com Open in urlscan Pro
64.227.44.19  Public Scan

Submitted URL: http://cpanel.64-227-44-19.cprapid.com/index.php/um-utlendingastofnun/greinar
Effective URL: https://cpanel.64-227-44-19.cprapid.com/index.php/um-utlendingastofnun/greinar
Submission: On October 30 via api from US — Scanned from GB

Form analysis 1 forms found in the DOM

POST /index.php/um-utlendingastofnun/greinar

<form class="form-search" action="/index.php/um-utlendingastofnun/greinar" method="post">
  <div class="search">
    <label for="mod-search-searchword">Search...</label><i class="fa fa-search"></i><input name="searchword" id="mod-search-searchword" maxlength="200" class="form-control " type="text" size="20"> <input type="hidden" name="task" value="search">
    <input type="hidden" name="option" value="com_search">
    <input type="hidden" name="Itemid" value="1057">
  </div>
</form>

Text Content

SIDEBAR

×

 * 
 * 

Search...
 * Heim
 * Um Útlendingastofnun
   * Útlendingastofnun
   * Skipurit
   * Fréttir
   * Greinar
   * Tölfræði
     * Tölfræði leyfasviðs
     * Tölfræði verndarsviðs
   * Ársskýrslur
   * Gjaldskrá
   * Eyðublöð
   * Afgreiðslutími
   * Samstarfssamningar
   * Lög og reglugerðir
   * Algengar spurningar
   * Hafa samband
   * Launastefna
   * Jafnlaunastefna
 * Eyðublöð
 * Afgreiðslutími
 * Algengar spurningar
 * Hafa samband
 * Lög og reglugerðir
 * Tölfræði
   * Tölfræði leyfasviðs
   * Tölfræði verndarsviðs

 * Heim
 * Um Útlendingastofnun
    * Útlendingastofnun
    * Skipurit
    * Fréttir
    * Greinar
    * Tölfræði
       * Tölfræði leyfasviðs
       * Tölfræði verndarsviðs
   
    * Ársskýrslur
    * Gjaldskrá
    * Eyðublöð
    * Afgreiðslutími
    * Samstarfssamningar
    * Lög og reglugerðir
    * Algengar spurningar
    * Hafa samband
    * Launastefna
    * Jafnlaunastefna

 * Eyðublöð
 * Afgreiðslutími
 * Algengar spurningar
 * Hafa samband
 * Lög og reglugerðir
 * Tölfræði
    * Tölfræði leyfasviðs
    * Tölfræði verndarsviðs

 1. 
 2. Heim
 3. Um Útlendingastofnun
 4. Greinar


ENGINN SENDUR TIL GRIKKLANDS Á GRUNDVELLI DYFLINNARSAMSTARFSINS

Details 11 Nóv. 2019

Vegna frétta af ástandinu í flóttamannabúðum í Grikklandi vill Útlendingastofnun
árétta að endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til Grikklands frá
Íslandi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar var hætt árið 2010 þar sem
aðstæður í gríska hæliskerfinu voru taldar ófullnægjandi. Stofnunin hefur á
undanförnum árum fylgst náið með aðstæðum á Grikklandi og enn sem komið er hefur
ekki verið talin ástæða til að endurskoða framangreinda afstöðu.

Dyflinnarsamstarfið nær ekki til málsmeðferðar umsókna um vernd frá
einstaklingum sem þegar hefur verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki.
Endursendingum þeirra sem fengið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hefur ekki
verið hætt en þær eiga sér aðeins stað að undangengnu einstaklingsbundnu mati á
aðstæðum umsækjanda.


ALMENNT UM DYFLINNARSAMSTARFIÐ

Ísland er aðili að Dyflinnarsamstarfinu en í því taka þátt öll 28 aðildarríki
Evrópusambandsins auk Noregs, Íslands, Sviss og Lichtenstein. Markmið
samstarfsins er að tryggja að eitt aðildarríki sé ábyrgt fyrir meðferð umsóknar
um alþjóðlega vernd og tryggja þannig skjótan aðgang umsækjandans að málsmeðferð
þar sem tekin er afstaða til þess hvort hann eigi rétt á alþjóðlegri vernd.

Til að ná því markmiði setur svokölluð Dyflinnarreglugerð, sem hefur lagagildi í
öllum aðildarríkjunum, fram ákveðin viðmið sem ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á
meðferð umsóknar. Komi í ljós að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi áður sótt
um alþjóðlega vernd í öðru ríki er kannað hvort það ríki beri ábyrgð á meðferð
umsóknarinnar.

Í hverju máli fer jafnframt fram sjálfstæð rannsókn á því hvort viðtökuríkið
geti staðið við skuldbindingar sínar til að tryggja umönnun og málsmeðferð
umsækjandans, áður en ákvörðun er tekin. Ef niðurstaða þeirrar rannsóknar er að
réttindi umsækjandans séu ekki tryggð í viðtökuríkinu, tekur Útlendingastofnun
yfir málsmeðferðina.


ENGAR ENDURSENDINGAR Á GRUNDVELLI DYFLINNARREGLUGERÐARINNAR TIL GRIKKLANDS OG
UNGVERJALANDS

Endursendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til Grikklands frá Íslandi á
grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar var hætt árið 2010 vegna þess að aðstæður í
gríska hæliskerfinu voru taldar ófullnægjandi. Enn sem komið er hefur ekki verið
talin ástæða til að endurskoða þá afstöðu. Hinn 15. október 2015 ákvað
Útlendingastofnun jafnframt að láta af endursendingum umsækjenda um alþjóðlega
vernd til Ungverjalands. Var það gert í ljósi mikils og skyndilegs álags á
hæliskerfi landsins og vegna gagnrýni á aðstæður umsækjenda um vernd þar í
landi.

Útlendingastofnun hefur síðan þá tekið þær umsóknir um alþjóðlega vernd sem
þessi lönd bera ábyrgð á samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni til efnislegrar
meðferðar hér á landi og veitt þeim alþjóðlega vernd sem á henni hafa þurft að
halda.


EINSTAKLINGAR SEM ÞEGAR HAFA FENGIÐ ALÞJÓÐLEGA VERND

Dyflinnarsamstarfið nær ekki til málsmeðferðar umsókna um vernd frá
einstaklingum sem þegar hefur verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki.
Endursendingum þeirra sem fengið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hefur ekki
verið hætt en þær eiga sér þó aðeins stað að undangengnu einstaklingsbundnu mati
á aðstæðum umsækjanda.

Mikilvægt er að gera greinarmun á þessum tveimur hópum og athuga að á meðan
umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa ekki fengið svar við umsókn sinni og dvelja
langflestir í flóttamannabúðum við erfið skilyrði þá hafa þeir sem veitt hefur
verið alþjóðleg vernd í Grikklandi fengið útgefin dvalarleyfi með þeim réttindum
sem þeim fylgja.


FÓLK EKKI SENT Í HÆTTU

Sé ástæða til að ætla að umsækjandi yrði í hættu eða hans bíði á annan hátt
óviðunandi aðstæður í því landi sem hann skal endursendur til eða ef ekki er
talið öruggt að hann verði sendur áfram þaðan í slíkar aðstæður kemur ekki til
greina að vísa umsækjanda til viðkomandi ríkis.

Um þetta er fjallað í 42. gr. útlendingalaga og í framkvæmd Útlendingastofnunar
er gætt að aðstæðum í því ríki sem umsækjandi skal sendur til og aðstæður hvers
umsækjanda athugaðar sérstaklega. Á það við hvort sem um er að ræða synjanir um
alþjóðlega vernd, mál þar sem umsækjanda hefur þegar verið veitt alþjóðleg vernd
í öðru ríki eða umsóknir sem afgreiddar eru á grundvelli
Dyflinnarreglugerðarinnar.


FLEIRI GREINAR...

 1. Umsóknir barna um alþjóðlega vernd
 2. Aldursgreiningar umsækjenda um alþjóðlega vernd
 3. Samantekt á umbótaverkefni Flóttamannastofnunar og Útlendingastofnunar
 4. Um endursendingar
 5. Samantekt um hælisumsóknir fólks frá Albaníu

Síða 1 af 8
 * Fyrsta
 * Fyrri
 * 1
 * 2
 * 3
 * 4
 * 5
 * 6
 * 7
 * 8
 * Næsta
 * Síðasta

 * Útlendingastofnun
 * Skipurit
 * Fréttir
 * Greinar
 * Tölfræði
   * Tölfræði leyfasviðs
   * Tölfræði verndarsviðs
 * Ársskýrslur
 * Gjaldskrá
 * Eyðublöð
 * Afgreiðslutími
 * Samstarfssamningar
 * Lög og reglugerðir
 * Algengar spurningar
 * Hafa samband
 * Launastefna
 * Jafnlaunastefna


TENGLAR

 * Dómsmálaráðuneytið
 * Kærunefnd útlendingamála
 * Rauði krossinn
 * Fjölmenningarsetur
 * Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
 * Mannréttindaskrifstofa
 * Vinnumálastofnun
 * Þjóðskrá
 * Persónuvernd


UPPLÝSINGAR

 * Útlendingastofnun
 * Dvalarleyfi
 * Áritanir
 * Ríkisborgararéttur
 * Alþjóðleg vernd


OPNUNARTÍMI

Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

Sími: 444 0900

Netfang: utl@utl.is


STAÐSETNING



Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | Sími: 444 0900 | Netfang:
utl@utl.is